Morgunblaðið - 22.11.2002, Page 81
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 81
Frábær grínhasar með hinum eina sanna Jackie Chan.
Frá framleiðendum Men in Black og Gladiator
Sjáið
Jackie Chan
í banastuði
Þegar tveir ólíkir menn
deila getur allt gerst.
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 479 Sýnd kl. 10. Vit 479
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429Kl. 6, 8 og 10. Vit 474 Kl. 6. Vit 474
SV Mbl
1/2 HK DV RadíóX SV Mbl
Sýnd kl. 4. Vit 448
Sýnd kl. 8. Vit 448
AKUREYRIÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit 468
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P kl. 4 og 8. B. i. 16. Vit 479.
ÁLFABAKKIÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 11. Vit 468 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 468
KEFLAVÍK
AKUREYRI
SKÖMMU eftir að Fálkar,
kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, var frumsýnd
kom út diskur með tónlist-
inni úr myndinni, sam-
nefndur henni. Á diskinum
eiga lög Hilmar Örn Hilm-
arsson, Múm, Keith Car-
radine, sem lék annað aðal-
hlutverk myndarinnar,
Mínus, Megas, Leaves,
Bang Gang, Atingere og
Daníel Ágúst Haraldsson.
Friðrik Þór valdi tón-
listina í myndina en segist
hafa notið aðstoðar Ás-
mundar Jónssonar hjá
Smekkleysu við það verk.
„Ég reyndi að velja nýja
tónlist sem ég kunni vel að meta,
en leit líka til þess að hún félli að
efninu; oft er maður að leita að
andrúmslofti.“
Hilmar Örn Hilmarsson semur
tónlistina í verkinu, en þeir Frið-
rik hafa unnið mikið saman í
gegnum árin, og þrjú lög eftir
Hilmar eru á diskinum. „Við
Hilmar erum orðnir svo samrýndir
að það var eiginlega sjálfgefið að
hann sæi um músíkina,“ segir
Friðrik, en bætir við að Hilmar
hafi ekki komið mikið að tónlist-
inni á diskinum að öðru leyti nema
að hann kom með hugmyndina að
lagi Megasar í myndinni. Það lag,
„Edge and Over,“ er eftirminni-
legt Íslendingum, ekki síst fyrir
það að lagið heyrist í þýskri hafn-
arkrá og er sungið á ensku. Frið-
rik segir að það hafi bara verið
viðeigandi, ekki síst í ljósi þess að
þetta sé kannski fyrst og fremst
Megas heyrist syngja á ensku í einu atriði í
Fálkum sem gerist á þýskri hafnarkrá.
Megas
syngur
á ensku
Geislaplata með tónlistinni úr kvik-
myndinni Fálkum er komin út.
Morgunblaðið/Einar Falur
mynd sem útlendingar eigi eftir að
sjá frekar en Íslendingar.
Hvað Keith Carradine varðar þá
segir Friðrik að lag hans hafi
fengið að fljóta með vegna þess að
Carradine samdi það á meðan á
tökum á myndinni stóð. Hann seg-
ist og kunna ágætlega við það þó
það stingi eilítið í stúf við annað á
plötunni, „það er alltaf kántrítaug
í mér“.
Friðrik segir að sé finnist plat-
an standa sjálfstæð sem lagasafn,
frekar en eingöngu safn tónlistar
úr kvikmynd. „Þó hún sé ekki yf-
irlit yfir allt það sem er ferskast
að gerast í íslenskri tónlist, átti
ekki að vera það, þá er hún ansi
skemmtileg fyrir það hve mikið er
af nýrri tónlist á henni,“ segir
hann.
Tónlistin úr Fálkum
Morgunblaðið/Kristinn
Finnur Beck, fréttamaður á Sjónvarpinu, Hlynur Sigurðsson, kynþokka-
fyllsti maður landsins, Logi Bergmann og Sigurður Kári Kristjánsson,
prófkjörsframbjóðandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, eru komnir í heilsuátak.
Sá kynþokkafyllsti í heilsuátaki
ÞÓTT keppnistímabilinu í knatt-
spyrnu sé svo að segja nýlokið eru
hin metnaðarfyllri lið þegar farin
að huga að næsta tímabili.
Hið stjörnum prýdda Ungmenna-
félag Ragnan Reykjavík, sem m.a.
er skipað landskunnum íþrótta-
görpum á borð við Gísla Martein
Baldursson og Loga Bergmann
Eiðsson fjölmiðlamenn, Rúnar Frey
Gíslason leikara, Dag Sigurðsson
handboltakappa og Pétur Mar-
teinsson knattspyrnumann reið
ekki beint feitum hesti frá keppn-
inni í utandeildinni í sumar og er
því hugur í mönnum að koma
sterkari til leiks á nýju keppn-
istímabili.
Einn liður í því er að vinna að því
að koma sterkir undan vetri. Form-
legu heilsuátaki var því hrundið af
stað í vikunni með því að liðsmenn
brugðu sér á heilsudrykkjabarinn
spánnýja, Boozt, sem er á Stjörnu-
torginu í Kringlunni. Þar fengu
þeir sér í boði hússins orkuríkan
heilsudrykk en hann er nýstárlegur
fyrir þær sakir að notað er í hann
gamla góða og alíslenska skyrið.