Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 26
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 26 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ minnka álagið á Elliðaárnar af of- anvatninu sem kemur af götunum því það eru alltaf ákveðin óhreinindi í því.“ Kostnaður um 50 milljónir Hver tjörn er nokkuð stór eða allt að 80 metrum að lengd og er því að vonum nokkurt rask af fram- kvæmdunum. Harald undirstrikar að gengið verði frá öllu í kring með gróðri þannig að svæðin eigi að vera til sóma þegar upp er staðið. Kostnaðurinn við framkvæmdirn- ar er áætlaður um 50 milljónir króna en framkvæmdirnar hófust um mánaðamótin nóvember og des- ember. Þeim á að vera lokið fyrir 15. júní á næsta ári. „Þetta átti nú að vinnast fyrr á árinu en svo frest- aðist það þannig að veðurfarið að undanförnu kemur okkur vel.“ FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við gerð fjögurra settjarna í Elliða- árdal sem hver um sig verður allt að 80 metrar að lengd. Tjörnunum er ætlað að taka við rigningarvatni sem rennur af götunum og hreinsa það áður en það fer út í árnar. Að sögn Haralds B. Alfreðssonar, verkfræðings hjá Gatnamálastofu, verður ein tjörn gerð í grennd við Fellakirkju og önnur aðeins neðar. Þá verða tvær tjarnir gerðar sitt- hvorumegin við Elliðaárnar ofan við gömlu vatnsveitubrúna. „Í þessar tjarnir fer megnið af því ofanvatni eða rigningarvatni sem fellur ofan við þær og þar í kring,“ segir hann. „Svo botnfellur skítur og annað í þeim áður en vatnið rennur út í árnar. Þetta er liður í því að Unnið að gerð set- tjarna við árnar Morgunblaðið/Árni Torfason Talsvert rask er nú í grennd við gömlu vatnsveitubrúna í Elliðaárdal eftir að framkvæmdir hófust. Elliðaárdalur KRAKKARNIR í 7. bekk Öldusels- skóla hafa undanfarinn mánuð unn- ið hörðum höndum að ýmiss konar vísindaverkefnum í skólanum. Af- rakstur vinnunnar var svo sýndur foreldrum og skólafélögum síðast- liðinn þriðjudag. Að sögn Daníels Guðmundssonar, skólastjóra Ölduselsskóla, var horft til getu og færni hvers einstaklings við vinnuna en í 7. bekk skólans eru á milli 60 og 70 krakkar. „Við reyndum með þessu að kveikja áhuga þeirra á vísindum og tækni, ekki síður stelpnanna,“ segir hann. Hann segir krakkana hafa hvoru- tveggja gert verkefni út frá eigin uppgötvunum eða þá reynt að koma þekktum hlutum í framkvæmd. Þá útbjuggu þeir vísindarit um verk- efnin og sömuleiðis hugleiðingar sínar um vísindi og tækni framtíð- arinnar. Daníel segir að það hafi ekki farið hjá því að krakkarnir hafi haft ýmislegt fram að færa í þeim efnum. „Hugmyndaflug þeirra er alveg ótrúlegt og þau höfðu virkilega gaman af þessari vinnu.“ Meðal verkefnanna má nefna hreyfimyndir, hluti með ljósarofa, brú úr pappír sem engu að síður heldur uppi 3 kílóum, leikfangabíl úr leir þar sem núningskraftur var rannsakaður og eggjakarl, sem er þeim eiginleikum búinn að þegar hann dettur af vegg, sem hann situr á, fer hann í sundur með loftþrýst- ingnum einum saman. Vísindamenn framtíðarinnar Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Hluti vísindamannanna með verkefnin sín, þar á meðal eggjakarlinn góða sem er kominn í viðeigandi búning miðað við árstíma. Breiðholt ÞAÐ var sannkölluð hátíðarstemmn- ing í Digranesskóla á miðvikudag þegar tónlistarkonan Natalia Chow afhenti sérdeild skólans rúmar 330 þúsund krónur sem hún safnaði á styrktartónleikum í Kópavogskirkju í nóvember síðastliðnum. Sjálf á Nat- alia barn í deildinni sem í eru átta ein- hverfir nemendur. Að sögn Önnu Karólínu Þorsteins- dóttur, annars umsjónarmanns deild- arinnar, komu þrír kórar á vegum Nataliu fram á tónleikunum, Kvenna- kór Kópavogs, Samkór Kópavogs og Kór Kópavogskirkju, auk fleiri tón- listarmanna og Natalia söng nokkur einsöngslög. Sem fyrr segir söfnuðust rúmlega 330 þúsund krónur á tónleikunum og voru þær afhentar á miðvikudag við hátíðlega athöfn í skólanum þar sem nemendum sérdeildarinnar og for- eldrum þeirra var boðið til kaffiveislu. Anna segir að peningagjöfin muni koma að góðum notum. „Þetta á eftir að nýtast deildinni mjög vel og ég geri ráð fyrir að það verði keypt náms- gögn fyrir þessa peninga,“ segir hún. Tónleikafé afhent sérdeild Digranesskóla Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Natalia Chow afhendir Önnu Karólínu Þorsteinsdóttur upphæðina sem safnaðist á styrktartónleikunum í nóvember síðastliðnum. Kópavogur Félagsmálaráðuneytið hefur hafnað kröfu íbúa í Miðdal í Mosfellsbæ að fella úr gildi ákvörðun skólaskrifstofu bæjar- ins haustið 2001 að hætta skóla- akstri heim að dyrum viðkom- andi. Telur ráðuneytið að bæjaryfirvöld hafi haft heimild til að ákveða hvernig skóla- akstrinum skyldi háttað. Ákvörðun bæjaryfirvalda fól í sér að íbúanum var gert að aka barni sínu í veg fyrir skólabílinn um sex kílómetra leið dag hvern gegn þóknun sem einhliða var ákveðin af bæjaryfirvöldum. Við þetta gat hann ekki unað og kærði ákvörðunina til félags- málaráðuneytisins. Haustið 2002, eftir meirihlutaskipti í bæjarstjórn, var ákvörðuninni hins vegar breytt og fyrra fyr- irkomulag tekið upp að nýju, þ.e. að aka börnum og sækja þau heim að dyrum. Úrskurður félagsmálaráðu- neytisins vegna kærumálsins féll þó ekki fyrr en nú í desem- ber og sem fyrr segir er hann á þá leið að kröfu viðkomandi er hafnað. Bendir ráðuneytið á að sveitarstjórnum sé heimilt sam- kvæmt reglugerð að ákveða hvaða fyrirkomulag hentar best í þeirra sveitarfélagi. Því geti ráðuneytið ekki skyldað Mos- fellsbæ til að haga skólaakstri sínum með ákveðnum hætti. Þá telur ráðuneytið að orðið „heimaakstur“, eins og það kemur fyrir í lögum, verði ekki túlkað á þann hátt að í því felist skylda fyrir sveitarfélög að aka grunnskólanemendum alla leið til og frá heimilum sínum. Ekki skylt að aka skóla- börnum heim að dyrum Mosfellsbær GREEN ww w. for va l.is Vivace - falleg og fersk hönnun, skífa úr perlumóður- skel sett 10 demöntum. www.seikowatches.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.