Morgunblaðið - 04.12.2002, Síða 41

Morgunblaðið - 04.12.2002, Síða 41
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 41 ÞAÐ VAR lokað fyrir heita vatnið í síðustu viku, í fjórða sinn á einu ári. Ástæðan var tæp 90.000 kr. skuld á sameiginlegum hita þriggja íbúðaeiganda í húsinu. Ein eignin í húsfélaginu hefur verið á nauðung- aruppboði í meira en ár, og á henni hvílir skuldin. Sýslumannsembætt- ið hefur dregið lappirnar allt þetta ár og enginn úrskurður fallið um þessa skuld, né annað. Aðrir hús- félagslimir hafa ítrekað liðið vegna þessa og verið svarað með skætingi þegar beðið er um úrslausn mála. Hver heilbrigður maður yrði vit- laus af að þurfa að búa svona ástand, hvað þá þeir sem sjúkir eru. Einn húsfélaga kom að íbúð sinn kaldri og tilkynningu frá Orkuveitunni um að lokað væri fyr- ir heita vatnið vegna skulda. Hann var kannski ekki rétti maðurinn til að taka við svona skilaboðum, bú- inn að vera á geðdeild Landspít- alans í á aðra viku til að geta tekið til við uppvaskið sem beið hans heima. Þar var hins vegar ekki að- eins 10 daga gamalt uppvask, held- ur og einnig ísköld íbúðin. Ég spyr: hvar er samábyrgðin? Af hverju er þessi maður sendur heim af sjúkrastofnun án þess að nokkuð sé vitað um heimilishagi hans? Og annað. Af hverju kemur Orkuveita Reykjavíkur svona fram við viðskiptaaðila sinn sem alltaf hefur staðið í skilum? Af hverju hlustar hún ekki á kvörtun viðkom- andi heldur ætlast til að hann greiði skuld af þrotabúi sem er í málsmeðferð, skuld sem hann á enga sök á? Hvor hefur meiri þörf fyrir sanngirni, Orkuveita Reykja- víkur, sem er að undirbúa bygg- ingu glæsihallar fyrir starfsmenn sína, eða öryrki sem var svo óhepp- inn að kaupa íbúð í húsi þar sem skuld hvílir á húsfélagi? TORFI K. STEFÁNSSON HJALTALÍN, Klapparstíg 11. Orkuveita Reykjavík- ur og smælingjarnir Frá Torfa K. Stefánssyni Hjaltalín: FRÉST hefur að borgaryfirvöld hugleiði að loka leikskólum í Reykja- vík næsta sumar. Samkvæmt frétt á vísi.is telur Bergur Felixson, fram- kvæmdastjóri Leikskóla Reykjavík- ur, að „slíkt geti gengið upp hjá flest- um foreldrum“ og bendir síðan á að „gæsluvöllum fjölgi á sumrin“. Við foreldrar ungra barna sem njóta þjónustu Leikskóla Reykjavík- ur teljum að börnum sé ekki best þjónað með því að sumarið sé eitt- hvað sem geti „gengið upp hjá flest- um foreldrum“. Okkar skoðun er að börnunum sé best þjónað með því að þeirra sumarfrí geti verið á sama tíma og sumarfrí foreldranna, en ekki á einhverjum öðrum tíma. Loki leikskólarnir er við búið að margir þurfi að bjarga sér fyrir horn með því að ráða hálfstálpuð börn sem barnapíu, eða leita á náðir ættingja. Gæsluvellir geta aldrei komið í stað heilsdagsleikskóla. Fyrir börnin er það ekki góð lausn að verða þannig að vandamáli sem þarf að leysa. Bergur talar einnig um að leikskólum sé lokað í mörgum ná- grannasveitarfélögum. Við teljum það ekki vera góða framtíðarsýn fyr- ir Leikskóla Reykjavíkur ef alltaf á að miða við að lækka þjónustustig til jafns við það versta sem gerist ann- ars staðar. Frekar væri ástæða að horfa til hinna sveitarfélaganna sem gera betur og reyna að skáka þeim. Sumarfríið á að vera tilhlökkunar- efni fjölskyldunnar, tími þar sem fjölskyldumeðlimir geta notið sam- vista og safnað kröftum. Ekki gera sumarið að púsluspili og martröð fyrir barnafjölskyldur! Við undirrituð skorum á borgaryfirvöld að samþykkja ekki tillögu um sum- arlokun leikskóla. GUÐRÚN A. SÆVARSDÓTTIR og ÞÓRÐUR MAGNÚSSON, Ljósalandi 4 HALLDÓR PÁLSSON, Safamýri 56 BENEDIKT HELGASON, Haukshólum 6 GRÓA MÁSDÓTTIR, Háaleitisbraut 37 ÁSTRÍÐUR GUÐRÚN EGGERTSDÓTTIR, Hamravík 16 Sumarlokun leikskóla Frá Guðrúnu A. Sævarsdóttur, Þórði Magnússyni, Halldóri Páls- syni, Benedikt Helgasyni, Gróu Másdóttur og Ástríði Guðrúnu Eggertsdóttur: Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Góðir skór Skóbúðin Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15. Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Þú færð jólagjafirnar fyrir starfsfólkið hjá okkur Jólagjafir starfsfólksins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.