Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 28
IÐUNN Ágústsdóttir opnar
málverkasýningu í blóma-
skálanum Vín í Eyjafjarð-
arsveit á morgun, laug-
ardaginn 23. nóvember, kl.
14.
Þema sýningarinnar er
„Lífið í Kjarnaskógi“. Sýnd
eru rúmlega 30 málverk, öll
í smærri kantinum.
Stendur til
1. desember
Iðunn hefur síðastliðin 24
ár haldið fjölmargar einka-
sýningar og tekið þátt í sam-
sýningum.
Sýningin stendur til og
með 1. desember næstkom-
andi.
Iðunn
sýnir í Vín
AKUREYRI
28 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Herradeild Akureyri,
sími 462 3599.
JAKKAFÖT
margar gerðir
Eitt öflugasta andoxunarefnið
nær til allra vefja líkamans
www.islandia.is/~heilsuhorn
Alpha Lipoic
250 mg
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889,
fæst m.a. í Lífsin slind í Hagkaupum,
Árnesapóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Enskunám í Englandi
Virtur málaskóli á suðurströndinni
18 ára og eldri
2-10 vikna námskeið.
13-17 ára
2-4 vikna námskeið
50 ára og eldri
2 vikna námskeið
Skólinn sér fyrir fæði og húsnæði.
Uppl. eftir kl. 17.00 í síma 862 6825.
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
mun nk. laugardag, í samvinnu við
Skákfélag Akureyrar, halda sitt ár-
lega Kiwanisskákmót fyrir börn og
unglinga á grunnskólaaldri.
Teflt verður í Lundarskóla og hefst
keppnin klukkan 11:00. Búist er við
að mótinu ljúki um 2–3-leytið en
Kaldbakur býður öllum keppendum
upp á veitingar. Þátttaka í mótinu er
ókeypis og er öllum grunn-
skólabörnum á Akureyri frjálst að
mæta.
Á MORGUN
Jólabasar Kvenfélagið Hlíf verður
með köku- og munabasar á Gler-
ártorgi á morgun, laugardaginn 23.
nóvember, frá kl. 11.00.
Margir góðir munir, jólakort og fal-
legar jólakúlur. Kökur með kaffinu
og/eða til jólanna.
Allur ágóði rennur sem fyrr til
tækjakaupa fyrir barnadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Tónlistarskólinn á Akureyri efnir
til tónleika á morgun, laugardaginn
23. nóvember í Laugarborg. Fram
koma nemendur í grunnnámi kl.14.
og nemendur í mið- og framhalds-
námi kl. 15.30. Efnisskráin er fjöl-
breytt, en á milli tónleikanna verður
boðið upp á hressingu.
HÁIR hælar, támjóir skór. Það er
skótau sem er þeim hjónum Herði
Hafsteinssyni og Lilju Stef-
ánsdóttur að skapi. Ekki þannig að
þau skarti slíkum skóm sjálf á
gönguferðum um bæinn, heldur er
mun líklegra að eigendur komi
með slíka skó til viðgerðar á skó-
smíðaverkstæði þeirra við Hafn-
arstræti á Akureyri.
Hörður er nánast eini starfandi
skósmiðurinn á landsbyggðinni,
einn slíkur er á Akranesi og eins
býðst Vestmannaeyingum þjónusta
skósmiðs í heimabyggð, en annars
er slíka smiði ekki að finna utan
höfuðborgarsvæðisins. „Þetta er
deyjandi stétt,“ segir Hörður og
telur margt koma til. Skór eru al-
mennt sterkari en áður, þeir eru
ódýrari og lenda því frekar út í
tunnu en að fólk láti gera við þá.
Eins eru þeir í meira mæli en áður
með flötum botni sem ekki er gert
við.
Hörður lærði skósmíði hjá Gísla
Ferdinandssyni og lauk námi í
kringum 1980. En af hverju lærði
hann skósmíði? „Ég átti heima á
móti Gísla í Garðabænum og byrj-
aði að vinna hjá honum 16 ára. Svo
þróuðust málin í þessa átt. Ég kann
ágætlega við þetta starf, það er
ekki verra en hvað annað og virki-
lega gaman þegar vel gengur,“
segir Hörður, en þau Lilja draga
ekki dul á að síðustu ár hefðu verið
fremur mögur. „Þetta hefur verið
frekar dapurt síðustu ár,“ segir
Lilja og bætir við að vissulega hafi
þau hugleitt að loka verkstæðinu.
Þá þyrftu bæjarbúar að skjótast
með skóna sína suður á Akranes til
viðgerðar, þar sem næsti skó-
smiður er.
„Við erum að vona að það sé
bjartara framundan, svona í ljósi
þess hvernig skótískan er að
þróast,“ segir hún og vísar í háu
hælana, támjóu og dýru leð-
urstígvélin sem nú séu í tísku.
„Fólk lætur frekar gera við þessa
dýru skó, en þá sem kosta minna.
Þeim er bara hent og nýir keyptir í
staðinn.“
Sem fyrr segir þjóna þau Hörður
og Lilja stóru svæði og eftir að skó-
smíðaverkstæði sem var á Egils-
stöðum var lokað eru Austfirð-
ingar í nokkrum mæli farnir að
taka skó sína með í viðgerð á Ak-
ureyri þegar þeir bregða sér bæj-
arleið. Eins hefur meira en áður
borið á nágrönnum úr vestri,
„manni fannst hér áður að fólk, t.d.
frá Blönduósi, færi suður og ræki
sín erindi þar. Þetta fólk sést meira
hér í bænum núna,“ segja þau.
„Annars þyrfti bærinn að vera
stærri, við þyrftum að vera svona
20 til 25 þúsund. Þá væri þetta
ágætt.“
Morgunblaðið/Kristján
Hörður Hafsteinsson og Lilja Stefánsdóttir, kona hans, í skóvinnustofunni.
Háir hælar
og támjóir
skór auka á
bjartsýnina
50 ÁR voru í gær liðin frá stofnun
Krabbameinsfélags Akureyrar og ná-
grennis, en starfssvæði þess er Eyja-
fjörður að Hrísey og Grímsey með-
töldum auk Fnjóskadals að
Stóru-Tjörnum.
Í tilefni dagsins kynnir félagið
starfsemi sína á Glerártorgi á morg-
un, laugardag. Þar verður hægt að
nálgast ýmsan fróðleik sem tengist
forvörnum og krabbameini og fólki
boðið upp á blóðþrýstingsmælingu.
Starfsemi félagsins byggist að mestu
á styrkjum og gefst fólki tækifæri á
að gerast styrktaraðilar og styðja við
starfið með kaupum á pennum og öðr-
um varningi merktum félaginu á
þessum tímamótum. Skrifstofa fé-
lagsins er í Glerárgötu 24 á Akureyri
og þar starfa tveir starfsmenn í hluta-
starfi. Þeir annast almennan rekstur
auk stuðnings og ráðgjafar fyrir sjúk-
linga og aðstandendur þeirra. Hægt
er að fá aðgang að bókum og bækl-
ingum um ýmislegt sem tengist
krabbameini á skrifstofunni auk þess
sem greinar um efnið eru á vefsíðu
Krabbameinsfélags Íslands, www.-
krabb.is. Sjúklingar og aðstandendur
þeirra hafa aðgang að íbúðum í
Reykjavík á meðan þeir dvelja þar
vegna meðferðar eða rannsókna og
greiðir Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis dvalarkostnað fyrir fólk
á sínu félagssvæði.
Krabba-
meinsfélag
Akureyrar
50 ára
LEIKUR Þórs og Stjörnunnar í 1.
deild karla í handknattleik fer fram
í íþróttahúsinu í Ólafsfirði í kvöld
kl. 20. Íþróttahöllin á Akureyri,
heimavöllur Þórs, er upptekin um
helgina vegna sýningarinnar Vetr-
arsport og þar sem ekki var hægt
að breyta leiktímanum, var ákveðið
að færa leikinn til Ólafsfjarðar.
Gestur Einarsson, formaður
handknattleiksdeildar Þórs, sagði
að KA-heimilið hefði einnig verið
upptekið, auk þess sem leikmenn
og aðstandendur liðsins hefðu ekki
haft áhuga á því að spila sinn
heimaleik þar. „Það hefði kannski
verið hægt að hliðra til í KA-heim-
ilinu en af hverju ættum við að vera
hafa æfingar af yngri flokkum
KA?“
Gestur sagði að Þórsliðið hefði
farið á nokkrar æfingar til Ólafs-
fjarðar fyrr í haust, þar sem Höllin
hefði verið upptekin vegna Vest
Norden-sýningarinnar og eins þeg-
ar landsþing Sambands íslenskra
sveitarfélaga var haldið þar. „Höll-
in er notuð sem ráðstefnu- og sýn-
ingarhús og við vissum því að það
gætu komið upp vandamál varð-
andi okkar heimaleiki. Við viljum
spila okkar heimaleiki í Höllinni
enda ekki tapað þar leik í um eitt
ár. En Ólafsfirðingar hafa mikinn
áhuga á því að fá okkur í bæinn og
eru tilbúnir að aðstoða okkur við
auglýsa leikinn og búa til stemmn-
ingu í kringum hann. Og það er já-
kvætt að kynna handboltann sem
víðast.“ Gestur sendi bæjarstjóran-
um á Akureyri og öðrum bæjar-
fulltrúum í bænum boðsbréf á leik-
inn í Ólafsfirði og hann gerir sér
vonir um að sjá sem flesta þeirra á
leiknum.
Greifinn og Norðlenska ætla að
kosta sætaferðir frá Akureyri á
leikinn og verður farið frá Hamri
kl. 18.30. Þá býður UÍÓ öllum frítt
á leikinn. Gestur sagði að því væri
ekki að leyna að töluverðrar
óánægju gætti meðal Þórsara, með
að ekki væri gert ráð fyrir lögleg-
um handboltavelli, samkvæmt ítr-
ustu reglum, í væntanlegu íþrótta-
húsi við Síðuskóla og heldur ekki
áhorfendastæðum. Gestur sagði að
með öryggissvæðum þyrfti lögleg-
ur handboltavöllur að vera 44x22
metrar.
„Við erum óhressir með þetta,
enda teljum við að þarna þurfi að
vera áhorfendastæði fyrir 300–400
manns, m.a. í tengslum við yngri
flokka mót og þegar Höllin er upp-
tekin. Mér finnst gæta skammsýni
hjá bæjaryfirvöldum í þessu máli,
enda get ég ekki ímyndað mér að
húsið kosti mikið meira þótt það sé
gert almennilegt,“ sagði Gestur.
Handboltaleikur Þórs og Stjörnunnar fer fram í Ólafsfirði í kvöld
Ekki áhugi fyr-
ir KA-heimilinu
HROSSARÆKTASAMTÖK Ey-
firðinga og Þingeyinga héldu ný-
lega fund á Hótel KEA á Akureyri.
Þar voru flutt mörg fróðleg erindi
og meðal annarra flutti Sigríður
Björnsdóttir, dýralæknir og doktor
í hrossasjúkdómum, með aðsetur á
Hólum í Hjaltadal mjög yfirgrips-
mikinn og áhugaverðan fyrirlestur
um spatt í hrossum.
Þar hvatti hún til að allir sex
vetra stóðhestar væru röntgen-
myndaðir á afturfótum og þar með
gengið úr skugga um að fætur
þeirra væru heilbrigðir. Þannig
mætti minnka útbreiðslu spatts
verulega í íslenska hrossastofnin-
um. Þá benti Sigríður hryssu-
eigendum að ganga eftir slíkum
vottorðum áður en þeir notuðu við-
komandi stóðhesta á merar sínar.
Baldvin Kr. Baldvinsson, formað-
ur samtakanna, sýndi myndband af
stóðhestinum Hrym frá Hofi sem
samtökin hafa keypt hlut í og mikl-
ar vonir eru bundnar við.
Á fundinum voru veittar fjórar
viðurkenningar: Hrossaræktarbú
ársins 2002 á félagssvæði Hrossa-
ræktarsamtaka Eyfirðinga og Þing-
eyinga var hrossaræktarbú Gísla
Haraldssonar á Húsavík. Aðrar við-
urkenningar: Hæsta einkunn á hér-
aðssýningu BSE 2002: Sól frá Efri-
Rauðalæk, eigendur: Guðlaugur
Arason og Snjólaug Baldvinsdóttir.
Síðan fengu tveir ræktendur á fé-
lagssvæðinu viðurkenningu fyrir
hæst dæmdu kynbótahrossin 2002
óháð því hvar hrossin eru sýnd á
landinu. Ástæða þess að tveir rækt-
endur fengu þessi verðlaun var sú
að hrossin Kjarni og Hrauna fengu
sömu einkunn: 8,44 og eigendur
þeirra eru Magni Kjartansson, Ár-
gerði, Eyjafjarðarsveit, og Gísli
Haraldsson á Húsavík.
Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga
Viðurkenningar veittar
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Guðlaugur Arason, Magni Kjartansson og Gísli Haraldsson.
Eyjafjarðarsveit
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.