Morgunblaðið - 04.12.2002, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss og Goðafoss
koma og fara í dag.
Mánafoss og Arnarfell
koma í dag. Haukur fer í
dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er sem dregin voru út
dagana, 1. des. 4336, 2.
des. 61698, 3. des. 62921
og 4. des. 23624.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sólvalla-
götu 48. Skrifstofa s.
551 4349, opin miðvikud.
kl. 14–17. Flóamarkað-
ur, fataúthlutun og fata-
móttaka opin annan og
fjórða hvern miðvikud. í
mánuði kl. 14–17, s.
552 5277
Mannamót
Aflagrandi 40. Verslun-
arferð í Hagkaup í dag
kl. 10. Opið hús fimmtu-
daginn 5. desember frá
kl. 19.30–22. spiluð fé-
lagsvist sem hefst kl. 20,
kaffi og kleinur. Fólk á
öllum aldri velkomið.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofa, kl. 13
spilað.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–10.30 Bún-
aðarbankinn, kl.
13–16.30 spiladagur,
bridge/vist, kl. 13–16
glerlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs
eldri borgara í Damos.
Laugard: kl. 10–12 bók-
band, línudans kl. 11.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð
við böðun, kl. 10–10.45
leikfimi, kl.14.30–15
bankaþjónusta, kl. 14.40
ferð í Bónus, hár-
greiðslustofan opin kl.
9–16.45 nema mánu-
daga.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9 silki-
málun, kl. 13–16 körfu-
gerð, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13.30 banka-
þjónsuta Búnaðarbanka.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, mosaik,
gifs og íslenskir steinar
og postulínsmálun, hár-
greiðslustofan opin 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna, kl
13.30 enska, byrjendur.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Leikfimi sam-
kvæmt stundaskrá, kl.
13.30 trésmíði, kl. 14
klippimyndir og handa-
vinnuhornið.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tré-
skurður kl 9, myndlist
kl. 10–16, línudans kl. 11,
glerskurður kl 13, pílu-
kast kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13. Morgun-
kaffi, blöðin og matur í
hádegi. Miðvikudagur:
Göngu-hrólfar ganga frá
Ásgarði Glæsibæ kl. 10.
Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17. Línudans-
kennsla Sigvalda kl.
19.15. Jólafagnaður í Ás-
garði Glæsibæ hefst kl.
20. Skrifstofa félagsins
er í Faxafeni 12 sími.
588-2111.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Selið,
Vallarbraut 4, Njarðvík.
Kl. 14 félagsvist alla
miðvikudaga.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, myndlista-
sýning Árna Sighvats-
sonar stendur yfir. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 9.30
boccia, kl. 10.45 hæg
leikfimi, kl. 13 félagsvist,
kl. 15–16 viðtalstími
FEBK, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 9.05 leikfimi
kl. 9.55 stólaleikfimi, kl.
13 keramikmálun. Af-
mælis- og aðventufagn-
aðurinn hefst kl. 14 í
dag. Fjölbreytt dagskrá.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, bútasaum-
ur, útskurður, hár-
greiðsla og fótaaðgerð,
kl. 13 bridge, harðangur
og klaustur.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, föndur og jóga,
kl. 10 jóga, kl. 13 dans-
kennsla framhaldshóp-
ur, kl. 14 línudans, kl. 15
frjáls dans og teiknun og
málun. Fótaaðgerðir og
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í
s. 5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa, kl.
9–12 tréskurður, kl. 10–
11 samverustund, kl. 9–
16 fótaaðgerðir, kl. 13–
13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16 fóta-
aðgerð og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10.30–11.30 jóga, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 spurt
og spjallað, kl. 13–16 tré-
skurður. Föstudaginn 6.
desember verður hand-
verkssala og myndlista-
sýning nemenda frá
kl.13–16. Margt góðra
muna í boði. Kl. 14.30–16
dansað við lagaval Sig-
valda, rjómaterta með
kaffinu, allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerðir, morgun-
stund, bókband og búta-
saumur, kl. 12.30 versl-
unarferð, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband.
Kvenfélagið Aldan Jóla-
fundurinn er í kvöld kl.
20 í Borgartúni 18. 3.
hæð. Munið jólapakk-
ana.
Sjögrens áhugahóp-
urinn. Kaffispjall í kvöld
kl. 20 á Kaffi Mílanó,
Faxafeni.
Lífeyrisþegadeild SFR.
Árlegur jólafundur
deildarinnar verður
haldinn laugardaginn 7.
desember kl. 14 í félags-
miðstöðinni Grettisgötu
89, 4 hæð. Þátttaka til-
kynnist skrifstofu SFR.
sími 525 8340.
Kvenfélag Fríkirkjunn-
ar í Reykjavík. Jóla-
fundurinn verður 5. des-
ember í safnaðarheimil-
inu laufásvegi 13 og
hefst með borðhaldi kl.
19.30. Munið eftir jóla-
pökkunum.
Kvenfélagið Hrönn.
Jólafundurinn verður
haldinn fimmtudaginn 5
des. kl. 19 í sal Flug-
virkjafélagsins, Borg-
artúni 22. Hátíðar-
stemmning og jólahlað-
borð.
Slysavarnadeild kvenna
í Reykjavík, jólafundur-
inn verður fimmtudag-
inn 5. desember í Höllu-
búð (Sóltúni 20) Fundur-
inn hefst kl. 20 stundvís-
lega með borðhaldi.
Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju. Ferðin til
Akraness í dag, tekið
verður þátt í starfi aldr-
aðra þar. Farið frá kirkj-
unni kl. 13.
Skagfirðingafélagið í
Reykjavík. Jólafundur í
Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 4. desember og
hefst með borðhaldi kl.
19. Tilkynna þarf þátt-
töku til Steinunnar í
síma 565 8649.
Minningarkort
Landssamtökin Þroska-
hjálp. Minningarsjóður
Jóhanns Guðmunds-
sonar læknis. Tekið á
móti minningargjöfum í
síma 588-9390.
Í dag er miðvikudagur 4. desember
338. dagur ársins 2002. Barbáru-
messa. Orð dagsins: Anda sannleik-
ans, sem heimurinn getur ekki tekið
á móti, því hann sér hann ekki né
þekkir. Þér þekkið hann, því hann er
hjá yður og verður í yður.
(Jóh. 14, 17.)
Víkverji skrifar...
ÞAÐ er algengt að bjöllunni séhringt heima hjá Víkverja af
sölufólki sem er að bjóða harðfisk,
jólakort eða kartöflur og af krökkum
sem eru að safna fyrir íþróttavið-
burðum með sölu á ýmsum varningi.
Eitt síðdegið fyrir skömmu þegar
bjöllunni var hringt heima hjá Vík-
verja stóð úti vingjarnlegur mið-
aldra maður með tvö börn. Hann
vildi kynna fyrir Víkverja Votta Je-
hóva og koma inn eða að minnsta
kosti gefa heimilisfólkinu bæklinga.
Víkverji afþakkaði boðið kurteislega
og hélt að þar með væri samskiptum
þeirra lokið. En maðurinn gafst ekki
upp við svo búið. Hann spurði hvort
dóttir sín mætti ekki gefa Víkverja
bækling. Stúlkan var varla komin á
grunnskólaaldur.
Það er erfitt að neita því að taka
við einhverju frá litlu barni sem rétt-
ir að manni bækling í sakleysi sínu.
Víkverji tók því við bæklingnum,
þakkaði barninu vinsamlega fyrir og
lokaði dyrunum. Það sauð á honum
og bæklingurinn fór auðvitað beint í
ruslið án þess að vera lesinn. Hvern-
ig hefði barninu orðið við ef Víkverji
hefði afþakkað bæklinginn sem það
rétti honum? Mest langaði hann að
gera það en vildi ekki særa barnið.
Í tilfelli Víkverja virkaði þessi
brella alls ekki.
x x x
Á LAUGARDAGSMORGNUMundanfarnar vikur hefur Vík-
verji verið fastagestur niðri á Tjörn
til að bjóða öndunum nokkurra daga
gamalt brauð. Þegar búið er að gefa
banhungruðum fuglunum að éta
snemma morguns er rölt í bakarí og
keypt ilmandi bakkelsi með kaffinu.
Fáir eru á ferli á þessum tíma fyrir
utan árrisula ungbarnaforeldra sem
eru að gefa öndunum, í mesta lagi
eru á stjái nokkrar eftirlegukindur
frá skemmtistöðum, stundum for-
vitnir ferðamenn og einstaka köttur.
Víkverji gengur iðulega með maka
og barni um Þingholtin og nýtur
þess að virða fyrir sér þessi fallegu
gömlu hús sem mörg hver er búið að
gera svo skemmtilega upp. Hvert
hús hefur sinn karakter. Víða er búið
að kveikja á kertum svona árla
morguns og það er hlýlegt í myrkr-
inu að horfa á birtuna frá kertaljós-
um og jólaseríum. Þetta er einmitt
það sem er svo heillandi við skamm-
degið á aðventunni að njóta jólaljós-
anna.
x x x
VINKONA Víkverja fór um síð-ustu helgi út að borða með
nokkrum konum. Veitingastaður í
miðbænum varð fyrir valinu. Ætlun-
in var að borða góðan mat og spjalla í
rólegheitunum. En veitingahúsið
breyttist skyndilega úr matsölustað í
bar.
Inn streymdu miðaldra karlar
sem auðsjáanlega voru að koma úr
vinnustaðapartíi eða öðrum selskap
og voru ekki að koma til að snæða
saman heldur til að fá sér neðan í því.
Vinkonurnar gátu gleymt því að
ætla að spjalla saman því hávaðinn
og lætin yfirgnæfðu allt. Ágengni
karlanna gekk líka fram af þeim.
Vinkonan sagði að á veitingahúsinu
hefðu verið ferðamenn að borða og
þeim hefði auðsjáanlega þótt þetta
skrítin uppákoma. Hvar í heiminum
myndi þetta gerast annars staðar,
spurði vinkonan, að fólki dytti í hug
að fara á huggulegt veitingahús til að
detta í það?
Einstök þjónusta
ÉG er í þannig aðstæðum
að eiga bæði aldraða móður
og föðursystur sem aldrei
komast í búðir.
Því þarf ég að sjá um öll
fatakaup fyrir þær sem oft
getur verið snúið, en önnur
er í hjólastól. Mér var bent
á mjög góða og lipra þjón-
ustu í Meyjunum í Austur-
veri og lagði ég leið mína
þangað í síðustu viku. Ekki
varð ég fyrir vonbrigðum.
Þar fékk ég allan fatnað á
þær og var mér boðið að fá
allt með mér heim til að lofa
þeim að velja og máta og
voru þær hæstánægðar.
Í leiðinni fann ég mér
fatnað á mig sem ég ætla að
nota á Kanarí um jólin en
svoleiðis fatnaður er ekki
auðfundinn á þessum árs-
tíma.
Með þökk fyrir góða
þjónustu.
Lilja.
Léleg þjónusta
ÉG þurfti að fara í Nátt-
úrulækningabúðina í Hlíð-
arsmára 14. Erindið var að
leita að hlýrabol til að
senda til Bandaríkjanna.
Bolurinn sem ég var að
leita að var ekki til í réttri
stærð svo ég keypti annan
með ermum sem kostaði
6.885.
Þegar heim var komið
talaði ég við þann sem átti
að fá bolinn, mátaði hann
utan yfir fötin og við kom-
umst að þeirri niðurstöðu
að hann væri í það
þrengsta.
Ég fór aftur í Náttúru-
lækningabúðina til að skila
bolnum en þar var mér sagt
að ekki væri hægt að skila
því sem búið væri að máta
og var mér sagt að hypja
mig út.
Hef ég heyrt fleiri svona
sögur frá þessari verslun.
Vil ég vara fólk við að
versla þarna og kaupa ekk-
ert nema það sé visst um að
geta notað vöruna.
Kt.: 300431-0039.
Tapað/fundið
Sjóngler týndist
SJÓNGLER úr lesgler-
augum týndist í Háskólan-
um, Bóksölu stúdenta eða í
nágrenni sl. föstudag. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 554 1199.
Rautt hjól týndist
RAUTT karlmannshjól,
Treck, með svörtu sæti
týndist í Seljahverfi eða við
Ölduselsskóla sl. föstudag.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 587 2312 eða
694 3312.
Dýrahald
Othello er týndur
HANN Othello er týndur
Hann er svartur, eyrna-
merktur fress og týndist
frá Álfhólsvegi í Kópavogi
sl. fimmtudag. Fólk er vin-
samlega beðið að athuga
bílskúra og geymslur á
svæðinu. Hans er sárt
saknað og sá sem kemur
honum til skila fær verð-
laun uppá 5.000 kr. Vin-
samlega hafið samband við
Láru í síma 696 6246
Kanínur fást gefins
KANÍNUR fást gefins, búr
fylgir. Upplýsingar í síma
867 0797.
Gári í óskilum
UNGUR, hvítur og ljósblár
gári fannst í miðbænum.
Uppl í síma 693 9661.
Helga.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT:
1 skadda, 4 megnar, 7
siða, 8 grobbs, 9 sníkju-
dýr, 11 nytjalanda, 13
glens, 14 reikar, 15 ill-
menni, 17 spírar, 20 skel-
dýr, 22 vindhviðan, 23
fingur, 24 glatar, 25 vit-
lausa.
LÓÐRÉTT:
1 fótþurrka, 2 ástundar, 3
einkenni, 4 samsull, 5 les,
6 blómið, 10 fjandskapur,
12 eðli, 13 guggin, 15 úr
því að, 16 ber, 18 áfang-
inn, 19 byggja, 20 flanar,
21 hermir eftir
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 mannsefni, 8 buddu, 9 tíbrá, 10 tól, 11 tunga,
13 arinn, 15 harms, 18 örmum, 21 kot, 22 losti, 23 urinn,
24 mannalæti.
Lóðrétt: 2 aldin, 3 nauta, 4 eitla, 5 nebbi, 6 ábót, 7 háin,
12 góm, 14 rór, 15 hold, 16 raska, 17 skinn, 18 ötull, 19
meint, 20 munn.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
STEFNULJÓS á bifreiðir
voru fundin upp fyrir
mörgum áratugum. Ekki
veit ég hvenær þau urðu
staðalbúnaður, en það er
mjög langt síðan. Þorri
Reykvíkinga hefur ekki
enn lært að nota þetta
þarfaþing. Eða þekkja
þeir kannski ekki mun-
inn á hægri og vinstri?
Rétt notkun stefnuljósa
sparar þjóðfélaginu
margs konar útgjöld.
Sem dæmi má nefna um-
ferðarljós og jafnvel
vegabrýr, tíma og elds-
neyti. Auk þess halda
menn betur huga og
höndum að akstrinum á
meðan þeir reyna að
nota stefnuljósin rétt.
Óþörf útgjöld þjóð-
félagsins af því að fólk
notar ekki stefnuljós í
umferðinni eru svo mikil
að þau hljóta að réttlæta
meira eftirlit og sektir.
Mér finnst þeir stjórn-
málamenn sem berjast
fyrir skattalækkunarhug-
sjóninni mættu vera dug-
legri að vinna að því að
(smá)borgararnir noti
hver um sig og sjálfstætt
þær sparnaðarleiðir í
rekstri þjóðfélagsins sem
þeir koma auga á. Meðal
þessara ráða er notkun
stefnuljósa.
Eitthvert gáfnaljós
fann upp hjólið fyrir þús-
undum ára. Íslendingar
uppgötvuðu það ekki
fyrr en um næstsíðustu
aldamót. Vonandi líður
ekki jafnlangur tími þar
til Reykvíkingar fara al-
mennt að nota stefnuljós.
Aðalsteinn Geirsson.
Af dýrum dónum