Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Jóhannes S. Kjarval
Verið velkomin að skoða verkin í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14 - 16,
í dag kl. 10.00 - 18.00, á morgun kl. 10.00 - 17.00 og á sunnudag kl. 12.00 - 17.00.
Boðin verða upp um 150 verk, þar á meðal fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Rauðarárstíg 14-16
sími 551 0400
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið á sunnudagskvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal.
Greinar sem birst hafa á árinu
nr dags titill höfundur
467 11.4. Snemmvaxnar gulrætur, forspíruð fræ Hermann Lundholm
468 20.4. Íris boðberi vorsins Sigríður Hjartar
469 4.5. Snæklukka - Leucojum vernum Sigríður Hjartar
470 11.5. Eplatré Jón Guðmundsson
471 22.5. Eiturefnanotkun í görðum Guðríður Helgadóttir
472 1.6. Geitabjalla - Pulsatilla vulgaris Sigríður Hjartar
473 20.6. Villitúlipanar - fjólutúlipani Sigríður Hjartar
474 26.6. Blómaævintýri Hermann Lundholm/S.Hj
475 5.7. Sub rosa Guðríður Helgadóttir
476 17.7. Hnoðrar - Sedum eða Rhodiola? Sigríður Hjartar
477 3.8. Sumargræðlingar Guðríður Helgadóttir
478 8.8. Lækja- og lensuvíðir Jón Guðmundsson
479 17.8. Meira um hnoðra (Sedum eða Rhodiola) Sigríður Hjartar
480 29.8. Hnoðrar einu sinni enn (Sedum,
ekki Rhodiola)
Sigríður Hjartar
481 14.9. Berjarunnar Jón Guðmundsson
482 5.10. Haustlaukar - jólalaukar Sigríður Hjartar
483 9.10. Íslenskar plöntur í garða Guðríður Helgadóttir
484 18.10. Vorblómstrandi haustlaukar Sigríður Hjartar
485 24.10. Einir Jón Guðmundsson
486 9.11. Í fínu formi fyrir veturinn Guðríður Helgadóttir
487 22.11. Jólaannir - jólafriðsæld Sigríður Hjartar
ÞEGAR steini er kastað í vatn breið-
ast áhrifin út eftir yfirborðinu,
hringlaga öldur myndast, en þær ná
sífellt lengra frá miðju og verða
minni, uns þær deyja alveg út. Það
er freistandi að líkja áhrifunum frá
umræðunni um Ís-
lensku orðabókina, sem
nú er nýkomin út, við
gárur, a.m.k. hugsaði
ég mig tvisvar um áður
en titill þessarar grein-
ar var festur á blað.
Fyrst datt mér í hug
jólastress og jóla-
hygge. Sjálfsagt hefur
stressið sinn sess í
orðabókinni, en hygge
er erfiðara, enda bein-
línis danskt orð. Sé
flett upp í orðabókum
er þetta danska orð oft-
ast skýrt með mörgum
íslenskum orðum;
heimilisleg vellíðan,
eða þá sagnorðið að sjá
um einhvern, láta öðrum líða vel,
annast um föt, herbergi eða almennt
umhverfi einhvers. En skýringin á
hygge sem friðsæld nær alveg því
sem ég vildi sagt hafa.
Nú er veturinn svo sannarlega
genginn í garð, dagurinn styttist óð-
fluga, myrkrið verður æ svartara.
Annirnar í garðinum eru að baki,
helst að menn dundi sér við að setja
upp skýli til að hlífa ungum, sígræn-
um gróðri við skarpri vetrarsólinni á
útmánuðum. Þó er ekki svo vitlaust
að ganga út í garð annað veifið og
líta yfir blómabeð og sjá hvort ein-
hver óværa hafi skotið upp kollinum.
Það er með ólíkindum
hvað krossfífillinn eða
lambaklukkan þurfa
litla birtu til fræfram-
leiðslu svo eins gott er
að leyfa þessum
náungum ekki neitt
múður.
Innan húss er þó allt
á fleygiferð, brátt eru
jólastjörnur bornar inn
á annað hvert heimili
og í desember má lífga
upp á skammdegið
með ilmandi hyasint-
hum, auk ýmissa ann-
arra blóma.
Jólastjarnan er mjög
skemmtileg planta, en
dálítið vandmeðfarin.
Stutt ferðalagið frá blómabúð að
stofu hefur reynst mörgum jóla-
stjörnum örlagaríkt því kulda þolir
hún flestum plöntum verr. Henni
þarf að pakka sérstaklega vel inn á
leiðinni, því annars fellir hún blöðin
og veslast upp.
En mig langar til að ræða örlítið
jólafriðsæld og jólaannir. Ég á góða
vinkonu, sem sannarlega kann
listina að lifa. Hún byrjar snemma á
jólaundirbúningnum, í aðventubyrj-
un er jólabaksturinn að baki og
smátt og smátt kemur jólaskrautið
fram í dagsljósið uns húsið er líkt og
ævintýraveröld. Og svo „hygger hun
seg“ með fjölskyldu og vinum, það er
nartað í smákökur og dreypt á
súkkulaði eða sherrylögg, friðsældin
ríkir á hennar heimili.
Aðra góða konu þekki ég, þar sem
jólaannir ætla allt um koll að keyra
síðustu dagana fyrir jól. Það er eins
og jólin komi henni alltaf á óvart. Að
vísu kaupir hún „grenið“ í aðventu-
kransinn í tæka tíð, en það er eins
víst að hann er ekki hnýttur fyrr en
síðasta sunnudag í aðventu. Og hún
bakar líka sínar tólf sortir af smá-
kökum, sem reyndar hefur fækkað
niður í sjö eða jafnvel tvær, en byrj-
ar ekki á bakstrinum fyrr en á síð-
ustu stundu. En fjölskyldan fær að-
eins að borða það sem hefur
mistekist fyrir jólin. Milli jóla og ný-
árs svigna hins vegar öll borð undan
smákökum, sem enginn lítur við og
alltaf verður hún jafnhissa, þegar
hún dregur fram smákökuboxin fyr-
ir næstu jól og þau eru hálffull af
bakstri síðasta árs.
Ég verð að játa að ég þekki sjálfa
mig í þeirri síðarnefndu, en það er þó
eitt, sem tilheyrir þessum árstíma,
sem ég læt ekki undir höfuð leggj-
ast. Það er hefð fyrir að birta lista yf-
ir greinar ársins í síðasta Blómi vik-
unnar um leið og lesendum er óskað
gleðilegra jóla og þakkað fyrir árið
sem er að líða. Sjáumst aftur að vori.
S.Hj.
JÓLAANNIR –
JÓLAFRIÐSÆLD
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
487. þáttur
Jólaskraut þeirrar sem er í önnum.
Mörkinni 3, sími 568 7477
www.virka.is
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14
Flísefni
Margar gerðir
og fjöldi lita
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
MORTEL
Marmara-
mortel
hvít/græn
Verð frá kr. 1.600
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
Alltaf á þriðjudögum