Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Hvað gerist þegar þú týnir hálfri milljón dollara frá mafíunni? Hörku hasarmynd með töffaranum Vin Diesel úr xXx, Dennis Hopper og John Malkovich. YFIR 40.000 GESTIR DV “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i RadíóX Sýnd kl. 4.Sýnd kl. 5, 8 og 10.10. Rapparinn Lil Bow Wow finnur galdraskó sem Jordan átti og kemst í NBA! Margur er knár þó hann sé smár - frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 4 og 6. Frumsýnd 26. des. Tryggðu þér miða í tíma Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 10.50. B.i.12 ára kl. 5 Sendu jólakveðju til vina og vandamanna! Nú getur þú farið inn á mbl.is og sent jólakveðjur til vina og ættingja. Þú velur úr fjölda skemmtilegra mynda, kveðjum á ýmsum tungumálum og skrifar inn eigin kveðju. Með því að skrá þig getur þú nýtt þér eftirfarandi þjónustu:  Notað og keypt myndir úr Myndasafni Morgunblaðsins sem fylgja eiga korti. Hver mynd úr Myndasafninu kostar 500 kr.  Listi yfir keyptar myndir sem hægt er að nota aftur án frekari greiðslu.  Yfirlit yfir þá sem þú hefur sent jólakort.  Tölvupóstur sem staðfestir að kort hafi verið lesin. Einföld leið til að gleðja vini og vandamenn hvar í heimi sem er! mbl.is Ný þjónusta! “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i i i RadíóX DV YFIR 40.000 GESTIR. Sýnd kl. 6. B.i. 16 áraSýnd kl. 6 og 9. B.i. 12 ára Frumsýnd 26. des. Tryggðu þér miða í tíma HLJÓMSVEITIN Ampop, sem skipuð er þeim Birgi Hilmarssyni og Kjartani Friðriki Ólafssyni, gaf út Made for Market á dögunum. Þetta er önnur breiðskífa dúettsins en árið 2000 leit Nature is not a Virgin dagsins ljós, tveimur árum eftir stofnun sveitarinnar og út- komu tveggja laga á safnskífunni Flugunni. „Við vorum kortér að stilla saman strengi okkar í eitt lag, sem var fyrsta lagið okkar sem kom út,“ segir Kjartan. Þetta fyrsta lag ætla þeir einmitt að spila á tónleikum á vegum Thule-útgáfunnar í kvöld auk laga af nýju plötunni. Ampop leikur að eigin sögn til- raunakennda rafpopptónlist og fell- ur nýja breiðskífan í góðan jarðveg. „Fólk hefur tekið vel í þessa plötu og það hefur verið vítamín fyrir okkur,“ segir Birgir. „Það er alltaf markmiðið með því að halda áfram að bæta sig eitthvað,“ segir Kjart- an. Strákarnir eru ánægðir með að vera komnir á mála hjá Thule. „Maður vill líkja þessu við að vera kominn með pabba. Það er séð um okkur,“ segir Kjartan. Fyrri breið- skífan kom út hjá Error, Rafni Jónssyni, „pabba okkar hingað til“, eins og Birgir orðar það. „Það eru mun vandaðri vinnu- brögð á þessari plötu og maður býr yfir meiri tækni sjálfur, með öflugri tölvu,“ segir Kjartan. „Hin platan var gerð rosalega mikið að eigin frumkvæði, við feng- um mjög litla hjálp við hana nema náttúrulega frá Rafni,“ segir Birgir. Þeir segjast hafa eytt drjúgum tíma með Finni Hákonarsyni í litlu hljóðveri í Hafnarfirði við gerð Made for Market, þar sem platan var tekin upp að mestu leyti. Enn- fremur fór einhver vinna fram í „vinnukompum“ strákanna, „okkar litlu stúdíóum“. Lokavinnsla plöt- unnar fór síðan fram í Thule Stud- ios. Platan er búin að vera í vinnslu meira og minna frá því að Nature is not a Virgin kom út. Þeir tóku upp 15 lög og níu þeirra enduðu á plöt- unni. Athygli vekur að mörg lagaheitin tengjast vetri. Upphafslagið er „January“, platan endar á „Winter Solstice“ og inn á milli hljómar „S.a.d.“, sem er skammstöfun yfir enska heitið á skammdeg- isþunglyndi. Myrkasta lagið á plöt- unni er síðan „Sociopath“, segja þeir. Skyldu þeir strákar vera mikið fyrir vetrartímann? „Við höfum að minnsta kosti ekki enn verið með lag á Svona er sumarið og stefnum ekki á það,“ segir Kjarri. Þeir útskýra að lagið „January“ hafi orðið til í janúar og „Winter Solstice“ í jólafríinu fyrir ári, um vetrarsólstöður. „Þetta eru svona dagbókarlög,“ segir Kjartan. Þeir eru því ekkert þunglyndari en gengur og gerist heldur hugnast þeim að vinna á veturna. „Þetta er skammdegisiðja að gera þessa mús- ík. Þú ferð frekar út á línuskauta á sumrin. Það er voða fátt annað að gera á veturna en að finna sér ein- hverja andlega næringu innandyra,“ segir Kjartan. Þeir taka þó sjálfa sig ekkert of alvarlega. „Við tökum að vísu tón- listina frekar alvarlega en ekki okk- ur sjálfa,“ útskýrir Kjarri og ber kaldhæðnislegt nafn breiðskífunnar, Made for Market, því vitni. Smáskífan Made for Market með samnefndu lagi kom út hjá breska útgáfufyrirtækinu Static Caravan í júní. Lagið kom út á sjötommu í litlu upplagi. Þrátt fyrir það hefur Ampop vak- ið athygli á erlendri grundu fyrir út- gáfuna og segjast þeir félagarnir hafa séð dóma á japanskri vefsíðu. „Ég held að þessi smáskífa sé búin að ryðja svolítið brautina fyrir okk- ur á erlendum vettvangi,“ segir Birgir. „Svona í jaðri jaðarsins,“ bætir Kjartan við. Andleg næring innandyra Morgunblaðið/Jim Smart Kjartan og Birgir skipa tilraunakenndu rafpoppsveitina Ampop. Made for market er komin út. Ampop, Apparat Organ Quartet, Worm is Green og Call him Mr. Kid halda tónleika í Iðnó í kvöld. Húsið opnað kl. 20 og lítur Rassi prump jafnvel inn. TENGLAR ................................................ www.thulemusik.com Ampop gefur út Made for Market WINONA Ryder hefur verið beðin um að taka þátt í auglýsingaherferð fyrir Marc Jacobs. Blússa eftir þennan bandaríska hönnuð var á meðal fatnaðar er Ryder var dæmd fyrir að ætla að stela úr verslun Saks. Ryder var jafnframt íklædd fötum frá Jacobs á meðan á réttarhöldum stóð en hún var dæmd til skilorðsbundinnar fangelsis- vistar. Robert Duffy, forstjóri Marc Jacobs, segir að fyrirtækið vilji gjarnan njóta starfskrafta Ryders. „Hún hefur verið mjög góður við- skiptavinur hjá okkur.“ Donny Deutsch, sérfræðingur í auglýsingum, bætti við: „Í okkar heimi er gott að vera illræmdur.“ …Jennifer Aniston hefur tilkynnt að hún ætli ekki að leika í annarri þáttaröð um Vinina vegna þess að hún hyggur á barneignir með eig- inmanninum Brad Pitt. Leikkonan hefur farið með hlutverk Rachel Green í níu ár en ætlar ekki að leika í tíundu þáttaröðinni ef hún verður framleidd. Aniston hefur enda geng- ið betur í kvikmyndunum heldur en hinum vinunum og hefur sýnt ágæt- an leik í myndum á borð við The Good Girl en sem stendur standa yf- ir tökur á Bruce Almighty þar sem hún leikur á móti Jim Carrey. FÓLK Ífréttum Winona Ryder
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.