Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 74
FÓLK Í FRÉTTUM
74 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
enda má minna á frammistöðu Þor-
valds Bjarna Þorvaldssonar lagahöf-
undar við að semja tónlist við texta
Kristlaugar Maríu Sigurðardóttur í
leikriti hennar Ávaxtakörfunni, sem
enn lifir góðu lífi á myndböndum,
plötum og í útvarpi. Það er ekki annað
hægt að segja en að Þorvaldi takist
ákaflega vel upp hér líka. Hann leikur
sér að því að semja grípandi laglínur í
hinum ýmsu stíltegundum, allt frá
sveiflu-tónlist yfir í Andrew Lloyd-
Webber á Súperstar-tímabilinu. Stíll-
inn, hrynjandin og útsetningin taka
mið af hverri persónulýsingu. Gott
dæmi um þetta er lagið um „Tóta
tannálf“ þar sem hljóðfæravalið og
stuttir, sundurslitnir tónar í takt við
frábæra túlkun Tinnu Hrafnsdóttur
skapa sannfærandi mynd af þessum
glaðlynda velgjörðarálfi, en hraðir
sílófónhljómarnir minna á andstæður
hans Karíus og Baktus. Þorvaldi
finnst greinilega gaman að skipta
gersamlega um gír á milli laga sem
eykur á fjölbreytnina, en það má
nefna að notast er við fjölda hljóð-
færa, m.a. strengjakvartett og blást-
urshljóðfæri, en hljóðfæraleikur og
útsetningar eru alltaf til fyrirmyndar.
Flest lögin eru allfjörug og forðast að
hægja um of á taktinum nema til að
hraðinn hæfi virðuleika hinnar vitru
álfadrottningar eða lýsi hugleysi
drekans. Selma Björnsdóttir syngur
ekki bara listavel heldur gegnir einn-
ig hlutverki sögumanns sem tengir
lögin saman með sögubrotum. Björg-
vin Franz Gíslason sannaði svo um
munaði að hann gæti sungið í söng-
leiknum um Hedwig en hér er hann á
rólegri nótum – og röddin hljómar
enn betur. Lára Sveinsdóttir hefur
áður þurft að brýna raustina á leik-
sviði en hetjan Dídí er á allt öðrum
nótum og sungin undurblítt, enda
stúlkan sú til fyrirmyndar á öllum
sviðum. Sveinn Þórir Geirsson, Jó-
hann Sigurðarson og Hinrik Ólafsson
fá bitastæðari og margbreytilegri
hlutverk og túlkun þeirra er til fyr-
irmyndar. Jóhann og Hinrik eru gam-
alreyndir á þessu sviði en Sveinn Þór-
ir kemur skemmtilega á óvart –
frábær túlkun á hófstilltri illmennsku
og góður söngur. Söngtextar Andreu
Gylfadóttur eru fjörlegir og þjálir
sem slíkir en full tilþrifalitlir í sam-
anburði við orðfærið í bók og leikgerð.
Á síðari hluta hljómdisksins eru lögin
flutt aftur án aðalsöngraddar svo þeir
sem vilja geti sett sig í spor persón-
anna í leiknum og sungið af hjartans
lyst.
ÓLAFUR Gunnar Guðlaugsson
hefur á undanförnum fjórum árum
samið jafnmargar sögur um Benedikt
búálf auk þess að
myndskreyta bæk-
urnar sjálfur.
Bækurnar ein-
kennast annars
vegar af ævintýra-
legri frásögn af því
hvað drífur á daga
Dídíar og Arnars Þórs, mannabarna í
heimi álfa, dreka og þursa, og hins-
vegar af stílhreinum tölvuteikningum
af persónum og atburðum í teikni-
myndastíl. Það kemur því ekki á óvart
að hafinn er undirbúningur á því að
framleiða tölvuteiknimynd eftir sög-
unum þar sem Ólafur Gunnar mun
vinna með sömu aðilum og framleiddu
myndina um Litlu lirfuna ljótu.
Ólafur Gunnar samdi leikgerð af
fyrstu bókinni sem komst á fjalirnar í
október sl. og er sýnd í Loftkastalan-
um um þessar mundir. Útlitshönnun
Maríu Ólafsdóttur tekur mið af teikn-
ingum Ólafs Gunnars, en Gunnar
Gunnsteinsson leikstýrir valinkunn-
um hópi leikara sem leika frammi fyr-
ir þakklátum hópi áhorfenda af yngri
kynslóðinni sem þekkja persónurnar
af lestri bókanna.
Lögin lífga mikið upp á sýninguna
Tónlist
Ævintýri í
hljóðheimum
Ýmsir flytjendur
Benedikt búálfur
Draumasmiðjan/Skífan
Lög úr fjölskyldusöngleiknum Benedikt
búálfi sungin af Björgvin Franz Gísla-
syni, Hinriki Ólafssyni, Jóhanni Sigurð-
arsyni, Láru Sveinsdóttur, Selmu Björns-
dóttur, Sveini Þóri Geirssyni og Tinnu
Hrafnsdóttur. Gunnars Gunnsteinssonar
leikstýrðu uppfærslunni sem sýnd er í
Loftkastalanum. Höfundur upphaflegrar
sögu, leikgerðar og myndskreytinga:
Ólafur Gunnar Guðlaugsson. Höfundur
tónlistar: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Höfundur söngtexta: Andrea Gylfadótt-
ir. Undirleikur: Bryndís Halla Gylfadóttir
(selló), Eiður Arnarsson (bassi), Einar
Jónsson (trompet), Guðmundur Krist-
mundsson (lágfiðla), Hafþór Guðmunds-
son (trommur), Kjartan Valdemarsson
(píanó og harmonikka), Olga Ólafsdóttir
(fiðla), Ólafur Hólm Einarsson (tromm-
ur), Roland Hartwell (fiðla), Sigurður
Flosason (saxófónn, klarinett og flauta)
og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson (gítar,
hljómborð og forritun). Upptökustjórn
og útsetningar: Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson. Skífan gefur út.
Sveinn Haraldsson
SÍÐAN gítarleikarinn góðkunni
Friðrik Karlsson fluttist búferlum
til Bretlandseyja
fyrir sex árum
hefur hann haft
nóg fyrir stafni í
tónlistinni. M.a.
hefur Friðrik verið
stórtækur í útgáfu
á slökunartónlist,
sem stundum er kölluð nýaldar-
eða hugleiðslutónlist. Feng Shui er
sjötti diskurinn þeirrar tegundar
og lýtur svipuðum lögmálum og
þeir fyrri.
Tónlist þessarar tegundar nýtur
ákveðinna reglna og er háð ákveð-
inni virkni, þ.e. henni er ætlað að
vera róandi og er þessi geiri sem
slíkur ansi víðfeðmur og stór þótt
lágt fari.
Friðrik er sjálfur mikill áhuga-
maður um hvers kyns andans iðkun
en slíkt þarf ekki endilega að fylgja
þeim sem ástunda gerð þessarar
tónlistar. Því er hægt að gera ráð
fyrir því að Friðrik stundi þetta af
nokkrum heilindum. Af Feng Shui
að dæma er a.m.k. hægt að stað-
festa það og er sú niðurstaða feng-
in með tiltölulega einfaldri tilraun:
Diskurinn virkar. Hann sefar mann
og róar, áreitir ekki og það sem
mest er um vert, pirrar ekki en
svona tónlist er vandmeðfarin, oft
er hún óttalega klén og þreytandi,
öfugt við að vera slakandi.
Lögin hér, eða kannski öllu held-
ur verkin/hlutarnir eru fimm, öll yf-
ir tíu mínútur að lengd. Framvind-
an er róleg og naumhyggjuleg,
lágvær tónlistin silast áfram þar
sem þægilegt gítarplokk er í for-
grunni en sveimkennt hljómborð
lúrir í bakgrunni.
Eins og nafnið gefur til kynna er
kínverska hugmyndafræðin Feng
Shui það sem tónlistin snýst um
hér. Sú speki gengur m.a. út frá því
að viss frumefni, eins og vatn, loft
og tré þurfi að vera í nánasta um-
hverfi manns, svo nægjanlegt jafn-
vægi náist, ásamt heilbrigðu orku-
flæði. Skýrir það titla þeirra fimm
verka sem hér eru, þ.e. „Tré“,
„Vatn“, „Loft“, „Eldur“, „Jörð“. Í
fljótu bragði get ég ekki séð að tón-
listin falli betur að þeim fræðum en
önnur róandi tónlist og það eina
sem gefur hinn austræna útgangs-
punkt til kynna eru stuttir,
„plonk“-legir strengjahljómar.
Ekki það að það skipti neinu máli,
höfumarkmiðið er eins og áður seg-
ir að sefa, og sú ætlan er að gera
sig hér.
Það er óhætt að mæla með þess-
um diski, en ég tek fram sem slík-
um. Markmiðið hér er engan veg-
inn að gera tónlist til að hreyfa við
fólki, ákveðið notagildi er það sem
höfundur leggur upp með fyrst og
fremst. Og í þeim efnum er árangr-
inum náð, næsta fullkomlega.
Í friðar-
garðinum
Friðrik Karlsson
Feng Shui
Skífan
Feng Shui, slökunartónlist eftir Friðrik
Karlsson eða tónlist til að efla nátt-
úrulegt orkuflæði eins og segir í und-
irtitli. Diskurinn er sá sjötti í Vellíðunar-
röð listamannins. Öll tónlist samin og
flutt af Friðriki Karlssyni. Honum til að-
stoðar voru Andy Findon (flauta) og Cor-
ina Silvester (slagverk).
Arnar Eggert Thoroddsen
ekki einföldustu leiðina í lagasmíð-
um. Flakkað er af öryggi á milli
kraftmikilla og hávaðasamra rokk-
ara og ballöðukenndari laga.
Hugsið ykkur spyrðing þar sem
saman fara Led Zeppelin, á þeim
tíma er III kom út og þyngri útgáfu
af Creed, án gípandi króka. Það ætti
að gefa grófa hugmynd en Moonstyx
búa þar fyrir utan yfir eigin stíl sem
lúmskt erfitt er að pinna niður.
Það er mikið í þessa plötu lagt og
auðsýnanlega metnaður í gangi sem
er að sjálfsögðu jákvætt. Innihaldið,
þ.e. sjálf tónlistin, nær þó ekki að
uppfylla þau loforð sem liggja á
teikniborðinu. Lagasmíðarnar skilja
þannig lítið eftir sig, eru óeftirminni-
legar og á einhvern undarlegan hátt
flatar. Ég segi undarlega því nóg er
að gerast í lögunum, kafla- og takt-
breytingar til hægri og vinstri og
stengjaplokk upp og niður hálsa.
Melódíurnar fanga engu að síður
ekki og lögin óttalega stefnulaus.
Mörg hver dragnast þunglamalega
áfram, verða að engu þar sem þau
flækjast um sjálf sig í óþarfa of-
hleðslu og skrauti og fletjast þannig
út. Söngurinn hjálpar heldur ekki,
seimurinn fremur leiðigjarn til
lengdar.
Frágangur og umslag er til fyr-
irmyndar, smekklega að því staðið.
Spilamennska er svo og vönduð og
þéttleikinn er eitthvað sem þarf ekki
að hafa áhyggjur af. En það þurfa að
koma til beittari lagasmíðar og betri
úrvinnsla á pælingum ætli Moonstyx
að marka sér einhver spor í framtíð-
inni.
MOONSTYX leika rokktónlist
sem mætti lýsa
sem einhvers kon-
ar framsæknu
gruggi. Áhersla er
töluverð á fram-
sækna hlutann,
mikið um gítaræf-
ingar og segja mætti að sveitin fari
Þungur
róður
Moonstyx
The Day After Tomorrow
Íslenskar járnbrautir
The Day After Tomorrow er fyrsta plata
Moonstyx. Sveitin er skipuð þeim Leifi
(bassi), Baldwini (hljómborð, gítar),
Halla (trommur), Helga Val (gítar og
söngur) og Þór (gítar). Meðlimir semja
lög og texta. Upptaka var í höndum
sveitarinnar og naut hún aðstoðar Har-
alds Vignis Sveinbjörnssonar og
Matthíasar Matthíasarsonar.
Arnar Eggert Thoroddsen
Sérstök jólasýning!
29. des. kl. 14. örfá sæti laus
5. jan. kl. 14 laus sæti
12. jan. kl. 14. laus sæti
19. jan. kl. 14. laus sæti
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Munið gjafakortin!
Lau 28/12 kl. 21 Jólasýning
Nokkur sæti
Fös 3/1 kl. 21 Uppselt
Lau11/1 kl 21
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt
á Grettissögu
sun 29. des kl. 20,
HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti
föst 10. jan, kl 20, laus sæti
lau 18. jan, kl 20.
Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is
Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00.
Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni
fyrir sýningu á www.hhh.is
Stóra svið
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Frumsýning lau 11/1kl. 20 UPPSELT
2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort, UPPSELT
3. sýn fö 17/1 kl. 20 rauð kort 4.sýn lau 18/1 græn kort
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20
Sýningum fer fækkandi
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 29/12 kl 14, Su 12/1 kl 14,
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20
Síðustu sýningar
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Má 30/12 kl 20, UPPSELT,
Fö 3/1 kl. 20
SÓL & MÁNI eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Su 29/12 kl 20, Fö 3/1 kl. 20
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF
JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS
Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl.
Su 5/1 kl 14 og 15 - Kr 500
15:15 TÓNLEIKAR
Takemitsu, George Crumb. Benda
Í kvöld kl 22 - ath. breytan tíma
MIÐASALAN ER OPIN TIL KLUKKAN 22:00 Í KVÖLD
Jólasöngvar
Kórs Langholtskirkju
í Langholtskirkju
Lau. 21. des. kl. 23:00
Sun. 22. des. kl. 20:00
Kór Langholtskirkju
Gradualekór Langholtskirkju
Stjórnandi:
Jón Stefánsson
Einsöngvarar:
Ólöf Kolbrún Harðardóttir
Ólafur Kjartan Sigurðarson
Úrvals hljóðfæraleikarar
Kakó og piparkökur í hléi
Ógleymanleg jólastemmning
Miðasala í Langholtskirkju
og við innganginn
klang@kirkjan.is
Hversdagslegt
kraftaverk
eftir Évgení Schwarz
Leikstjóri: Vladimir Bouchler.
sýn. í kvöld 21.12. kl. 19 nokkur sæti
fös. 27.12. kl. 20
lau. 28.12. kl. 19
Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum
í leikhúsið yfir jólin.
Vörðufélagar fá 25% afslátt geng
framvísun gulldebetkorts
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is