Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 29
Í MOKKA kaffi sýnir Hildur Mar-
grétardóttir 9 málverk unnin með ol-
íu á teppastriga. Þetta er níunda
einkasýning listakonunnar en hún
útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands
árið 1999.
Í verkskrá sýningarinnar segir
Hildur; „Með þessum verkum reyni
ég til hins ýtrasta að losa mig við höft
og lærða hegðun í myndmáli.“ Eins
og lesa má í textanum er Hildur að
tala um eigin höft en ekki almenn.
Listræn höft eru alltaf persónuleg.
Sjálf listin hefur í raun engin höft
eða takmörk. Aðeins mannshugur-
inn er heftur og takmarkaður og eitt
af hlutverkum listamannsins er ein-
mitt að ögra þeim takmörkum. Hild-
ur tekst á við takmörk sín í óhlut-
bundnu málverki sem hún vinnur
gróflega og fljótlega og leyfir tilvilj-
unum að njóta sín. Það er ósjaldan að
listamenn sem nálgast málverk á
þann veginn uppgötvi fljótlega að
plattinn sem þeir blönduðu litina á
hafi að geyma hin óheftu efnistök
sem þeir leita að, langtum frekar en
sjálft málverkið sem þeir voru
kannski að hamast við að skapa.
Nokkrir málarar hafa gert verk með
góðum árangri þar sem þeir hlaða
litum hverjum ofan á annan eins og
þegar blandað er á platta. Þ.á m.
Frakkinn Eugéne Leroy og Hollend-
ingurinn Marian Breedveld. Að vissu
leyti vinnur Hildur í þeim andanum
nema að hún hleður litum sjaldan
hverjum ofan á annan heldur vinnur
hún þá hlið við hlið eftir jöðrum
strigans sem hún skilur svo að miklu
leyti eftir ómálaðan og ógrunnaðan.
Í sumum tilfellum finnst mér hún
raða litunum fullvarfærnislega á
flötinn en í öðrum tilfellum, sérstak-
lega í myndum nr. 7 og 9, nær hún að
sleppa sér og myndirnar verða „lif-
andi“. Smæð myndanna takmarkar
listakonuna í efnistökum, en allar
eru þær 60 x 60 cm að stærð, nema
ein sem er 78 x 129 cm og er að mínu
mati best heppnaða málverkið á sýn-
ingunni.
Það er ekki oft að ég geti sagt að
málverk fari vel á veggjum Mokka
kaffis en ógrunnaður teppastriginn
er í sérlega góðu samræmi við grófa
veggi kaffihússins og málverkin eru
nógu hrá til að standast áreiti um-
hverfisins.
MYNDLIST
Mokka kaffi
Sýningin stendur til 15. janúar og er opin
á sama tíma og kaffihúsið.
MÁLVERK
HILDUR MARGRÉTARDÓTTIR
Höft hinnar
óheftu myndlistar
Jón B.K. Ransu
Eitt af verkum Hildar á Mokka.
Skák og mát eftir
Anatolí Karpov
hefur verið endur-
útgefin í tengslum
við skákátak
skákfélagsins
Hróksins. Bókin
kom fyrst út árið
1997. Helgi
Ólafsson stór-
meistari í skák og skólastjóri Skák-
skóla Íslands, þýddi bókina og stað-
færði.
Heimsmeistarinn í skák, Anatolíj
Karpov, kennir ungum skákmönnum
nýjar aðferðir til að tefla til sigurs, allt
frá því að þeir læra mannganginn.
Karpov nýtur aðstoðar Andrésar,
Mikka, Guffa og fleiri teiknimyndaper-
sóna úr smiðju Disney. Í bókinni er
líka teiknimyndasaga um ævintýri
Guffa í Skáklandi auk fróðleiksmola
úr sögu skáklistarinnar.
Edda og Hrókurinn gefa öllum börn-
um í 3.bekk grunnskólans bókina.
Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin
er 120 bls., prentuð á Ítalíu. Verð:
1.990 kr.
Skák
Poème nefnist fyrsti einleiksdiskur
Sifjar Tulinius sem nú er kominn út
og inniheldur „uppáhalds verk“
hennar. Flest eru
þau skrifuð um og í
kringum aldamótin
1900.
Á diskinum eru
verk eftir C.W.
Gluck: Melodie í
úts. Fritz Kreisler 1714–1787; F.
Chopin: Nocturne í cís-moll í úts. N.
Milstein 1810–1849; H. Wien-
iawski: Souvenir de Moscou 1835–
1880; C. Debussy: La Fille aux
cheveux lin 1862–1918; C. Franck:
Andantino Quietoso 1822–1890; H.
Vieuxtemps: Regrets 1820-1881; E.
Chausson: Poéme 1855–1899; M.
Ravel: Piéce en forme de Habanera
1875–1937 og M. Ravel: Tzigane.
Undirleikari á píanó er Steinunn
Birna Ragnarsdóttir.
Sif hefur komið fram sem einleik-
ari og tekið þátt í flutningi kamm-
ertónlistar í Bandaríkjunum, Evrópu
og Japan. Hún hefur komið fram á
ýmsum alþjóðlegum tónlist-
arhátíðum og tekið virkan þátt í
flutningi nútímatónlistar. Sif er með-
limur Kammerhóps Salarins og leik-
ur auk þess reglulega með Caput-
tónlistarhópnum og Kammersveit
Reykjavíkur. Sif gegnir nú stöðu 2.
konsertmeistara við Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
Útgefandi Edda. Sveinn Haralds-
son sá um upptökur og fóru þær
fram í Salnum í Kópavogi í júní
2002.
Fiðluleikur
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar