Morgunblaðið - 10.12.2002, Síða 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 23
HJÓLSÖG 5704R
0 = 190 mm, 1200 W
TILBOÐSVERÐ
16.000.00
ELDRI borgarar og öryrkjar fá af-
slátt af fasteignaskatti í Garðabæ á
næsta ári. Jafnframt verður tryggt
að þeir tekjulægstu greiði engan fast-
eignaskatt. Nýjar reglur um afslátt
af fasteignaskatti til þessara hópa
voru samþykktar á fundi bæjar-
stjórnar Garðabæjar í síðustu viku í
tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar fyrir árið 2003.
Í frétt frá bænum kemur fram að
gera má ráð fyrir að kostnaður
Garðabæjar vegna afsláttar af fast-
eignagjöldum aukist úr 9,5 m.kr. á
árinu 2002 í 24 m.kr. á árinu 2003.
Samkvæmt nýjum reglum fá allir
elli- og örorkulífeyrisþegar fastan af-
slátt af fasteignaskatti, óháð tekjum,
sem nemur 35.500 krónum á hverja
eign.
Jafnframt verður veittur tekju-
tengdur afsláttur sem felur í sér að
fasteignaskattur elli- og örorkulíf-
eyisþega fellur niður hjá hjónum með
heildartekjur lægri en 1.848 þúsund á
ári og einstaklingum með heildarár-
stekjur lægri en 1.203 þúsund. Með
þessum reglum er horfið frá því fyr-
irkomulagi að allur afsláttur af fast-
eignagjöldum sé tekjutengdur og
komið til móts við þau sjónarmið að
eðlilegt sé að allir elli- og örorkulíf-
eyrisþegar njóti einhvers afsláttar af
fasteignaskatti.
Ráðist verður í byggingu nýs
íþróttahúss í Hofsstaðamýri
Í fjárhagsáætlun kemur fram að
stærstu framkvæmdir sem ráðist
verður í á næsta ári er bygging nýs
íþróttahúss í Hofsstaðamýri sem
taka á í notkun á árinu 2004. Áætl-
aðar eru 220 milljónir króna í verkið á
næsta ári en samkvæmt kostnaðar-
áætlun er gert ráð fyrir að heildar-
kostnaður við húsið geti numið 500–
530 milljónum króna. Um 95 milljón-
um verður varið í gerð
gervigrasvallar á Ásgarðssvæðinu og
215 milljónum í skólabyggingar.
Heildartekjur ársins eru áætlaðar
2.705 milljónir króna. Rekstrarút-
gjöld eru áætluð 2.398 milljónir.
Fræðslu- og uppeldismál eru lang-
stærsti málaflokkurinn en til þeirra
verður varið 1.272 milljónum. Til
æskulýðs- og íþróttamála verður var-
ið 264 milljónum og 113 milljónum til
félagsþjónustu.
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir
að leikskólagjöld hækki um 7% í jan-
úar. Í áætluninni er gert ráð fyrir að
leikskólagjöld standi undir þriðjungi
af rekstrarkostnaði leikskóla en hlut-
fallið er núna um 30%. Gjaldskrá fyr-
ir tómstundaheimili grunnskólanna
hækkar einnig í janúar um 10% en sú
gjaldskrá hefur verið óbreytt frá
árinu 1998. Einnig voru samþykktar
breytingar á gjaldskrám sundlaugar
og bókasafns en þjónusta þessara
stofnana hefur verið mun ódýrari í
Garðabæ en í nágrannasveitarfélög-
um, segir í frétt frá bænum.
Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 7%
hækkun leikskólagjalda
Öryrkjar og aldr-
aðir fá afslátt af
fasteignaskatti
Garðabær
LJÓSIN voru tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli við
hátíðlega athöfn á sunnudag. Börn og fullorðnir fjöl-
menntu á Austurvöllinn enda veðrið einstaklega milt
miðað við árstíma. Rauðklæddir og fúlskeggjaðir jóla-
sveinarnir hafa því væntanlega komist auðveldlega úr
fjöllunum þetta árið og létu sig ekki vanta í miðbæinn
þar sem þeir tóku nokkur lög með viðstöddum.
Það var Erling Lae, forseti borgarstjórnar Óslóar,
sem afhenti Reykvíkingum tréð, en hálf öld er nú liðin
frá því fyrsta Óslóartréð stóð í fullum skrúða á Aust-
urvelli. Af þessu tilefni söng norski drengjakórinn
Silfurguttarnir við athöfnina. Þá var einnig flutt at-
riði úr barnaleikritinu Honk! sem sýnt er í Borg-
arleikhúsinu og jólaleikriti Þjóðleikhússins, Með fullri
reisn.
Á sunnudag var einnig opnaður jólamarkaður á
Lækjartorgi sem verður starfræktur á hverjum
sunnudegi auk Þorláksmessu fram að jólum. Þar gef-
ur að líta ýmsar handunnar vörur en slíkir markaðir
þekkjast víða um heim fyrir jólin. Til að skýla gestum
og gangandi fyrir veðri og vindum er markaðurinn
inni í tjaldi á torginu. En lífgað verður enn frekar upp
á mannlíf miðbæjarins fyrir þessi jólin og má þar
nefna Litlu jólin á Hressó, þar sem notalegt verður að
hvíla lúin bein í jólainnkaupunum eða fá sér kakó og
kökur til að komast í sanna jólastemningu.
Bræður þessir höfðu komið sér fyrir við styttu Jóns Sig-
urðssonar til að sjá atriðin á sviðinu sem best.
Morgunblaðið/Sverrir
Jólamarkaður er nú starfræktur í fyrsta sinn í miðbænum á sunnudögum en þar kennir ýmissa
grasa, t.d. er mikið úrval af handunnum vörum af ýmsum toga. Tjaldi er slegið yfir markaðinn.
Það var múgur og margmenni á Austurvelli þegar ljósin voru kveikt á Óslóarjólatrénu enda
veðrið með eindæmum gott og fjölbreytt skemmtidagskrá í boði með jólasöng og tilheyrandi.
Barnakór Dómkirkjunnar stóð fyrir kakó- og kaffisölu á Austurvelli.
Ljósin kveikt á Óslóartrénu
og jólamarkaður opnaður
Ljósadýrð
loftin gyllir
Miðborg