Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 79

Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 79
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 79 Jólamarkaður í Hæfingarstöðinni Bjarkarási, Stjörnugróf 9 í Reykja- vík, verður í dag, laugardaginn 7. desember, kl. 13–16. Á boðstólum verða leir- og trémunir, jólaskreyt- ingar og fleira. Léttar veitingar á vægu verði. Allir velkomnir. Hæf- ingarstöðin Bjarkarás er rekin af Styrktarfélagi vangefinna og hefur það hlutverk að þjálfa fatlað fólk til starfa á vernduðum vinnustöðum, almennum vinnumarkaði eða öðrum stöðum sem henta viðkomandi. Jólaball fyrir fatlaða í Árseli verður í kvöld, laugardaginn 7. des- ember, kl. 19.30–22.30. Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi. Veitingasalan verður opin og er boðið upp á piparkökur. Miðaverð kr. 500 og er aldurstakmark 13 ára. Jólaljósin tendruð í Hafnarfirði í dag, laugardaginn 7. desember. Kl. 13 verður kveikt á jólatré við Flens- borgarhöfn, sem er gjöf frá vina- bænum Cuxhaven. Werner Kretschmann frá Cuxhaven flytur kveðju og tendrar ljósin, Hendrik Dane sendiherra flytur kveðju, Kvennakór Hafnarfjarðar syngur, Eyjólfur Sæmundsson hafnarstjóri flytur ávarp, leikskólabörn frá Hjalla syngja, jólasveinar koma við og kakó verður á Kænunni. Kl. 14.30 verður kveikt á jólatrénu á Thorsplani, tréð er gjöf frá vina- bænum Frederiksberg. Menningar- fulltrúi danska sendiráðsins, Mich- ael Dal flytur kveðju og tendrar ljósin, Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur, Karlakórinn Þrestir syngja, forseti bæjarstjórnar, Jóna Dóra Karlsdóttir flytur ávarp, Einar Eyj- ólfsson les hugvekju og síðan verður jólaball á Thorsplani, jólasveinar koma í heimsókn. Í Vetrargarðinum í Smálalind í dag, laugardaginn 7. desember, kl. 13 spilar Skólahljómsveit Kópavogs jólatónlist. Jólaböll með Magga Kjartans og Helgu Möller verða kl. 14 og 16 í Vetrargarðinum og jóla- sveinarnir skemmta börnunum, Grýla og Leppalúði kíkja í heim- sókn á jólaballið og kl.15.40 kenna þær Ásta og Lóa ókurteisa börnum jólareglurnar. Á laugardg og sunnu- dag verða flautuleikarar, Harm- ónikkuleikarar, Mosfellskórinn og jólasveinar að skemmta gestum og gangandi. Sunnudaginn 8. desem- ber kl. 14 og 16 verða jólaböll í Vetrargarðinum með Magga Kjart- ans og Helgu Möller. Á laugardag og sunnudag kl. 14–16 verður boðið upp á myndatöku með jólasveininum við Hans Petersen. Upplýsingafundur um virkjana- áformin á hálendi Íslands verður í dag, laugardaginn 7. desember, kl. 15–17, á efri hæð Grand Rokks, Smiðjustíg 6. Erindi halda: Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor og Sveinn Aðalsteinsson viðskiptafræð- ingur. Hljómsveitin Fluga spilar og Örn Bárður Jónsson les úr bók sinni Íslensk fjallasala og fleiri sög- ur. Í DAG Aðventugleði og jólamarkaður verður í miðborginni á morgun, sunnudaginn 8. desember. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri opn- ar jólamarkaðinn á Lækjartorgi og litlu jólin á Hressó kl. 13. Valgeir Guðjónsson leikur og syngur. Kl. 14 talar Frank Halldórsson, sókn- arprestur í Neskirkju, um undirbún- ing jólanna, aðventuna og jólaboð- skapinn og kór Neskirkju flytur nokkur lög. Andri Snær Magnason rithöfundur les úr nýrri bók sinni, Lovestar. Hressó verður opið dag- lega til jóla kl. 14–18, rithöfundar, tónlistarmenn o.fl. verða þar dag- lega kl. 16–18. Á opnunardaginn sér sveit Tómasar R. Einarssonar um kúbanska sveiflu og Ömmukaffi sér um veitingar. Reykjavíkurborg og Þróunarfélag miðborgarinnar standa að jólamarkaði á Lækj- artorgi alla sunnudaga fram að jól- um. Markaðurinn verður einnig op- inn fram á kvöld á Þorláksmessu. Á boðstólum verður varningur frá á þriðja tug handverksfólks: Sól- heimakerti, handunnið jólaskraut, húfur og vettlingar, forngripir, skart, slípaðir steinar o.fl. Jólasýning Árbæjarsafn verður opið á morgun, sunnudaginn 8. des- ember næstkomandi, frá kl. 13–17. Þá gefst gestum tækifæri til að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga, finna ilminn af hangikjöti, tólgarkertum og jólaeplum en flest hús safnsins verða opin og mikið um að vera. Kl. 14 verður messa í safnkirkjunni og kl. 15 hefst jólatrésskemmtun og verður dansað í kringum jólatré. Jólasveinar, þessir gömlu íslensku, verða á vappi um safnsvæðið frá kl. 14–16 hrekkjóttir og stríðnir að vanda og taka þeir þátt í dansinum kringum jólatréð. Aðventuhátíð Bergmáls, Líknar- og vinafélagsins verður í Háteigs- kirkju á morgun, sunnudaginn 8. desember, kl. 16. Hópur barna frá Hveragerði, Ekkókórinn syngur undir stjórn Jóns Hj. Jónssonar. Jólahugleiðing. Alda Ingibergsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson syngja. Sungnir verða jólasálmar. Að athöfn lokinni verða veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar. Jólaball MS félagsins verður hald- ið á morgun, sunnudaginn 8. desem- ber kl. 15, í Sunnusal Hótels Sögu. Gengið í kringum jólatré með jóla- sveinum og ýmsum öðrum góðum gestum. Veitingar verða á boð- stólum og dregið verður í happ- drættinu. Gott aðgengi er á staðnum fyrir hjólastóla. Perlujól jólahátíð Gleðigjafanna verður í Súlnasal Hótel Sögu á morgun, sunnudaginn 8. desember, kl. 15.30–18. Hljómsveitin Gleðigjaf- arnir leikur og söngvararnir Andé Bachmann og Helga Möller syngja. Leikhóurinn Perlan, Lúðrasveit verkalýðsins. Skemmtikraftarnir: Jóki trúður, jólasveinar, Rut Reg- inalds, Magnús Sigurðsson, Bjarni Arason, Pétur pókus og Bjarni töframður, Móeiður Júníusdóttir, strákarnir á Popp tíví og Barnakór Kársnesskóla skemmta. Kynnir verður Sigmundur Ernir Rún- arsson, ritstjóri og skáld. Sælgæt- ispokar frá Nóa-Síríusi verða fyrir börnin. Miðaverð er 500 kr. og eru þeir seldir á skrifstofu Styrkt- arfélags vangefinna, Skipholti 50c, og við innganginn í Súlnasal kl. 14.30. Á MORGUN BERGLIND Óskarsdóttir sem lenti í 2. sæti í Fegurð- arsamkeppni Íslands í vor, tekur þátt í MISS EUROPE keppninni í Beirút í Líbanon, en keppnin er haldin laugar- daginn 28. desember og verð- ur henni sjónvarpað beint á Skjá 1. Berglind heldur utan nk. þriðjudag 10. desember og mun því verja jólunum ásamt 40 keppendum öðrum í Beirút, en fram að keppni dvelja stúlkurnar við undirbúning og kynningar. Keppnin verður á 900 m² sviði í hinni glæsilegu höll BIEL. 500 milljónir Evr- ópubúa geta fylgst með keppninni í sjónvarpi. Keppir í ungfrú Evrópa Fundur kjördæmisráðs Samfylk- ingarinnar í suðurkjördæmi verður haldinn í Festi í Grindavík í dag, laugardaginn 7. desember, kl. 13.30. Þar verður ákveðinn framboðslisti flokksins í Suðurkjördæmi. STJÓRNMÁL SÍMINN og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, hafa undirritað styrktarsamning sem kveður á um að fyrirtækið verði aðalstyrktaraðili félagsins næstu tvö árin. Styrkurinn mun á næsta ári renna til gerðar vefsíðu sem innihalda mun fræðslu- og af- þreyingarefni fyrir börn. Vefsíðan hefur það að markmiði að auka meðvitund og skilning vegna veik- inda barna og leitast þannig við að rjúfa einangrun þeirra og fjöl- skyldna þeirra. Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Að Umhyggju standa 13 foreldrafélög barna með margvíslega sjúkdóma ásamt starfsfólki innan heilbrigðiskerf- isins. Síminn aðalstyrkt- araðili Um- hyggju Heiðrún Jónsdóttir, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Símanum, og Dögg Káradóttir, framkvæmdastjóri Umhyggju. JÓLAÚTHLUTUN Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur hefst mánu- daginn 9. desember. Jólaúthlutun verður alla mánu- daga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 14-17 og síðustu vikuna fyrir jól verður einnig opið á fimmtudegi frá 14-17. Tekið er á móti gjöfum til nefnd- arinnar á sama tíma eða eftir sam- komulagi, segir í frétt frá Mæðra- styrksnefnd Reykjavíkur. Jólaúthlutun Mæðrastyrks- nefndar Rangur tónleikadagur Gospelsystur halda ekki tónleika á sunnudag, eins og fram kom í blaðinu á miðvikudag. Rétt er að þær halda tónleika í Lang- holtskirkju hinn 15. desember kl. 20.30. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. Rangt nafn Í Lesbók sl. laugardag var birt ljóðið Yggur eftir Bjarna Gunnars- son á síðu 12. Vegna mistaka var farið rangt með nafn hans og er beðist velvirðingar á því. LEIÐRÉTT STÚDENTAR vilja hafa opið all- an sólarhringinn í próftíð og bjóðast nemendur til að vakta byggingar sjálfir. Tilraun Stúdentaráðs Háskóla Íslands í síðustu vorprófum leiddi í ljós að talsverð eftirspurn er eftir því að byggingar Háskóla Íslands séu opnar lengur. Oddi, ein bygginga skólans, var þá opinn allan sólarhringinn og tóku stúdentar sjálfir að sér gæslu. Yfir 500 stúdentar nýttu sér rýmkun tímans. Tvær bygginga skólans, Lög- berg og Oddi verða opnar til 24 í stað 22 eins og áður, sem er mjög góð þróun. Stjórn Stúd- entaráðs telur þó að gera þurfi betur til að sinna eftirspurn og hvetur stjórnendur Háskóla Ís- lands til að hafa a.m.k. eina byggingu opna lengur. Einnig hvetur stjórn Stúdenta- ráðs til að VRII, bygging verk- fræði- og raunvísindadeildar, verði opin til miðnættis, segir í fréttatilkynningu. Stúdentar vilja sólar- hringsopnun í próftíð EFTIRFARANDI athugasemd hef- ur borist frá Skeljungi hf.: „Í Morgunblaðinu og fleiri fjöl- miðlum hefur í dag verið greint frá því að hingað til lands hafi komið tvö skip á þessu ári sem talin eru of hættuleg til að sigla á evrópsku haf- svæði og séu því á bannlista Evrópu- sambandsins. Samkvæmt sömu fréttum var ann- að þessara skipa olíuflutninga- og eiturefnaskip. Vegna þessa frétta- flutnings vill Skeljungur hf. taka fram að ekkert þeirra skipa sem eru á bannlista Evrópusambandsins hafa komið hingað til lands á vegum félagsins. Öll eldsneytisflutninga- skip sem koma hingað til lands á veg- um Skeljungs hf. þurfa að uppfylla strangar kröfur sem Shell-sam- steypan setur, en þær ganga enn lengra en kröfur Evrópusambands- ins.“ Athugasemd frá Skeljungi hf. DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.