Morgunblaðið - 07.12.2002, Side 32
LANDIÐ
32 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRÍÐUR hópur rithöfunda var sam-
an kominn í Ólafsvík fimmtudaginn 5.
desember til að lesa úr verkum sín-
um. Þorgrímur Þráinsson rithöfund-
ur kom á æskuslóðir sínar með sex
rithöfunda til að lesa upp úr nýút-
komnum bókum.
Bauð Þorgrímur gesti velkomna á
Klif, sem voru fjölmargir, og las hann
upp úr bók eins Ólsara sem kom út
fyrir 5 árum.
Fyrsti rithöfundurinn sem las upp
úr bók sinni var Stefán Máni frá
Ólafsvík sem las úr bók sinni Ísrael –
saga af manni, en Stefán og Jóhannes
Ragnarsson, sem eru að gefa út sína
fyrstu bók eru báðir frá Ólafsvík. Þór-
arinn Eldjárn las úr bók sinni Eins og
vax, Guðjón Friðriksson las kafla um
Jón Sigurðsson – Ævisaga, Gerður
Kristný las úr bókum sínum, Ég veit
þú kemur og Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum 2002, Kolbrún Bergþórsdóttir
las úr bók sinni Tilhugalíf – Jón Bald-
vin og Jóhannes Ragnarsson las úr
bók sinni Er æxlið illkynja? Íslend-
ingasögur hinar nýrri.
Í hléi var gestum boðið uppá vöfflur
með rjóma og heitt kakó, sem Lions-
konur sáu um.
Að þessari bókakynningu stóðu
Framfarafélagið, Ólafsvíkurdeild og
lista og menningarnefnd Snæfells-
bæjar.
Morgunblaðið/Alfons
Rithöfundarnir eru f.v. Jóhannes Ragnarsson, Þórarinn Eldjárn, Stefán
Máni, Kolbrún Bergþórsdóttir, Gerður Kristný og Guðjón Friðriksson.
Bókamenning
undir Jökli
Ólafsvík
HEILDARTEKJUR bæjarsjóðs
Ísafjarðarbæjar og stofnana hans
eru áætlaðar 1.880 milljónir kr. en
heildargjöld samtals 1.917 milljónir
kr. samkvæmt frumvarpi fjárhags-
áætlunar 2003.
Af heildargjöldum bæjarsjóðs eru
153 milljónir áætlaðar í fjárfestingar
og sérstök viðhaldsverkefni, laun
eru áætluð 867 m.kr., vöru og þjón-
ustukaup 768 m.kr., framlög, styrkir
og rekstrartilfærslur 176 m.kr. og
fjármagnsgjöld að frádregnum fjár-
magnstekjum 47 m.króna.
Gert er ráð fyrir að greiða 189
m.kr. í afborganir langtímalána og
eigin fjármögnun og nýjar lántökur
eru áætlaðar 226 milljónir króna.
Meðal framkvæmda sem lokið
verður við eru endurbætur og við-
gerðir á Safnahúsinu við Eyrargötu,
(gamla sjúkrahúsinu), utanhúss-
framkvæmdir á Hlíf, íbúðum aldr-
aðra, og lokið verður við hönnun nýs
skólahúsnæðis grunnskólans á Ísa-
firði.
Fjárhagsáætlunin var lögð fram í
bæjarstjórn til fyrri umræðu sl.
fimmtudag. Síðari umræða um hana
verður 19. desember nk.
Lokið við endurbæt-
ur á Safnahúsinu
Ísafjörður
AÐVENTUHÁTÍÐ Hruna-
prestakalls var haldin í Félags-
heimilinu á Flúðum sunnudaginn
1. desember sl. að viðstöddu
miklu fjölmenni. Boðið var upp á
fjölbreytta dagskrá að venju.
Fram komu Yngrikór Flúðaskóla,
Kór Flúðaskóla og Kirkjukór
Hrunaprestakalls. Ágúst Kr.
Björnsson sveitarstjóri flutti hug-
vekju. Máté Dalmay lék á trompet
og Hörður Már Bjarnason á pí-
anó. Katrín Sigurðardóttir óperu-
söngkona söng einsöng en einnig
söng hún einsöng með kór Flúða-
skóla og kirkjukórnum sem sungu
saman, Ó, helga nótt eftir Adolph
Adam og Sig. Björnsson. Edit
Moár sá um söngstjórn en Mikos
Dalmay um allan undirleik.
Allir hátíðargestir sungu saman
sálminn, Sjá himins opnast hlið og
sameinuðust í bæn fyrir komandi
jólahátíð, fyrir byggðarlagi okk-
ar, fyrir börnum og unglingum og
fyrir sjúkum og bágstöddum.
Eiríkur Jóhannsson sóknar-
prestur í Hruna stjórnaði hátíð-
inni. Þetta var ljúf stund sem allir
nutu vel.
Morgunblaðið/Sigurður
Hörður Már Bjarnason og Máté Dalmay léku á píanó og trompet.
Fjölmenni á aðventuhátíð
Hrunamannahreppur
Klapparstíg 44, sími 562 3614
Cranberry sulta - Cumberland sósa
- Mintuhlaup
Ómissandi með hátíðarmatnum
VEÐUR
mbl.is