Morgunblaðið - 07.12.2002, Qupperneq 83
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 83
DAGBÓK
Samkvæmiskjólar
Bankastræti 11 • sími 551 3930
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert viðkvæmur og hug-
myndaríkur en átt það til að
vera misskilinn. Á komandi
ári er líklegt að þú gangir í
hjónaband eða finnir þér
lífsförunaut.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ættir að skoða nánustu
sambönd þín. Ef þú vilt
eignast fleiri vini verðurðu
að leggja þig fram um að
vera vingjarnlegri.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hikaðu ekki við að koma
óskum þínum á framfæri við
áhrifamikið fólk. Taktu
þann sess sem þér ber.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ættir að bregða út af
vananum og gera eitthvað
óvenjulegt í dag. Það þarf
oft ekki mikið til að lífga
upp á tilveruna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að huga að vænt-
ingum annarra í dag.
Reyndu að gera þér grein
fyrir því til hvers er ætlast
af þér í stað þess að láta
þínar eigin væntingar ráða
ferðinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Fjölskyldan og heimilið eru
í brennidepli hjá þér eins og
stendur. Þú ættir að nota
daginn til að ræða þau mál
við maka þinn og nána vini.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur óvenjumikla þörf
fyrir að skipuleggja þig.
Taktu þér fimmtán mínútur
til að reyna að fá yfirsýn yf-
ir líf þitt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur þörf fyrir aðdáun
og rómantík, vilt láta ganga
á eftir þér og hvísla ást-
arorðum í eyra þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gefðu þér tíma til að sinna
fjölskyldunni í dag. Fólk tal-
ar sjaldan um það í ellinni
að það hafi ekki eytt nógu
miklum tíma í vinnunni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gefðu þér tíma til að tala við
systkini þín, ættingja eða
nágranna í dag. Hættu að
bíða eftir því að aðrir taki
fyrsta skrefið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjörugt félagslíf gæti leitt
til óvarkárni í fjármálum.
Gættu að fjárhagsstöðu
þinni og reyndu að hafa
hana í lagi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Tunglið er í merkinu þínu
og því hefurðu svolítið for-
skot á hin merkin. Reyndu
að nota tækifærið og snúa
hlutunum þér í hag.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert draumlyndur hug-
sjónamaður og þarft því
stundum á einveru að halda.
Reyndu að vera einn með
sjálfum þér í a.m.k. hálftíma
á dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 7.
desember, er sextug Elísa-
bet Guðmundsdóttir, leið-
beinandi, Skúlagötu 40a,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Sveinn Jónsson,
löggiltur endurskoðandi.
Elísabet tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í dag kl.
17–20 í Versölum, Hall-
veigarstíg.
90 ÁRA afmæli. Í gær,föstudaginn 6. des-
ember, varð níræð María
Þorsteinsdóttir frá Eyri,
Jófríðarstaðavegi 10, Hafn-
arfirði. María dvelur nú á
Sólvangi í Hafnarfirði og
þar tekur hún á móti gestum
kl. 15-18 í dag, laugardaginn
7. desember.
LJÓÐABROT
JÓLIN 1891
Fullvel man ég fimmtíu’ ára sól,
fullvel meir en hálfrar aldar jól,
man það fyrst, er sviptur allri sút
sat ég barn með rauðan vasaklút.
Kertin brunnu bjart í lágum snúð,
bræður fjórir áttu ljósin prúð,
mamma settist sjálf við okkar borð;
sjáið, enn þá man ég hennar orð:
„Þessa hátíð gefur okkur Guð,
Guð, hann skapar allan lífsfögnuð,
án hans gæzku aldrei sprytti rós,
án hans náðar dæi sérhvert ljós.
- - -
Matthías Jochumsson
1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. d4
Bg4 4. Rf3 Dxd5 5. Rc3 Df5
6. Bd3 Dh5 7. Bf4 Rc6 8.
Bb5 Bxf3 9. gxf3 O-O-O 10.
Bxc6 bxc6 11.
Dd3 Kb7 12. O-
O-O Da5 13. Hhg1
e6 14. Be5 Re8 15.
Dc4 Hg8 16. Re4
Db5 17. Dc3 Be7
18. Hd3 Rf6 19.
Dd2 Kc8 20. Kb1
Rd7 21. Hb3 Da6
22. Bg3 e5 23.
dxe5 Rxe5 24. Df4
f6 25. Df5+ Rd7
26. Hd1 g6 27.
De6 Hge8 28.
Hbd3 Bd6
Staðan kom
upp í þýska
meistaramótinu
sem lauk fyrir skömmu.
Karsten Mueller (2518)
hafði hvítt gegn Mathias
Holzhaeuer (2407). 29.
Dxd6! cxd6 30. Rxd6+ Kc7
31. Rxe8+ Kb6 32. Hb3+
Kc5 33. Bd6+ og svartur
gafst upp enda verður hann
mát í næsta leik.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
60 ÁRA afmæli. Í tilefniaf 60 ára afmæli sínu
tekur Sjöfn Jónasdóttir,
Krókahrauni 4, Hafnar-
firði, á móti gestum í veislu-
sal við Íþróttahúsið að Ás-
völlum, Hafnarfirði. Veislan
hefst kl. 19 í dag, laugardag-
inn 7. desember. Ættingjar,
vinir og kunningjar eru
hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/Golli
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 10.034 til styrktar
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Þær heita Silja Ingólfs-
dóttir, Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir, Bramislava Ristic, Elín
Broddadóttir og Embla Sól Þórólfsdóttir.
ENGIN töfralausn er til á
vanda sagnhafa í sex hjört-
um og á endanum verður
hann sennilega að treysta á
getspeki sína. En kúnstin í
brids er oft sú að breyta
hreinni ágiskun í „útreikn-
aða“ ágiskun.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ ÁK
♥ G1085
♦ Á63
♣ÁG108
Suður
♠ D8
♥ ÁKD7
♦ K72
♣K952
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 6 hjörtu Pass Pass
Pass
Vestur spilar út spaðatíu
og blindur fær slaginn.
Sagnhafi tekur þrisvar
tromp og þau liggja 3-2, en
vestur á tvílit og hendir
spaða í þriðja hjartað. Hver
er nú áætlunin?
Það verður greinilega erf-
itt að svæla út laufdrottn-
inguna. Sú „tæknilega“ leið
að taka síðari spaðaslaginn,
ÁK í tígli og senda vörnina
inn á þriðja tíglinn, er ekki
líkleg til árangurs gegn góð-
um varnarspilurum. Þeim
reynist auðvelt að reikna út
skiptingu suðurs og munu
spila spaða eða tígli í tvö-
falda eyðu, en engan vanda
leysir. Tæknilega betri leið
er að hreinsa spaðann, taka
tvo efstu í tígli, síðan annan
laufhámanninn og svína í
laufi. Spilið vinnst þá ef bak-
hönd á tvíspil í tígli og Dx í
laufi. En það er reyndar
mjög ólíklegt.
Norður
♠ ÁK
♥ G1085
♦ Á63
♣ÁG108
Vestur Austur
♠ 109765 ♠ G432
♥ 43 ♥ 962
♦ G9 ♦ D10854
♣D764 ♣3
Suður
♠ D8
♥ ÁKD7
♦ K72
♣K952
Sennilega er betra að
senda vörnina inn á þriðja
tígulinn. Varnarmistök eru
ekki óþekkt og svo gætu
fengist mikilvægar upplýs-
ingar um skiptinguna. Í
þessu tilfelli kemur í ljós að
vestur á aðeins tvíspil í tígli
og þá blasir við að spila hann
upp á lauflengdina.
Ef báðir fylgja í þriðja tíg-
ulinn er samt sem áður betra
að svína fyrir drottninguna í
vestur. Ástæðan liggur fyrst
og fremst í útspilinu – með
einspil í laufi hefði vestur
líklega komið þar út.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá lyfjafyr-
irtækinu Lilly, sem undirrituð er af
Solveigu H. Sigurðardóttur rann-
sóknarfulltrúa:
„Þann 3. desember sl. birti Morg-
unblaðið, undir fyrirsögninni „At-
hugasemd vegna fréttatilkynning-
ar“, athugasemd frá Aventis á
Íslandi og Farmasíu ehf. Athuga-
semdin er vegna fréttar blaðsins um
rannsókn á beinþynningarlyfinu
teriparatíd sem birtist sunnudaginn
1. desember sl. undir fyrirsögninni
„Fyrsta lyfið sem eykur beinþéttni
kannað hér“.
Í athugasemdinni segir að í frétt-
inni sé rangt farið með staðreyndir
bæði í fyrirsögn og meginmáli, ann-
ars vegar þar sem segir að lyfið sé
„[f]yrsta lyfið sem eykur beinþéttni“,
hins vegar þar sem segir að „…þau
beinþynningarlyf sem nú séu á
markaðnum miði einungis að því að
hægja á eða stöðva beinþynningu“.
Í athugasemdinni gagnrýna lyfja-
fyrirtækin fullyrðingar í fréttinni um
að teriparatíd sé eina lyfið sem auki
beinþéttni og segir að þær geti valdið
því að sjúklingar sem taka önnur
beinþynningarlyf telji þau gagns-
laus. Loks er í athugasemdinni farið
fram á að fullyrðingarnar í fréttinni
verði dregnar til baka.
Í athugasemd ritstjóra sem birt er
undir ofangreindri athugasemd segir
að „[u]mrædd frétt [hafi verið] byggð
á fréttatilkynningu frá lyfjafyrirtæk-
inu Lilly“.
Lilly á Íslandi leggur áherslu á að
veita læknum, sjúklingum og fjöl-
miðlum réttar og gagnlegar upplýs-
ingar um lyfjameðferðir og sjúk-
dóma. Fyrirtækið tekur því mjög
alvarlega ásakanir þess efnis að það
sendi frá sér gögn sem á einhvern
hátt gætu talist villandi.
Í fréttatilkynningunni sem Lilly
sendi blaðinu 28. nóvember sl. komu
hvergi fram fullyrðingar þess efnis
að lyfið sé fyrsta lyfið sem auki bein-
þéttni. Í fréttatilkynningunni segir
aðeins að teriparatíd sé „fyrsta með-
ferð sinnar tegundar í heiminum“.
Hvergi í fréttatilkynningunni er
gefið í skyn að lyf í flokki bífosfónata
eða önnur lyf sem ekki vinna á sama
hátt og teriparatíd séu „gagnslaus“.
Slíkt væri fráleitt enda framleiðir
Lilly beinþynningarlyf af flokki
SERM-lyfja sem vinna með góðum
árangri gegn sjúkdómnum á svipað-
an hátt og bífosfónöt, með því að
hægja á eða stöðva beinþynningu.
Í fréttatilkynningunni kemur
hvergi fram að teriparatíd komi í
stað þeirra lyfja sem fyrir eru á
markaðnum. Tekið er fram að lyfið
sé ætlað fólki „sem þjáist af alvar-
legri beinþynningu“.
Virkni lyfsins er í fréttatilkynning-
unni orðrétt lýst með þessum hætti:
Teriparatíd stuðlar að framleiðslu
nýrra beinvefja með því að auka
fjölda og virkni beinmyndandi
frumna (e. osteoblasts) í líkamanum.
Þau beinþynningarlyf sem nú eru á
markaðnum miða hins vegar að því
að hægja á eða stöðva beinþynningu
með því að fækka fjölda og minnka
virkni svokallaðra beinátfrumna (e.
osteoclasts), frumna sem fjarlægja
gamlan beinvef.
Lilly telur sýnt að athugun Lyfja-
stofnunar vegna fréttar Morgun-
blaðsins muni leiða í ljós að í frétta-
tilkynningu fyrirtækisins sé á engan
hátt farið rangt með staðreyndir og
að í tilkynningunni sé ekkert sem því
beri að draga til baka.“
Athugasemd frá Lilly
KRISTNIBOÐSSAMBANDIÐ gef-
ur út og selur jólakort, eins og
undanfarin ár, til styrktar
kristniboðsstarfinu í Eþíópíu og
Kenýu. Jólakortin eru til sölu á
skrifstofu KFUM og KFUK og
Kristniboðssambandsins, í Kirkju-
húsinu við Laugaveg og í sölubás
samtakanna í Kringlunni nú fyrir
jólin, en þar má einnig fá keypt
friðarkerti Hjálparstarfs kirkj-
unnar.
Jólakort
kristni-
boðsins
Aths. ritstj.
Vegna ofangreindrar athuga-
semdar og athugasemdar frá
Aventis á Íslandi og Farmasíu ehf.
sem birtist hér í blaðinu sl. þriðju-
dag skal tekið fram:
Fréttin í Morgunblaðinu á sunnu-
daginn var rétt endursögn á frétta-
tilkynningunni frá Lilly. Hins vegar
var fyrirsögnin ónákvæm. Morgun-
blaðið leitaði til Magnúsar Jóhanns-
sonar læknis og bað hann að skil-
greina orðið beinþéttni. Skilgrein-
ing hans er þessi:
„Beinin eru í stöðugri ummyndun
og endurnýja sig jafnt og þétt. Í
beinunum eru annars vegar frumur
sem éta gamlan beinvef og hins
vegar frumur sem mynda nýjan
beinvef. Jafnvægið þarna á milli
ákvarðar þéttni beinanna. Síðasta
áratug hafa nokkur lyf verið fáan-
leg sem draga úr virkni eða fækka
beinétandi frumum. Með þeim er
beinþéttnin aukin. Nýja lyfið sem
Morgunblaðið sagði frá er það
fyrsta sem fjölgar frumum sem
mynda nýjan beinvef eða örvar
starfsemi þeirra. Eykur það einnig
beinþéttnina en er ekki það fyrsta
sem gerir það.“
Réttara hefði því verið að hafa
fyrirsögnina á fréttinni svona:
Fyrsta lyfið sem fjölgar beinmynd-
andi frumum kannað hér.
SKÓGRÆKTARFÉLAG Hafnar-
fjarðar verður með jólatréssölu
næstu tvær helgar eins og verið hef-
ur hin síðari ár við vaxandi vinsældir.
Salan fer fram við Höfða, aðal-
stöðvar félagsins í Höfðaskógi við
Hvaleyrarvatn, og stendur frá
klukkan 10 til 16 laugardag og
sunnudag og einnig um helgina 14.
og 15. desember.
„Jólatrén, sem í boði verða eru
fura en vinsældir hennar aukast ár
frá ári. Hún er enda einstaklega fal-
leg og með mikla greinafyllingu. Að
auki verður boðið upp á greinabúnt.
Hafnfirðingar og nærsveitamenn
eru hvattir til að koma sér í jólaskap-
ið með heimsókn í Höfða og þiggja
um leið veitingar, súkkulaði og smá-
kökur,“ segir í fréttatilkynningu.
Hafnfirsku jólatrén