Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 72
DAGBÓK
72 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
fer Mánafoss.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
gær kom Örvar.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofan, kl. 13.30
bingó.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs
eldri borgara í Damos.
Laugard.: Kl. 10–12 bók-
band, línudans kl. 11.
Innkaupaferð í Kringl-
una 28. nóv. kl. 13 frá
DAMOS. Miðaðsala haf-
in á jólahlaðborðið 12.
des. Uppl. og miðasala
hjá Svanhildi í DAMOS í
síma 586 8014.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist, kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi á eftir göng-
unni, allir velkomnir, kl.
14 brids og spila-
mennska, hárgreiðslu-
stofan opin 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13. „Opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 13, brids kl.
13.30, pútt í Hraunseli
kl. 13.30. Námskeið í
leirmótun fyrir byrjend-
ur verður kl. 13, ennþá
laus pláss. Skráning í
Hraunseli í síma
555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
er lokuð vegna breyt-
inga í Glæsibæ. Föstu-
dagur: Félagsvist kl.
13.30. Laugardagur:
Heilsa og hamingja, fyr-
irlestur um fjármál aldr-
aðra í Ásgarði, Glæsibæ,
kl. 13. Almennur félags-
fundur með þingmönn-
um Reykjavíkur laugar-
daginn 30. nóv. nk. í Ás-
garði, Glæsibæ, kl.
13.30. Silfurlínan er opin
á mánu- og miðvikudög-
um kl. 10–12. Skrifstofa
félagsins er að Faxafeni
12, s. 588 2111. Félags-
starfið er í Ásgarði,
Glæsibæ.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug. Frá hádegi
spilasalur opinn. Kl. 15
kóræfing. Ath. breyttur
tími. Kl. 16 opnuð mynd-
listarsýning Árna Sig-
hvatssonar. M.a. syngur
Gerðubergskórinn undir
stjórn Kára Friðriks-
sonar, einnig syngur
Árni einsöng, nokkur
lög. Kl. 17 tónleikar í A-
sal. Nemendur úr Suz-
uki-tónlistarskólanum,
söngbræður Ara fróða
IOOF, stjórnandi Guð-
rún Ásbjörnsdóttir. Allir
velkomnir. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silfur-
smíði, kl. 9. 15 ramma-
vefnaður, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlistahópur,
kl. 14 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 mæðra-
morgunn. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10 aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal. Í dag
kl. 14.30–16 dansað við
lagaval Sigvalda, góðar
kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud. kl.
13–15 á Loftið í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5. Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Félög eldri borgara á
Álftanesi og í Garðabæ
ásamt kirkjunni verða
með föstudagssamveru,
harmonikkuball, í dag,
föstudaginn 22. nóv., kl.
14 til 17 í Kirkjuhvoli,
Garðabæ. Dansað og
sungið undir harmon-
ikkuleik. Garðakórinn,
kór eldri borgara í
Garðabæ, kemur og
syngur, farið verður með
gamanmál. Vöfflukaffi.
Verð 500 kr. Verið vel-
komin.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarastarf. Leik-
fimiæfingar við allra
hæfi undir stjórn sjúkra-
þjálfara, Jóhönnu Sig-
ríðar, þriðjudag og
föstudag kl. 13. Súpa,
kaffi og spjall. Allir vel-
komnir.
Minningarkort
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi), 2. hæð, s.
552 2154. Skrifstofan er
opin miðvikudaga og
föstudaga kl. 16–18 en
utan skrifstofutíma er
símsvari. Einnig er hægt
að hringja í síma
861 6880 og 586 1088.
Gíró- og kreditkorta-
þjónusta.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl. 10–15.
Sími 568 8620. Bréfs.
568 8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
Heilavernd. Minningar-
kort fást á eftirtöldum
stöðum: Í síma 588 9220
(gíró), Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd
á skrifstofutími í síma
552 4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta
á vefslóðinni:
http://www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562 5605, bréfsími
562 5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Í dag er föstudagur 22. nóvember,
326. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Jesús sagði: Til dóms er ég kominn
í þennan heim, svo að blindir sjái og
hinir sjáandi verði blindir.
(Jóh. 9, 39.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur verið að veltaþví fyrir sér hvernig þeim hafi
orðið við, farþegum sem fóru í gær á
vegum íslenzkrar ferðaskrifstofu til
Prag, þegar þeir komust að því að
þar stæði yfir leiðtogafundur Atl-
antshafsbandalagsins. Öryggisráð-
stafanirnar í Reykjavík vegna utan-
ríkisráðherrafundarins í vor eru
smámunir hjá því, sem nú getur að
líta í Prag. Gamla borgin er víggirt,
ýmsir verzlunareigendur hafa lokað
og neglt fyrir gluggana af ótta við
óeirðir, her- og lögreglumenn
þramma þungbrýndir um göturnar
þúsundum saman, bandarískar orr-
ustuþotur sveima yfir hinum frægu
turnum Prag. Ekki beinlínis draum-
ur ferðamannsins.
Víkverji frétti af hópi samstarfs-
manna, sem ætlaði að halda árshá-
tíðina sína í Prag og hafa grímuball.
Það er eins gott að hafa grímurnar
ekki uppi á almannafæri, því að í
Prag hafa verið settar reglur sem
banna fólki að ganga um grímuklætt.
Þær eru reyndar settar til höfuðs
óeirðaseggjum, fremur en Íslending-
um í árshátíðarskapi, en borgar sig
þó sennilega að fylgja þeim.
Víkverja finnst hálfklaufalegt að
auglýsa skemmtiferð til Prag á
tíma þegar borgin er í jafnannar-
legu ástandi og raun ber vitni. Það
eru ekki nema sérvitrustu túristar,
sem hafa gaman af alþjóðlegum
leiðtogafundum um öryggis- og
varnarmál.
x x x
VÍKVERJI hafði á dögunum áorði að honum hefði þótt mat-
urinn undarlegur í Flugleiðavél á
leið til Íslands; einhvers konar fisk-
kaka með torkennilegu meðlæti.
Víkverji hefur heyrt marga tala um
þennan sama eða svipaðan rétt,
með takmarkaðri hrifningu. Fisk-
kakan virðist vera orðin frægur
ógnvaldur ferðaþreyttra viðskipta-
vina Flugleiða, sem gjarnan vilja
góðan mat í vélinni á leið heim. Nú
hafa orðið 2,9 milljarða króna um-
skipti í rekstri Flugleiða fyrstu níu
mánuði ársins og forstjóri félagsins
sagði hér í blaðinu á miðvikudaginn
að kostnaður félagsins væri með
því lægsta sem gerðist í áætlunar-
flugi. Er þá ekki agnarlítið svig-
rúm, sem dygði til að útrýma fisk-
kökunni og bjóða upp á eitthvað
ætt í staðinn?
FÓLKI verður tíðrætt um hvorteitthvað sé að marka skoðana-
kannanir. Sumir halda því fram að
fólk svari því alls ekki í könnunum,
sem því býr í brjósti í raun. Samt eru
t.d. niðurstöður kosningakannana
ævinlega svo nálægt raunverulegum
kosningaúrslitum, að Víkverji getur
ekki annað en haft trú á því að fólk
segi sannleikann í könnunum.
Á dögunum hitti Víkverji þó skoð-
anakönnuð, sem hafði orðið fyrir
reynslu, sem bendir kannski til að
fólk telji sig þurfa að fylgja tízk-
ustraumum þegar það svarar skoð-
anakönnunum. Viðkomandi stýrði
könnun, þar sem spurt var hvort al-
gengt rafmagnstæki, sem flestir
telja sig þurfa að eiga, væri til á
heimilinu. Í könnuðinn hringdi svo
eldri kona, sem hafði lent í úrtakinu.
Hún hafði svarað því til, að hún ætti
ekki tækið sem um ræddi. Svo fékk
hún bakþanka, hafði samband við
könnuðinn og lýsti áhyggjum sínum
af því að hún hefði „skemmt könn-
unina“ með þessu heiðarlega svari.
Skoðanakönnuðurinn gat svarað því
til að fólk eins og hún væri nauðsyn-
legt hverri könnun til þess að niður-
stöðurnar yrðu marktækar.
Allra meina bót
ÉG vil taka undir nýleg
skrif í Velvakanda um
SDS-smyrslið. Ég hef verið
ófær í mjaðmalið vinstra
megin og hef af þeim sök-
um átt erfitt með gang
svona annars slagið.
Ég var staddur Í Reykja-
vík og keypti þetta krem í
apóteki, frétti af því frá
öðrum, og prófaði það. Ég
hef tröllatrú á öllu sem er
náttúrulegt og íslenskt,
eins og svo margir af minni
kynslóð (74 ára). Ég hef
lagast mjög mikið enda er
ég duglegur að bera á mig
og núna finnst mér ég vera
eins og unglingur. Þetta
krem er allra meina bót og
er það notað á hverslags
sár á mínu heimili í sveit-
inni.
Ég vil þakka þeim sem
framleiða kremið fyrir að
það sé til og er sammála því
að það mætti auglýsa þessa
afurð meira.
Magnús Þórðarson,
Borgarfirði.
Heiðurskona
í útburði
ÉG bý í Álftamýri, er búinn
að búa þar í næstum 30 ár
og sama konan hefur borið
út blaðið til okkar öll þessi
ár. Mitt fyrsta verk á
morgnana er að setja könn-
una yfir og ná í Morgun-
blaðið, en það hefur aldrei
vantað, sama hvernig viðr-
ar. Vil ég koma á framfæri
þakklæti til þessarar ágætu
konu og tel ég að hún sé ein
af þeim sem eigi mikinn
þátt í því að Morgunblaðið
er mest lesna blaðið á Ís-
landi. Á hún heiður skilinn.
Áskrifandi.
Bætt aðgengi
ÞAÐ kom fram í frétt í
Morgunblaðinu að kvik-
myndahúsið Regnboginn
verði áfram starfrækt á
Hverfisgötunni og eiga sér
þar stað miklar endurbæt-
ur. Vona ég að eigendur
þess hugsi til þeirra sem
eru fastir í sínum hjólastól
og hafa ekki komist til
þeirra fram að þessu.
BÁ.
Leiðrétting
Í MBL. 26. okt. sl. var frétt
á bls. 18 þar sem sagt var
frá byggingu veitingahúss á
Óseyrarnesi í landi Hrauns
í Ölfusi. Þetta er ekki að
öllu leyti rétt. Byggingin
stendur á landi Hrauns,
Óseyrarnes er austan ár-
innar, margþekktur ferju-
staður um aldir. Þar sem
veitingastaður þessi er vel
staðsettur, stendur hátt
með frábært útsýni til allra
átta, verður hann eftirsótt-
ur áningarstaður hjá ferða-
fólki í framtíðinni. Því þarf
að leiðrétta staðsetningu
örnefnisins svo það festist
ekki í málinu.
Árnesingur.
Hola í höggi
Á HAUSTDÖGUM las ég í
Morgunblaðinu að 11 ára
strákur hefði farið holu í
höggi í sumar, og mikið
húllumhæ í kringum það
þar sem hann var svo ung-
ur. Frændi minn, sem er 9
ára, fór einnig holu í höggi í
sumar á Húsavíkurvelli en
ekkert hefur verið fjallað
um það.
Ingunn Elfa.
Tapað/fundið
Veski týndist
RAUTT Lion King-veski
týndist miðvikudaginn 13.
nóvember í miðbæ Reykja-
víkur. Finnandi vinsamleg-
ast hafi samband í síma
820 7580.
Úr í óskilum
KVENMANNSÚR fannst
mánudaginn 18. nóvember
við Geysishúsið á Vestur-
götu. Upplýsingar í síma
693 9603.
Dýrahald
Ólafur er týndur
ÓLAFUR er grábröndótt-
ur 8 mánaða fress, eyrna-
merktur og með gráskell-
ótta ól. Hann týndist frá
Flúðaseli en gæti hafa farið
í bíl og því verið kominn
langt að heiman. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 898 4752.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT:
1 hætta, 4 hæfir, 7 skýrði
frá, 8 krafturinn, 9 lík, 11
einkenni, 13 þyrma, 14
ósiður, 15 bardagatól, 17
skrifaði, 20 greinir, 22
hnappur, 23 óskar eftir,
24 sterkja, 25 sér eftir.
LÓÐRÉTT:
1 fara af fötum, 2 batna, 3
líkamshlutinn, 4 far, 5
stóri, 6 streyma, 10 kæk-
ur, 12 uppistaða, 13
málmur, 15 gáfaður, 16
árum, 18 bætir við, 19
hreinar, 20 tvínóna, 21
ró.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 álitlegur, 8 kjúka, 9 gítar, 10 rói, 11 fitna, 13
nemur, 15 hagga, 18 snögg, 21 nón, 22 léleg, 23 ágeng,
24 aðlaðandi.
Lóðrétt: 2 ljúft, 3 tjara, 4 eggin, 5 ultum, 6 skúf, 7 þrár,
12 nóg, 14 ern, 15 hali, 16 gilið, 17 angra, 18 snáða, 19
örend, 20 gagn.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
VIÐ hjónin keyptum okk-
ur fyrir ári eina nótt á Hót-
el Sögu, svokallaða „Róm-
antíska sögu“. Um kl. 5–6
um nóttina urðum við fyrir
ónæði vegna framkvæmda
á hótelinu. Þegar við yfir-
gáfum hótelið í hádeginu
daginn eftir bauð þjón-
ustufulltrúi hótelsins, Guð-
ríður Bolladóttir, okkur að
koma aftur hvenær sem
við vildum og þá fengjum
við allan pakkann í boði
hótelsins. Við ákváðum að
notfæra okkur þetta tilboð
fyrir hálfum mánuði.
Þegar við komum á hót-
elið tók hún á móti okkur
og bauð okkur velkomin
og lét okkur fá forsetasvít-
una með þeirri ósk að vel
færi um okkur. Var okkur
síðan send blóm og kampa-
vín á herbergið. Um kvöld-
ið borðuðum við í Grillinu
þar sem maturinn er engu
líkur.
Við viljum senda okkar
hjartans þakkir fyrir frá-
bærar móttökur en við
höfum aldrei kynnst slíku
áður.
Pétur Gíslason og frú.
Ótrúlegar móttökur