Morgunblaðið - 22.11.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 22.11.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra er ekki hlynnt því að hækka bílprófsaldurinn í 18 ár í því skyni að auka umferðaröryggi. Kom þetta fram í ávarpi hennar á um- ferðarþingi í gær. Hún bindur hins vegar vonir við þá nýbreytni sem felst í að gefa þeim, sem eru ný- komnir með ökuréttindi, kost á að fara í svokallað akstursmat eftir eins árs ökupróf. Þeir sem standa sig vel í matinu fá þá fullnaðar- skilríki. Akstursmatið verður tekið upp eftir áramótin og er ætlað að stuðla að því að nýir ökumenn vandi sig sérstaklega vel í upphafi akst- ursferils síns. Ráðherra sagði einnig að sérstök æfingasvæði eða svokölluð ökugerði gætu aukið færni ökumanna en notkun þeirra er skyldubundin í ökunámi í nágrannalöndunum þar sem ökumenn eru þjálfaðir í hálku- akstri og akstri á malarvegum. Hef- ur ráðherra falið Umferðarstofu að leita allra leiða til þess að unnt verði að koma fyrsta ökugerðinu á fót en erfiðlega hefur gengið að finna fjár- hagsgrundvöll fyrir rekstri slíkra svæða. Ráðherra hefur skipað umferðar- öryggisnefnd undir formennsku Óla H. Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Umferðarráðs, sem ætlað er að vinna að framgangi þingsályktunar um stefnumótun um aukið umferð- aröryggi. Samkvæmt henni ályktar Alþingi að fyrir lok ársins 2012 skuli stefnt að fækkun banaslysa og ann- arra alvarlegra umferðarslysa um Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra ávarpaði Umferðarþing í gær. Vill ekki hækka bíl- prófsaldur í 18 ár Morgunblaðið/Golli 40%. „Skal hún [nefndin] ásamt Umferðarráði leitast við að ná sem víðtækastri samstöðu í þjóðfélaginu um bætta umferðarmenningu og á að leita allra tiltækra leiða til þess að stemma stigu við alvarlegum um- ferðarslysum. Skal að því stefnt að sem flestir aðila, sem koma að um- ferðaröryggismálum með einhverj- um hætti, setji sér skýr markmið og vinni samkvæmt þeim,“ sagði Sól- veig. Í nefndinni sitja Óli H. Þórðar- son, Ellen Ingvadóttir, löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur, Gunn- ar Felixson, forstjóri Tryggingamið- stöðvarinnar hf., Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglu- stjóra, Kristján Vilhelm Rúriksson verkfræðingur, fulltrúi Umferðar- stofu, Rögnvaldur Jónsson, fram- kvæmdastjóri tæknisviðs Vegagerð- arinnar, Sandra Baldvinsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneyt- inu, varaformaður Umferðarráðs, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga. Gripið til ýmissa aðgerða í þágu umferðaröryggis ÍSLENDINGAR hafa ekki viður- kennt það til fulls að mannlegt sé að gera mistök í akstri úti á vegum. Þetta sagði Rögnvaldur Jónsson, formaður rannsóknanefndar um- ferðarlysa, á umferðarþingi í gær. „Að gera mistök í umferðinni þarf ekki endilega að hafa í för með sér dauða eða alvarleg meiðsli,“ sagði hann. Hann lýsti þeirri skoðun að ganga þyrfti þannig frá vegum og umhverfi þeirra að það leiddi ekki til dauðaslyss eða alvarlegra meiðsla þótt ökumanni, sem hlýddi umferðarreglum, yrðu á mistök. Þegar kemur að banaslysum hér- lendis eru ytri aðstæður ráðandi í 15% tilvika og sagði Rögnvaldur að stór hluti vegakerfisins væri hættu- legur ökumönnum, sem yrðu á mis- tök, þótt þeir færu að lögum. Sem dæmi má nefna of bratta fláa við vegi sem valda því að bílar velta lendi þeir á annað borð út af. Rögnvaldur benti einnig á að mörg slys yrðu þegar bílar lentu á grjóti eða í skurði við útafakstur og þá hættu mætti minnka með því að fjarlægja slíkar fyrirstöður. Þá nefndi hann að lengja þyrfti vegrið við brýr, fækka einbreiðum brúm og banna bílaplön við þjóðvegi á borð við planið við Litlu kaffistof- una á Suðurlandsvegi. Skapar það hættu, þegar ökumenn geta nánast ráðið því hvar af þjóðveginum þeir fara inn á planið. Þá taldi hann einnig koma til álita að lækka hámarkshraða á sumum vegum, þ.e. þar sem ekki er hægt að koma í veg fyrir að bílar rekist hver framan á annan. Mannlegt að gera mistök SKARPHÉÐINN Berg Stein- arsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá Baugi- ID, en hann var þar til í síðustu viku skrifstofustjóri í forsætisráðu- neytinu. Þar hafði hann starfað frá 1998, en áður var hann deildarstjóri í fjármálaráðu- neytinu 1991– 1998. Skarphéðinn var ritari fram- kvæmdanefndar um einka- væðingu frá árinu 1992 þar til nú, er hann hætti í ráðuneyt- inu. Hann segir ástæður breyt- ingarinnar vera að hann hafi starfað lengi hjá ráðuneytinu og að tími hafi verið kominn til að skipta um vettvang. „Þegar mér bauðst þetta tækifæri ákvað ég því að slá til,“ segir hann. Skarphéðinn var stunda- kennari við viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands 1994–1998 og starfaði sem sér- fræðingur í fjárlaga- og hag- sýslustofnun 1987–1989. Hann útskrifaðist sem viðskiptafræð- ingur frá Háskóla Íslands 1987 og með MBA-gráðu frá Uni- versity of Minnesota árið 1990. Hann stundaði einnig fram- haldsnám við Oklahoma State University 1990–1991. Skarphéðinn er kvæntur Sigríði Jóhannesdóttur kenn- ara og eiga þau þrjú börn. Skarphéðinn Berg Steinarsson Skarp- héðinn til Baugs UM 30 félagar í Hjálparsveit skáta í Reykjavík brugðu sér upp á bekkina í Blóðbanka Íslands í gær og létu tappa af sér blóði. Með blóðsöfn- uninni vildu þeir heiðra látna félaga í Blóðgjafarsveit skáta í Reykjavík sem stofnuð var árið 1935. Hver fé- lagi fór fjórum sinnum á ári og gaf blóð og fékk sveitin 50 krónur í hvert skipti. Skátafélag Reykjavíkur stofnaði síðan sérstaka blóðgjaf- arsveit sem allir 17 ára og eldri gátu gengið í. Sú sveit starfaði allt þar til Blóðbankinn tók til starfa árið 1953. Blóðsöfnunin í gær var jafnframt liður í hátíðarhöldum vegna 70 ára afmælis sveitarinnar á þessu ári. Á morgun verður opið hús í höf- uðstöðvum sveitarinnar að Mal- arhöfða 6. Þar geta gestir og gang- andi kynnt sér starfsemina og eiga þar allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, m.a. flugeldsýningu sem hefst klukkan 18. Morgunblaðið/Kristinn Linda Björnsdóttir gefur blóð og dóttirin, Eyrún Magnúsdóttir, fylgist með, en Halldóra Halldórsdóttir tappar af. Skátar gáfu blóð TÆPLEGA fertugur sjúkraflutn- ingamaður í Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins var í gær dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn konu sem verið var að flytja með sjúkrabíl á Landspítal- ann. Var maðurinn dæmdur fyrir að káfa á og sleikja brjóst konunnar og þukla á henni innan og utan klæða. Maðurinn neitaði sök en DNA-rann- sókn leiddi í ljós leifar af munnvatni mannsins á brjósti konunnar. Atvik- ið átti sér stað í ágúst í fyrra þegar verið var að flytja konuna á sjúkra- hús eftir að hún reyndi sjálfsvíg á heimili sínu. Konan kvaðst hafa skammast sín fyrir sjálfsvígstilraun- ina og því tekið fyrir andlit sitt þegar hún var flutt í sjúkrabílinn en alls ekki verið meðvitundarlaus. Um leið og komið var á sjúkrahús sagði hún hjúkrunarfræðingi og síðan lækni frá því að hún hefði orðið fyrir kyn- ferðislegri áreitni í sjúkrabílnum. Sjúkraflutningamaðurinn sem ók sjúkrabílnum sagðist ekki hafa orðið var við neitt óvenjulegt aftur í bíln- um á leiðinni á Landspítalann. Hjúkrunarfræðingur sem tók á móti konunni kvaðst hafa talið að sjúkra- flutningamennirnir hefðu lýst kon- unni með skertari meðvitund en henni fannst sjálfri. Læknir sem annaðist konuna fljótlega eftir að hún kom á sjúkrahús, sagði að konan hefði verið með fullri meðvitund. Í niðurstöðu dómsins segir að helsta sönnunargagn í málinu sé framburð- ur konunnar. Trúverðugleiki hans styrkist af ákveðnum vísbendingum um að sjúkraflutningamaðurinn hafi talið meðvitund hennar skerta. Þá ráði niðurstöður DNA-rannsóknar á munnvatni sem fannst á geirvörtu konunnar úrslitum svo telja verði það hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi áreitt konuna kyn- ferðislega. Skýringar mannsins á að hann hefði þann kæk að þurrka úr munnvikunum sí og æ þóttu fjarlæg- ar. Sjúkraflutningamaðurinn hafði ekki áður sætt refsingum. Fjölskip- aður dómur Héraðsdóms Reykjavík- ur segir að maðurinn hafi brugðist miklu trausti. Brotið væri svo alvar- legt að það kæmi ekki til greina að skilorðsbinda dóminn. Auk refsing- arinnar var maðurinn dæmdur til að greiða konunni 400.000 krónur í miskabætur auk sakarkostnaðar. Héraðsdómararnir Jón Finnbjörns- son, Kristjana Jónsdóttir og Skúli J. Pálmason kváðu upp dóminn. Verj- andi mannsins var Guðmundur Ágústsson hdl. en réttargæslumaður konunnar var Helga Leifsdóttir hdl. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari sótti málið f.h. ríkissaksóknara. Í yfirlýsingu frá slökkviliði höfuð- borgarsvæðisins segir m.a. að við- komandi starfsmaður hafi verið leystur undan starfsskyldum sínum sem slökkviliðs- og sjúkraflutninga- maður vegna þessa máls í mars og nú hafi hann alfarið verið leystur undan starfsskyldum sínum. Dæmdur fyrir áreitni í sjúkrabíl ÚTAFAKSTUR og bílveltur voru langalgengustu orsakir umferð- aróhappa á þjóðvegarkaflanum frá Hvalfjarðargöngum til Ólafs- fjarðarvegar frá 1997 til 2000, samkvæmt rannsókn sem lög- reglan á Blönduósi gerði í sam- starfi við Félagsvísindastofnun HÍ. Niðurstöðurnar voru kynnt- ar á fimmta umferðarþingi Um- ferðarráðs í gær. Á umræddu fjögurra ára tímabili urðu 600 óhöpp og áttu 900 ökumenn hlut að máli að ótöldum farþegum í bílum þeirra. Útafakstur var or- sök óhappanna í 40% tilvika og í 16% tilvika var skepnum um að kenna. Óhöpp vegna framúrakst- urs áttu sér stað í 8% tilvika. Gá- leysi ökumanna var um að kenna í 30% tilvika og mátti rekja 28% óhappanna beinlínis til brota á umferðarreglunum. Hörður Ríkharðsson lög- reglumaður sagði að ökumenn hefðu í 17% tilvika kennt veðri um og borið fyrir sig mistök í 15% tilvika. 10% kenndu um ein- beitingarleysi og jafnhátt hlut- fall kenndi veginum um óhappið. Sagði Hörður að 30% óhappanna hefðu orðið við úrvalsskilyrði. Ekki mætti ofmeta áhrif hálku, myrkurs og slæmra skilyrða. Útafakstur algengasta orsökin og sökin oftast ökumanna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.