Morgunblaðið - 10.12.2002, Side 42

Morgunblaðið - 10.12.2002, Side 42
MINNINGAR 42 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Símon ÁsgeirGrétarsson fæddist á Selfossi 15. janúar 1950. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 1. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Grétar Símonarson fyrrv. mjólkurbú- stjóri, f. 18.2. 1920, og kona hans Guð- björg Sigurðardóttir frá Akranesi, f. 23.5. 1929, búsett á Sel- fossi. Systkini hans eru Þóra, f. 1947, Örn, f. 1951, kvæntur Sesselju Sig- urðardóttur, Sigurbjörg, f. 1954, og Sigurður, f. 1958, kvæntur Sól- veigu Sjöfn Ragnarsdóttur, öll bú- sett á Selfossi. Einnig ólst upp um tíma á foreldraheimili Símonar Kristín Guðmundsdóttir, uppeldis- systir Grétars. onar er Guðný Vigdís Indriðadótt- ir, búsett á Stokkseyri. Hennar börn eru Karitas og Hákon Steinn. Símon lauk hefðbundinni skóla- göngu á Selfossi. Einnig var hann við nám í Héraðsskólanum á Skóg- um einn vetur. Hann lauk sveins- prófi í rafvirkjun árið 1974. Hann starfaði við iðn sína víða, m.a. sem þjónustufulltrúi við mjólkurfram- leiðendur hjá Mjólkurbúi Flóa- manna um tíma. Árið 1984 flutti Símon að Efra-Seli á Stokkseyri og stundaði þar loðdýrarækt og hrossabúskap. Símon var kunnur tamningamaður og meðlimur í Fé- lagi tamningamanna á þessum ár- um. Þegar Símon hætti loðdýrabú- skap og flutti frá Efra-Seli árið 1992 starfaði hann bæði til sjós og lands við iðn sína svo og trilluút- gerð, og einnig við fangavörslu á Litla-Hrauni um tíma. Nú síðustu árin starfaði hann sem rafvirki hjá Fossraf á Selfossi eða þar til sl. sumar, síðustu tvo mánuði var hann matsveinn á fraktskipinu Ernir. Útför Símonar Ásgeirs verður gerð frá Selfosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Símon kvæntist Jakobínu Sveinbjörns- dóttur. f. 1952, d. 1992. Þau skildu. Þeirra synir eru: 1) Grétar, f. 29.10. 1969, sambýliskona hans er Signý Yrsa Péturs- dóttir, f. 5.1. 1969, þeirra börn eru Pétur Geir, f. 14.11. 1989; Símon Brynjar, f. 6.2. 1995, og Birta Rún, f. 20.2. 2000 2) Ásgeir Hrafn, f. 2.5. 1975, á soninn Hlyn Snæ, f. 25.9. 1995, móðir Ragnheiður Eggertsdóttir. Einnig átti Símon soninn Andra Dag, f. 19.8. 1987, móðir hans og fyrrver- andi sambýliskona Símonar er Dagrún Mjöll Ágústsdóttir; og son- inn Sigurð Hauk, f. 30.12. 1990, sem tekinn var í fóstur til Keflavík- ur. Eftirlifandi sambýliskona Sím- Í dag verður til moldar borinn elskulegur bróðir minn Símon Ás- geir Grétarsson. Á kveðjustundu rifjast upp margar minningar. Símon var lit- ríkur persónuleiki og hvers manns hugljúfi, alltaf hrókur alls fagnaðar og vinamargur. Líf Símonar var ekki alltaf dans á rósum, alltaf stóð hann upp aftur og barðist áfram, hann bar ekki þjáningar sínar á torg. Það sem hjálpaði honum mikið var hans létta lund. Við Símon náðum vel saman í því að ræða um baráttuna við Bakkus konung, hann leitaði oft til mín og þar ríkti gagnkvæmur trúnaður á milli okkar. Stundum var það erfitt en það góða stendur efst í minning- unni. Ég kveð Símon bróður full af þakklæti fyrir allt sem hann gerði fyrir mig. Að lokum vil ég þakka fyrir hvað Símon á yndislega drengi og barnabörn. Hann var stoltur af sínum afkomendum sem munu halda uppi minningu hans. Sigurbjörg systir. „Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt en jörðin fær hlutdeild í himninum. Þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauð- synleg, þar ríkir fegurðin ein ofar hverri kröfu.“ (H. K. Laxness.) Að kvöldi dags í birtu fyrsta að- ventuljóssins, slokknaði lífslogi míns góða bróður Símonar. Við sem eftir stöndum lútum höfði, hönd í hönd, og beygjum okkur undir vilja alvaldsins. Í huga mín- um bærast tilfinningar trega og missis, en einnig gleði yfir að hafa átt þess kost að hafa hann í sam- fylgd frá barnsaldri. Bernskuárin voru björt og ærslafull á stundum, og ekki alltaf auðvelt að skokka í fótspor þessa tápmikla bróður. Hann lifði hratt, var hvers manns hugljúfi í kerskni sinni. Hann rakst ekki vel í hóp, fór sínar eigin leiðir á sínum forsendum. Hann var gæddur góðri kímni og hafði ein- stakan frásagnarhæfileika og gam- ansögur flugu yfir borðum sem enduðu gjarnan í háum hláturs- rokum svo undir tók. En stundum kemur grátur eftir skellihlátur. Hann fékk sinn skerf af mótlæti í lífinu og fann ekki alltaf beinu brautina, en hver sosum finnur hana? Vinur var hann sannra vina sinna. Hann hafði gott hjartalag og að honum hændust yngstu börnin í fjölskyldunni. Þrátt fyrir hið and- lega góða hjartalag varð sjúkt hjarta að lúta í lægra haldi og stöðvaðist. Það er bjart yfir minn- ingu Símonar. Hann fetar nú för sína að himnaborðum. „Bráðum skín sól upprisudagsins yfir hinar björtu leiðir þar sem hún bíður skálds síns. Og fegurðin mun ríkja ein.“ (H. K. Laxness.) Far þú í friði, bróðir sæll. Þóra. Kæri bróðir og vinur, það er svo sárt að þurfa að kveðja svona snemma, þó eitt sé víst, að allir verða að deyja, þá er dauðinn svo fyrirvaralaus þegar hann kemur. Eftir sitja ættingjar og vinir og hugsa: Gat ég einhverju breytt eða haft áhrif á? Ég held ekki, Símon var með hjartasjúkdóm sem hann tók ekki alvarlega. Við fæðumst í þennan heim með þeim kostum og göllum sem fylgja okkur á lífsleið- inni, hvort sem okkur líkar betur eða verr, spurningin er hvernig einstaklingurinn getur látið þá vega salt, kostina og gallana, svo hvorugir yfirvinni hina því annars missum við jafnvægi á þessari lífs- ins göngu. Símon bróðir minn hafði marga góða kosti en eins og aðrir hafði hann líka galla. Í mínum huga standa kostir hans langt upp úr öllu öðru en hann náði ekki að láta vega salt, svo stundum varð ójafn- vægi. Ég vil minnast hans fyrst og fremst sem náttúrubarns, sem hvergi leið betur en á fjöllum fjarri áreiti umheimsins, friðlandið að fjallabaki var hans skjól og þangað sótti hann lífsnæringu hvenær sem kostur var. Í mínum minninga- banka á ég stórar innlagnir frá honum úr veiðiferðum að fjallabaki. Þær munu fylgja mér og verða veganesti það sem eftir er. Einnig vil ég minnast hans sem hraust- mennis og íþróttamanns frá náttúr- unnar hendi, því ekki var þjálfun fyrir að fara, og skákaði hann oft öðrum sem lögðu mikla rækt við sína íþrótt. Símon bróðir minn vann oft stóra sigra í lífi sínu en stundum gaf líka hressilega á bát- inn. Það var á þeim stundum sem hann fann ekki sitt eyrarblóm eins og segir ljóði Jóns Thoroddsen sem Labbi vinur hans samdi svo fallegt lag við, en Símon hélt mikið upp á lag og ljóð sem eftir á að hyggja virðist lýsa lífsgöngu hans: Það var eitt sinn eyrarblóm á eyðistað, og lítill fugl að kvöldi kom og kyssti það. Hann elskaði svo undurheitt sitt eyrarblóm, og veröldin var án þess öll svo auð og tóm. Að morgni eftir nepjunótt og nístingsél fram og aftur flögrar hann um frosinn mel. Símon hefur fundið sitt eyrar- blóm að eilífu. Far þú í friði, kæri bróðir, og hafðu þökk fyrir allt og allt, við munum aldrei gleyma þér. Þinn bróðir Sigurður. Mig langar að minnast í örfáum orðum elsku besta frænda míns. Hver á núna að stríða mér og kalla mig Grúbjagur? Eða Guð- björg Þóra, feita og stóra? Þú varst alltaf svo góður við litlu frænku. Þegar ég var 14 ára lán- aðir þú mér símboðann þinn af því að ég var aldrei heima og því engin leið að ná í mig. Þegar ég var að vinna í fiski á Eyrarbakka þá vorum við vinkon- urnar eitthvað að vandræðast hvernig við ættum að koma okkur á milli, þar sem engin af okkur var komin með bílpróf. Þér fannst þetta nú ekki mikið vandamál þar sem þú áttir hús á Eyrarbakka sem þú gast bara lánað okkur, minnsta mál. Þetta er alveg lýsandi fyrir þig, Símon minn, alltaf tilbúinn til að gera allt sem þú gast fyrir þitt fólk. Ég sakna þín svo mikið, frændi, en ég veit að þér líður vel núna. Þú heldur áfram að fylgjast með okk- ur. Ef þú hefðir náð að kveðja hefðir þú örugglega sagt: Verið hress, ekkert stress, bless, bless. Ég ætla að kveðja þig með þess- um orðum eftir Ralph Waldo Emerson: „Að deila með öðrum mikið og oft... Að vita aðeins einn anda léttar vegna þess að þú lifðir. Það er vel- gengni.“ Takk fyrir allt, elsku besti frændi. Guðbjörg Þóra Sigurðardóttir. SÍMON ÁSGEIR GRÉTARSSON  Fleiri minningargreinar um Sím- on Ásgeir Grétarsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Faðir okkar, REYNIR ÁRMANNSSON, 1922—2002, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 12. desember kl. 13.30. Ásta Reynisdóttir, Bergþóra Reynisdóttir, Ármann Reynisson, Halldór Reynisson, Sigrún Reynisdóttir. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, VALGERÐAR HÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Fyrir hönd aðstandenda, Böðvar Sigurjónsson. Innilegar þakkir til allra sem sýndu samhug og virðingu við fráfall og útför systur okkar og frænku, JÓHÖNNU ERASMUSDÓTTUR frá Háu-Kotey í Meðallandi. Sveinbjörg Erasmusdóttir, Guðríður Erasmusdóttir, Helga Erasmusdóttir, Lilja Benediktsdóttir, Páll Jóhannesson. Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát STELLU ÁRNADÓTTUR, Skólavörðustíg 24a, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, TÓMAS EMILSSON, Öldugötu 11, Seyðisfirði, lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar föstudaginn 6. desember. Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugar- daginn 14. desember kl. 14.00. Þórdís Bergsdóttir, Bergur Tómasson, Ásdís Benediktsdóttir, Sigurður Tómasson, Hafdís Guðmundsdóttir, Hildur Tómasdóttir, Valdimar Jörgensen, Þórdís Tómasdóttir, Þór Ingólfsson, Emil Tómasson, Anna Karlsdóttir, Tómas Tómasson, Berglind Sigurðardóttir, afabörn og langafabörn. Okkar ástkæra STEINUNN NÓRA ARNÓRSDÓTTIR, Hrísrima 25, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 11. desember kl. 13.30. Tómas Ríkarðsson, Laufey Lind Sturludóttir, Oddur Sturluson, Ríkarður Tómas Tómasson. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu mér og fjölskyldu minni samúð og hlýhug við fráfall eiginmanns míns, GUÐMUNDAR KRISTJÁNS HERMANNSSONAR frá Súgandafirði, Lautasmára 3, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.