Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 56
UMRÆÐAN 56 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ • Enskur Jólabúðingur verð frá kr. 250 • Enskar ávaxta jólakökur verð frá kr. 995 • Ljúffengt enskt marmelaði, ávaxtasultur og margt fleira. Klapparstíg 44, sími 562 3614 Vasapelar og gjafavörur í úrvali - áletrun Skólavörðustíg 8 - 101 Reykjavík Sími 551 8600 - Fax 551 9680 HINN 10. þ.m. lýsti framsóknar- og stjórnarformaður Landsvirkjun- ar, Jóhannes G. Sigurgeirsson, þeirri skoðun sinni í viðtali að framganga íslenskra umhverfis- verndarsinna gengi gegn lýðræði í landinu og gaf einnig í skyn að er- lendir aðilar og fjármagn stæði á bak við baráttu þeirra gegn stefnu fyrirtækisins. Þrátt fyrir að friðun náttúrunnar sé mikið tilfinningamál fyrir flesta áhugamenn um umhverfisvernd hafa þeir þó oftast beitt rökum til að styðja mál sitt. Vísindamenn og aðrir hafa bent á ýmsa óvissuþætti, t.d. efnahagslega og jarðfræðilega sem ekki hefur verið tekið mikið tillit til og þá staðreynd að óspillt náttúra er líka mikils virði, bæði tilfinningalega og efnahagslega. Fulltrúum orkurisans finnast þess- ar aðfinnslur ekki svara verðar og kjósa frekar að reyna að sverta heiður andmælenda sinna. Stjórnvöld og Landsvirkjun hafa beitt miklum hræðsluáróðri til að fá fólk á sitt band. Mönnum er sí- fellt talin trú um að framkvæmd- irnar auki lífsgæði í landinu og jafnvel hótað því að hér fari allt norður og niður ef ekkert verði úr þeim. Á sama tíma hefur verið reynt að fegra ásýnd fyrirtækisins með ýmsum leiðum. Til þess að prédika boðskap þennan hefur verið sóað ómældu opinberu fé og verða allar fullyrðinar um meintan fjáraustur umhverfisverndarsinna býsna létt- vægar í þeim samanburði. Sífellt er stagast á því að um- hverfisverndarsinnar séu fámenn klíka fólks sem hafi ekkert annað fyrir stafni en að vera á móti framþróun og uppbyggingu í land- inu. Hið rétta er að virkjunarand- stæðingar er stór hópur fólks úr ýmsum stéttum af öllum aldri og báðum kynjum víðs vegar af land- inu (líka af Austfjörðum). Ástæðan fyrir því að þeir virðast fámennir er einfaldlega sú að þeir hafa öðrum störfum að sinna dags daglega og geta því ekki stöðugt verið virkir í baráttunni fyrir mál- stað sínum. Enginn borgar þeim fyrir þær ófáu stundir sem fara í það. Sá rógur að þeir fjármagni baráttu sína með erlendu fjármagni kemur úr hörðustu átt frá manni sem þiggur væntanlega á annan tug milljóna árlega fyrir það að gjamma eins og hræddur hundur sem óttast það að einhver annar taki beinið hans. Hér er augljóslega á ferðinni mál sem skiptir fólk meiru en flest önn- ur mál. Þegar því er haldið fram að lífsgæði séu fólgin í virkjun óspilltrar náttúru er ljóst að aukin lífsgæði fyrir suma þýða minnkun á lífsgæðum fyrir aðra. Það eru jú ástæður fyrir því að fólk vill ennþá hokra hér á þessu kalda og harð- býla landi. Með því að spilla land- kostum og selja þá fyrir slikk er verið að minnka líkur á því að vel menntað og skynsamt fólk hafist hér við til langframa. Mörg önnur lönd bjóða upp á meiri fjölbreyti- leika í menningu og atvinnu, auk þess sem að loftslag er víða mun þægilegra en hér. Málefni markaðshyggjunnar eru hér því miður í hávegum höfð, bæði í fjölmiðlum og hjá stjórnvöldum. Aðalhugmyndafræðingur Sjálf- stæðisflokksins ritaði nýlega bók sem hann nefndi: „Hvernig getur Ísland orðið ríkasta land í heimi?“ Hvers konar ríkidæmi skyldi hon- um vera hugleikið? Hin raunverulegu lífskjör eru mæld í þáttum eins og því að búa í hreinu og óspilltu umhverfi, geta notið kærleiksríkra samvista við annað fólk, lifa heilbrigðu lífi á frið- artímum og eiga þak yfir höfuðið. Hversu mikils virði er það að geta drukkið ómengað vatn úr ám og vötnum? Hvaða verðskrá er í gildi fyrir hreint loft? Hvað kostar að heyra fuglana syngja? Er hægt að setja verðmiða á líf einnar mann- eskju? Hver er aðgangseyririnn inn í óbyggðir? Þessu geta hugsanlega markaðs- hyggjumenn svarað. Þeir sem pré- dika græðgi og telja fólki trú um að öll lífskjör séu mælanleg í pen- ingum og veraldlegum auði hafa tapað áttum og eru komnir alvar- lega út af sporinu. Nágrannalönd okkar í Evrópu eru að læra af stór- kostlegum mistökum sínum og af- leiðingum þeirra, svo sem Spán- verjar í Galicíu. Þurfum við endilega að gera sömu mistökin til að læra af þeim? Í raun og veru er hér á ferðinni aðför stjórnvalda að stórum hópi fólks sem hefur önnur gildi í lífinu og þá grundvallarósk að viðhalda hér eins óspilltri náttúru og frekast er unnt. Í nafni lýðræðis er troðið á skoðunum fólks og þeim sjálfsagða rétti að virða þær til að víðtæk sátt náist um stór ágreiningsefni. Hvers konar lýðræði er það eiginlega? Umhverfisráðuneytið svonefnda felldi úr gildi úrskurð skipulags- stofnunar um Kárahnjúkavirkjun og ráðherrann vék sér svo undan ábyrgð þegar kom að Þjórsárver- um. Er ekki hlutverk þessa ráðu- neytis að standa vörð um umhverfi okkar? Iðnaðarráðuneytið kýs að líta framhjá ráðum margra mætra sér- fræðinga og treystir frekar á loforð Alcoa. Hverjum eru þessi ráðuneyti eiginlega að þjóna? Landsvirkjun er tímanna tákn. Bergrisi sem atast eins og naut í flagi. Ef virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka og Þjórsárver verður aflýst tapast mikið fé. Hefði ekki verið nær að fara varlegar í sakirnar og ná sátt um þetta mál áður en göslast var af stað? Andstæðingar framkvæmdarinn- ar munu áfram standa vörð um sitt land. Þeirra er rétturinn að tjá sig og þeir láta ekki ofdekraða bit- lingamenn stinga upp í sig. Um lífsgæði og lýðræði Eftir Sigurð Sigurðsson Höfundur er framkvæmdastjóri. „Lands- virkjun er tímanna tákn. Berg- risi sem atast eins og naut í flagi.“ SÍÐASTA mál á dagskrá Alþingis fyrir þinglok var heimild til þess að breyta Norðurorku í hlutafélag, minni háttar mál að sögn iðnaðar- ráðherra og í ofanálag samkvæmt beiðni heimamanna á Akureyri. Undir þetta tóku þingmenn Sjálf- stæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar. Þingmenn VG vildu hins vegar efna til umræðu um mál- ið. Enginn stjórnarsinni treysti sér til að taka þátt í þeirri umræðu af málefnalegri alvöru. En hvað sögðu þingmenn VG? Í fyrsta lagi var bent á að skipulag raforkumála bæri að skoða heild- stætt og með hagsmuni þjóðarinnar allrar í huga, að áður en ráðist væri í skipulagsbreytingar af þessu tagi þyrfti að liggja fyrir fastmótuð framtíðarsýn í orkumálum lands- manna. Fyrir þinginu liggja órædd drög að nýju raforkulagafrumvarpi og einnig er órædd framtíðarsýn í vatnsveitumálum. Enginn stuðn- ingsmanna ríkisstjórnarinnar vék orði að þessum frumvörpum, enda nýframkomin. Í öðru lagi þarf að ræða hvort heppilegt sé að stoðkerfi samfélags- ins á borð við orkuveitur, að ekki sé minnst á vatnsveitur, séu settar á markað. Í því samhengi þarf að kanna reynslu annarra þjóða – og reyndar okkar eigin líka. Þannig er rétt að spyrja hvort það veki engar óþægilegar minningar fréttirnar af braskinu með fjármuni Landssím- ans þegar menn nú berja augum í frumvarpi um Norðurorku opna heimild til að ráðast í hvers kyns „viðskipta- og fjármálastarfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni“. Stjórnendur hluta- félagsins Landssímans töpuðu hundruðum milljóna króna á hluta- bréfabraski; köstuðu út um gluggann almannafé eins og ekkert væri sjálfsagðara. Var það ekki Hreinn Loftsson, formaður einka- væðingarefndar, sem fórnaði hönd- um af þessu tilefni og sagði að það hefði aldrei verið meiningin að gera Landssímann að braskbúllu? Hvað þessum þætti viðvíkur – þ.e.a.s. rekstrarforminu – má segja að stjórnarliðar hafi sýnt vott af lífs- marki í umræðunum og telst það sannast sagna til frétta. Björn Bjarnason staðhæfði að hlutafélags- formið hentaði þessum rekstri vel og það væri á ábyrgð stjórnvalda að skapa starfseminni eins ákjósanlegt lagaumhverfi og kostur er. Þetta innlegg stjórnarsinna hefði verið fagnaðarefni ef vilji hefði verið til að rökstyðja staðhæfinguna eftir að hún hafði verið véfengd með veiga- miklum rökum. Í fyrsta lagi var bent á að unnt væri að veita orkufyrirtækjum allt það svigrúm sem þau þurfa á að halda innan byggðasamlagsformsins eða sameignarfélagsformsins. Í öðru lagi hafi það sýnt sig að hlutafélags- formið sé afar slæmt rekstrarform frá sjónarhóli samfélagsins; eigend- ur hlutafélaga séu ekki áreiðanlegir bakhjarlar og að verðlagsþróun í einkavæddum hlutafélögum komi neytendum í koll þegar til lengri tíma sé litið. Í þessu sambandi er rétt að leggja áherslu á að hugsa þarf til langs tíma og með það í huga að raunverulegur hlutabréfamark- aður verði notaður en til þess er leik- urinn með hlutafélagavæðingu al- menningsfyrirtækja að sjálfsögðu gerður. Nánari rök fyrir þessu eru eftirfarandi: Eðli málsins samkvæmt sækja hlutafjáreigendur fyrst og fremst í fjárfestingar sem gefa mestan arð. Það hefur í för með sér að þeir eru ótryggir bakhjarlar. Nýleg dæmi um þetta er franski eða öllu heldur fjölþjóðlegi risinn Vivendi Univers- al. Hlutabréf í því fyrirtæki sem er eitt af stærstu vatnsveitufyrirtækj- um heimsins hafa á einu ári fallið um 80%. Ástæðuna má ekki hvað síst rekja til mjög glannalegra fjárfest- inga sem fyrirtækið réðst í undir stjórn forstjóra þess til sex ára, Jean-Marie Messier, en undir hans leiðsögn varð Vivendi að öðru stærsta fjölmiðlunarfyrirtæki heims! Franskar fjármálastofnanir þurftu að grípa til sérstakra aðgerða til að draga úr söluæði sem greip um sig í tengslum við skuldakreppu Viv- endi. Eitt stærsta orkufyrirtæki Bret- lands, British Energy, sem framleið- ir og selur 25% rafmagns í Bret- landi, hefur að undanförnu ítrekað sent út viðvörun um að án frekari aðstoðar frá opinberum aðilum stefni í gjaldþrot fyrirtækisins. Hlutabréf í fyrirtækinu kolféllu í september sl. Þetta gerðist þrátt fyrir neyðaraðstoð bresku ríkis- stjórnarinnar að upphæð 410 millj- ónir breskra punda sem veitt var til endurskipulagningar á fjármálum fyrirtækisins. Markaðsvirði hluta- fjárins er komið niður í 173,8 millj- ónir punda, samanborið við rúmar 2.000 milljónir punda fyrir ári. Þann- ig hefur verðgildi hlutabréfa fallið um 91% á einu ári og aldrei verið lægra í sögu fyrirtækisins. Fulltrúi stofnunar sem á hlutabréf í British Energy lét hafa eftir sér að ríkis- stjórnin hafi með fjárstyrk sínum bjargað fyrirtækinu tímabundið frá gjaldþroti. Eftir sé hins vegar að finna svar við þeirri grundvallar- spurningu hvað verða megi fyrir- tækinu til bjargar til framtíðar litið, en það tapi nú á framleiðslu raf- magns. Með öðrum orðum, þegar mest þarf á að halda hlaupa hluta- fjáreigendur á brott. Varðandi orkuverð er t.a.m. fróð- legt að líta á umfjöllun í norska Dag- blaðinu frá 22. september, en þar var sýnt fram á að markaðsvæðing hafi sprengt upp raforkuverð í Nor- egi. Vitnað er í talsmann norska Neytendaráðsins, Per Anders Stal- heim. Hann segir að norsk raforku- fyrirtæki raki saman milljörðum. Hagnaðurinn í rafmagnsgeiranum sé ævintýralegur. Árið 2000 hafi hagnaður norskra rafveitna verið um 11,6 milljarðar n.kr. og rafveit- urnar hafi greitt 3,7 milljarða n.kr. í arð til eigenda sinna. Þetta er orðinn markaður þar sem menn „háfa inn peninga,“ segir Stalheim. Það hlýtur að verða þeim sem hagnast hafa mest í íslensku efna- hagslífi á undanförnum árum um- hugsunarefni hvar auðveldast verði í framtíðinni að háfa inn gróðann. Skyldu kvótakóngar hugsa á þennan veg? Horfa kvótakóngar til orkugeirans? Eftir Ögmund Jónasson „Það hlýtur að verða þeim sem hagnast hafa mest í íslensku efnahagslífi á undanförnum árum um- hugsunarefni hvar auð- veldast verði í framtíð- inni að háfa inn gróðann.“ Höfundur er alþingismaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.