Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Opið til 22.00
til jóla
...
er
m
eð
a
llt
f
yr
ir
jó
lin
Jóladagskrá í dag
Jólaskemmtun í dag kl. 17.00
Sigga, Grétar og jólasveinarnir.
Jazzdúettin Augnablik kl. 18.00
leikur þægilegan jólajazz.
Guðmundur Haukur kl. 20.00
leikur jólatónlist á píanó.
Myndataka með jólasveininum
við Hans Petersen kl. 16.00-17.00
mynd í möppu 500 kr.
LÖGREGLAN í Reykjavík sér
nú fyrir endann á rannsókn á
barnaklámsmáli sem kom upp í
mars á þessu ári. Við húsleit hjá
tveimur mönnum, sem gerð var
vegna ótengds brots, var lagt
hald á tvær tölvur sem innihéldu
mikið magn af barnaklámi. Ann-
ar mannanna gekkst við því að
eiga tölvurnar. Ekkert hefur
komið fram sem bendir til þess
að hann hafi stundað dreifingu
eða sölu á klámefninu sem hann
mun hafa nálgast á Netinu.
Sigurbjörn Víðir Grétarsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir
að málið hafi verið sent ríkislög-
reglustjóra til rannsóknar en
embættið hafi búið yfir tækja-
búnaði til að rannsaka tölvu-
diska. Vegna anna hafi málið
verið sent aftur til lögreglunnar
í Reykjavík ásamt hluta af tölvu-
búnaði til að nota við rannsókn-
ina. Sú rannsókn hafi tekið meiri
tíma en upphaflega var ætlað en
nú sjái fyrir endann á henni. Að-
spurður segir Sigurbjörn að ekki
sé fyllilega komið í ljós hversu
margar barnaklámsmyndir mað-
urinn hafi geymt á tölvutæku
formi.
Sér fyrir endann
á rannsókn á
barnaklámsmáli ÁFRÝJAÐ hefur verið til Hæsta-réttar dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur sem dæmdi Haf ehf., sem er
í eigu Ágústs Einarssonar prófess-
ors og fyrrverandi alþingismanns,
til að greiða rúmlega 42 milljónir
króna vegna kaupa á 5% hlut í
Frjálsri fjölmiðlun í apríl árið
2000.
Kaupverðið var samtals 105
milljónir og greiddi Ágúst fljótlega
meirihluta upphæðarinnar til
Hilmis ehf. Ágúst neitaði að greiða
rúmlega 40 milljón króna eftir-
stöðvar þar sem hann taldi sig
hafa verið fenginn til kaupanna
með sviksamlegum hætti. Á það
féllst héraðsdómur ekki en málið
kemur til kasta Hæstaréttar á
næsta ári.
Haf áfrýjar
til Hæsta-
réttar
NÝTT fyrirtæki í ferðaþjónustu,
Iceland Express, áætlar að hefja
flug milli Keflavíkur og Kaupmanna-
hafnar og Keflavíkur og Stansted við
London í lok febrúar. Sala farmiða
hefst 9. janúar. Jóhannes Georgsson,
framkvæmdastjóri félagsins, segir
að boðin verði 40 þúsund sæti á um
14 til 19 þúsund króna fargjaldi báð-
ar leiðir en stefnt sé að um 12%
markaðshlutdeild af þeim 600 þús-
und farþegum sem ferðist árlega
milli Íslands og annarra landa.
Flogið verður daglega frá Íslandi
til Kaupmannahafnar að morgni
dags og þegar vélin kemur til baka
síðdegis heldur hún til London.
Lægsta fargjald milli Keflavíkur og
Kaupmannahafnar er 14.660 krónur
og 14.160 milli London og Keflavík-
ur, báðar leiðir með sköttum. Um
flugreksturinn sér breska flugfélag-
ið Astraeus með Boeing 737–300
þotu sem tekur 148 farþega. Flug-
menn eru erlendir en íslenskar flug-
freyjur og flugþjónar annast þjón-
ustu við farþega. Jóhannes sagði
ekki útilokað að íslenskir flugmenn
fengju störf hjá Astraeus sem hefði
nú fimm flugvélar í rekstri. Veiting-
ar um borð eru ekki innifaldar í far-
gjöldum og dagblöðum verður ekki
dreift til farþega. Farþegum verður
boðinn tollfrjáls varningur til kaups.
Fyrsta flugið til beggja borga er ráð-
gert 27. febrúar á næsta ári.
Iceland Express er til húsa á Suð-
urlandsbraut 24 í Reykjavík og þar
er einnig dótturfélag fyrirtækisins,
Reykjavík Express, sem að sögn Jó-
hannesar hefur ferðaskrifstofuleyfi
og annast farmiðasölu á leiðum Ice-
land Express og í framhaldsflug auk
annarrar ferðaþjónustu.
Hæsta fargjald 38 þúsund kr.
„Öll fargjöldin verða mun hag-
stæðari en ferðamenn hafa áður
þekkt í áætlunarflugi til og frá land-
inu,“ segir Jóhannes og segir hæsta
fargjald ekki verða hærra en 19 þús-
und krónur aðra leiðina eða 38 þús-
und krónur báðar leiðir. Vakti Jó-
hannes athygli á því að hugsanlegt
væri að farþegar greiddu eitt far-
gjald aðra leiðina og annað gjald
hina leiðina og myndi það ráðast af
framboði hverju sinni. Fargjöldin
eru miðuð við bókun á Netinu en sé
bókað í síma eða á skrifstofunni bæt-
ast við 1.500 krónur. Þurfi farþegar
að breyta bókun verður innheimt
1.500 króna gjald.
Framkvæmdastjórinn segir að
Iceland Express sé lágfargjaldaflug-
félag, sambærilegt við þau sem rutt
hafi sér til rúms erlendis. Rekstrar-
kostnaður sé lágur og stofnkostnað-
ur lítill, nokkuð á fjórða tug milljóna
króna. Um 20 manns munu starfa á
skrifstofu fyrirtækisins við markaðs-
og sölumál, fjármál og bókhald auk
stjórnenda. Um 15 manns gegna
þjónustustörfum um borð og segir
Jóhannes hafa verið ráðið í flestar
stöður hjá félaginu.
Stjórnarformaður Iceland Ex-
press er Sigurður I. Halldórsson lög-
maður, sem einnig mun starfa hjá fé-
laginu. Auk hans og Jóhannesar eru
aðrir stofnendur Guðmundur Þ.
Guðmundsson, lögfræðingur og
framkvæmdastjóri, Aðalsteinn
Magnússon rekstrarhagfræðingur,
Hafsteinn Árnason, fyrrverandi
stöðvarstjóri SAS og Atlanta, Ólafur
Hauksson, framkvæmdastjóri Boð-
bera almannatengsla, Sighvatur
Blöndahl viðskiptafræðingur og
Lúðvík Georgsson, sem sjá mun um
starfsemi Iceland Express erlendis.
Nýtt ferðaþjónustufyrirtæki ætlar að hefja flug
milli Íslands og Kaupmannahafnar og London
Lægstu gjöld rúmar
14 þúsund krónur
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður I. Halldórsson (t.v.) og Jóhannes Georgsson kynntu starfsemina.
!
"
#$
#"$
#"
%
&'
&
(
)*+
)*+
!
!,
$
#"$
$,
%
&'
&
(
ÓLAFUR Friðriksson deildarstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu segir að sú
staða kunni að koma upp að papriku-
ræktun leggist af hérlendis í ljósi þess
að garðyrkjubændur telja reynsluna
af niðurfellingu tolla slæma og sömu-
leiðis því að hætt var að leggja vernd-
artolla á ýmsa framleiðslu. Ólafur
minnir á að það sé framleiðendanna
að velja og hafna á grundvelli aðlög-
unarsamningsins sem gerður var við
garðyrkjubændur í vor. „Samningur-
inn var gerður um þau starfsskilyrði
sem starfsgreinin hefur og það er á
valdi framleiðenda að velja og hafna í
þeim efnum,“ segir hann. Hann segir
að bændur verði sjálfir að finna hvað
sé hagkvæmast hverju sinni. „Við
grípum ekki inn í málin, enda höfum
við sett rammann og bjuggumst við
einhverri uppstokkun í kjölfar samn-
ingsins á meðan bændur væru að átta
sig á nýju starfsumhverfi. Það eru
bæði ógnanir og tækifæri sem felast í
samningnum.“
Georg Ottósson garðyrkjubóndi á
Jörva á Flúðum sagðist í Morgun-
blaðinu í gær vita um tvo papriku-
bændur sem ætli að hætta fram-
leiðslu sinni og sjálfur segist hann
vera að velta málunum fyrir sér. Seg-
ir hann slæmt ef ræktunin legðist af
hérlendis enda sækist margir neyt-
endur eftir íslenskri papriku. Að hans
mati virðist eina leiðin vera fólgin í
betri markaðssetningu á paprikunni.
Hann segir að stjórnarmenn í Sam-
bandi garðyrkjubænda og fulltrúi frá
framkvæmdanefnd búvörulaganna
hafi farið yfir málin með papriku-
bændum á fundi í Bændahöllinni á
mánudag. „Það sem við erum kannski
að hugsa okkur að gera er að sér-
merkja þessa vöru og pakka henni
allri þannig að neytendur geti örugg-
lega séð hvað er íslenskt, merkja
stöðvunum og gera að sérvöru.
Spurningin er hvort við gætum þann-
ig haft það verð sem við verðum að fá
fyrir hana. Þetta er það sem liggur í
loftinu núna, hvort maður tekur
áhættuna af því.“
Ráðuneytið
mun ekki grípa
inn í málin
Blikur á lofti í íslenskri paprikurækt
SAMKOMULAG um breytingar á
sauðfjársamningi, sem fulltrúar
bænda og ríkisvaldsins gerðu í lok
nóvember síðastliðins, náði ekki í
gegn í landbúnaðarnefnd Alþingis
fyrir jólafrí þingmanna, að því er
fram kemur á vefsíðu Bændasam-
taka Íslands. Þetta hefur m.a. þá
þýðingu að áfram geta sauðfjár-
bændur komist hjá útflutnings-
skyldu með því að kaupa greiðslu-
mark.
Sauðfjársamningurinn var gerð-
ur í byrjun ársins 2000 og hafði
m.a. það ákvæði að 12,5% af þeim
fjármunum sem tengdir eru bein-
greiðsluhluta samningsins, yrðu
færð á framleiðslu dilkakjöts árið
2003. Ákvæðið stendur því óbreytt
og verður greitt út á alla dilka-
kjötsframleiðslu næsta árs þar sem
gæðastýringin er ekki frágengin.
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtakanna, segir að síðastliðið
sumar hefðu komið fram óskir á
aðalfundi Landssambands sauð-
fjárbænda um að gera breytingar á
sauðfjársamningnum til að laga
hann frekar að þörfum sauðfjár-
bænda og bregðast við aukinni út-
flutningsþörf á lambakjöti.
Með lögum frá Alþingi sl. vor
var opnað fyrir viðskipti með
greiðslumark búfjár og að sögn
Ara taldi meirihluti landbúnaðar-
nefndar lagalega óvissu ríkja um
að hægt væri að loka fyrir þessi
viðskipti afturvirkt. Frá sl. vori
hafa 30 aðilar tilkynnt kaup á
greiðslumarki sem Ari telur ekki
vera hátt hlutfall af um 1.800
bændum sem eingöngu stunda
sauðfjárrækt.
„Fyrri sauðfjársamningur stend-
ur og það er í sjálfu sér ekki svo
slæmt, hann var samþykktur í lýð-
ræðislegri kosningu. Hins vegar
hafa markaðsaðstæður versnað frá
því að samningurinn var gerður,“
segir Ari.
Breytingum á
búvörusamn-
ingi var hafnað
NÝJA ferðaþjónustufyr-
irtækið Iceland Express kem-
ur ekki til með að breyta um-
hverfinu hjá Flugleiðum, að
sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Flugleiða,
því samkeppnin sé ekki ný af
nálinni heldur hafi verið
ríkjandi og verði það áfram.
Guðjón Arngrímsson segir
að flug til og frá landinu hafi
verið frjálst um árabil og
samkeppnisumhverfið á ís-
lenska ferðamarkaðnum sé í
samræmi við það. Flugleiðir
búi við harða samkeppni,
bæði hér heima og erlendis,
einkum á sumrin.
„Við keppum á þessum
markaði með því að reyna að
standa okkur betur en aðrir
gagnvart viðskiptavinum og
við gerum ráð fyrir sam-
keppni í áætlunum okkar,“
segir Guðjón. „Starfsfólk
Flugleiða er sannkallað lands-
lið í flug- og ferðaþjónustu og
við höfum byggt upp okkar
sterku stöðu með því að bjóða
upp á vöru og þjónustu sem
landsmenn hafa áhuga á. Því
munum við svo sannarlega
halda áfram.“
Samkeppnin
er alltaf
til staðar