Morgunblaðið - 22.11.2002, Side 69
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 69
Hönnunar-, hárgreiðslu-
og förðunarkeppni
á vegum íþrótta- og tómstundráðs
Kópavogs og Samfés í íþróttahús-
inu í Digranesi, verður laugardag-
inn 23. nóvember kl. 15. Keppnin
ber nafnið Stíll 2002 og er þetta í
annað skiptið sem hún er haldin.
Áhersla er lögð á listsköpun frek-
ar en tísku. Þemað þetta árið er
Hafið og vinna unglingarnir út frá
því. Boðið verður upp á skemmti-
atriði, þar á meðal koma fram
hljómsveitirnar Í svörtum fötum,
Írafár og Á móti sól. Einnig verða
tískusýningar og skemmtiatriði
frá félagsmiðstöðvum ÍTK.
Keppninni lýkur með sýningu á
afrekstri dagsins. Veitt verða
verðlaun fyrir bestu hönnunina,
bestu hárgreiðsluna og bestu förð-
unina og fyrsta, annað og þriðja
sæti fyrir heildarhönnun.
„Hvuttadagar“ verða í Reiðhöll
Gusts við Álalind, Kópavogi laug-
ardaginn 23. og sunnudaginn 24.
nóvember kl. 11–18 báða dagana.
Á „Hvuttadögum“ verða helstu
hundategundir landsins kynntar
ásamt vörum og starfsemi tengdri
hundum. Einnig verða ýmsar
uppákomur báða dagana. 500 kr.
kostar inn fyrir fullorðna, 200 fyr-
ir börn 6–12 ára og frítt fyrir 6
ára og yngri. Á svæðinu verða t.d.
gæludýraverslanir, hundasnyrtar,
hundaþjálfarar, blendingahorn og
Hvuttaklúbburinn ásamt fleiru
sem tengist hundahaldi, segir í
fréttatilkynningu.
Jólabasar Waldorfskólans Sól-
stafa verður haldinn laugardaginn
23. nóvember í húsnæði leikskól-
ans á Marargötu 6 Reykjavík, kl.
13–16. Á boðstólum verða ýmsar
handunnar vörur og leikföng úr
ull, tré og öðrum náttúrulegum
efnum. Einnig er kaffi og köku-
sala. Allur hagnaður fer í upp-
byggingu Waldorfleikskóla og
skóla í Reykjavík. Allir velkomnir.
Félagið Zíon, vinir Ísraels, halda
almennan fund í neðri sal Fíla-
delfíukirkjunnar, Hátúni 2 á
morgun, laugardaginn 23. nóv-
ember, kl. 15 - 17. Nýr bæklingur
verður kynntur. Vitnisburðir frá
Laufskálahátíðinni. Tónlist og lof-
gjörð. Kaffiveitingar og fleira. All-
ir Ísraelsvinir velkomnir. Ókeypis
aðgangur.
Jólaljósin tendruð við Laugaveg
á morgun, laugardaginn 23. nóv-
ember. Safnast verður saman við
Hlemm kl. 15.30 og kl. 16 mun
forseti borgarstjórnar, Árni Þór
Sigurðsson, tendra jólaljósin með
aðstoð viðstaddra. Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins mætir með
gamlan brunabíl, hestvagn ekur
með forseta borgarstjórnar niður
Laugaveg í fararborddi jólaskrúð-
göngu. Kórar, brasssveitir og aðr-
ir listamenn fylgja göngunni með
söng og hljóðfæraslætti. Jólasvein-
ar sem taka forskot á sælunna og
hafa fengið leyfi Grýlu og Leppa-
lúða til að skreppa í bæinn. Margs
konar uppákomur verða á Lauga-
vegi um helgar fram til jóla, s.s.:
lúðrablásarar með jólatónlist, kór-
ar, harmonikuleikarar, jólasveinar,
söngflokkar, Grýla og Leppalúði,
ýmsar furðuverur, og herra
Laugavegur, sem m.a. fræðir veg-
farendur um sögu Laugavegarins
og býður upp á piparkökur.
Verslanir verða opnar um helgar
fram að jólum. Frá og með föstu-
deginum 13. desember verða
verslanir opnar til kl. 22 öll kvöld
og til klukkan 23 á Þorláksmessu.
Á aðfangadag verður opið frá kl.
9–12, segir í fréttatilkynningu.
Í tilefni af 70 ára afmæli Hjálp-
arsveitar skáta í Reykjavík mun
sveitin standa fyrir opnu húsi í
höfuðstöðvum sínum á Malarhöfða
6 laugardaginn 23. nóvember. Fé-
lagar HSSR munu kynna starf-
semi sveitarinnar, þ.á m. björg-
unarbúnað. Dagskráin er fyrir alla
fjölskylduna, m.a. verður klif-
urveggur, hoppukastali, bíltúr í
björgunarbíl og flugeldasýning
sem hefst kl. 18.
Atvinnulífsnefnd Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, stendur
fyrir opnum fundi um atvinnumál
fatlaðra á laugardag, 23. nóv-
ember, kl. 14, í félagsheimili
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæð-
inu, Hátúni 12 og eru allir vel-
komnir. Markmið atvinnulífs-
nefndar Sjálfsbjargar er m.a. að
kynna sér þá þjónustu við fatlaða
sem tengjast atvinnu- og mennta-
málum. Erindi halda: Árni Már
Björnsson og Árni Már Björnsson.
Á MORGUN
Námskeið í vinnusálfræði eru að
hefjast á vegum Sálfræðistöðv-
arinnar, Þórsgötu 24. Kenndar
verða aðferðir sem byggja upp
samskiptahæfni og fyrirbyggja
óæskilegt andrúmsloft á vinnu-
stað. Námskeiðin eru ætluð þeim
sem vilja auka sjálfstyrk í starfi
sínu og þurfa að takast á við flók-
in samskipti sem oft koma upp á
vinnustöðum.
Höfundar og leiðbeinendur eru
sálfræðingarnir Álfheiður Stein-
þórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Næsta námskeið er fyrirhugað 26.
og 29. nóvember og 2. desember
nk. kl. 9–12.
Aðalfundur Félags CP á Íslandi
verður haldinn á Háaleitisbraut 11
– 13, í húsi Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra, miðvikudaginn 27.
nóvember kl. 20. Að loknum aðal-
fundastörfum munu Guðbjörg
Eggertsdóttir og Þorbjörg Guð-
laugsdóttir, sjúkraþjálfarar segja
frá tilraunaverkefni sem fram fór í
Reykjadal í júní 2002 um aukna
sjúkraþjálfun CP barna.
Á NÆSTUNNI
Birna Lárusdóttir flytur fyr-
irlestur laugardaginn 23. nóvember
kl. 13.30 á fræðslufundi félagsins í
Odda, Háskóla Íslands, stofu 202.
Fyrirlesturinn nefnir hún deilur og
kenningar um íslensk bæjarnöfn á
fyrri hluta 20. aldar. Birna lauk
BA-prófi í íslensku frá Háskóla Ís-
lands árið 2000.
Fyrirlesturinn fjallar um þrjú yf-
irgripsmikil verk um bæjarnöfn
sem út komu á fyrri hluta 20. ald-
ar. Höfundar þeirra voru Finnur
Jónsson prófessor, Hannes Þor-
steinsson þjóðskjalavörður og
Margeir Jónsson, bóndi og fræði-
maður. Fyrirlesturinn er ókeypis
og öllum heimill.
Dagsnámskeiðið verður haldið í
Karuna miðstöðinni, Bankastræti
6, 4. hæð, laugardaginn 23. nóv-
ember. Gen Nyingpo kennir djúp-
stæðar aðferðir Mahayana búd-
dimsa til að umbreyta erfiðum
aðstæðum í andlegar leiðir. Dag-
skrá: kl. 11–12.30 kennlsa, kl. 13–
13.30 hugleiðsla, kl. 15.30–16.30
kennsla og kl. 17–17.30 hugleiðsla.
Nemendur úr Réttarholtsskóla
frá árinu ’61–62 verða með 40 ára
fagnað í kvöld kl. 19.30 í Naust-
kjallaranum.
Margrét Guðnadóttir og Ólöf
Erla Bjarnadóttir bjóða upp á
kaffi og meðlæti í versluninni
Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4,
föstudag hinn 22. nóvember kl. 16–
19. Boðið verður upp á kaffi frá
Kaffitári og bakkelsi frá Café
Konditori Copenhagen. Um kl. 17
syngur kórinn Gestur og gangandi.
Andri Snær Magnason og Steinar
Bragi lesi kafla úr nýútkomnum
bókum sínum. Allir eru velkomnir.
Opið hús á vegum sósíalíska
verkalýðsblaðsins Militant í kvöld,
föstudaginn 22. nóvember kl. 17.30,
Skólavörðustíg 6b, í Pathfinder
bóksölunni. Í tilefni nýútkominnar
bókar Pathfinder-forlagsins, Mal-
colm X Talks to Young People.
Sagt verður frá Malcolm, bókinni
og einkum ræðu sem hann hélt 3.
desember 1964 í háskólanum í Ox-
ford í Bretlandi. Einnig verða
kaffiveitingar og spjall.
Dagar myrkurs á Seyðisfirði
verður hefst í dag, föstudaginn 22.
nóvember, og hefst við Kaffi Láru
kl. 18. Slökkt verður á öllum ljósa-
staurum bæjarins á milli kl. 18.15
og 18.30. Dagskrá í öllum bekkjum
Seyðisfjarðarskóla sem tileinkuð
er dögum myrkurs. Kl. 19 flytja
nemendur í 5. og 6. bekk ljóð sem
tengjast myrkrinu. Kl. 22 stendur
Ceilidh band Seyðisfjarðar fyrir
dagskrá í Skaftfelli. Dansað verður
undir stjórn Muff Worden. Að-
gangseyrir er 500 kr. Laugardagur
23. nóvember kl. 19 verður jóga við
kertaljós fyrir konur og karla í
íþróttamiðstöðinni, o.fl. Kl. 22
verður dagskrá á Hótel Seyðisfirði
og boðið upp á súpu og smárétta-
hlaðborð á kr. 1.500.
Undirbúningsfundur að stofnun
landssamtaka áhugafólks um mál-
efni fjölskyldunnar á Íslandi í dag
verður haldinn í dag, föstudaginn
22. nóvember, kl. 17.30 í Ráðhús-
inu, Reykjavík. Sólveig Péturs-
dóttir dómsmálaráðherra mun
ávarpa fundinn og fulltrú frá fé-
lagsmálaráðuneyti mun einnig
verða á fundinum ásamt fleiri gest-
um.
Aðrir á mælendaskrá verða kynnt-
ir á fundinum.
KLÚBBUR matreiðslumeistara og
Alpan hf. hafa gert með sér sam-
starfssamning til næstu fjögurra
ára. Með þessu verður Alpan hf.
einn af aðalstyrktaraðilum lands-
liðs íslenskra matreiðslumeistara.
Landsliðið mun einnig aðstoða
fyrirtækið og umboðsaðila þess í
að kynna vörur Alpan þar sem
landsliðið er á ferð.
Landslið Íslands, sem er á
hverjum tíma valið af Klúbbi
matreiðslumeistara, hefur á und-
anförnum misserum náð eft-
irtektarverðum árangri í mörg-
um alþjóðlegum keppnum.
„ Alpan hf. hefur um árabil
framleitt hágæðapotta og pönnur
undir vörumerkinu Look Cook-
ware. Eldunarvörurnar hafa ver-
ið framleiddar svo til eingöngu til
útflutnings en vörurnar eru fáan-
legar í yfir 4.500 verslunum í 30
löndun. Með stuðningi við lands-
liðið er Alpan ekki aðeins að
styrkja íslenska matreiðslumeist-
arar til áframhaldandi alþjóð-
legrar velgengni, heldur einnig
að gera erlendum dreifingarað-
ilum Look Cookware tækifæri til
að koma vörunum á framfæri á
viðburðum sem landsliðið tekur
þátt í,“ segir í fréttatilkynningu.
Það eru þó ekki aðeins íslensk-
ir matreiðslumeistarar sem not-
ast við vörur Alpan, heldur eru
þær einnig notaðar af kanadíska
landsliðinu sem er styrkt af full-
trúa Alpan þar í landi.
Forsvarsmenn Alpan hf. og KM handsala samkomulagið. Talið frá vinstri
Jón Elíasson, sölustjóri, Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri, Gissur
Guðmundsson, forseti KM, og Bjarki Hilmarsson, stjórnarmaður.
Kynna íslenskar
pönnur erlendis
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi tilkynning frá
Sigurrós Þorgrímsdóttur, for-
manni skólanefndar Menntaskól-
ans í Kópavogi:
„Undanfarna daga hefur
skýrsla Ríkisendurskoðunar um
ríkisreikninga árins 2001 verið í
fréttum. Sérstaklega hefur verið
fjallað um erfiða fjárhagsstöðu
framhaldsskólanna og að MK
hafi farið langt umfram fjárheim-
ildir.
Menntaskólinn í Kópavogi
starfar á þremur meginsviðum;
bóknámssviði, hótel- og matvæla-
sviði og ferðamálasviði. Haustið
1996 var tekinn í notkun nýr
5.000 fermetra verkmenntaskóli í
hótel- og matvælagreinum sem
hluti af Menntaskólanum í Kópa-
vogi. Frá þeim tíma hefur skól-
inn ekki fengið þær fjárveitingar
til rekstrar sem gengið var út frá
við uppbyggingu aðstöðunnar en
nám í hótel- og matvælagreinum
er mjög sérhæft og dýrt.
Fjárveitingar til framhalds-
skólanna fara eftir niðurstöðu
reiknilíkans sem á að tryggja að
framlög til skólanna séu byggð á
sömu forsendum. Reiknilíkanið
hentar vel fyrir skóla sem kenna
hefðbundið bóknám enda hafa
þeir skólar ekki átt í sama vanda.
Í reiknilíkaninu hefur ekki ver-
ið tekið tillit til hins sérhæfða
verknáms Hótel- og matvæla-
skólans heldur fær skólinn fjár-
framlög til reksturs eins og um
hefðbundið bóknám væri að
ræða. Námið byggist að stórum
hluta á úrvinnslu hráefna við
matreiðslu, framreiðslu, bakstur
og kjötiðn og því eru aðföng til
skólans mjög umfangsmikil og
kostnaðarsöm. Í reiknilíkaninu er
ekki tekið tillit til þessa, heldur
fær skólinn svipaða fjárveitingu
til kaupa á aðföngum og Mennta-
skólinn í Reykjavík, sem er hefð-
bundinn bóknámsskóli. Fjár-
magn til orkunotkunar, s.s.
eldunar, kælingar, frystingar og
bökunar er samkvæmt reiknilík-
aninu aðeins örlítill hluti af þeirri
orkunotkun sem skólinn þarf til
að nemendur getir stundað það
nám sem þar fer fram. Hið sama
á við um ræstingu á matvælaað-
stöðunni sem fer eftir Evrópu-
reglugerð um hreinlæti en marg-
falt meiri ræstingu þarf þar en á
hefðbundinni bóknámsstofu. Af
framangreindum ástæðum og til
að geta haldið úti lágmarks-
kennslu í hótel- og matvæla-
greinum á Íslandi hefur skólinn
farið fram úr fjárheimildum allt
frá því Hótel- og matvælaskólinn
tók til starfa innan MK.
Í bréfum, greinargerðum og á
ýmsum fundum hafa skólanefnd
og skólameistari margítrekað
bent menntamálaráðuneytinu á
að ekki sé hægt að nota reiknilík-
anið fyrir þennan eina sérhæfða
skóla í matvælagreinum á land-
inu. Það sé nauðsynlegt að taka
hinn sérhæfða verknámsþátt
skólans út og fá sérstaka fjár-
veitingu til reksturs á ákveðnum
þáttum eins og orkunotkun,
kaupum á aðföngum og ræstingu.
Reiknilíkanið hefur verið í end-
urskoðun nú á þriðja ár og hefur
stjórnendum skólans verið bent á
að bíða eftir þeirri niðurstöðu á
sama tíma og fyllstu hagræðing-
ar hefur verið gætt innan skól-
ans. Öllum var það ljóst að þenn-
an tíma var rekstrarkostnaður
skólans verulega umfram fjár-
heimildir eða um 10% á ári. Nú
hefur hið nýja reiknilíkan verið
kynnt og samkvæmt því fær
skólinn hvergi nærri þá leiðrétt-
ingu sem þarf til reka skólann
innan fjárheimilda hvers árs.
Eins og mál horfa við í dag má
ætla að draga þurfi verulega
saman í rekstri skólans og
kennsluframboði í hótel- og mat-
vælagreinum.“
Er sérhæft
verknám of dýrt
fyrir Ísland?
Kjördæmafélag Samfylking-
arinnar í Reykjavík heldur borg-
armálafund á morgun, laugardaginn
23. nóvember, kl. 11 í Austurstræti
14, 4. hæð. Fundurinn er öllum op-
inn. Erindi halda: Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, formaður skipulags-
nefndar og Helgi Hjörvar, fulltrúi í
hafnarstjórn.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
í Reykjavík heldur fund um sjáv-
arútvegsmál á morgun, laugardag-
inn 23. nóvember, kl. 11, á Torginu,
Hafnarstræti 20, 3. hæð. Þar verða
m.a. til umræðu brottkast á fiski og
löndun fram hjá vigt og áhrif þess á
þjóðarbúið. Frummælandi er Stein-
grímur Ólafsson, formaður VG í
Reykjavík.
Í DAG STJÓRNMÁL
DANIEL Edelstein sjóntækjafræð-
ingur hefur opnað Linsumátun á
annarri hæð í Ármúla 20. Hjá Lins-
umátun er notuð nýjasta tækni við
mátun á linsum og skoðun á augum.
Þar eru fáanlegar allar helstu teg-
undir af snertilinsum s.s. einnota
linsur, mánaðarlinsur, sjónskekkjul-
insur, litaðar linsur og margskiptar
linsur.
Hjá Linsumátun er sérstaklega
lögð áhersla á litaðar linsur, og eru
þar fáanlegir flestallir litir sem
framleiddir eru í linsum í dag. Allar
litlinsur eru einnig fáanlegar með
sjónleiðréttingu. Linsumátun sér-
hæfir sig einnig í framleiðslu á sér-
slípuðum gleraugum fyrir stanga-
veiði, skotveiði, golf, sól,
akstursíþróttir og skjávinnu.
Hægt verður að skoða með aðstoð
tölvu ástand augnanna, og meta
staðsetningu og stöðugleika á linsum
í augum með skjámynd. Á skjánum
er einnig hægt að bera saman liti á
linsum í augum.
Linsumát-
un opnuð
í Ármúla