Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 18
ERLENT 18 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HUBBLE-geimsjónaukinn hefur nú um nokkurt skeið fylgst með sannkölluðum hrunadansi eyði- leggingar og árekstra, hamförum, sem taka munu nokkra milljarða ára. Um er að ræða nokkrar vetr- arbrautir, sem þyngdaraflið teygir og togar og mun að lokum færa saman í eina risastóra vetrarbraut. Ætla má af myndunum frá Hubble, að um sé að ræða sex vetr- arbrautir en þær eru aðeins fjórar. Sú fimmta, þyrilþokan, er í fimm sinnum meiri fjarlægð en hinar og sú sjötta er ekki vetrarbraut, held- ur stjörnuslóð, sem rifnað hefur af einni vetrarbrautanna. Kemur þetta fram á fréttavef BBC, breska ríkisútvarpsins, og heimasíðu NASA, bandarísku geimvísinda- stofnunarinnar. Vetrarbrautaþyrpingin, sem er í 190 milljón ljósára fjarlægð frá jörðu, er aðeins 100.000 ljósár á breidd eða með öðrum orðum minni en vetrarbrautin okkar. Hver vetrarbrautanna er um 35.000 ljósár á breidd og þrjár þeirra sýna merki um mikil áhrif hver frá annarri og hugsanlega frá vetrarbraut, sem ekki hefur komið fram á myndunum. Svo er að sjá sem stjörnur og sólkerfi hafi verið rifin burt úr heimkynnum sínum en það á þó ekki enn við um allar vetrarbraut- irnar. Ein þeirra, sem er eins og upp á rönd efst á myndinni, heldur enn sínu þótt hún sé augljóslega orðin dálítið undin. Hubble-sjónaukinn hefur áður náð myndum af samruna eða sam- spili vetrarbrauta en að þessu sinni vantar alveg blámann, sem einkennir ungar stjörnuþyrpingar. Skýringin er hugsanlega sú, að Hubble hafi nú náð myndum af fyrstu stigum samrunans og áður en hinar eiginlegu hamfarir hefj- ast. Eftir nokkra milljarða ára munu vetrarbrautirnar fjórar hafa sam- einast í eina. Telja stjarnfræðingar raunar, að flestar sporöskjulaga vetrarbrautir séu afleiðing „fjand- samlegrar“ yfirtöku af þessu tagi. Samruni vetrarbrauta Hubble-geimsjónaukinn hefur að undanförnu verið að senda myndir af miklum hamförum langt úti í óravíddum him- ingeimsins, samruna fjögurra vetrarbrauta, sem munu verða orðnar að einni eftir nokkra milljarða ára. Vetrarbrautirnar, sem eru líklega að stíga fyrstu sporin í samrunaferli, sem taka mun milljarða ára. FULLTRÚAR stjórnvalda og uppreisnarflokka í Kongó und- irrituðu í gærmorgun friðarsam- komulag á fundi sínum í Pretor- iu, höfuðborg Suður-Afríku og binda menn nú vonir við að meira en fjögurra ára borgarastyrjöld sé á enda. „Senn mun friðar- blómið anga í hinu fagra Kongó,“ sagði sérstakur fulltrúi Samein- uðu þjóðanna á staðnum, Moust- apha Niasse. Enn er þó barist sums staðar í landinu og eigast þar við ýmsir klofningshópar. Talið er að um tvær og hálf milljón manna hafi fallið í stríðinu, aðallega óbreyttir borgarar sem dáið hafa úr hungri og sjúkdómum í kjölfar átak- anna. Efnahagurinn og innviðir ríkisins eru í rúst. Viðræðurnar hafa staðið í nær tvö ár, þær fóru fram í ferða- mannabænum Sun City í Suður- Afríku. Samið var um að deiluað- ilar skiptu með sér völdum í bráðabirgðastjórn fram að frjáls- um kosningum sem halda á innan 30 mánaða og verða þær fyrstu sinnar tegundar frá 1960. Yfir 50 manns, fulltrúar stjórnar Jos- ephs Kabila forseta, flokka stjórnarandstæðinga og helstu uppreisnarfylkinganna auk nokk- urra friðsamlegra félagasamtaka undirrituðu samninginn. Margir fulltrúanna voru örþreyttir enda var karpað um ýmis atriði nær sleitulaust frá því á sunnudag þar til yfir lauk. Milligöngumenn á vegum SÞ og fulltrúar Suður- Afríkustjórnar stjórnuðu friðar- umleitunum. Uppreisnarhreyfingarnar ráða alls yfir um helmingi landsins og Jean-Pierre Lola-Kisanga, tals- maður þeirrar öflugustu, Lýð- ræðisfylkingar Kongó (RCD), fagnaði samkomulaginu. Sagðist hann vera stoltur af því að sjá að menn sem barist hefðu öll þessi ár sameinuðust nú um að færa þjóðinni frið. Leiðtogi annarrar hreyfingar sagði að deiluaðilar myndu aldrei losna við sektar- kenndina yfir því að hafa byrjað að berjast. Bað hann þjóðina fyr- irgefningar á blóðbaðinu. Hreyfing Lola-Kisanga hefur notið stuðnings stjórnvalda í grannríkinu Rúanda en mörg önnur grannríki hafa með einum eða öðrum hætti blandað sér í átökin, ekki síst til að klófesta gróða af námuvinnslu. Kabila forseti til bráðabirgða Kabila er um þrítugt og tók við völdum í fyrra er öryggisvörður skaut föður hans og þáverandi forseta, Laurent Kabila. Hefur Kabila yngri síðan unnið þrot- laust að því að reyna að koma á friði. Nokkur þúsund eftirlits- menn á vegum SÞ eru nú í land- inu. Íbúar Kongó eru um 50 millj- ónir, landið er auðugt af ýmsum efnum, þ. á m. gulli, kopar, dem- öntum og úrani. Það er heldur stærra en Grænland að flatar- máli, var lengi belgísk nýlenda en hlaut sjálfstæði 1960. Eftir blóðuga borgarastyrjöld rændi Mobutu Sese Seko völdum og var einráður í 32 ár. Er hann talinn hafa stolið milljörðum dollara og komið þeim fyrir í erlendum bönkum. Íbúar Lýðræðislega lýðveldisins Kongó, eins og ríkið heitir fullu nafni, skiptast í ýms- ar þjóðir og ættbálka, flestir eru kristnir en um 10% eru múslím- ar. Opinbert tungumál ríkisins er franska. Deiluaðilar í Kongó semja frið Bráðabirgðastjórn Kabila forseta við völd fram að kosningum Pretoriu, Kigali. AP, AFP. MIKILL ágreiningur er á fundi sjávarútvegsráðherra Evrópusam- bandsríkjanna í Brussel og fátt, sem bendir til samkomulags um kvótana á næsta ári og aðrar breytingar á sameiginlegu fisk- veiðistefnunni. Franz Fischler, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórninni, hvikar þó hvergi frá málamiðlunartillögu um 80% niðurskurð á þorskveiði en Mariann Fischer Boel, sjávarút- vegsráðherra Dana, sem eru nú í forsæti í ESB, virðist ekki alveg jafnföst fyrir. Fiskifræðingar og aðrir vísinda- menn höfðu lagt til, að þorskveiði yrði alveg bönnuð en fram- kvæmdastjórnin og Danir náðu samkomulagi um að skera hana niður um 80% og um jafnmikið í ýsu og lýsingi. Á það vilja sex ríkjanna, Frakkland, Grikkland, Írland, Ítalía, Portúgal og Spánn, alls ekki fallast og Spánverjar hafna líka tillögu um, að nýsmíða- styrkir falli niður um næstu ára- mót. Reglan hefur verið sú, að úreldi útgerðarmaður tvö skip, fær hann styrki til að smíða nýtt og stærra og oftast með þeim afleiðingum, að sóknargetan hefur aukist. Eiga spánskar skipasmíðastöðv- ar mikið undir þessu fyrirkomulagi og spánska stjórnin vill, að styrkjagreiðslunum verði haldið áfram út árið 2006. Framkvæmda- stjórnin og Danir nefna til mála- miðlunar árið 2004 en þó með því skilyrði, að sóknargeta nýs skips verði helmingi minni en þeirra, sem voru úrelt á móti. Á fundinum í fyrradag lagði Fischer Boel einnig til, að fækkað yrði í fiskskipastól ESB-ríkjanna um 100.000 skip og niðurgreiðslur eða styrkir lækkaðir. Þá mælti hún fyrir stórauknu eftirliti og refs- ingum við hvers konar sviksemi en fyrirhugað er, að frá árinu 2005 verði fylgst með öllum skipum, sem eru 15 metra löng og lengri, um gervihnött. Þótt ríkin sex, sem andsnúnust eru tillögunum, séu í minnihluta innan ESB, geta þau samt tafið all- ar breytingar í eitt ár. Hugsanleg lending er, að kvótaákvörðunum verði frestað fram á næsta ár og gengið frá þeim fyrir marslok en það þýddi, að Danir yrðu að skilja við málið upp í loft og fela það Grikkjum, sem taka á næstunni við forystu innan sambandsins. Hótar einhliða banni Finnst Dönum það ekki gott til afspurnar og leita því allra leiða til að miðla málum. Fischler ítrekaði hins vegar í fyrradag, að hann væri ekki til tals um annað en 80% niðurskurð í þorskveiðum og hót- aði að grípa til neyðarráðstafana og banna þær einhliða yrðu kvót- arnir fyrir næsta ár ekki ákveðnir fyrir áramót. Sagði hann, að öll töf á því myndi óhjákvæmilega leiða til þess, að fiskstofnarnir hryndu hver á fætur öðrum. Hver sem niðurstaðan verður á Brussel-fundinum blasir það við, að þúsundir og jafnvel tugþúsundir manna muni missa vinnuna í evr- ópskum sjávarútvegi á næstunni vegna fiskleysis. Ástand fiskstofn- anna er svo alvarlegt, að sumir vís- indamenn óttast, að algert veiði- bann muni jafnvel engu breyta héðan af. Það bætist síðan við, að náist ekkert samkomulag á fund- inum, munu allar greiðslur til greinarinnar falla niður sjálfkrafa um áramót. Evrópskur sjávarútvegur í illleysanlegri kreppu og fátt bendir til að samkomulag náist um kvótana Mikill ágrein- ingur á Bruss- el-fundinum AP Þótt vísindamenn telji, að margir fiskstofnar séu að hruni komnir, virðist lítill skilningur á því meðal evrópskra sjómanna. Þeir mótmæla öllum nið- urskurði, eins og þessir Skotar, sem tóku sér í gær stöðu fyrir utan Evr- ópuráðsbygginguna í Brussel. Fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB hótar einhliða þorskveiðibanni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.