Morgunblaðið - 01.12.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 01.12.2002, Síða 1
ELLEFU ára gamall sonur tyrk- neska forsætisráðherrans Abdullah Guls hefur verið kallaður í herinn. Mehmet Emre Gul, sem gengur í barnaskóla í Ankara, fékk bréf í lok vikunnar frá varnarmálaráðuneyt- inu þar sem honum var gert að mæta tafarlaust á næstu skráning- arskrifstofu hersins til að ganga frá formsatriðum herþjónustu hans. Embættismenn forsætisráðu- neytisins upplýstu kollega sína í varnarmálaráðuneytinu um bréfið og þeir viðurkenndu mistök. Í Tyrklandi eru allir karlmenn herskyldir – frá 18 ára aldri. Ellefu ára í herinn Ankara. AFP. STOFNAÐ 1913 282. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2002 mbl.is Utangarðs- menn til valda Pólitískt landslag breytist hratt í Suður-Ameríku nú um stundir 12 Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, í viðtali 16 Loforðið við Jónas efnt Þrjú á palli gefa út safnplötuna Lífið er lotterí Fólk 12 Frelsinu verður að fylgja ábyrgð SVEITARFÉLÖGIN í land- inu tapa nú útsvarstekjum vegna mikillar fjölgunar einkahlutafélaga, að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Hann telur að tekjurnar muni á ári minnka um allt að einn millj- arð króna, frá síðasta ári. Heimildir til að stofna einka- hlutafélög voru rýmkaðar um síðustu áramót og tekju- skattur lækkaður úr 30% í 18%, auk þess sem hægt var að færa eigur sínar yfir í einkahlutafélög án þess að greiða af því skatta. Vilhjálmur segir að það sé umhugsunarefni fyr- ir stjórnvöld ef upp sé komið ójafnræði milli skatt- greiðenda. Svo virðist sem hinir hefðbundnu skattgreiðendur séu að taka á sig sífellt stærri hluta af kökunni. Áhrifin eru meiri á minni sveit- arfélög þar sem margir einyrkjar eru að störfum, á borð við smábátasjómenn. Minnka skattstofn sinn Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, bendir á að með stofnun einkahlutafélags séu ein- staklingar að minnka skattstofn sinn og búa til kostnað sem ekki var hægt áður, eins og að leigja hluta af húsnæði sínu undir einkahlutafélagið. Kristinn kannaði á sínum tíma áhrif þessa á sveit- arfélögin. Tók hann dæmi um smábátasjómann í Snæfellsbæ með um 3,5 milljónir króna í árstekj- ur. Áður hefði hann greitt 600–700 þúsund krónur í útsvar til sveitarfélagsins en með stofnun einka- hlutafélags hefði hann áætlað sér lágmarkslaun og fór útsvarið þá niður í um 150 þúsund krónur. Kristinn tók fram að dæmið væri frá því áður en fjármálaráðherra hækkaði viðmið til að áætla sér tekjur um síðustu áramót en þetta gæfi engu að síður vísbendingu um þróunina. „Enginn getur mótmælt því ef Jón Jónsson ehf. greiðir kostnað fyrir Jón Jónsson. En þetta er hrópandi óréttlæti gagnvart samborgurunum. Einn er kannski venjulegur launamaður á meðan nágranninn dregur allan sinn kostnað frá áður en hann fer að greiða til samfélagsins,“ segir Krist- inn.            Fjölgun einkahlutafé- laga dregur úr útsvars- tekjum sveitarfélaga Hrópandi óréttlæti  Útsvarstekjur/6 Stóraukin sala á kjúk- lingum og svínakjöti Fram- leiðslan meiri en neyslan Í SEPTEMBER og október varð framleiðslan á kjúklingum og svína- kjöti meiri en salan. Birgðir söfn- uðust því fyrir í mánuðunum. Sala á kindakjöti var 19,4% minni í októ- ber en sama mánuði í fyrra. Sala á kjúklingum og svínakjöti var mjög mikil í september, en sal- an í október varð enn meiri. Sala á kjúklingum var 464 tonn, sem er 32% aukning frá október í fyrra, og sala á svínakjöti var 597 tonn, sem er 23% aukning frá sama mánuði í fyrra. Að jafnaði er framleiðsla á kjúk- lingum og svínakjöti nánast sú sama og salan frá einum mánuði til annars en síðustu tvo mánuði hefur átt sér stað birgðasöfnun í þessum kjöttegundum þrátt fyrir góða sölu. Í september og október jukust birgðir á kjúklingum um 41 tonn og á svínakjöti um 48 tonn. Nokkuð af svínakjöti hefur reyndar verið flutt út á erlenda markaði fyrir lágt verð. Minni sala kindakjöts Frá ágúst til október tóku slát- urhús á móti liðlega 8.000 tonnum af kindakjöti sem er nánast sama tala og á síðustu sláturtíð. Kinda- kjötssala í október er hins vegar nokkru minni en í sama mánuði í fyrra. Á síðustu 12 mánuðum hefur sala á lambakjöti dregist saman um 11%. Sala á kjúklingum hefur á sama tímabili aukist um 13% og um 11,7% á svínakjöti. Heildarsala á kjöti hefur á þessu tímabili aukist um 1,6%. BIÐIN eftir jólunum getur tekið á hjá litlum krílum. Börnin á Bakkaborg eru þó komin í há- tíðarskap því í gær var haldið upp á 30 ára af- mæli skólans sem var skreyttur hátt og lágt. Morgunblaðið/Golli Hvenær koma eiginlega jólin? RISASTÓR olíubrák – um 9.000 tonn af hráolíu sem lekið hefur úr tankskipinu Prestige sem liðaðist í sundur og sökk um 150 sjómílur undan spænsku Atlantshafsströnd- inni fyrir tíu dögum – stefndi í gær hraðbyri í átt að ströndum Galisíu- héraðs á Norðvestur-Spáni. Íbú- arnir, sem margir byggja lífsaf- komu sína á sjávarfangi, búa sig undir hið versta. Samkvæmt þeim fregnum sem bárust af vettvangi í gærmorgun var brákin, sem er sú stærsta sem lekið hefur úr flaki Prestige frá því það sökk, aðeins í um 22 km fjar- lægð frá ströndinni. Sterkur vindur úr vestri með tilheyrandi ölduhæð skapaði aðstæður sem skilvirkar mengunarvarnir ráða ekki við, og sögðust talsmenn stjórnvalda á svæðinu mjög vonlitlir um að takast mætti að afstýra enn meiri spjöllum en fyrri leki úr skipinu hafði þegar valdið. Þúsundir tonna af olíu úr Prestige bárust á land fljótlega eft- ir að það byrjaði að brotna fyrir tæpum hálfum mánuði og spilltu öllu lífríkinu og að minnsta kosti 100 baðströndum. Mengunin hefur valdið því að fiskveiðar hafa verið bannaðar á miðunum undan 400 km kafla Galisíustrandar. Olíumengunin eykst La Coruna. AFP. SJÁLFBOÐALIÐI vinnur að hreins- unarstarfi á ströndinni nærri Finis- terre-tanga á Norðvestur-Spáni. Varnarbarátta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.