Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 60

Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 60
UMRÆÐAN 60 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALLT frá stofnun Richard Wagn- er-félagsins árið 1995 hefur verið lögð sérstök áhersla á að beita sér fyrir rannsóknum og kynningu á áhrifum íslenskra fornbókmennta á verk Richards Wagner. Fyrir til- stilli félagsins og margra stuðnings- aðila hóf dr. Árni Björnsson að vinna að rannsóknum á þessu sviði. Bók hans um þetta efni, „Wagner og Völsungar“, kom út hjá Máli og menningu árið 2000. Niðurstöður Árna voru afar merkilegar og eiga ekki síður erindi á alþjóðavettvangi en hér heima, en Árni fann það út að um 80% af að- fengnum efnishugmyndum Wagn- ers í Niflungahringnum koma frá ís- lenskum fornbókmenntum eingöngu (Eddukvæði, Snorra-Edda, Völs- ungasaga o.fl.), um 5% frá þýska Niflungaljóðinu og öðrum þýskum heimildum en þau 15% sem þá eru eftir séu til staðar bæði í íslensku og þýsku bókmenntunum. Þótt bók Árna hafi enn ekki kom- ið út á erlendum tungumálum hafa niðurstöður hennar vakið mikla at- hygli hjá aðstandendum Wagnerhá- tíðarinnar í Bayreuth og Wagner- unnendum víða um heim. Árna var í kjölfarið boðið að skrifa grein um niðurstöður sínar í vandaða leikskrá Bayreuthhátíðarinnar og birtist hún í skránni nú í sumar. Greinin heitir á þýsku „Island und der Ring des Nibelungen“. Í sama hefti var einnig ensk og frönsk þýðing greinarinnar, allt saman fagurlega skreytt mynd- um af íslenskum handritum og sögu- stöðum og spannaði þetta efni u.þ.b. 40 síður í liðlega 200 síðna efnis- skránni. Nærri má geta að um 10 þúsund leikskrár seljist á hátíðinni og er því líklegt að grein Árna muni vekja mikla athygli á íslenskum fornritum og tengslum þeirra við Niflungahring Wagners. Á næst- unni er í bígerð að bók Árna, Wagn- er og Völsungar, komi út í enskri og þýskri þýðingu og hefur breska for- lagið „Viking Society“ látið í ljós áhuga á að gefa hana út á enskri tungu Um Bayreuthhátíðina og Wolfgang Wagner Wagnerhátíðin í Bayreuth hefur löngum verið Mekka fyrir aðdáend- ur Richards Wagners um allan heim. Hátíðin hefst í lok júlí ár hvert og næstu fimm vikurnar streyma pílagrímar úr öllum heimshornum á hátíðina. Óperuhúsið – Festspiel- haus – tekur tæplega 2.000 manns í sæti og á hverju kvöldi er sýnd ein- hver ópera Wagners. Oftast er á há- tíðinni boðið upp á allan Niflunga- hringinn, sem er fjórar óperur, og þrjár aðrar Wagneróperur. Sjötta hvert ár er hátíðin Hringlaus og eru þá sýndar 5–6 af öðrum óperum Wagners, allt frá Hollendingnum fljúgandi til Parsifals. Alls eru um 56 þúsund miðar seld- ir á hátíðina á hverju sumri og sækja hátíðina um 20 þúsund manns. Samt er eftirspurn eftir mið- um langt umfram framboð; nú þurfa áhugasamir unnendur Wagners að bíða í tíu ár eftir því að fá miða á há- tíðina. Richard Wagner-félagið á Ís- landi hefur átt því láni að fagna að hafa sérstaklega góðan aðgang að miðum á hátíðina og hefur hópur Ís- lendinga farið á sýningar árlega frá stofnun félagsins 1995. Auk þess hefur félagið átt þess kost að senda árlega ungan söngvara eða tónlist- armann sem sérstakan styrkþega á hátíðina í því skyni að kynnast verk- um Wagners í sínu kjörumhverfi. Ástæða þess hve Íslendingar hafa mætt mikilli vinsemd og sérstakri fyrirgreiðslu í Bayreuth má rekja til velvildar Wolfgangs Wagner, stjórnanda hátíðarinnar, sem metur mikils þátt íslenskra fornrita í smíði afa síns Richards á Niflungahringn- um. Árið 1994 aðstoðaði hann Ís- lendinga við hina eftirminnilegu uppfærslu „litla Niflungahringsins“ á Listahátíð í Reykjavík. Wolfgang greiddi einnig götu dr. Árna Björns- sonar til að stunda rannsóknir sínar í Bayreuth árið 1999. Það var söguleg stund í Bayreuth í sumar þegar hátíðinni lauk með lokasýningu á Meistarasöngvurun- um í Nürnberg í uppfærslu Wolf- gangs Wagners því þetta var síðasta uppfærsla Wolfgangs sjálfs í Bayreuth. Gestir á sýningunni gerðu sér vel grein fyrir sögulegri þýðingu kvöldsins og fögnuðu Wolf- gang látlaust í 45 mínútur í sýning- arlok. Wolfgang Wagner hefur verið lífið og sálin í Bayreuth í rúma hálfa öld og gegnt tvíþættu hlutverki; sem stjórnandi hátíðarinnar annars veg- ar og sem leikstjóri og sviðshönn- uður hins vegar. Hann endurreisti hátíðina í Bayreuth ásamt bróður sínum Wieland árið 1951 og settu þeir bræður sjálfir til skiptis á svið nær allar uppfærslur hátíðarinnar fram til dauða Wielands 1966. Eftir það hélt Wolfgang áfram að leiða hátíðina einn og þótt hann hafi þá farið að bjóða gestaleikstjórum til Bayreuth hélt hann ótrauður áfram að setja sjálfur upp óperur afa síns. Hátíðin næsta sumar verður því sú fyrsta frá upphafi þar sem ekki má sjá uppfærslu eftir einhvern úr fjöl- skyldu Richards Wagners. Wolfgang Wagner varð 83 ára í sumar. Hann leiðir Bayreuthhátíð- ina af sama krafti og fyrr og óvægn- ar gagnrýnisraddir, sem fyrir stuttu hljómuðu svo hátt í öllum fjölmiðl- um, hafa nú alveg þagnað. Wolfgang gefur ekki upp hvenær hann hyggist láta af störfum sem stjórnandi há- tíðarinnar; þvert á móti sýnir hann að sjaldan hefur verið meiri kraftur í stjórn hans og einmitt nú. Í sumar var frumsýnd ný uppfærsla á Tann- häuser, næsta sumar kemur nýr Hollendingur, en stóra bomban féll þó þegar tilkynnt var að danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier hefði verið valinn til að setja upp næsta Niflungahring árið 2006. Fyrir okkur Íslendinga verður sú uppfærsla ekki síður áhugaverð fyr- ir það að Karl Júlíusson mun hanna leikmynd og búninga og verður það í fyrsta skipti sem Íslendingur gegnir svo veigamiklu hlutverki á hátíðinni í Bayreuth. Ísland og Nifl- ungahringurinn Eftir Árna Tómas Ragnarsson Höfundur er læknir. „Wagner- hátíðin í Bayreuth hefur löng- um verið Mekka fyrir aðdáendur Richards Wagners um allan heim.“ EKKI er nokkrum vafa undirorp- ið að stafræn tækni í sjónvarpsþjón- ustu mun valda þáttaskilum í þróun sjónvarps hér á landi á næstu árum. Helstu kostir stafræns sjónvarps, umfram núverandi hliðrænt kerfi, eru betri mynd- og hljóðgæði, bætt nýting ljósvakans, öruggara kerfi, lægri kostnaður við dreifingu, auð- veldari samruni við önnur fjarskipti, fleiri kostir fyrir upplýsingasam- félagið og aukinn möguleiki á gagn- virkni. Stafrænu sjónvarpi fylgir hins vegar ákveðinn kostnaður, s.s. vegna endurnýjunar dreifi- og að- gangskerfa, umbóta á móttökubún- aði neytenda og endurskipulagning- ar tíðnisviðsins. Í greinargerð sem Póst- og fjar- skiptastofnun (PFS) vann fyrir sam- gönguráðuneytið um undirbúning og innleiðingu stafræns sjónvarps á Íslandi, er m.a. fjallað um ýmsa þætti er varða stafrænt sjónvarp hérlendis og aðkomu stjórnvalda að ákvörðunum um stafrænt sjónvarp. Í þeim tilgangi að mynda breiða samstöðu um þá útfærslu á dreifi- kerfi fyrir stafrænt sjónvarp, sem hagkvæmasta megi telja fyrir sam- félagið og neytendur, naut PFS ráð- gjafar vinnuhóps sjónvarps- og fjarskiptafyrirtækja við gerð skýrslunnar. Ég tel afar brýnt og raunar grundvallaratriði að við upp- byggingu stafræns sjónvarps á Ís- landi verði lögð áhersla á að dreifing verði tryggð til landsmanna, óháð búsetu. Einnig, að við uppbyggingu stafræna dreifikerfisins verði leitast við að ná jafn mikilli útbreiðslu fyrir dreifingu og RÚV gerir í dag og að við útfærslu aðgangskerfis (mynd- lykla) verði stuðlað að hagkvæmri og einfaldri uppbyggingu, þannig að notendur þurfi aðeins einn mynd- lykil – enda er ljóst að verulegur kostnaður mun liggja í endabúnaði notenda. Forstjóri Norðurljósa og stafrænt sjónvarp Í Morgunblaðinu sl. þriðjudag er ítarleg og vönduð umfjöllun um staf- rænt sjónvarp á Íslandi. Í blaðinu er gerð glögg grein fyrir þeim mis- munandi dreifileiðum sem mögu- legar eru til að dreifa stafrænu sjón- varpi og rætt við forsvarsmenn þriggja helstu sjónvarpsstöðva landsins, Norðurljósa/Stöðvar 2, RÚV og Skjás 1. Ég get ekki látið hjá líða að gera athugasemdir við þau ummæli for- stjóra Norðurljósa í umfjöllun Morgunblaðsins, þar sem hann furð- ar sig á því að dreifing Landssíma Íslands á móttökurum á vegum Breiðvarpsins sé ekki stöðvuð þegar ekki liggur fyrir hvort það sé hag- kvæmt eða ekki. Við þessu er það að segja að það starf sem unnið hefur verið vegna innleiðingar stafræns sjónvarps af hálfu samgönguráðu- neytisins tengist Landssímanum ekki á nokkurn hátt. Ráðuneytið hefur hvorki úrræði né áhuga á að hlutast til um vinnulag hjá Lands- símanum við rekstur einstakra ein- inga. Ef í ljós kemur að aðgerðir Landssímans reynist óhagkvæmar munu stjórnendur fyrirtækisins bera ábyrgð á því. Hafa ber þó í huga að Síminn hefur hins vegar veitt þjónustu á þessu sviði sem stendur yfir 30.000 heimilum til boða. Þá heldur forstjórinn því fram að samgönguráðherra ásamt öðrum ráðherrum hafi ekki sett sig inn í það hvað stafrænt sjónvarp er. Þessi skeytasending forstjórans er mjög undarleg og sýnir ótrúlegan hroka. Varla er ástæða til að svara þessu, en þó er nauðsynlegt að rekja þá vinnu sem ég hef þegar staðið fyrir, ef það mætti verða forstjór- anum til fróðleiks, um leið og minnt er á að forstjóri Norðurljósa, sem var þá stjórnarformaður að mig minnir, átti í viðræðum um stafrænt sjónvarp við undirritaðan vegna áforma fyrirtækisins um tilrauna- sendingar. Ég fól PFS að vinna skýrslu um stafrænt sjónvarp. PFS setti á fót vinnuhóp við gerð skýrsl- unar, þar sem öllum hagsmunaaðil- um var gefinn kostur á að koma sín- um sjónarmiðum á framfæri eins og eðlilegt var. Eftir að hafa farið vandlega yfir skýrsluna, skipaði ég starfshóp sem á að gera tillögu um rekstrarform dreifikerfis, útboð, greiðslufyrirkomulag og kostnaðar- áætlun. Ég hef því fylgst grannt með og unnið markvisst að innleið- ingu stafræns sjónvarps á Íslandi. Forstjóri Norðurljósa gagnrýnir jafnframt þann stutta tíma sem starfshópnum er ætlaður, þar sem ekki sé hægt að taka ákvörðun um dreifileið fyrr en kostnaður liggi fyrir. Í minnisblaði sem fylgdi skip- unarbréfi starfshópsins kemur fram að hópnum sé ætlað að gera kostn- aðaráætlun. Tímamörkin, sem ég setti fram, eru vissulega metnaðar- full en ekki þarf að efast um það að ákvörðun um innleiðingu verður ekki tekin nema að kostnaðaráætlun liggi fyrir og undirbúningi lokið og samkomulagi náð um þær leiðir sem valdar verða. Loks vil ég undirstrika þá von mína að stjórnendur sjónvarpsfyr- irtækjanna sýni þessu mikilvæga máli áfram áhuga svo það nái fram að ganga neytendum til hagsbóta. Stafrænt sjónvarp Eftir Sturlu Böðvarsson „Tímamörk- in eru vissu- lega metn- aðarfull.“ Höfundur er samgönguráðherra. LANGT er síðan jafnrétti kynjanna var bundið í lög og töldu margir að með því vantaði einungis herslumuninn til að kynin stæðu jafnfætis. Eitthvað hefur þó dregist á langinn að markmiðið verði að veruleika og sýna nýjustu launa- kannanir að enn er langt í land. Sterk tilhneiging er til að flokka launamuninn í ýmist útskýranlegan eða óútskýranlegan mun og gefa hvorum um sig mismunandi vægi. Launamunurinn telst útskýrður þegar karlmenn fá hærri laun vegna þess að þeir vinni lengri vinnudag, hafi lengri starfsaldur, séu betur menntaðir en konur í sama starfi og svo framvegis. Hinn óútskýrði launamunur er afgangsstærð sem ekki er hægt að skýra með neinu öðru en kyni. Það er bæði spennandi og nauðsynlegt verkefni að eyða hinum útskýranlega launamun m.a. með aukinni atvinnuþátttöku kvenna og aukinni blöndun kynja í stéttum sem hingað til hafa verið eyrnamerktar öðru kyninu. En erf- iðara er að festa hendur á óútskýrða launamuninum og bæta úr. Hvernig stendur á því að þrátt fyrir alla laga- bálka eru karlar með hærri laun en konur? Launamunur sem ekki verð- ur skýrður með neinu öðru en kyni? Við búum við stjórnkerfi sem er hannað af körlum utan um karla. Því er ekkert undarlegt þó að karlar eigi auðveldara uppdráttar innan þessa kerfis. Með aukinni þátttöku kvenna í stjórn landsins og fyrir- tækja hafa orðið einhverjar breyt- ingar en þær verða mjög hægt. Ástæðu hægfara breytinga má finna í því að eina leið kvenna til áhrifa er í gegnum karlaheiminn sem síðan mun þróast innan frá og einhvern tímann rúma bæði kynin á jafnrétt- isgrundvelli. Flestir yfirmenn stofn- ana og fyrirtækja eru karlmenn og vald þeirra fer vaxandi. Í kjarasamningum við opinbera starfsmenn 1997 var fetuð ný slóð dreifstýrðra launaákvarðana, þ.e. ákvarðanir um aukagreiðslur ofan á kjarasamninga eru ákveðnar innan hverrar stofnunar fyrir sig. Þetta var gert í þeim tilgangi að hægt yrði að umbuna starfsmönnum í launum samkvæmt óskilgreindum ákvörð- unum forstöðumanna stofnana. Verkalýðshreyfingin skrifaði hik- andi undir samningana en taldi að dreifstýrðar launaákvarðanir væru leið til að stækka launapottinn. Reynsla annarra þjóða hefur sýnt að aukið vald yfirmanna yfir launum leiðir til aukins launabils kynjanna. Þrátt fyrir þetta var samningunum þrýst í gegn. Afleiðingarnar sjáum við nú meðal annars í óútskýrðum launamun kynjanna. Skýrustu dæmi þessa koma fram í launakönnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Reykjavíkurborg og var birt í sum- ar. Ekki er hægt að túlka niðurstöð- urnar á annan veg en að kjaraatriði sem ákveðin eru á vinnustöðum, svo sem yfirvinna og akstursgreiðslur, komi körlum betur en konum. Þarna er „óútskýrt“ misrétti sem virðist fylgja dreifstýringu launaákvarð- ana. Ef jafnréttishugsunin væri okkur öllum töm myndi þetta ekki gerast og jafnréttið rataði í launa- umslagið eins og það ratar í lög og reglugerðir. Sú er hins vegar ekki raunin. Því verður að bregðast við þessu á einhvern hátt. Fyrsta skref- ið er að rannsaka málið svo við ger- um okkur betur grein fyrir því hverjar hinar raunverulegu orsakir eru. Þegar dreifstýrða launakerfið fór inn í kjarasamninga fyrir fimm ár- um voru margar kvennastéttir hik- andi vegna hugsanlegs misréttis. Með nokkrum samningum fylgdi yf- irlýsing þess efnis að áhrif nýja launakerfisins yrðu könnuð með til- liti til launamunar kynjanna. Þetta hefur hins vegar aldrei verið gert. Þegar ég tók sæti á Alþingi í nóv- ember spurði ég fjármálaráðherra hvers vegna áhrifin af launakerfinu hefðu ekki verið könnuð þrátt fyrir yfirlýsinguna. Ráðherrann svaraði því til að flokkun starfa innan ráðu- neytisins kæmi í veg fyrir að þessi yfirlýsing kæmist til framkvæmda. Það er slæmt mál að tæknileg atriði skuli vera jafnrétti kynjanna fjötur um fót og vonast ég til þess að úr verði bætt hið snarasta. Einnig er mjög alvarlegt þegar róttækar breytingar á launakerfi hins opin- bera valda því að það hægir á ferlinu til jafnréttis. Konur eru langeygar eftir því að standa jafnfætis körlum og launa- jöfnuður er alger forsenda þess að kvenfrelsi náist á vinnumarkaði og á heimilum. Ef við ætlum okkur raun- verulega að vinna á óútskýrðum launamun kynjanna verðum við að hanna gegnsætt launakerfi svo að krónufjöldinn í launaumslaginu fari ekki eftir kyni. Þá verðum við skrefi nær raunverulegu jafnrétti. Eftir Drífu Snædal „Það er mjög alvar- legt þegar róttækar breytingar á launakerfi hins opin- bera valda því að það hægir á ferlinu til jafn- réttis.“ Höfundur er nemi og varaþingkona Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Jafnrétti í launaumslagið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.