Morgunblaðið - 07.12.2002, Side 30
SUÐURNES
30 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁÆTLAÐ er að rekstur málaflokka
taki til sín 83% af skatttekjum
Reykjanesbæjar á næsta ári. Því
sem eftir er að skatttekjum verður
varið til framkvæmda og viðhalds-
verkefna. Þá er eftir að greiða vexti
og afborganir af lánum og á að mæta
því með sölu á eignum sem áætlað er
að skili 450 milljónum króna.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun
Reykjanesbæjar fór fram í bæjar-
stjórn í vikunni. Síðari umræða er
áformuð næstkomandi þriðjudag.
Skatttekjur eru áætlaðar 2,7 millj-
arðar kr. og rekstur málaflokka lið-
lega 2,2 milljarður. Fræðslumálin
eru sem fyrr langstærsti útgjaldalið-
urinn, taka til sín 1.250 milljónir kr.
Til framkvæmda og viðhaldsverk-
efna er áætlað að verja 444 milljón-
um og fjárhagskostnaður er áætlað-
ur 138 milljónir. Þegar tillit hefur
verið tekið til þessara útgjaldaliða
vantar 124 milljónir til að endar nái
saman. Í áætluninni er gert ráð fyrir
sölu eigna að verðmæti 450 milljóna
króna. Ef það gengur eftir verður
hægt að greiða niður skuldir sem
nemur mismuninum, eða um 325
milljónir króna.
Á árinu 1999 gerðu sveitarfélögin
á Suðurnesjum og Hitaveita Suður-
nesja samkomulag um að Hitaveitan
gæti tekið yfir vatnsveitur sveitarfé-
laganna. Árni Sigfússon segir að lát-
ið verði reyna á það á næsta ári hvort
ekki geti orðið af því að Hitaveitan
kaupi vatnsveitumannvirkin í
Reykjanesbæ, það er að segja
leiðslur vatnsveitunnar og fleira.
Tekur hann fram að eftir sé að meta
eignina og semja um málið en í fjár-
hagsáætlun sé gert ráð fyrir að hægt
verði að fá 450 milljónir fyrir þessa
eign. Árni segir að það fé sem sé af-
gangs til framkvæmda miðist við
hvað eftir sé af skatttekjum og hvað
fáist við eignasölu. Ef þessar áætl-
anir gangi ekki eftir gæti þurft að
draga úr framkvæmdum.
Endurgerð Hafnargötu er stærsta
einstaka framkvæmdin sem áætlað
er að ráðast í á næsta ári. Auk þess
er áformað að vinna að ýmsum um-
hverfisverkefnum, svo sem að ljúka
við slitlag á ómalbikuðum götum,
ganga frá kantsteinum og leggja
gangstéttir í eldri hverfum. Þá sé
ætlunin að ganga betur frá innkom-
unni í bæinn.
Þá nefnir Árni að lagt sé í kostnað
við að koma á heilsdagsskóla og
stofnaður Manngildissjóður með
stórauknum framlögum til nýrra
verkefna, meðal annars skólaþróun-
ar. Meðal nýrra útgjaldaliða má
nefna rekstur upplýsinga- og menn-
ingarmiðstöðvar ungs fólks í Hafn-
argötu 88 frá næsta hausti.
Stofna eignasjóð
Reykjanesbær er að stofna eigna-
sjóð til að halda utan um allar fast-
eignir sveitarfélagsins. Ætlunin er
að stofna einkahlutafélagið Fast-
eignir í þessum tilgangi. Það félag
mun síðan vera framlag Reykjanes-
bæjar inn í Fasteign hf. þegar stofn-
að verður félag í þessu skyni í sam-
vinnu við fleiri sveitarfélög og
lánastofnanir.
Áætlað verðmæti þeirra fasteigna
Reykjanesbæjar sem renna inn í
þetta fasteignafélag, en það eru
skólabyggingar, menningarhús og
skrifstofubyggingar svo dæmi séu
tekin, er um 3,5 milljarðar króna.
Verður hlutafé bæjarins um 15% af
því, eða 525 milljónir. Við stofnun fé-
lagsins fær Reykjanesbær því um
þrjá milljarða og er ætlunin að nota
þá fjármuni til að greiða niður skuld-
ir bæjarfélagsins. Þó er hugmyndin
að leggja um 500 milljónir sem höf-
uðstól í svokallaðan Manngildissjóð
og nota ávöxtun hans til uppbygg-
ingar í bæjarfélaginu.
Árni segir að þar sem umrædd
viðskipti hafi ekki átt sér stað sé
reynt að halda fyrirhuguðu fast-
eignafélagi sem mest utan við fjár-
hagsáætlunargerð. Þó hafi orðið að
fresta verkefnum sem bersýnilega
kæmu í hlut þessa nýja félags, svo
sem stækkun leikskólans Holts og
endurbótum á Íþróttamiðstöðinni í
Njarðvík, á meðan mál væru að
skýrast. Verði af stofnun þessa fé-
lags og tilheyrandi samningar náist
munu forsendur fjárhagsáætlunar
næsta árs breytast eitthvað. Árni
segir ljóst að bærinn muni leigja
eignirnar af fasteignafélaginu og á
móti muni fjármagnskostnaður
sveitarfélagsins minnka.
Áforma sölu á
vatnsveitu fyrir
450 milljónir
Reykjanesbær
FLOTBRYGGJA losnaði frá landi í
Sandgerðishöfn í brimsúg í gær-
morgun. Akkerin héldu og stöðv-
aðist bryggjan úti á miðri höfninni
og tókst að ná skipunum tveimur
sem við bryggjuna voru bundin
óskemmdum að landi.
Björn Arason hafnarstjóri segir
að ekki hafi verið mikill vindur í
gærmorgun en mikið brim og hafi
verið súgur inni í höfninni. Land-
festar flotbryggjunnar gáfu sig og
snerist hún út í höfnina. Akker-
isfestar bryggjunnar héldu henni
þar. Við bryggjuna voru tvö skip,
björgunarskipið Hannes Þ. Haf-
stein og Freyja GK. Tveir björg-
unarsveitarmenn syntu út í björg-
unarskipið, náðu í gúmbjörgunar-
bát sem bundinn var aftan í skipið
og ferjuðu áhöfnina um borð. Skip-
inu var siglt aftur til öruggrar
hafnar svo og Freyju.
Um miðjan dag í gær var bryggj-
unni snúið á sinn stað og hún fest til
bráðabirgða auk þess sem land-
festar smábátabryggju voru einnig
tryggðar en þær voru byrjaðar að
losna. Við þá bryggju eru á fjórða
tug smábáta.
Talið er að tjón sé óverulegt. Á
flotbryggjunni er olíudæla og fóru
leiðslur hennar í sundur. Taldi
Björn að óverulegt magn af dísil-
olíu hafi farið í sjóinn vegna þess að
sjálfvirkir lokar séu á olíu-
tankinum.
Ekki vissi Björn í gær hvað gaf
sig í festingum bryggjunnar. Taldi
að annað hvort hafi verið veikir
hlekkir í keðjunum eða lélegir lás-
ar. Sagði hann að það yrði kannað
við betra tækifæri.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Óvenjuleg sjón blasti við Sandgerðingum í gærmorgun. Bátarnir voru í landi en bryggja á floti úti á höfninni.
Flotbryggju rak út á höfnina
Sandgerði
Jólaljós verða tendruð á jólatrénu
við Tjarnargötutorg í Keflavík í dag,
laugardag, kl. 18. Við athöfn af því
tilefni verður tónlistarflutningur og
ræðuhöld, auk þess sem jólasveinar
koma í heimsókn.
Blásarasveit Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar leikur nokkur lög og
söngvarar frá skólanum syngja jóla-
lög og sálma. Kjell H. Halvorsen,
sendiherra Noregs, afhendir jóla-
tréð sem er gjöf frá Kristiansand,
vinabæ Reykjanesbæjar. Eyrún Ósk
Magnúsdóttir, nemandi í 6. bekk í
Myllubakkaskóla, mun tendra ljósin.
Ávarp flytur Björk Guðjónsdóttir,
forseti bæjarstjórnar.
Í DAG
EINN heilsugæslulæknir réð sig í
gær til starfa við heilsugæslustöðina í
Keflavík og annar kemur til starfa á
mánudag. Verða þá fjórir læknar við
stöðina. Samningar hafa hins vegar
ekki tekist um ráðningu hópsins sem
hætti störfum þar fyrir mánuði.
Fá ekki sömu kjör
Uppsagnir allra tólf heimilislækna
við Heilbrigðisstofun Suðurnesja
(HSS) tóku gildi 1. nóvember sl. Í
kjölfar tilboðs heilbrigðisráðuneytis-
ins á dögunum ákváðu læknarnir að
ráða sig aftur til starfa og gerðu kröfu
um að þeir héldu þeim starfskjörum
sem þeir höfðu áður.
Ekki hafa náðst samningar. Eigi að
síður hafa þrír af þessum læknum
hafið störf að nýju eða eru að byrja og
fyrir var einn læknir sem færður var
af sjúkrahúsinu yfir á heilsugæslu-
stöðina.
Sigríður Snæbjörnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri HSS, segir að læknarn-
ir séu ráðnir á þeim kjörum, sem komi
fram í nýlegum úrskurði kjaranefnd-
ar og auk þess gætt samræmis við
kjör heimilislækna hjá Heilsugæsl-
unni í Reykjavík. María Ólafsdóttir,
fyrrverandi yfirlæknir á stöðinni, seg-
ir að að samningar um endurráðningu
læknanna gangi ekki vel vegna þess
að þeim standi ekki til boða að ráða
sig á þeim forsendum sem giltu þegar
þeir sögðu upp og hættu.
Læknarnir eru nú að ræða tilboð
sem Heilbrigðisstofnunin gerði þeim í
gær.
Mikið álag
Sigríður segir að ekki sé hægt að
tala um neyðarástand þótt aðeins sé
hluti heimilslæknanna að störfum.
Tekið sé við tímapöntunum og bráða-
þjónustu sinnt. Vissulega sé álagið oft
mikið en það sé þó misjafnt. Þá hafi
hjúkrunarfræðingar endurskipulagt
störf sín.
Heilbrigðisstofnunin hefur ekki samið við heimilislækna
Fjórir læknar við störf
Keflavík