Morgunblaðið - 22.11.2002, Side 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ MINNSTA kosti ellefu manns
biðu bana og meira en fjörutíu
særðust þegar palestínskur öfga-
maður sprengdi sjálfan sig í loft
upp í strætisvagni í Vestur-Jerú-
salem í gærmorgun. Atburðurinn
átti sér stað á háannatíma en þetta
er mannskæðasta sjálfsmorðsárás-
in í Mið-Austurlöndum í næstum
fjóra mánuði. Talið er öruggt að
ísraelsk stjórnvöld svari árásinni
og fyrirskipi hernaðaraðgerðir á
heimastjórnarsvæðum Palestínu-
manna.
Afar ljótt var um að litast á
vettvangi ódæðisins og um miðjan
dag í gær hafði aðeins tekist að
bera kennsl á tvö líkanna. Þó hafði
fengist staðfest að fjögur börn
voru meðal látinna en útvarpið í
Ísrael sagði að fórnarlömbin hefðu
öll verið konur og börn að einu
frátöldu. Þetta er fyrsta sprengju-
árásin í Jerúsalem síðan 31. júlí sl.
en þá myrti Palestínumaður níu
manns, þ.á m. fjóra bandaríska
ríkisborgara, við háskóla í borg-
inni.
Atburðurinn í gær átti sér stað
um kl. 7.15 að staðartíma (5.15 að
ísl. tíma) um borð í strætisvagni
sem var á leið inn í miðborg Jerú-
salem. Sagði Shlomo Ahronishki,
lögreglustjóri í Ísrael, að sprengj-
an hefði sprungið framarlega í
vagninum, sem þykir benda til að
ódæðismaðurinn hafi verið nýkom-
inn í vagninn. Allar rúður voru
ónýtar en vagninn var þó í heillegu
ásigkomulagi.
Sagði Maor Kimche, sem er 15
ára og var á leið í skólann, að hann
hefði verið nýkominn í vagninn
þegar sprengjan sprakk. „Skyndi-
lega var allt í reyk. Ég sá fólk á
gólfinu. Það var blóð alls staðar.
Það voru glerbrot hvarvetna og
líkamshlutar úr fólki,“ sagði hann.
Stoltur af
syni sínum
Ísraelar staðfestu að árásarmað-
urinn hefði verið Nael Abu Hilail,
26 ára Palestínumaður frá Betle-
hem. Þykir sú staðreynd, að árás-
armaðurinn var frá Betlehem,
auka líkur á því að Ísraelsher láti
til skarar skríða í borginni en Ísr-
aelar drógu allt sitt lið þaðan í
ágúst sl.
Azmi, faðir Hilails, kvaðst
ánægður með son sinn. „Þetta er
áskorun til óvina okkar, síonist-
anna,“ sagði hann. Hilail var sagð-
ur stuðningsmaður samtakanna
íslamska Jíhad en fram kom hins
vegar í fjölmiðlum að Izzedine al-
Qassam-liðsveitirnar, hernaðar-
vængur Hamas-samtakanna, hefðu
lýst ábyrgð á ódæðinu á hendur
sér.
Talsmenn palestínsku heima-
stjórnarinnar fordæmdu sjálfs-
morðsárásina en talsmaður Ha-
mas, Abdul Aziz Rantissi, sagði
hins vegar að slíkum árásum yrði
fram haldið. „Það er engin ástæða
til að hætta þeim […] halda verður
áfram árásum sem þessum,“ sagði
hann í samtali við arabísku sjón-
varpsstöðina Al-Jazeera. „Mikill
meirihluti palestínsku þjóðarinnar
styður þessar árásir,“ bætti hann
seinna við. „Andspyrna er eina
leiðin til að öðlast frelsi.“
Kom fram að Hamas liti svo á að
um hefnd hefði verið að ræða fyrir
dráp Ísraela á Salah Shehade, ein-
um af leiðtogum Hamas, 22. júlí sl.
Talsmaður Ariels Sharons, for-
sætisráðherra Ísraels, sagði í gær
að ríkisstjórn landsins myndi
„bregðast hratt við til að stemma
stigu við hrinu hryðjuverkaárása“.
Sagði Raanan Gissin, talsmaður
Sharons, að forsætisráðherrann
hefði átt fund með varnarmálaráð-
herra sínum og að herinn hefði
fengið „tilhlýðilegar skipanir“.
Óljóst um
pólitísk áhrif
Sjálfsmorðsárásin í gær kemur í
aðdraganda þingkosninga í Ísrael
en harðlínumenn í Likud-banda-
laginu hafa mjög sótt að leiðtoga
flokksins, Ariel Sharon forsætis-
ráðherra, undanfarið og saka hann
um að sýna Palestínumönnum lin-
kind. Hefur Benjamin Netanyahu,
fyrrverandi forsætisráðherra og
núverandi utanríkisráðherra, til-
kynnt framboð sitt gegn Sharon.
Ísraelski Verkamannaflokkurinn
kaus sér hins vegar nýjan leiðtoga
fyrr í vikunni, Amram Mitzna, sem
hefur lýst því yfir að hann vilji
þegar hefja friðarviðræður við pal-
estínsku heimastjórnina. Verka-
mannaflokkurinn hefur átt undir
högg að sækja í skoðanakönnunum
en ekki er vitað hver áhrif ódæðið
í gær hefur á stöðu mála í ísr-
aelskum stjórnmálum.
Hamas-samtökin segja
árásum verða haldið áfram
Palestínskur
öfgamaður drap
ellefu Ísraela og
sjálfan sig í Jerú-
salem í gær
AP
Ísraelskir björgunarmenn breiða yfir lík eins hinna látnu í flakinu af strætisvagninum í Vestur-Jerúsalem í gær.
>
#"!, %#"4 222",#"6 "? "
)
" ,
"" "',"#))
#"+'%" "*
"@ " "*'#
@
;
:- , 1
)
:4 $
4 @.&28
C
:
7- , 1
=
5/ :+,,
=:
5/ :+,,
,+" ,
4@.&28
; D 1
/3""
C 1
:
E
EF
.
<
&
%
4&
Jerúsalem, Gaza-borg. AFP, AP.
EINN af stuðningsmönnum Pervez
Musharrafs, forseta Pakistans, var
kjörinn forsætisráðherra í at-
kvæðagreiðslu á þingi landsins í
gær og fær því það hlutverk að
mynda fyrstu borgaralegu stjórn
Pakistans í þrjú ár.
Zafarullah Khan Jamali, sem er í
flokki stuðningsmanna Musharr-
afs, Múslímabandalaginu–Quaid
(PML-Q), fékk 172 atkvæði af 329.
Róttækur íslamskur klerkur naut
stuðnings 86 þingmanna og stuðn-
ingsmaður Benazir Bhutto, fyrr-
verandi forsætisráðherra, fékk 70
atkvæði.
Tíu þingmenn flokks Bhutto,
Pakistanska þjóðarflokksins (PPP),
greiddu atkvæði með Jamali og
þeir réðu úrslitum í kjörinu því
hann þurfti að fá að minnsta kosti
165 atkvæði. Talsmaður PPP sagði
að þingmennirnir yrðu ef til vill
reknir úr flokknum.
Með eins
sætis meirihluta
Styðji þessir tíu þingmenn PPP
stjórn Jamalis verður hún með að-
eins eins sætis meirihluta á
þinginu.
Með sigri Jamalis geta stuðn-
ingsmenn forsetans myndað fyrstu
borgaralegu ríkisstjórnina í Pak-
istan eftir valdarán hersins undir
forystu Musharrafs árið 1999.
Hann hyggst gegna forsetaemb-
ættinu til ársins 2007.
Forseti þingsins og varaforseti
verða einnig úr röðum stuðnings-
manna Musharrafs.
AP
Nýkjörinn forsætisráðherra Pakist-
ans, Zafarullah Khan Jamali, veifar
til stuðningsmanna sinna við þing-
húsið í Íslamabad.
Bandamað-
ur Musharr-
afs myndar
stjórn
Íslamabad. AFP.
alltaf á föstudögumDAGLEGT LÍF