Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 11
Þingmenn og
borgarfulltrú-
ar funda um
legu Sunda-
brautar
KOSTIR um framtíðarlegu Sunda-
brautar verða kynntir borgar-
fulltrúum, þingmönnum Reykjavík-
ur og samgöngunefnd Alþingis á
fundi á næstu dögum. Í framhald-
inu verður ákveðið hvor leiðin, ytri
eða innri leið, verði valin sem að-
alkostur í mati á umhverfisáhrifum
og hvor verði notuð til samanburð-
ar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði frá þessu á fundi
borgarstjórnar á fimmtudagskvöld.
Á síðasta kjörtímabili hafi minni-
og meirihlutinn markað þá sameig-
inlegu afstöðu að mikilvægt væri að
ytri leiðin kæmi til alvarlegrar
skoðunar. Eftir fund með vega-
málastjóra og samgönguráðherra
hafi verið ljóst að Vegagerðin teldi
ytri leiðina ekki jafn fýsilegan kost
og innri leiðina vegna kostnaðar.
Innri leið, sem hefur einnig verið
kölluð landmótunarleið, kosti á
bilinu 7,5-9,5 milljarða. Ytri leið
sem yrði lögð í hábrú eða botngöng
kosti aftur á móti um 10,5-14,5
milljarða.
Ingibjörg segir að minni- og
meirihluti hafi lagt áherslu á ytri
leiðina vegna áhyggna af umhverf-
isáhrifum landfyllinga við ósa
Elliðaánna. Eins sé Sundabraut
ekki eingöngu tenging yfir í Graf-
arvog heldur einnig tenging vestur
og norður á land. Eftir fund með
samgönguráðherra hafi verið
ákveðið að boða til fundar þar sem
báðar leiðirnar yrðu kynntar ræki-
lega.
BORGARSTJÓRI mun beita sér
fyrir því að borgarráð, fulltrúar
Reykjavíkurborgar í stjórn Lands-
virkjunar og yfirstjórn fyrirtækisins
komi saman til fundar þar sem borg-
arráðsmönnum gefst kostur á að
spyrja milliliðalaust út í málefni sem
tengjast fyrirhugaðri Kárahnjúka-
virkjun. Sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri á borgar-
stjórnarfundi á fimmtudagskvöld að
hún myndi hafa samband við for-
stjóra og stjórnarformann Lands-
virkjunar til að athuga hvort mögu-
legt væri að koma á slíkum fundi.
Fundur um
Kárahnjúka-
virkjun
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri telur tímabært að það
verði rætt af fullri alvöru að ríkið
kaupi hlut sveitarfélaganna í
Landsvirkjun. Varla geti gefist
betri tími til slíkra samninga en
einmitt nú eftir að ríkið hefur selt
hluta sinn í ríkisbönkunum og hef-
ur handbæra fjármuni.
Eignarhlutur Reykjavíkurborgar
í Landsvirkjun er 44,5%, íslenska
ríkisins 50% og Akureyrarbæjar
5,5%. Á borgarstjórnarfundi á
fimmtudag sagðist borgarstjóri
telja eignarhlut borgarinnar í
Landsvirkjun orka tvímælis. „Á ég
þar annars vegar við að fram-
kvæmdir fyrirtækisins eru svo fjár-
frekar að borgin er á mörkum þess
að geta axlað þá fjárhagslegu
ábyrgð sem eignaraðild fylgir lög-
um samkvæmt. Hins vegar eru
framkvæmdirnar iðulega mjög um-
deildar og það er erfið staða fyrir
borgaryfirvöld að bera, sem eig-
andi fyrirtækisins, ábyrgð á virkj-
unarframkvæmdum í öðrum lands-
hlutum, framkvæmdum sem
jafnvel er sterk pólitísk andstaða
við í borgarstjórn Reykjavíkur,“
sagði Ingibjörg.
Álykta mætti að það væri mik-
ilvægt fyrir ríkið að hafa fyrirtækið
á forræði sínu ef áform þess um
breytingar á raforkumarkaði nái
fram að ganga. „Af hálfu Reykja-
víkurborgar tel ég tímabært að
losa um þá miklu fjármuni sem
bundnir eru í Landsvirkjun. Fjöld-
inn allur af spennandi verkefnum
blasir við til að styrkja nýja hag-
kerfið í sessi hér á landi. Fjárfest-
ing í Landsvirkjun var vafalítið rétt
ákvörðun á sínum tíma en nú eru
tímarnir aðrir og þarfir borgar-
samfélagsins kalla á nýjar áhersl-
ur.“
Oft rætt við fulltrúa ríkisins
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Ingibjörg að hún hefði oft ámálgað
þetta við fulltrúa ríkisins en hún
hafi ekki óskað eftir formlegum
viðræðum. Ríkið sé búið að selja
eignir fyrir 23 milljarða með sölu
ríkisbankanna og miðað við eigið fé
Landsvirkjunar sé eignarhlutur
borgarinnar um 15-16 milljarðar.
„Það er hart að vera bundinn með
sínar eignir á klafa löggjafar sem
ríkið hefur á hendi sinni, á sama
tíma og ríkið er að selja [eignir] og
taka inn allar þessar tekjur,“ sagði
borgarstjóri við Morgunblaðið.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra sagði þegar Morgunblaðið
leitaði álits hans vegna ummæla
borgarstjóra, að þetta væri hug-
mynd sem ekki hefði verið tekin
nein afstaða til.
Borgarstjóri vill selja
ríkinu hlut borgar-
innar í Landsvirkjun
20% Afsláttur af
öllum kvenskóm
Desember
Dagana 5. - 8. bjó›um vi›
20% afslátt af öllum kvenskóm.
tilbo›
Opi› laug. 10-18 og sunnud. 13-18
kvenfataverslun • Skólavörðustíg 14, sími 551 2509.
af öllum Dismero og inSein vörum
Gerið góð kaup
Tilboð
á Löngum laugardegi
30% afsláttur
Úlpur og frakkar
Stakir jakkar og buxur
Laugavegi 34, sími 551 4301
Opnum kl. 9 virka daga
• 18 manna borðstofuborð • stakir stólar í úrvali • borð
• sófar • skápar • lampar • skatthol • kommóður • bókahillur
• postulín • ljósakrónur • íkonar • kertastjakar • gjafavörur
-glæsilegir munir!
KLAPPARSTÍG 40, SÍMI 552 7977
Miki úrv
al
- gott ver
!
OPIÐ: laugardag kl. 11-18
sunnudag kl. 13-18
Langur laugardagur
10% afsláttur
af öllum vörum
Opið til kl. 18
Nýtt kortatímabil
Munið gjafakortin
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Mörkinni 6, sími 588 5518
Jólagjöfin hennar
langömmu, ömmu mömmu og ungu stúlkunnar
Pelsar
stuttir og síðir
frá kr. 12.900
Opið alla
sunnudaga
í desember
Ullarkápur
47.900
Hattar og húfur
29.900
26.900
Mikið úrval
♦ ♦ ♦