Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 77
EINS og undanfarin ár munu starfs-
menn kirkjugarðanna aðstoða fólk,
sem kemur til að huga að leiðum ást-
vina sinna.
Á Þorláksmessu og aðfangadag
munu starfsmenn vera til staðar í
Fossvogsgarði, Gufunesgarði og Suð-
urgötugarði og munu þeir í samráði
við aðalskrifstofu í Fossvogi og skrif-
stofu í Gufunesi leiðbeina fólki eftir
bestu getu.
Aðalskrifstofan í Fossvogi og skrif-
stofan í Gufunesi eru opnar báða dag-
ana, Þorláksmessu og aðfangadag kl.
9-15. Þeir sem ætla að koma í kirkju-
garðana um jólin og eru ekki vissir
um að rata er bent á að leita sér upp-
lýsinga í síma aðalskrifstofu Kirkju-
garðanna í Fossvogi eða í síma
Kirkjugarðanna í Gufunesi.
Hægt er að nálgast upplýsingar um
staðsetningu leiða á vefnum gardur.is
Einnig getur fólk komið á skrifstof-
una alla virka daga kl. 8.30-16 og
fengið upplýsingar og ratkort. Lögð
er áhersla á að fólk nýti sér þessa
þjónustu með góðum fyrirvara, því
það auðveldar mjög alla afgreiðslu.
Fólk er beðið að nota bílastæðin og
fara gangandi um garðana.
Bent skal á að Hjálparstofnun
kirkjunnar verður með kertasölu í
kirkjugörðunum á Þorláksmessu og
aðfangadag. Heimasíða kirkjugarð-
anna er: www.kirkjugardar.is, segir í
fréttatilkynningu.
Aðstoða fólk í kirkjugörðunum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að tveimur árekstrum.
Sá fyrri varð á gatnamótum
Háaleitisbrautar og Miklubrautar
miðvikudaginn 4. desember síðast-
liðinn klukkan 16.59. Þar skullu
saman blá BMW bifreið og blá
Volfswagen Golf bifreið. Báðum
bifreiðunum ekið norður Háaleit-
isbraut að gatnamótunum við
Miklubraut.
Fimmtudaginn 5. desember um
kl. 11:30-12:00 var hvítri sendibif-
reið ekið utan í dökkbláa VW Polo
bifreið, DL-276, þar sem hún stóð
mannlaus yfirgefin í bifreiðastæði
við Síðumúla 7-9.
Vitni að árekstrunum eru beðin
um að hafa samband við umferð-
ardeild lögreglunnar i Reykjavík.
STUTT
Lýst eftir
vitnum
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Garðbæingar
Opið hús í dag með bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins milli kl.
11.00 og 12.00 á Garðatorgi 7.
Komdu hugmyndum þínum á framfæri við bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins.
Verið einnig velkomin á Garðatorg 7 í kakó og piparkökur að lokinni
jóladagskrá á Garðatorgi í dag 7. desember kl. 15.45.
VERUM BLÁTT - ÁFRAM
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
HLUTHAFAFUNDUR
Mánudaginn 16. desember 2002 klukkan 17:00 verður haldinn
hluthafafundur í EJS Group hf. að Gullteigi, Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Tillaga um að veita stjórn félagsins heimild til að gefa út víkjandi
skuldabréf fyrir allt að 200.000.000,- kr. auk viðbóta vegna vaxtareiknings
og breytinga á útreikningi breytiréttarins skv. ákvæðum skuldabréfsins,
er veiti lánadrottni rétt til þess að breyta kröfu sinni á hendur félaginu
í hluti í því. Lagt er til að hluthafar falli frá forgangsrétti til áskriftar að
hinu nýja hlutafé. Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju
hluti. Heimild þessa má stjórnin nýta í 5 ár. Gengistakmörkun á eldri
heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar fellur niður.
2. Kosning nýrrar stjórnar.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Frekari upplýsingar og gögn varðandi efni fundarins
verða veittar hluthöfum á skrifstofum félagsins,
Grensásvegi 10 og Hlíðasmára 12, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 7. desember 2002.
Stjórn EJS Group hf.
EJS GROUPHF.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu 7,
Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Austurvegur 18-20, n.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Bergmann Ár-
sælsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudaginn
11. desember 2002 kl. 14:00.
Austurvegur 18-20, e.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
miðvikudaginn 11. desember 2002 kl. 14:00.
Árskógar 20, fastanr. 217-5461, Austur-Héraði, þingl. eig. Emil Jó-
hann Árnason, gerðarbeiðandi Loðnuvinnslan hf., miðvikudaginn
11. desember 2002 kl. 14:00.
Blöndubakki, Norður-Héraði, þingl. eig. Gestur Jens Hallgrímsson
og Bryndís Ágústa Svavarsdóttir, gerðarbeiðendur Lánasjóður land-
búnaðarins og Rafmagnsveitur ríkisins, Reykjavík, miðvikudaginn
11. desember 2002 kl. 14:00.
Brattahlíð 2, Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson, gerðarbeiðend-
ur Lífeyrissj. starfsm. rík. B-deild, Lífeyrissjóður Austurlands og Lífeyr-
issjóður verslunarmanna, miðvikudaginn 11. desember 2002 kl.
14.00.
Hafnargata 24, Seyðisfirði, þingl. eig. Nils Anders Helge Olsson,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 11. desember
2002 kl. 14:00.
Miðvangur 1-3, hl. 02.02, Austur-Héraði, þingl. eig. Karl Gústaf
Davíðsson og Davíð Jóhannesson, gerðarbeiðandi Austur-Hérað,
miðvikudaginn 11. desember 2002 kl. 14:00.
Múlavegur 6, Seyðisfirði, þingl. eig. Björn Björgvin Halldórsson
og Jónborg Valgeirsdóttir, gerðarbeiðandi Sameinaði lífeyrissjóður-
inn, miðvikudaginn 11. desember 2002 kl. 14:00.
Skálar, Vopnafirði, þingl. eig. Ægir Kristinn Sævarsson, gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóður Austurlands, miðvikudaginn 11. desember 2002
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
6. desember 2002.
TIL SÖLU
Lagerútsala
Í dag, laugardaginn 7. desember 2002, verðum
við með lagerútsölu frá kl. 13.00 til kl. 16.00
síðdegis. Ódýrustu leikföngin? Bílar,
risaeðlur með hljóðum, dúkkur, gæsaveiði-
tækið vinsæla, tölvustýrðir jeppar og fjórhjól,
stórar vatnsbyssur, mikið úrval leikfanga í skó-
inn. Vorum að fá gott úrval af nýjum leikföng-
um fyrir 3ja mánaða til 5 ára. Ódýrar kaffivél-
ar og brauðristar. Veiðarfæri: Stangir, hjól,
veiðikassar, flugulínur, vatteraðir gallar. Verk-
færakassar á lækkuðu verði. Þurrkgrindur
fyrir þvott. Gervijólatré á góðu verði. Hleðslu-
batterí, búsáhöld og fleira. Lítið við, því nú er
tækifæri til þess að gera góð kaup og kaupa
ódýrar jólagjafir og ýmsar vörur á góðu verði.
Kredit- og debitkortaþjónusta.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25, 105 Reykjavík.
TILKYNNINGAR
Jólin koma
Jólatónleikar Söngseturs Estherar Helgu
verða haldnir í Digraneskirkju í dag,
laugardaginn 7. desember kl. 17.00.
Flytjendur eru: Dægurkórinn, Regnbogakórinn
og Englakórinn/Byrjendur Söngsetursins,
einnig mun Esther Helga Guðmundsdóttir
syngja einsöng.
Dagskráin er fjölbreytt og samanstendur af
jólalögum, Gospel, samsöng og fleira.
Undirleikari er Katalin Lörincz og stjórnandi
Esther Helga Guðmundsdóttir.
Aðgangseyrir er kr. 800. Fyrir eldri borgara, öryrkja og börn 12 ára
og yngri kr. 500. Frítt fyrir börn 4 ára og yngri.
ÝMISLEGT
Grensásvegi 3-5, 101 Reykjavík
S. 553 9210, nyton@ismennt.is
Tónleikar
í dag, laugardaginn 7. desember í sal skólans.
Kl. 14 8. stigs söngtónleikar Helenu Frederiks-
sen, mezzo-sópran.
Kl. 16 Söngdeild og kór skólans flytur úrval
sönglaga Jóns Ásgeirssonar.
Skólastjóri.
Á vegum Evrópuráðsins hefur
á undanförnum árum verið
unnið að því að þróa möppu
(portfolio) í tungumálakennslu
og tungumálanámi. Verkefnið
(European Language Portfolio, ELP) er í senn
nokkurs konar tungumálapassi, ferilskrá og
mappa. Markmiðið með notkun þess er að
efla tungumálakunnáttu og fjöltyngi í öllum
aldurshópum, auka ábyrgð og sjálfstæði í
námi, koma á samræmdu kerfi til að meta
færni og kunnáttu í tungumálum svo auð-
veldara sé fyrir Evrópubúa að fá tungumála-
kunnáttu sína metna og standa vörð um
menningarlegan margbreytileika og stuðla
að gagnkvæmum skilningi meðal þjóða.
Menntamálaráðuneytið hefur í hyggju að
gera tilraun með möppu (portfolio) í tungu-
málakennslu í tveimur til fjórum grunn- og
framhaldsskólum skólaárið 2003-2004. Vísað
er til kynningarfundar sem menntamálaráðu-
neytið hélt 6.-7. september sl.
Hér með er auglýst eftir
grunn- og framhaldsskólum
til að taka þátt í tilraun þessari og mun ráðu-
neytið velja skóla í samráði við nefnd sem
skipuð hefur verið til að vinna að framgangi
málsins hér á landi. Æskilegt er að tilraunin
nái til flestra þeirra erlendu tungumála sem
kennd eru í íslenskum skólum á grunn- og
framhaldsskólastigi.
Í tilrauninni felst einnig þátttaka tilraunaskóla
í undirbúningi og skipulagningu verkefnisins
á vorönn 2003. Nánari upplýsingar veitir
Erna Árnadóttir. Ráðuneytið veitir skólum
styrk til tilraunarinnnar.
Umsóknir þurfa að berast menntamálaráðu-
neytinu fyrir 20. desember 2002 merktar:
Tilraun um portfolio.
Menntamálaráðuneytið,
5. desember 2002.
menntamalaraduneyti.is
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
OPIÐ HÚS í Þríbúðum, Hverfis-
götu 42, kl. 14.00-17.00.
Tökum lagið um kl. 15.00.
Í heimsókn koma Edgar Smári
Atlason og Hljómar.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
23.—26. des. Jólaferð í Bása.
Jólin haldin hátíðleg í Básum.
30. des.—2. jan. Áramótaferð
í Bása. Árleg áramótaferð,
gönguferðir, kvöldvökur, flug-
eldar og áramótabrenna. Ferð
fyrir hresst fólk sem á það sam-
eiginlegt að hafa áhuga á úti-
veru og að vilja skemmta sér
saman í faðmi fjalla og jökla.
Sunnudaginn 8. desember
verður ströndin á Kjalarnesi
gengin, frá Hofsvík að Brautar-
holtskirkju. Áætlaður göngutími
eru 2—3 klst. Brottför er frá BSÍ
kl. 11.00 með viðkomu í Mörk-
inni 6. Þátttökugjald er kr. 1.500
fyrir félagsmenn og kr. 1.700 fyr-
ir aðra. Fararstjóri í ferðinni er
Sigurður Kristjánsson.
29. des.—1. jan. Áramótaferð
í Landmannalaugar.
www.fi.is
Aðalfundur Félags
sjálfstæðismanna
í Bakka- og Stekkjahverfi
verður haldinn laugardaginn 14. desember kl.
11.00 í félagsheimili sjálfstæðismanna, Álfa-
bakka 14A, 3. hæð.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með
sér nýja félaga.
Stjórnin.
mbl.is
ATVINNA