Morgunblaðið - 07.12.2002, Qupperneq 52
MESSUR
52 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ventu, hljóðfæraleikur og kirkjukórinn
syngur. Ræðumaður Eygló Jóna Gunn-
arsdóttir djákni. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Aðventukvöld
föstudaginn 6. desember kl. 20. Kirkjukór-
inn syngur og börn koma fram. Einsöngur.
Ræðumaður sr. Hreinn S. Hákonarson.
Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudagaskól-
inn kl. 11. Börn í 4. bekkjum grunnskólans
sýna helgileik. Kl. 17 orgelstund í Hvera-
gerðiskirkju. Góð kyrrðarstund, tónlist
sem hæfir aðventu. Allir hjartanlega vel-
komnir.
ODDAKIRKJA: Aðventusamkoma verður
haldin í Oddakirkju sunnudaginn 8. des-
ember kl. 16. Söngur, helgileikur, hugleið-
ing. Ræðumaður Þórður Tómasson safn-
vörður í Skógum. Kvenfélag Oddakirkju.
ÞYKKVABÆJARKIRKJA: Aðventukvöld
Þykkvabæjarsafnaðar verður í kirkjunni 2.
sunnudag í aðventu, 8. desember kl.
20.30. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur. Torfastaða-
kirkja: Barnaguðsþjónusta sunnudag kl.
14. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Barnakór Akraneskirkju syngur
og Bjöllusveitin spilar. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra. Sókn-
arprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Aðventukvöld kl.
20. Kór Ísafjarðarkirkju, Sunnukórinn,
Barnakór og Stúlknakór Tónlistarskólans
syngja. Matthías Nardeau leikur á óbó.
Sóknarprestur.
GLÆSIBÆJARKIRKJA: Aðventukvöld
sunnudag kl. 20.30. Helgileikur ferming-
arbarna. Kórsöngur kirkjukórs Möðruvalla-
klaustursprestakalls. Lúsíusöngur nem-
enda Þelamerkurskóla og mikill almennur
söngur. Ræðumaður verður Reynir Hjart-
arson. Mætum öll og njótum jólastemn-
ingar í húsi guðs. Sóknarprestur og sókn-
arnefnd.
AKUREYRARKIRKJA: Messa með léttri
tónlist kl. 11. Sr. Svavar A. Jónsson. Ung-
lingakór Akureyrarkirkju. Fermingarbörn og
foreldrar þeirra eru sérstaklega boðuð til
messunnar. Sunnudagaskóli á sama tíma.
Aðventukvöld kl. 20.30.
GLERÁRKIRKJA: Í dag, laugardag, kl. 14
er opnun sýningarinnar Sigur lífsins.
Barnasamvera kl. 11. Vígsla kepallu og
hátíðarmessa kl. 14. Kvenfélagið Bald-
ursbrá afhendir steindan glugga sem helg-
aður verður í messunni. Herra Karl Sig-
urbjörnsson, biskup, vígir kapellu og
prédikar. Kór Glerárkirkju syngur. Ein-
söngur Sigrún Arna Arngrímsdóttir messó-
sópran. Organisti Hjörtur Steinbergsson.
Kaffiveitingar. Jólafundur æskulýðsfélags-
ins kl. 20.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30. Jón Þór
Eyjólfsson, forstöðumaður Hvítasunnu-
kirkjunnar Klettsins, mun predika. Á með-
an fer fram fjölbreytt barnastarf þar sem
börnunum er skipt í hópa eftir aldri. Síðan
verður vakningarsamkoma kl. 16.30 og þá
mun Jón Þór einnig predika. Fjölbreytt lof-
gjörð og fyrirbænaþjónusta, einnig verður
barnapössun fyrir börn undir sjö ára aldri.
Allir eru hjartanlega velkomnir. Á fimmtu-
dögum eru bænastundir kl. 20. Einnig eru
Bænastundir alla virka daga klukkan 7 að
morgni og í hádeginu kl. 12.30.
LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja:
Aðventukvöld föstudaginn 6. des. kl.
20.30. Fjölbreytt dagskrá í söng, tónlist og
helgileik. Laufásskirkja: Barnastund í upp-
hafi aðventudagskrár í Gamla bænum
laugardaginn 7. des. kl. 13.30. Biskup Ís-
lands herra Karl Sigurbjörnsson talar við
börnin. Grenivíkurkirkja: Aðventukvöld
sunnudaginn 8. des. kl. 20.30. Ræðu-
maður: Herra Karl Sigurbjörnsson biskup.
Kyrrðarstund mánudaginn 9. des. kl. 20.
Sóknarprestur.
HRÍSEYJARSÓKN: Helgistund og kveikt á
leiðalýsingunni i Kirkjugarði Hríseyjarkirkju
í dag, laugardag, kl. 18. Sunnudagaskóli
kl. 11.
STÆRRI- ÁRSKÓGSKIRKJA: Aðventukvöld
kl. 20.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Aðventukvöld kl. 20.9. des. (mánud.)
Kyrrðarstund kl. 18.10. des. Aðventu-
tónleikar til styrktar Amnesty Int-
ernational. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Aðventustund við
kertaljós föstudagskvöldið 13. des. kl. 20.
KIRKJUBÆJARKLAUSTURSPRESTA-
KALL: Kálfafellskirkja í Fljótshverfi: Að-
ventuguðsþjónusta verður kl. 11. Kór
Prestsbakkakirkju leiðir safnaðarsöng.
Organisti verður Kristófer Sigurðsson. Allir
gamlir Hverfingar hvattir til að mæta. Graf-
arkirkja í Skaftártungu: Aðventuhátíð
verður kl. 16. (Ath. tímasetningu). Kórinn
syngur þekkt lög tengd aðventu og jólum
undir stjórn Kristófers Sigurðssonar org-
anista. Börnin fá límmiða í kirkjubækurnar
sínar og lesin verður jólasaga. Kveikt verð-
ur á aðventukransinum og kirkjan verður
fyllt af söng og jólaanda. Sr. Baldur Gautur
Baldursson
Íslenski söfnuðurinn í Noregi. Aðventu-
kvöld íslenska safnaðarins í Noregi er
haldið 8. des. kl. 17 í amerísku kirkjunni íð
Fritznergötu 15 í Osló. Ólafur Kjartan Sig-
urðsson og Íslenski kórinn í Osló flytja tón-
verk. Léttari skemmtan undir kirkjukaffi á
eftir. Barnastarf meðan á aðventukvöldi
stendur. Sóknarpresturinn.
ÞAÐ verður margt á döfinni í
Laugarneskirkju sunnudaginn 8.
desember í tilefni þess að nýtt orgel
verður vígt og formlega tekið í
notkun.
Kl. 11 verður messa og sunnu-
dagaskóli, þar sem sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson prófastur og fyrrum
sóknarprestur í Laugarneskirkju
prédikar og vígir hið nýja orgel
kirkjunnar. Er það hinn íslenski
orgelsmiður Björgvin Tómasson
sem á veg og vanda af smíðinni,
ásamt sínum samstarfsmönnum.
Þá mun Gunnar Gunnarsson
leika á hljóðfærið, kór Laugarnes-
kirkju syngja og Laufey Geirlaugs-
dóttir flytja einsöng. Sunnudaga-
skólinn er í höndum Hildar Eirar
Bolladóttur, Heimis Haraldssonar
og Þorvalds Þorvaldssonar.
Kl. 16 er boðið til tónleika í kirkj-
unni. Þar leikur Gunnar Gunn-
arsson á orgelið og Sigurður Flosa-
son á saxófón, en samspil þeirra
félaga er orðið alþekkt og ómar nú
við nýjar og spennandi aðstæður.
Loks verður kvöldmessa kl. 20:30
þar sem Djasskvartett Gunnars
Gunnarssonar leikur, kór Laug-
arneskirkju syngur og Þorvaldur
Halldórsson syngur einsöng.
Prestshjónin Jóna Hrönn Bolladótt-
ir og Bjarni Karlsson þjóna við at-
höfnina ásamt Sigurbirni Þorkels-
syni. Djassinn hefst kl. 20 svo gott
er að koma snemma og njóta alls
frá upphafi.
Mosfellsprestakall –
aðventukvöld
AÐVENTUSAMKOMA verður í
Lágafellskirkju n.k. sunnudags-
kvöld 8. desember kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins verður dr.
Sigurbjörn Einarsson biskup.
Bergþór Pálsson og ung stúlka,
Sigrún Harðardóttir, syngja ein-
söng. Gréta Stefánsdóttir, Gunnar
Hrafnsson, Jónas Þórir Dagbjarts-
son, Matthías Nardeau, Sveinn
Þórður Birgisson, Örnólfur Krist-
jánsson leika á hljóðfæri.
Skólakór Mosfellsbæjar syngur
undir stjórn. Guðmundar Ómars
Óskarssonar og Kirkjukór Lága-
fellssóknar undir stjórn Organist-
ans Jónasar Þóris.
Sóknarprestur, sr. Jón Þor-
steinsson flytur ritningarlestur og
bæn.
Að stundinni lokinni verður boð-
ið upp á kirkjukaffi í safnaðarheim-
ilinu að Þverholti 3.
Aðventan er undirbúningstími
blessaðra jóla. Þann undirbúning er
gott að rækja í húsi Guðs. Mætum
öll og eigum saman helga stund í
húsi Drottins.
Sóknarprestur – sóknarnefnd.
Aðventukvöld í
Egilsstaðakirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Egils-
staðakirkju sunnudaginn 8. desem-
ber kl. 20. Dagskráin verður fjöl-
breytt og mikið sungið. Kór
kirkjunnar syngur jólalög og einnig
barnakór og kór yngri barna úr
sunnudagaskólanum en stjórnandi
þessara kóra og organisti er Tor-
vald Gjerde. Einsöng syngur Freyja
Kristjánsdóttir Gjerde. Hugleið-
ingu (jólaminningar) flytur sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir. Jón Guð-
mundsson og Rosemary Hewlett
leika á flautur. Rosemary verður
einnig með hljómsveit sem leikur
jólalög. Börn úr 10 til 12 ára starfi
safnaðarins (TTT) flytja helgileik.
Kirkjugestum gefst kostur á að
syngja nokkra jólasálma, þar á
meðal Heims um ból, við kertaljós í
lok samverunnar.
Sóknarprestur.
Helgileikur og
Kópamessa
Í FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTU
kl. 11 syngja börn úr 4. bekk Kárs-
nesskóla og flytja jólahelgileikinn
„Hljóðu jólaklukkurnar“. Það er
Þórunn Björnsdóttir kórstjóri sem
stjórnar söng barnanna.
Kópamessa verður kl. 20. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar leiða söng
og Kvennakór Reykjavíkur kemur í
heimsókn og syngur undir stjórn
Sigrúnar Þorgeirsdóttur, kór-
stjóra. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra og leiða bænagjörð.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Aðventukvöld
Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði
ANNAÐ kvöld, sunnudagskvöldið
8. desember, verður aðventukvöld í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði og hefst
dagskráin að þessu sinni kl.
20:30.Að venju verður fjölbreytt
dagskrá í tali og tónum. Kór Frí-
kirkjunnar syngur undir stjórn
þeirra Þóru Guðmundsdóttur org-
anista og Arnar Arnarson tónlistar-
manns og Örn mun einnig leiða tón-
list og söng ásamt hljómsveit sinni
eins og hann hefur gert á mán-
aðarlegum kvöldvökum kirkj-
unnar. Sérstakir gestir kvöldsins
verða svo félagar úr Kór Öldutúns-
skólans í Hafnarfirði og syngja
undir stjórn Egils Friðleifssonar.
Þess má geta að kórinn söng á
fyrstu aðventusamkomunni í Hafn-
arfirði sem haldin var í Fríkirkj-
unni 1971. Þá munu unglingar úr
æskulýðsfélögum kirkjunnar flytja
helgileik og lesin verður jólasaga.
Að lokinni góðri stund í kirkjunni
verður svo boðið upp á heitt súkku-
laði í safnaðarheimili.
Aðventukvöld í
Árbæjarkirkju
Á SUNNUDAGSKVÖLD kl. 20
verður aðventukvöld í Árbæjar-
kirkju. Boðið verður uppá vandaða
dagskrá í tali og tónum. Ljós aðven-
tukransins verða tendruð og sagt
frá merkingu hans. Hátíðarræðuna
flytur sjónvarpskonan vinsæla Eva
María Jónsdóttir. Joseph Ognibene
leikur á franskt horn. Kirkjukórinn
og Gospelkórinn syngja undir
stjórn Krisztinu Kalló Szklenár
organista. Fermingarbörn sýna
helgileikinn „ljós í myrkri“. Kynnir
verður Jóhann Björnsson. Boðið
verður uppá heitt súkkulaði og
smákökur í safnaðarheimilinu að
stundinni lokinni.
Að morgni annars sunnudags í að-
ventu kl.11 verður fjölskylduguðs-
þjónusta í kirkjunni í umsjá presta
og sunnudagaskólakennara. Börn
verða borin til skírnar. Fræðsla,
söngur og leikur. Verið öll velkomin
í Árbæjarkirkju á aðventunni.
Nýr prestur settur
í embætti við
Hjallakirkju
SUNNUDAGINN 8. desember mun
sr. Gísli Jónasson, prófastur í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra,
setja sr. Sigfús Kristjánsson í emb-
ætti prests við Hjallakirkju í Kópa-
vogi.
Sr. Sigfús var valinn prestur við
kirkjuna í október sl. og tók form-
lega til starfa þann 1. nóvember sl.
Að messu lokinni er öllum við-
stöddum boðið að þiggja veitingar í
safnaðarsal kirkjunnar.
Þennan sama dag mun Kór
Hjallakirkju halda sína árlegu að-
ventutónleika kl. 20 en sérstakur
gestur tónleikanna að þessu sinni
er Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópr-
ansöngkona. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Umhyggja styrkt
á aðventukvöldi í
Digraneskirkju
ANNAN sunnudag í aðventu 8. des
n.k. verður aðventuhátíð í Digra-
neskirkju kl. 20.30. Málefni kvölds-
ins verður Umhyggja, félag til
stuðnings langveikum börnum. Þar
mun Ragna Marinósdóttir, formað-
ur Umhyggju kynna félagið.
Kammerhljómsveitin Kamm-
erartica sér um tónlistarflutning
kvöldsins.
Dróttskátar munu færa kirkjunni
friðarljós frá Betlehem. Kaffiveit-
ingar verða í safnaðarsal eftir að-
ventustundina og rennur allur
ágóði til Umhyggju. Þau sem vilja
leggja góðu málefni lið geta gefið
kökur og meðlæti eða keypt frið-
arkerti Hjálparstarfs kirkjunnar,
jólakort og fleira. Tekið er á móti
söfnunarbaukunum „brauð handa
hungruðum heimi“.
Undirbúningur þessa aðventu-
kvölds er í höndum sóknarnefndar
Digraneskirkju.
Aðventutónleikar í
Garði og Sandgerði
AÐVENTUTÓNLEIKAR verða
annan sunnudag í aðventu 8. des-
ember í safnaðarheimilinu í Sand-
gerði kl. 17 og Útskálakirkju í
Garði kl. 20:30.
Fram koma kirkjukórar Hvals-
ness- og Útskálakirkju, barnakór
Hvalsneskirkju og nemendur úr
tónlistarskólunum í Sandgerði og
Garði. Ína Dóra Hjálmarsdóttir og
Vilborg Eckhard syngja tvísöng,
Eyþór Kolbeins leikur á bassa og
Þorvaldur Halldórsson á trommur.
Einnig munu karlaraddir úr kirkju-
kórnum syngja nokkur lög. Sungn-
ir verða jóla- og aðventusálmar, les-
ið úr ritningunni og fermingarbörn
lesa guðspjall.
Í almennum söng verða sungnir
sálmarnir „Við kveikjum einu kerti
á“ og „Guðs kristni í heimi“.
Stjórnandi og undirleikari er
Steinar Guðmundsson organisti.
Aðventuhátíð í
Grindavíkurkirkju
ANNAN sunnudag í aðventu 8. des-
ember verður jólastund barnanna
kl. 11.
Aðventuhátíð kirkjunnar verður
með fjölbreyttu sniði og þátttöku
margra og hefst kl. 20.
Kór kirkjunnar leiðir almennan
safnaðarsöng undir stjórn organist-
ans. Barnakór Tónlistarskóla
Grindavíkur syngur jólalög og flyt-
ur söngleik um fæðingu frelsarans.
Stjórnandi Rósalind Gísladóttir.
Fermingarbörnin flytja helgileik
um jólin fyrr og nú.
Við hvetjum alla til að fjölmenna
í kirkjuna og taka þátt í skemmti-
legri kvöldstund á aðventu.
Prestur: sr. Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir. Organisti: Örn
Falkner.
Þann 10. desember verður haldið
jólaball foreldramorgna og þann
12. desember verður jólastund eldri
borgara.
Sóknarnefndin.
Tónleikar á vígsluaf-
mæli Grensáskirkju
Á MORGUN, 8. des. heldur Kirkju-
kór Grensáskirkju aðventutónleika
í kirkjunni og hefjast þeir kl. 20:00.
Sungin verða ýmis aðventu- og jóla-
lög og sálmar enda við hæfi að búa
hugi og hjörtu undir fæðingarhátíð
frelsarans.
Jafnframt er þess minnst þennan
dag að sex ár eru liðin frá því Ólaf-
ur Skúlason biskup vígði Grens-
áskirkju því vígsludagurinn var
einmitt 8. des. 1996.
Um morguninn verður að sjálf-
sögðu hefðbundin guðsþjónusta og
barnastarf kirkjunnar.
Aðventukvöld
Fríkirkjunnar
í Reykjavík
ÁRLEGT aðventukvöld Fríkirkj-
unnar verður haldið næstkomandi
sunnudagskvöld, þann 08. desem-
ber, klukkan 20.30.
Aðventukvöld síðustu aðventu
var einstök upplifun og eftiminni-
legt og víst er að miklar vonir eru
bundnar við fyrirhugaða aðventu-
samveru í kirkjunni.
Sunnudagurinn 8. desember er
annar sunnudagur í aðventu en að-
ventan er helgur undurbúningstími
jólanna. Á aðventu reyna fjöl-
skyldur að eiga sem flestar sam-
verustundir og undirbúa komu há-
tíðarinnar í anda og verki og því er
það góður siður að fjölskyldan öll,
yngri sem eldri komi saman í Frí-
kirkjunni við tjörnina og er jafnan
þétt setinn bekkurinn.
Kór Fríkirkjunnar mun verða
með fjölbreytta tónlistardagskrá,
jafnt hefðbundna sem óhefðbundna
tónlist og verður það allt undir
stjórn Carls Möller og Önnu Sigríð-
ar Helgadóttur. Undirleik annast
kvartett Carls Möller.
Hátíðardagur í
Laugarneskirkju
Morgunblaðið/Kristinn
KIRKJUSTARF