Morgunblaðið - 10.12.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Hanseduo, Daian Maru
no 1 og Kinsho Maru no.
18 koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss og Hestia komu í
gær til Straumsvíkur.
Ocean Tiger kemur í
dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er mánudagsins 9. des-
ember er 99888. Númer
þriðjudagsins 10. desem-
ber er 6154.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun
þriðjudaga kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Sam-
söngur kl. 14, stjórnandi
Kári Friðriksson.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans, kl.
9.30–10.30 Íslandsbanki
á staðnum, kl. 10.30 leik-
fimi, kl. 13–16.30 opnar
handavinnu og smíða-
stofur.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–11.30 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14–
15 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið er
opið mánu- og fimmtu-
daga. Mánud: Kl. 16
leikfimi. Fimmtud: Kl.
13 tréskurður, kl. 14
bókasafnið, kl. 15–16
bókaspjall, kl. 17–19 æf-
ing kórs eldri borgara í
Damos. Enn eru til að-
göngumiðar á jólahlað-
borðið fimmtudaginn 12.
des. hjá Svanhildi e.h. á
Hlaðhömrum. Félags-
starfið verður til 19. des.
og endar þá með hátíð-
arstund á Hlaðhömrum
kl. 14.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð
við böðun, kl. 9 hár-
greiðslustofan opin, kl.
10–11 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–16
vefnaður, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.40 verslunarferð í
Bónus, kl. 13.15–13.45
bókabíllinn, hárgreiðslu-
stofan opin 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Ferð á Nesja-
velli í boði sýslumanns-
ins í Hafnarfirði og lög-
reglunnar í Garðabæ
þriðjudaginn 10. des. kl.
12.30. Sýning á búta-
saumi á Garðabergi.
10 konur, nemendur í
bútasasumi hjá El-
ísabetu Magnúsdóttur á
vegum FAG, hafa opnað
sýningu á handverki á
haustönn í Garðabergi.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids kl.
13.30 pútt í Hraunseli kl.
13.30. Ferð að Nesjavöll-
um í boði lögreglunnar.
Rúta frá Hraunseli
kl.12.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13. Morg-
unkaffi, blöðin og matur
í hádegi. Þriðjudagur:
Skák kl. 13. Ljósa-
skreytingar á Akranesi
stutt dagsferð 15. des-
ember, brottför frá Ás-
garði Glæsibæ kl. 14.
Byggðasafnið í Görðum
o.fl. Kaffihlaðborð. Þeir
sem hafa skráð sig vin-
samlegast sækið farmið-
ann fyrir föstudag. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB. Skrifstofa félags-
ins er í Faxafeni 12, sími.
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Vinnustofur opna kl. 9–
16.30 m.a. glerskurður,
kl. 13. boccia. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 glerlist, handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
10–17, kl. 14 þriðjudags-
ganga og boccia, kl. 16.
Kl. 15 kínversk leikfimi.
Handverksmarkaður
verður í Gjábakka mið-
vikudaginn 11. desem-
ber frá kl. 13.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga,
handavinnustofan opin
kl. 13–16, leiðbeinandi á
staðnum, kl. 17 línudans,
kl. 19 gömlu dansarnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun og gler-
skurður, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunaferð, kl. 13
myndlist og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og boccia, kl. 13
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð-
ir, hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 14–15 jóga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9. 15–16
bútasaumur og postu-
línsmálun. kl. 9.15–15.30
alm. handavinna, kl. 13–
16 frjáls spilamennska.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morgun-
stund, kl. 10 fótaaðgerð-
ir og leikfimi, kl. 13
handmennt m.a. mosaik,
kl. 14 félagsvist.
Háteigskirkja eldri
borgara á morgun mið-
vikudag, kl. 11 samvera,
fyrirbænastund og stutt
messa í kirkjunni, allir
velkomnir, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Karlakórinn Kátir karl-
ar, æfingar á þriðjud. kl.
13 í Félags- og þjónustu-
miðstöðinni Árskógum
4. Söngstjóri Úlrik Óla-
son. Tekið við pöntunum
í söng í s. 553 5979 Jón,
s. 551 8857 Guðjón eða s.
553 2725 Stefán.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á miðviku-
dögum kl. 20, svarað í
síma 552 6644 á fundar-
tíma.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgar-
svæðinu, félagsheimilið
Hátúni 12. Kl. 19.30 fé-
lagsvist.
Eldri borgarar tengdir
félagsmiðstöðinni Gjá-
bakka standa fyrir uppá-
komum þriðjudaginn 10.
des kl. 16.30–18 í Hress-
ingarskálanum Austur-
stræti. Kaffi og Hressó-
tertur. Allir velkomnir.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vest-
mannabraut 23, s. 481-
1826. Á Hellu: Mosfelli,
Þrúðvangi 6, s. 487-5828.
Á Flúðum: hjá Sólveigu
Ólafsdóttur, Versl.
Grund s. 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni Ír-
is, Austurvegi 4, s. 482-
1468 og á sjúkrahúsi
Suðurlands og
heilsugæslustöð, Árvegi,
s. 482-1300. Í Þorláks-
höfn: hjá Huldu I. Guð-
mundsdóttur, Odda-
braut 20, s. 483-3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga, fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi. Í
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Víkurbraut
62, s. 426-8787. Í Garði:
Íslandspósti, Garða-
braut 69, s. 422-7000. Í
Keflavík: í Bókabúð
Keflavíkur Pennanum,
Sólvallagötu 2, s. 421-
1102 og hjá Íslandspósti,
Hafnargötu 89, s. 421-
5000. Í Vogum: hjá Ís-
landspósti b/t Ásu Árna-
dóttur, Tjarnargötu 26,
s. 424-6500, í Hafn-
arfirði: í Bókabúð Böðv-
ars, Reykjavíkurvegi 64,
s. 565-1630 og hjá Penn-
anum - Eymundsson,
Strandgötu 31, s. 555-
0045.
Í dag er þriðjudagur 10. desember,
344. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að
Abner væri dauður í Hebron, féll-
ust honum hendur, og allur
Ísrael varð óttasleginn.
(II Sam. 4, 1.-2.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 viðbragðsfljótur, 8
land, 9 skoðun, 10 munir,
11 köngull, 13 bind sam-
an,15 auðbrotin, 18
hryggð, 21 reyfi, 22 mat-
skeið, 23 fýla, 24 þolan-
legur.
LÓÐRÉTT:
2 bitur kuldi, 3 grasgeiri,
4 samþykk, 5 eyddur, 6
veik, 7 varmi, 12 sekt, 14
stök, 15 sæti, 16 kóf-
drukkni, 17 vissu, 18
gamla, 19 flöt, 20 heimili.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 virkt, 4 gráða, 7 keyra, 8 tregt, 9 fát, 11 róar,
13 Ægir, 14 áleit, 15 garn, 17 tákn, 20 ótt, 22 fliss, 23 ert-
an, 24 reiði, 25 trana.
Lóðrétt: 1 vikur, 2 reyta, 3 traf, 4 gott, 5 ágeng, 6 aftur,
10 áheit, 12 Rán, 13 ætt, 15 gæfur, 16 reipi, 18 áætla, 19
nenna, 20 óski, 21 tekt.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur fylgst meðáformum enska knattspyrnu-
félagsins Arsenal um að byggja sér
nýjan leikvang í Lundúnum. Hinn
sögufrægi leikvangur félagsins,
Highbury, er fyrir margt löngu orð-
inn of lítill – tekur aðeins ríflega 38
þúsund manns í sæti en Arsenal gæti
hæglega selt 60 þúsund miða á
heimaleiki sína í deild og enn fleiri á
leiki í meistaradeild Evrópu. Það
liggur því í augum uppi að það er
hagur allra, bæði félagsins og stuðn-
ingsmannanna, að nýr völlur rísi.
Það er á hinn bóginn ekki einfalt
mál að flytja rótgróið fyrirbæri eins
og Arsenal. Félagið á rætur sínar í
Norður-Lundúnum, nánar tiltekið í
Islington-hverfinu, og þar býr harð-
asti kjarni stuðningsmanna þess.
Þegar hreyfing komst á málið fyrir
nokkrum árum skoðaði stjórn Arsen-
al ýmsa kosti en þegar upp var staðið
var auðvitað samþykkt að leita allra
leiða til að félagið gæti verið áfram í
Islington. Það var aðeins eitt vanda-
mál: Land undir mannvirki af þessu
tagi liggur ekki beinlínis á lausu inni í
miðri stórborg.
Kynnum til sögunnar Antony
nokkurn Spencer, ríflega fertugan
eiganda fyrirtækis í Lundúnum sem
sérhæfir sig í fasteignaráðgjöf – og
gallharðan Arsenal-aðdáanda. Hon-
um rann blóðið til skyldunnar og fór
að skoða málið í frístundum sínum.
Ekki leið á löngu uns Spencer var
dottinn niður á lausnina: Ashburton
Grove, athafnasvæði steinsnar frá
Highbury. Gott ef Martin Keown
„hreinsar“ ekki eina eða tvær tuðrur
þangað á góðum laugardegi. Svo
skammur er vegurinn.
x x x
VERTU ekki með þessa vitleysu,lagsi,“ voru fyrstu viðbrögð
stjórnar Arsenal þegar Spencer viðr-
aði hugmyndina. Það var ekkert
hugsanlegt rými fyrir nýjan leikvang
í 500 metra fjarlægð frá Highbury.
En viti menn. Spencer lagði spilin á
borðið og nú, fimm árum síðar, eru
framkvæmdir hafnar í Ashburton
Grove. Einhverjir íbúar á svæðinu
reyndu að malda í móinn, eins og
gengur, og einhverjar byggingar
verða að víkja á kostnað Arsenal en
heilt yfir hefur verkefnið verið lofi
hlaðið. Ken Livingstone, borgarstjóri
Lundúna, hefur meðal annars notað
orðið „fyrirmynd“ til að lýsa því.
En hvernig sá Spencer það sem
enginn annar kom auga á? Ekki
stendur á svari: Lesblinda. Hann
staðhæfir að þessi „fötlun“ sín geri
það að verkum að hann skoði hluti, í
þessu tilfelli kort af landsvæði, með
öðrum hætti en annað fólk. „Þegar ég
var að skoða kort af svæðinu starði
hvítur þríhyrningur lands á mig. Það
var Ashburton Grove. Þetta var Eur-
eka-augnablik hjá mér. Ég lagði
mynd af Wembley-leikvanginum of-
an á það og rak upp stór augu þegar
ég sá að hún smellpassaði,“ segir
Spencer í samtali við Arsenal-tíma-
ritið.
Og hann getur verið sáttur við sitt
framlag. Hann hefur ekki aðeins lagt
drög að framtíð félagsins heldur
skapað fjölmörg störf í Islington á
næstu misserum. Áætlað er að nýi
leikvangurinn verði tekinn í notkun
haustið 2005.
Oft er sagt að lesblint fólk búi yfir
öðrum hæfileikum – annarri sýn –
sem vegi upp á móti lestrarerfiðleik-
unum. Mál Spencers er lýsandi dæmi
um það.
LEIKSKÓLI barns á að
vera staður þar sem barnið
finnur sig öruggt og á
heimavelli. Við sem þar
störfum með börnunum
teljum mikilvægt að börnin
tengist okkur og félögunum
í barnahópnum. Við trúum
því staðfastlega að öryggi
sé forsenda náms hjá ung-
um börnum. Því vil ég sem
leikskólakennari með yfir
20 ára starfsreynslu reyna
að upplýsa reynslulausa
pólitíkusa og unga foreldra,
sem að sjálfsögðu eru þátt-
takendur í atvinnulífi bæði
sem starfsmenn og vinnu-
veitendur, um þá, að mér
virðist augljósu staðreynd,
að fjögurra vikna lokun
leikskóla í sumarleyfi hent-
ar flestum ágætlega. Þau
rök að það sé minna rask
fyrir barn að vera í skólan-
um sínum mönnuðum af-
leysingafólki að hluta (ef
það þá fæst og með hvernig
reynslu eða menntun?) í
þrjá mánuði en að hugsan-
lega þurfi að bjarga málum
fyrir horn í fjórar vikur eða
minna hjá fáum börnum
annars staðar en í skólan-
um eru út í hött. Mig langar
líka að láta fylgja að í mín-
um leikskóla var fyrir fáum
árum gerð óformleg könn-
un á því hvenær fólk vildi
taka frí og niðurstaðan varð
sú að 90% foreldra óskuðu
eftir sama tíma eða þrjár
síðustu vikur í júlí og fyrstu
viku águst. Er ekki kominn
tími til að við gerum okkur
grein fyrir því að það að
eiga börn og ala þau upp
kostar skipulag og virðingu
fyrir þörfum þeirra? Hugs-
um því fram í tímann. Hvað
ætlar þessi sami vinnu-
markaður að gera þegar
börnin eru orðin sex, sjö
eða átta ára og grunnskól-
inn lokar í sumarleyfi og
vetrarfríum? Látum ekki
allt sumarstarf leikskóla
líða fyrir hagsmuni fárra
einstaklinga.
G.B.
Þjónustuólund
NÝLEGA birtist í Velvak-
anda pistill frá kt. 300431-
0039 vegna lélegrar þjón-
ustu í Náttúrulækninga-
búðinni, Hlíðasmára 14.
Ég tek heilshugar undir
þessa ásökun því að ég hef
aldrei lent í öðrum eins
dónaskap hjá nokkru fyrir-
tæki hvorki fyrr né síðar.
Ég hringdi til að afla mér
upplýsinga um boli fyrir
vinkonu mína erlendis og
svörin voru hreytingur og
ónot af hálfu mannsins sem
svaraði. Þetta var fyrir 1½
ári.
Samstarfskona mín
horfði einu sinni upp á
uppákomu í versluninni og
bar hún því ekki vel söguna
sem hún varð vitni að. Það
er undarlegt að eigendur
verslunarinnar skuli ekki
taka á þessu, því að ég veit
að í mörg ár hefur verið
þessi þjónustulund eða
þjónustuólund.
Kt. 131257-4739.
Tapað/fundið
Sjóngler týndust
FÖSTUDAGINN 29. nóv-
ember týndist sjóngler í
Háskólanum, Bóksölu
stúdenta eða nágrenni.
Skilvís finnandi vinsamlega
hafi samband í síma
554 1199.
Þrír jólasveinar í
plastpoka týndust
ÞRÍR jólasveinar í plast-
poka týndust föstudaginn
22. nóvember á Skólabraut-
inni á Akranesi, nálægt
Myndsmiðjunni. Jólasvein-
arnir eru eign barna og
voru teknir með í jóla-
myndatökuna. Þeirra er
sárt saknað. Skilvís finn-
andi hringi í síma 863 9124
eða 695 3366.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Sumarlokun
leikskólanna
Morgunblaðið/Ómar