Morgunblaðið - 15.11.2002, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 35
miklu mun minna en Reykjagarðs og Móa.
Ísfugl hagnaðist um 14,2 milljónir í fyrra og
skuldir fyrirtækisins námu einungis 110
milljónum. Eigið fé var jákvætt um 63 millj-
ónir.
Framleiðslusprenging í desember
Staða fyrirtækjanna eru núna með þeim
hætti að Íslandsfugl hefur gengið í gegnum
endurfjármögnun. Miklar breytingar hafa
verið gerðar á rekstri Reykjagarðs, en
hlutafé félagsins var aukið þegar SS keypti
það af Búnaðarbankanum. Rekstur Ísfugls
er traustur enda er fyrirtækið gamalgróið
og hefur farið varlega í fjárfestingar. Móar
eru hins vegar þessa dagana að ganga í
gegnum fjárhagslega endurskipulagningu,
og endurskoðandi félagsins tvívegis kallað
eftir slíkri endurskipulagningu.
Fátt bendir til þess að afkoma í kjúk-
lingarækt hafi batnað mikið á þessu ári.
Framan af árinu var framleiðslan í lág-
marki vegna sjúkdóma sem komu upp er-
lendis, en þeir ollu því að tafir urðu á flutn-
ingi erfðaefnis til landsins. Verð á
kjúklingum hefur á síðustu fjórum mánuð-
um lækkað um 12,8%. Ljóst er að fram-
leiðsla á kjúklingum mun aukast talsvert á
næstu vikum og mánuðum og því eru marg-
ir sem spá frekari verðlækkun.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
áætla Móar að setja um 300 tonn af kjúk-
lingum á markað í desember, Reykjagarður
um 200 tonn, Ísfugl um 60 tonn og Íslands-
fugl um 50 tonn. Þetta þýðir að á markaði í
desember verða yfir 600 tonn, en í sept-
ember sl. seldust 415 tonn af kjúklingum
sem var mesta sala í einum mánuði sem um
getur hér á landi. Þess má geta að sala á
kjúklingum er oftast slök í jólamánuðinum.
Á undanförnum misserum hafa Móar,
Reykjagarður og Íslandsfugl staðið í mikl-
um fjárfestingum í kjúklingarækt. Móar
hafa reist sláturhús og eldishús, Reykja-
garður hefur byggt nýtt sláturhús og Ís-
landsfugl hefur byggt sláturhús og eldis-
hús. Framleiðslugetan hefur því stóraukist
og raunar miklu hraðar en markaðurinn.
Framundan er því mikið offramboð á kjúk-
lingum. Framleiðendur berjast mjög harðri
baráttu á markaðinum sem aftur hefur
áhrif á afkomu í öðrum kjötgreinum.
félaginu fjár með lántökum, nýju hlutafé
eða á annan hátt.“
Staðan versnað enn á árinu 2001. Móar,
sem þá höfðu tekið yfir rekstur Ferskra
kjúklinga, töpuðu 241 milljón í fyrra og eig-
ið fé var um síðustu áramót neikvætt um
244 milljónir. Skuldir höfðu aukist úr 762,7
milljónum í 1.222 milljónir, en hafa ber í
huga að búið er að færa skuldir Ferskra
kjúklinga inn í ársreikning Móa.
Í áritun endurskoðenda með reikningn-
um er að finna svipaða athugasemd og gerð
var árið áður: „Forsenda áframhaldandi
rekstrar byggist á verulegum breytingum á
rekstri og fjárhag félagsins, meðal annars
að unnt verði að bæta reksturinn verulega
og afla félaginu fjár með eignasölu, nýju
eigin fé, lántökum eða á annan hátt.“
Íslandsfugl á Dalvík var einnig rekinn
með tapi í fyrra, en tapið nam 54 milljónum.
Um áramót var eigið fé fyrirtækisins já-
kvætt um 76 milljónir. Erfiðleikar í rekstri
fyrr á þessu ári urðu til þess að fyrirtækið
var endurfjármagnað samhliða breyttu
eignarhaldi. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins voru um 200 milljónir afskrif-
aðar í þessum aðgerðum.
Eina fyrirtækið í kjúklingarækt sem var
rekið með hagnaði á síðasta ári var Ísfugl í
Mosfellsbæ, en umsvif fyrirtækisins eru
fé fyrirtækisins um síðustu ára-
eikvætt um 146 milljónir, en var
árslok 2000 um 72 milljónir.
m síðustu áramót námu 689 millj-
Móa er enn verri. 1. september sl.
r Móa og Ferskra kjúklinga ehf.
r. Ferskir kjúklingar stóðu mjög
000, en þá tapaði fyrirtækið 33,4
og eigið fé félagsins var neikvætt
milljónir. Endurskoðandi segir í
fyrir þetta ár: „Forsenda fyrir
andi rekstri byggist á því að unnt
æta reksturinn verulega og afla
&
*%)
$&
+&%
$%
&
%
()
(%&
%*
&&
&$%'
+'(%
+(*%
%$)))
$
' *
)" + $
,$$
-
anna hér á landi er afar slæm um þessar mundir
egol@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
hefði verið sú að þá hefði SS talið stöðu
svínaræktar á Suðurlandi mjög veika.
„Við keyptum hlut í Ferskum kjötvörum
og þar með vorum við komnir í samvinnu
við Vallárfeðga og þá var eðlilegt að það
hæfust viðskipti milli SS og þeirra.“
Steinþór sagði að SS hefði ekki vísað
neinum svínabónda úr viðskiptum, en hins
vegar hefði félagið dregið úr viðskiptum
við svínabúið í Brautarholti, en Kristinn
Gylfi er einn af eigendum þess. „Ástæðan
er einfaldlega sú að Brautarholtsfeðgar
höfnuðu því að fara í samvinnu við okkur
við vinnslu kjötvara og eru í dag annar af
aðalkeppinautum SS. Það er ekki eðlilegt
að menn geti bæði verið einn af okkar að-
alkeppinautum og líka krafist þess að eiga
við okkur innleggsviðskipti. Því höfum við
tímabundið dregið úr viðskiptum við
Brautarholtsbúið,“ sagði Steinþór.
Dæmi um að svínakjöt á Íslandi
sé ódýrara en í Danmörku
Sigmundur E. Ófeigsson, stjórn-
arformaður Íslandsfugla á Dalvík og fram-
kvæmdastjóri Norðlenska, sagðist taka
undir það sem Steinþór Skúlason sagði í
Morgunblaðinu í gær. Allur kjötmarkaður-
inn væri í uppnámi. Ástæðan væri bæði
mikil framleiðsluaukning á kjúklingum og
offramboð og verðlækkun á svínakjöti. Þá
væri að koma fram verðlækkun á kjúkling-
um. Ástandið bitnaði á öllum öðrum kjöt-
greinum, m.a. sölu á lambakjöti. Það væri
alvarlegt, því talsvert hefði verið til af
lambakjöti þegar sláturtíð hófst í haust.
Sigmundur er undrandi á þeirri miklu
aukningu sem yrði í kjúklingarækt í des-
ember, en útlit er fyrir að framleiðslan
verði yfir 600 tonn. Hann benti á að sala á
kjúklingum væri yfirleitt slök í desember.
Almenningur hefði meiri áhuga á að
kaupa hangikjöt og svínakjöt. „Þetta
verða því neytendajól,“ sagði Sigmundur.
Sigmundur sagði að í haust hefðu ís-
lenskir neytendur getað keypt svínabóg á
lægra verði en neytendur í Danmörku.
Svínabændur í Danmörku eru meðal
stærstu svínakjötsframleiðenda í Evrópu.
unum Ali frá Síld & fiski og
Gæða-grís.
Kristinn Gylfi sagðist
telja að jafnvægi væri að
nást í svínakjötsframleiðsl-
unni. Gyltum hefði á
skömmum tíma fækkað um
12% og skilaverð til bænda
hefði hækkað. Það hefði
lægst verið 180 kr, en væri
núna 190 kr á kg.
Reykjagarður að auka
framleiðslu um 30%
Steinþór Skúlason sagði
að framleiðsla Reykjagarðs
og framleiðenda sem tengd-
ust fyrirtækinu yrði um
2.000 tonn á þessu ári. Fyr-
irtækið áformaði að fram-
leiða um 2.700 tonn á næsta
ári. Þetta væri liðlega 30%
aukning. Ef Móar áformuðu að auka fram-
leiðsluna úr 1.060 tonnum í 2.400 tonn
væri það hátt í þreföld aukning. Steinþór
sagði að Móar hefðu undanfarið fengið
smærri framleiðendur til liðs við sig sem
seldu undir merkjum Móa. Hann hefði ekki
upplýsingar um hvort sú framleiðsla væri
inni í framleiðsluáætlunum Móa.
„Ég stend því við það að langmesta
aukningin er á vegum Móa, en það fyr-
irtæki er samhliða að fara fram á eftirgjöf
á skuldum og að menn láni útistandandi
skuldir til 2–3 ára. Þeir eru því að raska
öllum kjötmarkaðinum með því að stofna
til skulda sem þeir geta ekki borgað.“
Um afkomu í kjúklingarækt sagði Stein-
þór að hann vildi ekki halda því fram að
framleiðendur væru komnir í þá stöðu í
dag að framleiðslan dygði ekki nema fyrir
breytilegum kostnaði. „Það stefnir þó í þá
stöðu og að öllu óbreyttu verður staðan
orðin þannig á næsta ári.“
Steinþór sagði að Sláturfélagið kæmi
hvergi að frumframleiðslu í svínarækt. SS
hefði að vísu áður en félagið keypti hlut í
Ferskum kjötvörum hvatt einn framleið-
anda til að auka framleiðslu, en ástæðan
nokkra framleiðendur en tekið í
þá aðila sem hafa leitt til mestrar
lu í framleiðslu á svínakjöti á
um. Þeir hafa kosið að eiga að
skipti við aðeins tvo aðila. Það er
gar svínabúið á Ormsstöðum í
i sem er með sérstakan samning
félagið umfram aðra innleggj-
ið hefur boðið SS vissan afslátt
sem greitt er svínabændum gegn
ð njóti forgangs í viðskiptum.
ar kaupir SS af Stjörnugrís og
kjötvörum, en rekstur þess fyr-
ar í miklum erfiðleikum. Fyr-
ar í eigu Stjörnugríss á Vallá. SS
ðandi hlut í þessu fyrirtæki og
ið upp veruleg viðskipti við
rís sem á stóran þátt í offram-
vínarækt á liðnum misserum.“
n Gylfi var spurður hvort stækk-
úsins í Brautarholti ætti ekki
átt í offramleiðslunni. Hann sagði
kkun hefði komið til áður og á
ma. Stjörnugrís hefði átt í erf-
með að afsetja sína framleiðslu,
fði ekki verið vandamál hjá
olti sem seldu undir vörumerkj-
a að auka framleiðslu
einþór Skúlason:
angmest aukning á
gum Móa.“
Sigmundur Ófeigsson:
„Þetta verða þess
vegna neytendajól.“
TÓMAS Ingi Olrich menntamála-
ráðherra hefur vísað tillögum sem
fram koma í bréfi rektors Háskóla
Íslands um breyting-
ar á lögum um skóla
á háskólastigi til
samstarfsnefndar há-
skólastigsins. Í henni
eiga sæti rektorar
allra skóla á háskóla-
stigi.
„Ég hef óskað eftir
því að nefndin taki
tillögurnar til um-
fjöllunar og veiti
ráðuneytinu umsögn
um þær,“ segir
menntamálaráðherra.
Í bréfinu til sam-
starfsnefndarinnar
tekur ráðherra fram
að ráðuneytið hafi
ekki haft uppi neinar
sérstakar ráðagerðir um endur-
skoðun laganna um skóla á há-
skólastigi frá 1997. „Það er afstaða
ráðuneytisins að það sé æskilegt
að meiri reynsla fáist af fram-
kvæmd þessara laga,“ segir Tómas
Ingi.
Skólarnir hafa allir skýru
rannsóknahlutverki að gegna
Hann segir að í bréfi rektors HÍ
séu settar fram hugmyndir sem
séu þess eðlis að gagnlegt sé að
þær fái umfjöllun stofnana á há-
skólastigi og annarra sem hags-
muna eiga að gæta. Í bréfi há-
skólarektors til ráðherra er að
finna tillögur nefndar sem starfaði
innan HÍ, m.a. um að skýrari
greinarmunur verði gerður á rann-
sóknaháskólum og öðrum háskól-
um. Spurður álits á þessu segir
menntamálaráðherra:
„Þegar rammalöggjöfin um há-
skólastigið var sett árið 1997 var
ákveðið að allir skólar á háskóla-
stigi féllu undir sömu heildarlög-
gjöfina. Síðan var gert ráð fyrir að
nánar yrði kveðið á um starfsemi
hvers skóla í sérlögum, reglugerð-
um, starfsreglum og skipulagsskrá
eftir því hvort um væri að ræða
ríkisháskóla eða háskóla sem eru
reknir sem sjálfseignarstofnanir.
Það er fjallað með mismunandi
hætti um rannsóknahlutverk rík-
isháskóla í lögum, en það er
grundvallaratriði að þeir hafa allir
skýrt hlutverk,“ segir Tómas.
Hann bendir einnig á að í skipu-
lagsskrám háskóla sem reknir eru
sem sjálfseignarstofnanir sé líka
að finna ákvæði um rannsóknar-
hlutverk þeirra.
„Ráðuneytið hefur í raun og
veru aðeins gert rannsóknasamn-
ing við einn ríkisháskóla, þ.e.a.s.
Háskóla Íslands, og hann nýtur
því forréttinda að því er þetta
varðar. Það er eðlilegt í ljósi þess
að sá skóli hefur stundað rann-
sóknir í mjög langan tíma. Hvað
aðra ríkisháskóla varðar er rétt að
hafa í huga að sérlög um þessa
ríkisháskóla eru til þess að gera
ný.
Starfsemi þeirra hefur verið í
örri þróun og þó ekki hafi verið
gerðir sérstakir samningar um
hlutverk þeirra í rannsóknum, enn
sem komið er, þá er alveg ljóst að
þeir hafa haft mikil áhrif á rann-
sóknastarfsemi í landinu. Það er
ekki nokkur vafi á því að það sem
hefur styrkt íslenskt háskólaum-
hverfi og rannsóknastarfsemi í
heild eru þessar nýju háskóla-
stofnanir og aðkoma þeirra að
rannsóknum. Þessi skólar hafa
metnað til þess að stunda rann-
sóknir og þeir hafa verið að eflast
á þessu sviði. Þess vegna er full
ástæða til að athuga
hvaða sjónarmið skuli
almennt lögð til
grundvallar þegar
ákveðið er hvernig
rannsóknarfé er skipt
milli stofnana á há-
skólastigi,“ segir ráð-
herrann.
Í tillögum HÍ er
einnig lagt til að
gæðaeftirlit og kröfur
til háskóla verði hert-
ar. Tómas Ingi segir
fulla ástæðu til að
taka undir þá skoðun
sem fram komi í bréfi
háskólarektors að
brýnt sé að tryggja
að gæði háskóla-
menntunar standi undir kröfum og
væntingum sem til hennar eru
gerðar.
Til höfuðs háskólastofnunum
sem afla sértekna
Þriðja tillagan sem gerð er í
bréfi rektors HÍ til menntamála-
ráðherra er að rekstrarskilyrði há-
skóla verði sambærileg án tillits til
eignarhalds. Ríkisframlög verði
þau sömu og að einkaháskólar fái
sambærilega styrki og ríkisháskól-
ar enda innheimti þeir þá ekki
hærri gjöld af nemendum en rík-
isháskólar hafa heimild til.
„Stjórnvöld hafa almennt fylgt
þeirri stefnu að framlög til kennslu
í háskólum taki mið af sama reikn-
ingslíkaninu, óháð því hvar námið
fer fram og hvert rekstrarform há-
skólans sé. Þessi meginregla þýðir
þó ekki beint að rekstrarskilyrði
háskólanna séu sambærilegt m.t.t.
til framlags ríkisins til þeirra,“
segir Tómas Ingi og vitnar til
rannsóknasamningsins við Háskóla
Íslands, því til staðfestingar.
„Tillögurnar í bréfi rektors Há-
skóla Íslands virðast óneitanlega
vera settar fram að þessu leyti til
höfuðs þeim háskólastofnunum
sem afla sér sértekna, þar sem í
tillögunum felst að sértekjurnar
ættu að koma til frádráttar rík-
isframlaginu. Þessi sjónarmið
ganga alveg þvert á þá stefnu sem
fylgt hefur verið af hálfu stjórn-
valda, enda hafa sértekjurnar
meðal annars nýst til uppbygg-
ingar þeirra og til að standa undir
rannsóknastarfsemi,“ segir hann.
Samkeppni nauðsynleg
„Mér finnst það skjóta skökku
við að Háskóli Íslands skuli kvarta
undan ójafnri samkeppnisstöðu í
ljósi þeirrar uppbyggingar sem
þar hefur verið kostuð af ríkisvald-
inu og svo þeirra fjárveitinga til
rannsókna sem skólinn hefur í
raun umfram aðrar háskólastofn-
anir. Mér finnst þess vegna ekki
rétt leið að Háskóli Íslands skuli
vilja takmarka svigrúm annarra
háskólastofnana til tekjuöflunar og
það sjónarmið er ekki af minni
hálfu mjög skiljanlegt.
Ég tel að samkeppni á þessum
sviðum sé jafn nauðsynleg eins og
á öðrum sviðum og ég tel að þróun
háskólastarfseminnar undanfarin
ár og áratug hafi í raun og veru
orðið til þess að háskólastigið hef-
ur batnað með aukinni samkeppni
og það er alveg ljóst, að rótgrónar
stofnanir hafa mjög gott af aðhaldi
og samkeppni,“ segir Tómas Ingi
Olrich.
Menntamálaráðherra vísar tillögum HÍ
til samstarfsnefndar háskólastigsins
Ekki uppi
ráðagerðir um
endurskoðun
laganna
Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra.