Morgunblaðið - 07.12.2002, Side 69
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 69
-það er kaffið!
Eva Margrét er 8 ára.
Hún hefur náð sér að fullu eftir
baráttu við alvarlegan sjúkdóm
sem hún greindist með við 3ja
ára aldur.
Undanfarin ár hefur Gevalia kaffi lagt milljónir króna til félags-
og góð gerðar mála. Í ár leggjum við okkar af mörkum til að
styrkja Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum,
til að opna þjónustumiðstöð fyrir foreldra og systkini.
Þegar þú kaupir pakka af Gevalia kaffi renna 15 krónur
til þessa verkefnis.
Sýnum umhyggju í verki um jólin.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
RY
D
1
91
94
11
/2
00
2
„Þegar ég verð
stór ætla ég að
verða bakari.“
VANDI Veðurstofu Íslands hrann-
ast upp. Fyrir par misserum var að
sögn forstöðumanns stofnunarinnar
undirstaðan undir ábyrgum rekstri
stofnunarinnar hrunin.
Svokölluð frum-veðurgögn af þeim
gæðum sem þjóð á hjara veraldar
þurfti til marktækrar spágerðar væru
ekki lengur fáanleg. Þessi vandi ligg-
ur hjá dótturstofnun í eigu ríkisveð-
urstofa stærstu landa Evrópusam-
bandsins og hef ég fjallað um það
áður á þessum vettvangi.
Það má með sanni segja að stjórn-
endur Veðurstofu skræktu þá eins og
stungnir grísir, upphófu mikið írafár
og fjölyrtu um hættuna sem stafaði af
því að þurfa að sætta sig við allt að 48
stunda spágögn fyrir spágerðina sem
er að mestu leyti handavinna.
Lögð var þung áhersla á mikilvægi
þess að hér yrði að koma til forgangs-
afgreiðsla stjórnvalda og tiltóku
menn í barnaskap sínum að Davíð for-
sætisráðherra yrði að taka á þessum
vanda. Rétt er að minna á að um-
hverfisráðherra er sitjandi í „stjórn“
Veðurstofunnar.
Ekkert heyrðist í stjórninni af
þessu tilefni.
Undirritaður brást þá við, í ein-
feldni sinni, og bauð fram aðstoð sína
við háttvirtan stofnunarforstjórann
og tjáði honum, með sem bestu orða-
vali, að fyrirtækið Halo hefði nýjustu
frum-veðurgögn og lifandi tölvuveð-
urspár fyrir Vefinn og sjónvarp. Það
var nú reyndar vitað og á vitorði allra
í þessari atvinnugrein. Því bera líka
vitni ummæli og notkun trillukallanna
í kringum landið.
Ég fór að sjálfsögðu bónleiður til
búðar, enda eiga menn alls ekki að
haga sér á þennan hátt í návist stofn-
ana „elítunnar“. Það urðu í sem
skemmstu máli endalokin að ekkert
kom út úr þessari tilraun annað en út-
úrsnúningar, hártoganir um gildi
þess sem verið væri að bera á borð og
háðsglósur um smæð Halo og okkar.
Síðan var klykkt út með að starfs-
menn stofnunarinnar væru alls ekki
sannfærðir um nema verið væri að
blekkja þá.
Þetta var í mörgu rétt ályktað, það
hefur verið augljóst að innan Veður-
stofu Íslands er afar rýr þekking á
þeirri tækni sem snýr að vefmiðlun og
hreyfimiðlun upplýsinga, að ekki sé
talað um notagildi reiknilíkana og
beint aðgengi að upplýsingalindum
hjá stærstu söfnunaraðilum veður-
gagna vestan Atlantshafsins.
Á þessum tíma var Halo búin að
standa fyrir þróun sem sprotafyrir-
tæki í fimm ár og hafði lokið stórum
áfanga í smíði hugbúnaðar sem sækir
gögn, greinir þau og flytur inn í
reiknilíkön sem hafa þróast í fimmtíu
ár á vettvangi vísindanna, víða í heim-
inum. Framsetning og túlkun er síðan
með nýjustu þekktri tölvutækni. Í
svona vinnsluumhverfi kemur manns-
höndin hvergi nærri, ef frá eru taldar
tækniuppákomur.
Núna vantar Veðurstofu stærri
skammt af skattpeningum okkar til
þess að viðhalda staðnaðri stofnun og
stöðnuðum vinnubrögðum sínum, ef
marka má umkvörtunartal forstöðu-
mannsins nú nýlega.
Af hverju skyldi mér renna blóðið
til skyldunnar og vera yfirleitt að
skipta mér af þessum annars vand-
ræðagangi. Ég skal fúslega skýra það
og kemur hér tvennt til.
Í fyrsta lagi á ég ítök í fyrirtæki
sem á tæknilausn sem gæti leyst
stærsta vanda Veðurstofu án aukinna
útgjalda, en ekki síður hitt að það er
alls ekki hægt að sitja undir svona
einhliða málflutningi, sem er eins og
blaut tuska í andlit skattgreiðenda og
það svona í aðdraganda kosninga,
þegar allur fjöldi alþingismanna á Al-
þingi keppist við að hlúa sem best að
sínum umbjóðendum, til þess að
minna á tilvist sína.
Síðan þetta átti sér stað er liðið eitt
og hálft ár og væntanlega greiða
þessir þingmenn sem og aðrir fyrir
því að Veðurstofa fái meiri eyðslupen-
inga til þess að viðhalda stöðu sinni og
stöðnuðu umhverfi.
Það er afar brýnt fyrir þingheim að
skilja að það verður alls ekkert nema
staðnað sem Veðurstofa aðhefst
þangað til nútímatækni verður beitt
og ef Veðurstofan á að stýra því ferli
þarf ógrynni fjár. Þar á bæ er lenska
að veðurfræði sé eitthvað sem ein-
göngu veðurfræðingar geti skilið og
þess vegna sé ekki ástæða til að þeir
leiti ásjár utan stofnunarinnar og hjá
þeim sem ógnar með þekkingu sinni.
Þeim finnst við hjá Halo eflaust
ókurteisir og að við sýnum þeim litla
sem enga lotningu, minnugir þess að
við kærðum þá fyrir Samkeppnis-
stofnun fyrir skömmu þar sem þeim
var sett það fyrir að skilja að siðlausa
samkeppni og það sem átti ekki í
beinni samkeppni.
Ekki berast neinar fréttir af til-
burðum til bóta á því sviði, – hafa
væntanlega ekki peninga.
Ég spyr þingmenn, hafið þið leyfi
kjósenda til þess að viðhalda gamla
tímanum þegar annað er á boðstól-
um? Þarf stofnunin endilega að finna
sjálf upp það sem hún moðar úr og að
endingu, er það skilyrði að hún kaupi
frekar vörur sínar hjá þeim sem
svelta hana en okkur sem gætum
greitt götu hennar?
Svari nú hver fyrir sig, en ég segi
nei.
Veðurstofan
í vanda
Eftir Þorstein Sigurð
Þorsteinsson
„Núna vantar
Veðurstofu
stærri
skammt af
skattpening-
um okkar til þess að við-
halda staðnaðri stofnun
og stöðnuðum vinnu-
brögðum sínum …“
Höfundur er vél- og tölvunar-
fræðingur. Mörkinni 3, sími 588 0640
Glæsilegar
jólagjafir