Morgunblaðið - 15.11.2002, Qupperneq 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 33
BÓKSALA Björns H. Jónssonar
efnir til útsölu á gömlum bókum af
margvíslegum toga í húsnæði bóka-
verslunarinnar á Hjarðarhaga 24.
Verður útsalan opnuð kl. 14 í dag
og stendur næstu viku.
Fornbókasala Björns H. Jóns-
sonar fagnar sjö ára afmæli sínu í
dag, en hún hefur verið starfandi á
Hjarðarhaganum frá árinu 1995. Á
útsölunni verður hægt að kaupa
bækur fyrir tvö til þrjú hundruð
krónur, en þær eru flokkaðar eftir
verði. Til sölu eru þýddar og ís-
lenskar bækur, um margvísleg efni,
barnabækur, skáldrit og bækur al-
menns efnis.
Björn H. Jónsson segist hafa
ákveðið að efna til útsölunnar til að
fagna afmæli verslunarinnar.
„Ég hef safnað bókum og tímarit-
um um fjörutíu ára skeið. Eftir að
ég byrjaði að selja úr þessu safni
hefur fólk verið að láta mig hafa
bækur sem það vill losa sig við og
hef ég séð um að koma þeim í verð.
Ég get selt bækurnar tiltölulega
ódýrt, þar sem ég þarf ekki að
leggja á bækurnar nema sem nem-
ur rekstrarkostnaði verslunar-
innar. Þetta eru allt bækur og blöð
sem ég hef fengið gefins. Nú er lag-
erinn orðinn svo stór hjá mér að ég
ákvað að efna til þessarar útsölu
fyrir jólin,“ segir Björn.
Grúskað í bókabunkum
„Ég hef komið bókunum fyrir á
fimm borðum, sem eru misjafnlega
verðlögð og getur fólk grúskað í
bókabunkunum þar. Verðmætari
bækur og tímarit eru síðan í hillum
og geta gestir einnig skoðað þær,
eða lagt inn fyrirspurnir og pant-
anir,“ segir Björn H. Jónsson forn-
bókasali í Vesturbænum.
Morgunblaðið/Kristinn
Björn H. Jónsson, fornbókasali í Vesturbænum, efnir til útsölu sem verður
opnuð í dag. Hann hefur safnað bókum og tímaritum í hartnær 40 ár.
Bókaútsala á
Hjarðarhaganum
Nútímadanshátíð stendur nú yfir í
Tjarnarbíói og hefst flutningurinn
kl. 20.30. Flutt verða tvö verk:
Rosered eftir Jóhann Frey Björg-
vinsson og Í draumi eftir Nadia
Katrínu Banine.
Goethe-Zentrum, Laugavegi 18
Þýski rithöfundurinn Dieter Well-
ershoff les úr nýrri skáldsögu sinni,
Liebeswunsch, kl. 20. Bókin kom út
árið 2000 og ári seinna kom út rit-
gerð hans Der verstörte Eros. Zur
Literatur des Begehrens sem er
fræðilegt svar við skáldsögunni.
Hann les einnig úr henni. Well-
ershoff er fæddur í Neuss í Rín-
arhéraði 1925. Hann hefur skrifað
skáldsögur, smásögur, ritgerðir, út-
varpsleikrit og kvikmyndahandrit
og hlaut árið 1988 Heinrich Böll-
bókmenntaverðlaunin fyrir verk sín.
Wellershoff var um langt árabil rit-
stjóri hjá forlaginu Kiepenheuer &
Witsch í Köln þar sem hann hafði
m.a. umsjón með heildarútgáfu á
verkum Gottfrieds Benns.
Á íslensku hefur komið út ein smá-
saga eftir Wellershoff, í safnritinu
„Sögur frá Þýskalandi“ sem kom út
hjá Máli og menningu 1994.
Anna Pálína Árnadóttir heldur tón-
leika í Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
20.30. Með henni leika Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, Gunnar Gunn-
arsson og Jón Rafnsson.
Flutt verður ljóða- og tónleika-
dagskrá og þar koma m.a. við sögu
lög af geislaplötu Önnu Pálínu Guð
og gamlar konur. Flestir textanna
eru eftir Aðalstein Ásberg, en hann
mun einnig flytja nokkur ljóð úr bók
sinni Sagði mamma.
Björn Þór Björnsson opnar ljós-
myndasýningu í Galleríi Nema hvað,
Skólavörðustíg kl. 20. Björn nemur
grafíska hönnun við Listaháskóla Ís-
lands og er þetta hans þriðja einka-
sýning. Myndirnar eru svart/hvítar
og sýna augnablik innanlands og ut-
an sem hafa fangað auga ljósmynd-
arans.
Sýningin stendur til 21. nóvember
og verður opin kl. 15-17 frá sunnu-
degi til og með fimmtudegi.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
ÁTTUNDA starfsár Richard Wagn-
er-félagsins á Íslandi er gengið í
garð. Fyrsta myndbandssýning
vetrarins verður á morgun, laugar-
dag, kl. 13, í Norræna húsinu en þá
verður sýnd ópera Wagners,
Lohengrin. Sýnd verður uppfærsla
Metropolitan-óperunnar í New York
frá árinu 1986 í leikstjórn August
Everding. Hljómsveitarstjóri er
James Levine. Í titilhlutverkinu er
tenórsöngvarinn Peter Hofman.
Önnur hlutverk skipa Eva Marton,
Leif Roar, John Macurdy og Leonie
Rysanek.
Sýningin er með enskum skjá-
texta. Aðgangur er ókeypis.
Á dagskrá félagsins í vetur verða
m.a. myndbandskynningar á óper-
unum Lohengrin og Tristan og Is-
olde í Norræna húsinu. Reynir Ax-
elsson mun flytja þriðja fyrirlestur
sinn í röðinni „Æskuverk Wagners“
og óperuna Rienzi. Auk þess verður
sérstök dagskrá tileinkuð sambandi
Richards Wagner og Lúðvíks II,
konungs af Bæjaralandi. Um
páskana verður efnt til hópferðar til
Parísar til að sjá óperuna Parsifal,
en þar munu Íslendingarnir Kristinn
Sigmundsson og Guðjón Óskarsson
verða í stórum hlutverkum.
Félagið hefur árlega sent ungan
söngvara eða tónlistarmann sem sér-
stakan styrkþega á Bayreuthhátíðin
í því skyni að kynnast verkum
Wagners í sínu kjörumhverfi. Styrk-
þegar hafa m.a. verið Anna M.
Magnúsdóttir, Tómas Tómasson og
Árni Heimir Ingólfsson og Jónas
Guðmundsson.
Félagsmenn eru nú 160 og hefur
formaður verið frá upphafi Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari.
Lohengrin sýnd í
Norræna húsinu
BRESKI píanóleikarinn Simon
Marlow heldur einleikstónleika í
Norræna húsinu í kvöld kl. 20. Hann
flytur verk eftir Scarlatti, Haydn,
Schubert, Debussy og Ravel.
Simon Marlow hefur komið fram
sem einleikari og undirleikari víða
um heim. Hann hefur m.a. leikið með
skosku Kammersveitinni, unnið fyr-
ir BBC, leikið undir með lágfiðluleik-
ara Medici kvartettsins, Ivo-Jan van
der Werff, og hafa þeir tekið upp
b-moll sónötu Max Regers og fyrir
skömmu kom út skífa með þeim þar
sem þeir flytja öll verk Arnold Bax
fyrir víólu og píanó. Undanfarin ár
hefur hann leikið undir með þeim
hjónum Sigríði Ellu Magnúsdóttur
mezzósópran og Simon Vaughan,
bassa, á tónleikum víða um Bretland.
Simon hefur áður komið til Íslands
þar sem hann lék undir með nem-
endum á söngnámskeiði á vegum
Sigríðar Ellu Magnúsdóttur.
Simon Marlow er áhugamaður um
guðspeki og mannrækt og mun hann
heimsækja Hallgrím Magnússon
lækni á Djúpavogi og halda tónleika
þar ásamt Berglindi Einarsdóttur og
Birnu Hallgrímsdóttur.
Píanótónleikar
Simons Marlows