Morgunblaðið - 22.11.2002, Síða 64

Morgunblaðið - 22.11.2002, Síða 64
UMRÆÐAN 64 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ val á framboðslista í próf- kjöri er mikilvægt að hafa í huga að í upphafi skyldi endinn skoða. Það er mikil ábyrgð sem hvílir á okkur sjálfstæðismönnum og við þurfum að hafa hugfast mik- ilvægi þess að tryggja að fram- boðslistinn okkar sé í senn fjölbreyttur hópur og hafi breiða skírskotun til kjósenda. Guðlaugur Þór hefur einstaka útgeislun og hef- ur mikið lag á að hrífa fólk með sér. Slíkir eiginleikar verða seint of- metnir í fari stjórnmálamanns. Ég vona að við sjálfstæðismenn berum gæfu til þess að tryggja þess- um öfluga manni tryggt sæti á fram- boðslista okkar. Kjósum Guðlaug Þór Þórunn Pálsdóttir fjármálastjóri skrifar: VIÐ Birgir Ármannsson vorum samferða í gegnum grunnskóla og menntaskóla og urðum á þeim ár- um góðir félagar og vinir og þar kynntist ég vel hversu vandaður og traustur maður Birgir er. Að menntaskóla lokn- um var Birgir kjör- inn formaður Heim- dallar og var eftir því tekið hve starf félagsins varð kraftmikið og blómlegt undir hans forystu. Birgir hefur alla tíð starfað af kappi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, bæði í SUS og öðrum stofnunum flokksins, meðal annars í miðstjórn. Þá hefur hann starfað að utanrík- ismálum fyrir sjálfstæðismenn og má í því sambandi nefna for- mennsku hans í Varðbergi, félagi ungra áhugamanna um vestræna samvinnu. Útgangspunktur í pólitísku starfi Birgis hefur ávallt verið ein- staklingsfrelsi, einkaframtak og lægri skattar. Málflutningur hans er ákveðinn en jafnframt hófsamur og studdur sterkum rökum. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að með því að kjósa Birgi í 6. sæti á lista sjálfstæðismanna í prófkjörinu í Reykjavík styrkjum við þingflokk- inn svo um munar. Birgi í 6. sætið Þórður Þórarinsson stjórnmálafræðingur skrifar: FRAMUNDAN er spennandi prófkjör hjá flokksfélögum mínum í Reykjavík þar sem frambjóðendur flokksins í komandi alþingiskosn- ingum verða valdir. Ég efast ekki um að niðurstaðan verður farsæl fyrir flokkinn, enda í framboði ein- valalið sjálfstæð- ismanna. Í mínum huga er þó Björn Bjarnason í sérflokki. Í rúman áratug hefur Björn verið þingmaður Reykvíkinga og var menntamálaráðherra í tæp sjö ár. Á þeim tíma hefur sannast svo ekki verður um villst að Björn er kraft- mikill forystumaður. Er nóg að líta á heimasíðu hans til að sjá styrk Björns sem stjórnmálamanns. Þar fer maður sem hefur mikinn áhuga á málefnum samtímans, tjáir sig op- inskátt og er trúr sannfæringu sinni. Þannig þurfa stjórnmálamenn að vera. Af kynnum mínum af Birni síð- ustu árin hef ég kynnst því af eigin raun að þar fer heiðarlegur, vinnu- samur og traustur maður, sem legg- ur sig allan fram um að vinna að hag almennings. Ég skora á flokksfélaga mína í borginni að tryggja að Björn verði í forystusveit flokksins í borg- inni við komandi kosningar. Björn er traustsins verður. Björn Bjarnason í þriðja sætið Stefán Friðrik Stefánsson skrifar: FRAMUNDAN er prófkjör sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Engin vafi er á að forystumennirnir Davíð Odds- son og Geir H. Haarde munu hreppa tvö efstu sætin. En að þeim frátöldum er málið ekki jafn auð- velt því að um marga góða einstaklinga er að ræða. Sjálfstæð- ismenn eiga mjög hæfar konur í sínum röðum og væri það flokknum styrkur að veita þeim brautargengi í þessu prófkjöri. Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, er þar fremst og eigum við að tryggja henni 3. sætið. Önnur er Ásta Möller, alþingismaður, sem er reyndur stjórnmálamaður og stjórnandi og hvet ég alla sem þátt taka í prófkjörinu að kjósa Ástu í 4. sæti Þessar tvær forystukonur Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík hafa ver- ið sterkir málsvarar sjálfstæð- ismanna á Alþingi í mörgum þýðingarmiklum málum, þannig að sérstaklega hefur verið eftir því tekið. Það er þýðingarmikið fyrir Sjálfstæð- isflokkinn að hann svari kalli tímans og skipi konur í efstu sæti. Þetta er auðvelt í dag þegar til þess er litið að flokkurinn hefur jafn hæfar konur og þær Sólveigu og Ástu í röðum sínum. Konur í efstu sæti Júlíus Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi, skrifar: ÉG hvet alla sjálfstæðismenn til þess að kjósa Soffíu Kristínu Þórð- ardóttur í prófkjöri okkar næstu helgi. Ég hef starfað með Soffíu í mörg ár og veit að þar fer mikill for- ingi og dugn- aðarmanneskja. Hún hefur verið einn af burðar- ásunum í starfi Vöku í Háskóla Ís- lands og á mikinn þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem þar hefur orðið. Soffía hefur ákaflega ríka rétt- lætiskennd og það er fyrst og fremst sú réttlætiskennd sem hefur drifið hana áfram í stjórnmálastarfi sínu. Áhersla hennar á breytingar á réttarkerfinu er mjög brýnt og tímabært mál sem ég vona að hún fái tækifæri til að berjast fyrir á Al- þingi. Ég tel að ef Soffía fær góða kosn- ingu hjá okkur sjálfstæðismönnum í prófkjörinu um helgina sé það ákaflega sterkt fyrir framboðslista flokksins í vor og hvet kjósendur því eindregið til þess að hafa nafn hennar á meðal þeirra tíu sem merkja þarf við á kjörseðlinum. Styðjum Soffíu Kristínu Þórlindur Kjartansson skrifar: R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Harmonikuunnendur Vesturlands Vegna óviðráðanlegra orsaka fellur niður áður auglýstur dansleikur í Miðgarði 23. nóvember. Stjórnin. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi Kjördæmisþing Kjördæmisþing verður haldið á Foss Hóteli KEA á Akureyri laugardaginn 30. nóvember nk. og hefst það kl. 13.00. Fundarefni: Tillaga kjörnefndar að uppstill- ingu á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kjör- dæminu vegna komandi Alþingiskosninga. Umræður — Afgreiðsla. Stjórn Kjördæmisráðsins. TILKYNNINGAR Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breytingum á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík: Reitur 1.172.0 Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Lauga- vegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Klapparstíg. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 12. nóvember 2002. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að áfram verði blönduð byggð íbúðarhúsnæðis og verslunar- og þjónustu, fyllt verði í skörð sem eru bæði við Laugaveg og Hverfisgötu. Á Laugavegi er lagt til að heimilt verði að rífa hús nr. 23, 27 og 29. Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði að byggja á lóð nr. 40 við Hverfisgötu sem aðlagi sig að aðliggjandi húsum. Sérstaklega er bent á glæsileg hornhús við Vatnsstíg, bæði við Laugaveg og Hverfisgötu og er vert að vernda þau. Í tillögunni er m.a. áréttað að á götuhæð jarð- hæða húsa á Laugaveginum gildi skilmálar um landnotkun sem samþykktir voru með breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996- 2016, sem staðfest var í júlí 2000. Jafnfram að óheimilt verði að reka næturklúbba á reitnum. Hádegismóar, við Rauðavatn, breyting á deiliskipulagi. Tillagan tekur til reits sem afmarkast af borgarfriðlandi á Hólmsheiði við Rauðavatn til austurs, fyrirhugaðri götu til suðurs, Suður- landsvegi til vesturs og golfvelli GR til norðurs. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 12. nóvember 2002. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir tveimur lóðum undir atvinnustarfsemi með aðkomu frá hring- torgi og fyrirhugaðri götu. Á hvorri lóð er einn byggingarreitur. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 22.11. 2002 - til 05.01. 2003. Eru þeir sem telja sig eiga hags- muna að gæta hvattir til að kynna sér tillög- urnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 05.01 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 22.11. 2002. Skipulagsfulltrúi SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ UPPBOÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Dynskálar 32, eignarhluti 0101, Hellu, þingl. eig. Hilmir ehf., gerðar- beiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., Hellu, föstudaginn 29. nóvember 2992 kl. 11.00. Hátún, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Sigurður Einarsson, gerðar- beiðandi Lífeyrissjóður bænda, fimmtudaginn 28. nóvember 2002 kl. 12.00. Lóð úr landi Stóra-Klofa, Rangárþingi ytra, þingl. eig. Árni Kristjáns- son, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., útibú, föstudaginn 29. nóvember 2002 kl. 13.00. Réttarfit, Rangárþingi eystra, lóð 14b, þingl. eig. Sigurgeir Sigmunds- son, gerðarbeiðendur Set ehf. og Tryggingamiðstöðin hf. fimmtudag- inn 28. nóvember 2002 kl. 11.00. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 20. nóvember 2002. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 12  18311228½  Bi. I.O.O.F. 1  18311228  Sk. Í kvöld kl. 20.00 Bæn og lofgjörð. Umsjón majór Elsabet Daníelsdóttir. Allir hjartanlega velkomnir. Í kvöld kl. 21 heldur Salvör Nordal erindi „Friðhelgi einkalífsins og persónuvernd“ í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum kl. 15.30 í umsjón Jóhönnu Briem sem verður með „Kynn- ingu á höfuðbeina- og spjald- hryggjarjöfnun“. Á sunnudögum kl. 17-18 er hugleiðingarstund með leið- beiningum fyrir almenning. Á fimmtudögum kl. 16.30- 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is mbl.is FRÉTTIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.