Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 43
g að fjármagna sig á markaði sem sig í atvinnugreinum tengdum fisk- g gætu þannig vaxið og dafnað bet- ur en þeim er mögulegt í dag. Í framhaldi af þessu væri mögulegt að mynda alþjóðlega sjávarútvegsvísitölu sem fjárfestar gætu fjárfest í. Íslenskt rekstrarumhverfi og skattheimta gætu svo orðið til þess að slík fyrirtæki ákvæðu að skjóta hér rótum og flytja allan sinn rekstur hingað til lands með tilheyrandi ágóða fyrir íslenskt hagkerfi. Hömlur á fjárfestingum í sjávarútvegi Ein stærsta hindrunin við framkvæmd þessarar hugmyndar er líklega þær hömlur sem eru á fjárfestingum erlendra aðila í sjávarútvegi hér á landi en þær samræmast illa samkeppnissjónarmiðum. Það er vissu- lega rétt að útlendingum er ekki bannað með öllu að fjárfesta í íslenskum sjávarút- vegi og fyrirtæki gætu farið í ýmsar tilfær- ingar með því t.d. að stofna dótturfélög fyrir útgerð og vinnslu. Það er hins vegar ekki fýsileg aðgerð því betra er að stefna að því að hafa einfalt kerfi og reglur þar sem fjár- festar geta tiltölulega auðveldlega áttað sig á þeim verðmætum sem liggja innan fyr- irtækis. Fyrirtæki í sjávarútvegi hafa vaxið hratt og undanfarin misseri hafa samein- ingar verið tíðar sem skapar öflugar ein- ingar, bæði rekstrarlega og út frá kvóta- eign. Rekstur sjávarútvegsfyrirtækja lýtur sömu lögmálum um stærðarhagkvæmi og gilda um starfsemi fyrirtækja í öðrum grein- um. Ef innlendum sjávarútvegsfyrirtækjum er ekki leyft að keppa um fjármagn, innlent og erlent, á sama hátt og öðrum fyrirtækj- um er hætta á því að þegar ákveðnum ár- angri er náð dragi úr hvatanum til að vaxa og auka hagnað innan sjávarútvegsins. Kauphöll Íslands kynnti hugmyndir um alþjóðlegan hlutabréfamarkað með sjávar- útvegsfyrirtæki síðasta haust og tveir þing- menn hafa sett fram frumvarp þess efnis á þessu Alþingi. Þar sem við Íslendingar vilj- um gjarnan vera fremstir í flokki þá er þetta eitthvað sem við ættum að taka til skoðunar og auðvitað að framkvæma að lokum. Ef vel tekst til gæti slíkur markaður orðið vítamín- sprauta fyrir íslenskt efnahagslíf og leitt til þess að íslenskur fjármálamarkaður stækki meira en annars væri mögulegt. Þetta mun þó að öllum líkindum leiða til þess að endur- skoða verði þær hömlur sem í dag eru á fjár- festingum erlendra aðila í sjávarútvegi. Þótt leysa þurfi ýmis vandamál sem tengjast eignarhaldi þjóðarinnar á auðlindinni er ljóst að á endanum verða viðskipti með hlutabréf í fiskveiðifyrirtækjum frjáls rétt eins og viðskipti með bréf í öðrum félögum. g fjárfestingar Morgunblaðið/Golli er verið að skipa upp túnfiski í Reykjavíkurhöfn. Höfundur er hagfræðingur og ritari Sam- bands ungra sjálfstæðismanna. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 43 N ÆRRI 60 árum eftir stofnun lýð- veldisins Íslands á Þingvöllum ból- ar enn ekkert á sjálfstæðri utanríkisstefnu stjórnvalda. Ég er þeirrar skoð- unar að heildstæð úttekt á stöðu lands og þjóðar í upphafi nýrrar aldar, sem hefði það að mark- miði að móta utanríkisstefnu sem væri í takt við þá tíma sem við lifum á, væri ekki einungis gagnleg heldur bráðnauðsynleg svo að hægt sé að tryggja hags- muni þjóðarinnar með skyn- samlegum hætti og til framtíðar. Í áranna rás hafa utan að komandi þættir stýrt stöðu okk- ar á alþjóðavettvangi og um leið gert Íslendinga að þiggjendum hvað varðar stefnumótun og markmiðssetningu í utanrík- ismálum. Hernaðarlega mik- ilvæg staða landsins réð úrslit- um um aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu árið 1949. Aðildin að NATO stýrði utanríkisstefnu Íslands í stóru jafnt sem smáu í hálfa öld. Og enn virðist hún ráða mestu um ákvarðanir íslenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi. Lok kalda stríðsins og gjörbreyttar að- stæður í Evrópu, og reyndar um allan heim, hafa öðru fremur af- hjúpað stefnuleysi Íslands á al- þjóðavettvangi. Mörgum stjórn- málamanninum hefur reynst erfitt að fóta sig í nýjum heimi, þar sem vægi hernaðarbanda- laga fer minnkandi en alþjóða- samstarf á sviði viðskipta, um- hverfismála og mannréttinda verður æ mikilvægara. Undantekningin sem sannar regluna er auðvitað aðild Ís- lands að samningnum um evr- ópskt efnahagssvæði. Við gerð hans réð framsýni för. Gildi samningsins fyrir Ísland er óumdeilt. Svo óumdeilt, að varla er hægt að gera sér í hugarlund hversu slæm staða okkar í Evr- ópu og gagnvart Evrópusam- bandinu væri í dag ef EES nyti ekki við. Enda virðist eina mark- mið ríkisstjórnarinnar í utanrík- ismálum um þessar mundir vera að viðhalda EES-samningnum en spurningunni um aðild að ESB, sem margir telja eðlilegt framhald þessa samstarfs, er ekki svarað. Viðbrögð stjórnvalda við kröf- um framkvæmdastjórnar ESB um auknar greiðslur EFTA- ríkjanna í þróunarsjóði sam- bandsins eru gott dæmi um það sem ég vil kalla „allt-fyrir- ekkert“-viðhorf ráðamanna til hlutverks Íslands í samskiptum við aðrar þjóðir. Fram- kvæmdastjórn ESB er vissulega að fara fram á mikla hækkun framlaga í sjóðina. Sjóði, sem vel að merkja, eru notaðir til þess að styðja við uppbyggingu í fá- tækari ríkjum sambandsins. Rök ESB eru þau helst að sem fullir aðilar að innri markaði þurfi EFTA-ríkin að leggja meira af mörkum til þróunar og uppbyggingar markaðarins. Að þau axli ábyrgð á henni eins og aðrir fullgildir þátttakendur á innri markaði Evrópusam- bandsins. Upphæðirnar sem nefndar hafa verið eru bæði há- ar og umdeilanlegar en það er ekki síður umhugsunarvert ef ís- lensk stjórnvöld líta á það sem hreina móðgun við íslenska hagsmuni að taka á sig meiri byrðar í samstarfinu innan EES. Samningaviðræður við ESB hefjast 9. janúar nk. Í norska Stórþinginu hefur rík- isstjórnin haft samráð við full- trúa í utanríkismálanefnd þings- ins um samningsmarkmið og taktík Norðmanna í vænt- anlegum viðræðum við fram- kvæmdastjórn ESB. Hér heima er engar upplýsingar að fá um samningsmarkmið og mála- tilbúnað ríkisstjórnarinnar í þessum sömu viðræðum. Og gildir þá einu hvort kjörnir fulltrúar í utanríkismálanefnd Alþingis eiga í hlut eða hinn al- menni borgari. Á öðrum sviðum utanrík- ismála er ástandið lítið skárra. Framlög Íslands til þróun- arsamvinnu er hreint út sagt til skammar en þau ná rétt 0,11% af vergri þjóðarframleiðslu þrátt fyrir fögur fyrirheit um að standa við markmið Sameinuðu þjóðanna um 0,7% framlag. Það getur varla talist hátt hlutfall af þjóðarframleiðslu einnar rík- ustu þjóðar í heimi en myndi samt sjöfalda núverandi framlög okkar til þróunarmála. Við þetta bætist svo að lítil vinna hefur verið lögð í stefnumótun þróun- arsamstarfs við fátæk ríki. Til skamms tíma hefur samvinnan miðað helst að því að vinna við verkefni sem henta okkur, t.d. í sjávarútvegi. Þau hafa mörg verið klæðskerasniðin að þörfum Íslands en ekki tekið mið af hinni brýnu þörf fyrir uppbyggingu heilsu- gæslu og grunnmenntunar í fátækustu ríkjum heims. Þessi staðreynd end- urspeglar dapurlegt viðhorf til fátækra ríkja, sem mega vera nógu góð til þess að taka við því sem okkur hentar að láta af hendi rakna en eru sjaldnast spurð að því hvar skórinn helst kreppir heima fyrir. Ekki verður heldur hjá því komist að geta um framlög okk- ar til varnar- og öryggismála. Í þeim efnum hefur hverri rík- isstjórninni á fætur annarri þótt sæma að láta aðra borga brús- ann. Við erum herlaus þjóð og höfum kosið að fela annarri þjóð varnir landsins svo langt sem þær ná. Alveg burtséð frá skoð- unum okkar á NATO-aðildinni og hernum langar mig að varpa þeirri spurningu fram hvort við það sé búandi að fullvalda þjóð standi ekki straum af kostnaði við hreinsun og viðhald flug- brautanna í Keflavík? Sjálfskip- aðir vörslumenn hins íslenska fullveldis ættu ef til vill að huga nánar að því máli. Allt ber að sama brunni. Ein- kunnarorð stefnuleysisins á sviði utanríkismála gætu eins verið: Við borgum ekki! Það er ekki hátt risið á þjóð sem fer fram með þessum hætti í sam- skiptum fullvalda ríkja. Helst má líkja þessari hegðun við of- dekraðan og dyntóttan ungling sem finnst það heimsins mesta óréttlæti að þurfa að borga heim til þess að létta undir með rekstri heimilisins. Þó verður að hafa í huga að unglingurinn vex úr grasi og axlar þá oftast sína ábyrgð möglunarlaust. Í því ljósi verðum við að vona að næstu al- þingiskosningar færi Íslend- ingum ríkisstjórn sem er tilbúin til þess að axla ábyrgð á mótun sjálfstæðrar utanríkisstefnu, þannig að samskipti eyþjóð- arinnar í norðri við önnur lönd geti tekið þeim breytingum sem nauðsynlegar eru til þess að tryggja hagsmuni okkar til lengri tíma í samfélagi þjóðanna. Við borgum ekki! Eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur ’ Það er ekki háttrisið á þjóð sem fer fram með þessum hætti í samskiptum fullvalda ríkja. ‘ Höfundur er alþingiskona. mber sagði gframboði ngu við m vanga- g hver önn- ðastliðinn eð þessu töðu sína n. Hún gaf í vor að að öðru bak þeirra nar freist- i landsmál- alaust ta tækifæri, n við sjálfa r Gunn- grein í ngibjörg lið einfalt? r að hún lfsagt ýsingar. og þessar til greina af lýsingu þar a að hún um eitt- élags- verðleika el þó að það ann ætli að dir feld- eftir Dag a R-listans, sem var handvalinn af Ingibjörgu Sólrúnu á listann. Sagðist hann þess fullviss, að Ingibjög Sólrún færi ekki í þingframboð. Hann rökstuddi það með þessum hætti: „Ástæða þess að ég tel nær útilokað að Ingibjörg Sól- rún fari fram til Alþingis er einföld. Skýrar yfirlýsingar hennar um hið gagnstæða í borgarstjórakosningunum í vor. Það eru ekki aðeins pólitískir andstæðingar sem vilja höggva í trúverðugleika hennar sem spyrja hvort þær yfirlýsingar standi ekki heldur einnig margt af harðasta stuðningsfólki hennar. Þessi spurning skiptir lykilmáli þar sem pólitískur styrkur Ingibjargar Sól- rúnar byggist ekki síst á trúverðugleika. Styrk hennar til að fylgja eigin sannfæringu.“ Eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafði lýst yfir framboði sínu til þings fyrir Samfylkinguna vitnaði Morgunblaðið hinn 19. desember í leiðara sínum til þess, sem blaðið hafði sagt 11. september um, að borgarstjóri hefði styrkt persónulega stöðu sína sem stjórn- málamaður sem stæði við orð sín og gengi ekki á bak orða sinna, þrátt fyrir freistandi tilboð. Hinn 19. desem- ber hafði Morgunblaðið skipt um skoðun á heilindum borgarstjóra og sagði: „Þetta mat á afstöðu borgarstjórans á augljóslega ekki við lengur. Hún segir nú, að hún muni áfram verða borgarstjóri, jafnvel þótt hún setjist á þing. Að hún sinni áfram starfi borgarstjóra er hins vegar ekki það eina, sem skiptir máli gagnvart kjósendum Reykjavíkurlist- ans. Stór hluti þeirra kýs ekki Samfylkinguna í þing- kosningum, heldur Vinstrihreyfinguna – grænt framboð eða Framsóknarflokkinn. Margir þeirra hafa vænt- anlega litið svo á að loforð borgarstjórans næðu einnig til þess að hún færi ekki að beita sér gegn þeirra flokk- um í landsmálapólitíkinni.“ x x x Morgunblaðinu brá ekki einu við umsnúning Ingi- bjargar Sólrúnar og breytti um álit á henni. Undrunin var ekki minni hjá samherjum hennar í R-listanum. Hún ákvað framboðið að eigin sögn í samtali við Össur Skarp- héðinsson, formann Samfylkingarinnar, um síðustu helgi og tilkynnti Össur framboðið opinberlega á sama tíma og borgarstjóri sat á fundi með borgarmálaráði R-listans, lét hún þar eins og það væri ekki fullákveðið, hvort hún byði sig fram eða ekki. Þannig talaði hún einn- ig við sjónvarps- og útvarpsstöðvar um klukkan 18.00 miðvikudaginn 18. desember en tók síðan af skarið op- inberlega í Kastljósi sjónvarpsins rúmum klukkutíma síðar. Athyglisvert er, að Stefán Jón Hafstein, borg- arfulltrúi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylk- ingarinnar, segist ekki hafa vitað um að framboðið væri á döfinni, fyrr en á fundi borgarmálaráðsins. Engu er líkara en Ingibjörg Sólrún hafi ekki áttað sig á því, fyrr en eftir borgarmálaráðsfundinn, að Össur Skarphéðinsson hafði tekið af henni frumkvæðið í fram- boðsmálunum, sagt frá fundum þeirra og niðurstöðunni. Mótmæli innan borgarmálaráðsins vógu ekki eins þungt og orð Össurar. Það var hins vegar þungt hljóð í forystumönnum Framsóknarflokksins og vinstri/grænna á blaðamanna- fundi í hádeginu á fimmtudag, þegar þeir kynntu sam- eiginlega yfirlýsingu þess efnis, að Ingibjörg Sólrún yrði að velja á milli þess að vera í framboði til þings fyrir Samfylkinguna eða sitja í embætti borgarstjóra. Lönguvitleysunni um framboð Ingibjargar Sólrúnar fyrir Samfylkinguna er ekki enn lokið. Nú hefjast við- ræður R-listamanna um afleiðingar ákvörðunar Össurar og Ingibjargar Sólrúnar. Össur segist undrandi á hörð- um viðbrögðum forystumannanna, sem settu hnefann í borðið í september. x x x Hér var síðasta laugardag greint frá Landsvirkjunar- uppnáminu í Ráðhúsinu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Allt er enn óvíst um styrk R-listans til að leiða það mál til lykta, en til að framvinda samningagerðar við Alcoa sé snurðulaus, þurfa íslenskir samningamenn að hafa vitn- eskju um afstöðu borgarstjórnar fyrir 10. janúar 2003. Næstu sólarhringa þarf R-listinn ekki aðeins að leita leiða til að ljúka lönguvitleysunni í framboðsmálum Ingi- bjargar Sólrúnar og skapa traust og trúverðugleika um framkvæmdastjórn Reykjavíkur. R-listinn verður á sama tíma að komast að niðurstöðu um stefnu sína gagn- vart Kárahnjúkavirkjun og ábyrgð Reykjavíkurborgar sem 45% eiganda Landsvirkjunar. nur langavitleysa“ bjorn@centrum.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.