Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 37
NÝTT orgel Laugarneskirkju
verður vígt við messu kl. 11.00 á
morgun. Orgelið smíðaði Björgvin
Tómasson, orgelsmiður í Mos-
fellsbæ. Fullbúið verður það með
28 raddir ásamt klukkuspili.
Vígslutónleikar verða í kirkjunni
kl. 16, en þá leika organisti kirkj-
unnar, Gunnar Gunnarsson, og
Sigurður Flosason saxófónleikari
nýtt efni, sálma og ættjarðarlög í
eigin útsetningum, en í þeim er
lögð áhersla annars vegar á spuna
en hins vegar á fjölbreytilega nálg-
un að viðfangsefnunum.
Gunnar segir orgelið það stærsta
sem Björgvin hefur smíðað og í
fyrsta sinn sem hann smíðar svo
stórt orgel inn í gamla hefðbundna
kirkju, en það var Guðjón Sam-
úelsson sem teiknaði hana á sínum
tíma. Fyrir var í kirkjunni þýskt
orgel frá 1956 en það var úr sér
gengið og engin leið að halda því
við til frambúðar.
„Þetta hefur tekist rosalega vel,
enda góður hljómburður í Laug-
arneskirkju,“ segir Gunnar. „Það
eru ýmsar tækninýjungar í þessu
orgeli sem Björgvin hefur ekki ver-
ið með í fyrri orgelum sínum; –
þetta er svolítið öðruvísi. Það hefur
minni sem auðvelda organistanum
að skipta um stillingar og síðan eru
sérstakar rafmagnskúplingar sem
auka notagildi hverrar raddar
mjög mikið. Slíkur útbúnaður er í
mjög fáum orgelum hérlendis.“
Þótt gamla orgelið hafi verið orðið
ónýtt var hægt að nota úr því píp-
urnar, þannig að Björgvin notaði
bæði gamlar pípur og nýjar sem
bætt var við. „Það er mjög mikil
breidd í þessu hljóðfæri; veikustu
raddirnar eru eins og lykt – þær
eru svo veikar – og svo er líka mik-
ill kraftur í öðrum.“ Þrjú ár eru lið-
in frá því að samningur var gerður
um orgelsmíðina, en Gunnar segir
að uppsetning hljóðfærisins hafi
gengið bæði hratt og vel. Á tónleik-
unum spilar Sigurður á fimm hljóð-
færi saxófónfjölskyldunnar, bari-
tón, tenór, alt, sópran og
sópranínó, en Gunnar ætlar að
sýna hvað í nýja orgelinu býr og
láta reyna á möguleika þess. „Mér
finnst hafa tekist mjög vel að ná
fram mikilli breidd í hljómi orgels-
ins, og í spuna eins og við Sigurður
erum að spila á maður kost á að
nýta alla þá möguleika hljóðfær-
isins sem maður vill að komi fram.
Maður er ekkert háður einhverju
sem aðrir hafa uppálagt.“
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir, enda tilgangurinn
meðal annars sá að kynna íbúum
Laugarnessóknar og öðrum áhuga-
sömum nýja hljóðfærið.
28 radda orgel eftir Björgvin Tómasson vígt í Laugarneskirkju
„Veikustu
raddirnar
eru eins
og lykt“
Morgunblaðið/GolliSigurður Flosason, Gunnar Gunnarsson og Björgvin Tómasson við nýja orgelið.
ATLI Heimir Sveinsson er af-
kastamikið tónskáld. Ekki nóg með
það, Atli Heimir er líka eitt fjölhæf-
asta tónskáld okkar. Í tónlistinni er
hann ólíkindatól. Eftir hann liggja
ógrynnin öll af verkum í ólíkustu stíl-
tegundum; minimalísk, plúralísk,
módernísk, rómantísk, dramatísk,
einföld og flókin, stór og smá; form-
gerðirnar jafnfjölbreyttar og stíllinn.
Hæfileikar Atla Heimis til að koma
stöðugt á óvart hafa líka gert hann að
umdeildu tónskáldi. Hvernig má það
vera að tónskáld sem semur ljúflings-
lög eins og Kvæðið um fuglana, sem-
ur líka súrrealíska drápu eins og Viki-
vaka? Hvernig má það vera að tón-
skáld sem semur lýrískar miniatúrur
eins og Intermezzóið úr Dimmalimm
semur líka ógnarlanga íhugunartón-
list fyrir aðeins eitt hljóðfæri?
Fjölbreytni er lykilorð í tónlist Atla
Heimis Sveinssonar. Þessi fjöl-
breytni hefur þvælst fyrir þeim sem
hafa viljað negla það niður í eitt skipti
fyrir öll hvers konar tónskáld hann er
og hvers konar tónlist hann semur.
Það verður seint hægt að finna Atla
Heimi og tónlist hans
eina passandi skilgrein-
ingarskúffu; nema ef
væri ólíkindaskúffuna.
Í tónlistarsögunni er
gerður greinarmunur á
þeim tónskáldum sem
annars vegar feta
ótroðnar slóðir með því
að tefla fram nýjungum
eða fara útfyrir mörk
ríkjandi hefða, og svo
hinum, sem draga sam-
an í einn kjarna ólíkar
hefðir og skapa einingu
úr ríkjandi fjölbreyti-
leika. Bach-feðgar eru
kannski skýrasta dæmið um þetta.
Synir Jóhanns Sebastians teljast til
fyrri flokksins; þeir stóðu á mótum
barrokks og klassíkur; byggðu á hefð
sem faðir þeirra var samnefnari fyrir
en vísuðu með eigin tónlist veginn til
Mozarts, Haydns og klassíkurinnar.
Bach gamli byggði hins vegar veg-
semd sína í tónlistarsögunni með því
að draga saman í eitt allar þær hrær-
ingar sem fyrir lágu á hans tíð. Með
tónlist sinni batt hann saman ólíka
þræði barrokksins og mótaði úr þeim
eigin stíl.
Í verki sínu, Tímanum og vatninu,
er Atli Heimir Sveinsson í hlutverki
hvorra tveggju; Bachs og sona hans.
Þar er að finna ótal margt sem ein-
kennt hefur tónsmíðar hans, fram að
þeim tíma er verkið var samið; nýj-
ungar, fjölbreytileika og tilraunir af
ýmsum toga; frumleika
sem honum er svo tam-
ur. En hér er hann líka í
hinu hlutverkinu; að
draga saman ólíka
þræði í eina heild, hann
sækir í eigið tónmál og
mótar úr því heilsteypt
og sviphreint verk,
stórbrotna og fallega
tónsmíð. Vegna þessa
er Tíminn og vatnið
tímamótaverk á ferli
Atla Heimis Sveinsson-
ar. Og vegna stöðu hans
sem eins framsæknasta
tónskálds okkar um
árabil má ætla að verkið hljóti því
einnig að verða talið tímamótaverk í
íslenskri tónlistarsögu þegar fram
líða stundir.
Það eru um tuttugu ár síðan Atli
samdi Tímann og vatnið en milliþætt-
ir, Intermezzi, voru samdir síðar.
Hljóðfæraskipan verksins er sérstök
en þó í anda Atla: kammersveit með
þunga slagsíðu í slagverki, harmón-
ikku, hörpu, fjórum gíturum og raf-
magnsorgeli. Kórinn er mikilvægur
og áhrifamikill hluti heildarmyndar-
innar. Atli hefur alla tíð verið glúrinn
í orkestrasjón og kunnað afar vel að
spila á litbrigði hljómsveitarinnar í
verkum sínum. Hann hefur líka verið
hreinn snillingur í að semja fyrir kór-
raddir. Þetta tvennt tvinnur hann
saman í Tímanum og vatninu af
næmri tilfinningu fyrir hvoru
tveggju. Kór og hljómsveit eru and-
stæðar einingar sem verða að sterkri
heild í meðförum hans. Einsöngvar-
arnir bera hitann og þungann af túlk-
un ljóðs Steins Steinars. Atli leiðir
okkur gegnum ljóðið og opnar fyrir
eyrum okkar sína eigin sýn á það og
dýpkar og víkkar tilfinninguna fyrir
orðum Steins.
Saga útgáfu á íslenskri tónlist hef-
ur alltaf verið saga erfiðleika og fjár-
skorts. Í samanburði við útgáfu á ís-
lenskum bókmenntum er hún varla
enn nema á frumstigi. En því meiri
fengur er að hverju góðu verki sem út
kemur. Ný útgáfa þýska útgáfufyr-
irtækisins CPO á Tímanum og vatn-
inu eftir Atla Heimi Sveinsson hlýtur
að vera hverjum unnanda íslenskrar
tónlistar fagnaðarefni. Frumflutn-
ingur verksins í Langholtskirkju á
Listahátíð fyrir nokkrum árum var
listviðburður sem seint gleymist. Hér
er að verki sama úrvalslið tónlistar-
fólks; Kammersveit Reykjavíkur
leidd af Rut Ingólfsdóttur, kór og ein-
söngvararnir Marta Halldórsdóttir,
Sverrir Guðjónsson og Bergþór Páls-
son. Stjórnandi er Paul Zukofsky og
honum hefur tekist það vandaverk,
að skila í hljóðritun þeim lifandi
neista sem verkið kveikti svo eftir-
minnilega meðal áheyrenda í Lang-
holtskirkju þá. Tíminn og vatnið er ís-
lenskt meistaraverk, sem hér heyrist
í meistaralegum flutningi íslenskra
tónlistarmanna.
TÓNLIST
Geislaplötur
Kammersveit Reykjavíkur, kór og ein-
söngvararnir Marta Halldórsdóttir, Sverr-
ir Guðjónsson og Bergþór Pálsson flytja
Tímann og vatnið eftir Atla Heimi Sveins-
son við ljóð Steins Steinars, stjórnandi
Paul Zukofsky. Útgáfa: CPO, Þýskalandi.
TÍMINN OG VATNIÐ
Meistaraverk
Bergþóra Jónsdóttir
Atli Heimir Sveinsson
Snuðra og Tuðra
í jólabakstri heit-
ir myndabók eftir
Iðunni Steins-
dóttur með
myndum eftir
Önnu Cynthiu
Leplar.
Snuðra og
Tuðra eru ekki af baki dottnar í
prakkaraskapnum. Hér láta þær til
sín taka í jólabakstrinum með að-
stoð pabba síns, en mamma er
ekki eins hrifin af framkvæmdum
þeirra. Salka gefur út bókina sem
er 16 bls, prentuð í Litrófi. Verð:
690 kr.
Tolkien – ævi-
saga er eftir
Michael White í
þýðingu Ágústs
Borgþórs Sverr-
issonar. Farið er
yfir ævi rithöfund-
arins og fræði-
mannsins Tolk-
iens sem m.a.
hefur notið frægðar fyrir Hringa-
dróttinssögu og Hobbitann. Í bók-
inni kemur fram hvernig Íslend-
ingasögurnar og norræn goðafræði,
m.a. eddukvæði, höfðu áhrif á
sköpun höfundarins.
Útgefandi er PP-forlag. Bókin er
244 bls. Verð: 3490 kr.
Ævisaga
Ísstelpan er
barnabók eftir
danska rithöfund-
inn Bent Haller í
þýðingu Helga
Grímssonar.
Ísstelpan er
safn af fimmtán
sögum sem eiga
það sameiginlegt
að bregða óvenjulegu ljósi á tilveru
barna og fullorðinna. Lesendur kynn-
ast meðal annars Ökku frænku sem
er heimsins glaðasta kona, ísstelp-
unni sem finnst helblá úr kulda einn
sólbjartan sumardag og lífsleiða af-
anum sem getur ekki dáið.
Bent Haller er einn fremsti barna-
bókahöfundur Danmerkur og nýtur
mikillar hylli í heimalandi sínu. Hann
hefur einnig getið sér gott orð fyrir
handritaskrif fyrir sjónvarp og kvik-
myndir. Ísstelpan var valin besta
barnabók Norðurlanda árið 1999 og
hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál.
Útgefandi er bókaútgáfan Bjartur.
Bókin er 88 bls., prentuð í Odda hf.
Kápugerð annaðist Snæbjörn Arn-
grímsson. Verð: 1.980 kr.
Börn
Albertína ballerína er eftir Katharine
Holabird í þýðingu Helgu Þórarins-
dóttur, en þættir um Albertínu sem
byggðir eru á bókunum hafa verið
sýndir í Sjónvarpinu um nokkurt skeið.
Albertína ballerína er lítil mús sem
þráir ekkert heitar en að verða ball-
erína. Bækurnar höfða einkum til
krakka á aldrinum 3 til 7 ára.
Útgefandi er JPV-útgáfa. Bókin er 32
bls., prentuð á Ítalíu. Verð: 1.680 kr.
Orð í eyra – óum-
beðnar at-
hugasemdir nefn-
ist bók Karls Th.
Birgissonar
blaðamanns. Í
henni birtist úrval
greina og pistla
Karls og er m.a.
leitað svara við
spurningum á borð við: Af hverju er
Guðni Ágústsson svona und-
arlegur? Geta Jakob Frímann og
Smári Geirsson einhvern tíma orðið
vinir? Fengu Björn Bjarnason og
Megas sér í pípu saman? Á Þráinn
Bertelsson skilið að fá heiðurslaun
listamanna? Veit Davíð Oddsson
alltaf betur en aðrir? Eigum við að
selja Óla Palla og Gest Einar? Er
Steingrímur J. Sigfússon skýrari en
gerist og gengur? Hvar finnur Ómar
Ragnarsson allt þetta tannlausa
fólk? Af hverju er ólöglegt að segja
satt?
Útgefandi er Mátturinn og dýrðin.
Bókin er 208 bls. Verð: 2.280 kr.
Pistlar