Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 57 Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. Sýnd kl. 6 og 9. Sýnd kl. 8. Vit 485Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. Vit 487 Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í jólaskap Jólamyndin 2002 Kvimyndir.is Það voru 1200 manns um borð þegar það týndist fyrir 40 árum.. nú er það komið aftur til að hrella þig! KRINGLA ÁLFABAKKI AKUREYRI ÁLFABAKKI KRINGLA AKUREYRI KEFLAVÍK RadíóX Y F I R 5 1 . 0 0 0 G E S T I R Sýnd kl. 4 og 6. Vit 461 Sýnd kl. 4. Ísl tal Vit 448 1/2HK DV ÓHT Rás2  SV Mbl  RadíóX Sýnd kl. 10.10. ÁLFABAKKIÁLFABAKKIÁLFABAKKI Sýnd kl. 8. Vit 474 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10 Sýnd kl. 10. KEFLAVÍKKEFLAVÍK . a FULLTRÚAR Íslands, atvinnudans- ararnir Karen Björk Björgvinsdóttir og Adam Reeve úr ÍR, náðu þeim árangri að vinna til tvennra gullverðlauna á Opna ástralska meistaramótinu í samkvæm- isdönsum sem fram fór í Melbourne í Ástr- alíu í nótt. Þau kepptu í báðum greinum, þ.e. standard- og latin-dönsum og unnu báðar greinarnar. Um 50 pör kepptu í þessum flokki. Á síðasta ári kepptu þau einungis í standarddönsum og unnu þá til gullverðlauna. Karen og Adam hafa að undanförnu verið að keppa bæði í Evrópu- og Heimsmeistarakeppni með mjög góð- um árangri og bættu um betur með tvö- földum sigri sínum í nótt en þau komust í 3ja sætið í Heimsmeistarakeppninni í 10 dönsum í lok nóvember. „Mótið stendur í þrjá daga og er stærsta danskeppni Ástralíu sem mörg hundruð keppendur taka þátt í. Um 5.000 áhorf- endur fylgdust með keppninni. Ástralska sjónvarið tók keppnina upp og er hún sýnd á jóladagskvöld um alla Ástralíu. Karen og Adam hefur verið boðið að halda danssýningu í Tókýó í Japan 21. desember og er það mikill heiður fyrir þau, því einungis listamönnum í fremstu röð er boðið að halda slíkar sýningar þar í landi,“ segir í fréttatilkynningu. Tveir gulldansar í Ástralíu Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, hefur höfðað mál til að koma í veg fyrir að Sir Paul McCartney breyti höfundaröð á lögum Bítlanna á þann veg að nafn hans verði ætíð nefnt fyrst. Tilefni illdeilnanna er nýút- komin tónleikaplata McCartneys Back in The US þar sem Bítlalögin 19 sem þar er að finna eru sögð eftir Paul Mc- Cartney og John Lennon en höfund- armerkið margfræga „Lennon/ McCartney“ hefur hingað til verið notað um öll lög sem þeir McCartney og Lennon lögðu til Bítlasamstarfsins, saman eða hvor í sínu lagi. Ono þykir þetta bragð hins gamla samstarfsmanns bónda síns heitins óskammfeilið og hefur kallað til her lögfræðinga sem segja verknað McCartneys þvert á vilja Ono og brjóta á bak aftur sam- komulag sem Lennon og McCartney gerðu með sér fyrir rúmum 40 árum. McCartney hefur fyrir sitt leyti haldið því fram nokkuð lengi að tími sé kominn til að koma því á hreint hvor eigi lögin sem þeir sömdu ekki saman. Lengi hefur angrað Paul að John hafi fengið mestan heiðurinn af lögum þar sem hann lagði kannski ekki til nema eina laglínu. Bítla- sérfræðingurinn Stephen Maycock segir að meirihluta laganna á nýrri plötu McCartneys hafi hann samið að nær öllu leyti, John kynni að hafa lagt til eina ljóðlínu eða svo. May- cock segir að álykta megi að Sir Paul hafi þótt tímabært að eigna sér lögin sem hann samdi, en um leið hafi hann viðurkennt aðstoð Lennons með því að nefna hann sem samhöf- und. Talið er að óbreyttum aðdáendum Bítlanna muni hins vegar finnast að Sir Paul hefði átt að láta ógert að hrófla við þeirri arfleifð sem fyrir margt löngu væri hluti af tónlistar- sögunni. Á plötu McCartneys eru 22 lög og var hún gefin út í Bandaríkjunum einvörðungu 26. nóvember sl. Þar er að finna dáð Bítlalög á borð við „Eleanor Rigby“, „Can’t Buy Me Love“, „Let It Be“, „Hey Jude“ og „Yesterday“ ásamt nýrri lögum eftir McCartney … Moby flúði frá hóteli, sem hann gisti á í Los Angeles, þeg- ar hann komst að því að Eminem ætlaði að halda veislu þar en þrír meintir aðdáendur rapparans réðust nýlega á hinn rólega Moby. „Þetta er gert vegna öryggis míns. Mig langar bara ekkert til þess að rekast á tutt- ugu drukkna vini Eminem á hót- elganginum. Kannski er ég með snert af ofsóknarbrjálæði en ég vil bara forðast öll átök,“ sagði Moby vegna þessa … Elijah Wood roðnaði rosalega þegar hótelþerna hélt að hann væri barn að aldri. Hann er í raun 21 árs og fer með hlutverk Fróða í Hringadróttinssögu. Wood mótmælti því að það þyrfti að þrífa hótelherbergið hans þegar þernan kom á staðinn. Hún tók hins vegar ekkert mark á honum heldur sagði: „Hvar er mamma þín?“ Wood hefur sagt að honum finnist hann mun eldri en hann er í raun og að margir vinir hans séu á fertugsaldri. „Samt hitti ég fólk sem heldur að ég sé 16 ára. Þetta er vonlaust,“ sagði hann. FÓLK Ífréttum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.