Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ        BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. TILEFNI þessa bréfs er sú villi- mennska, sem viðhöfð var þegar bæjarstjóri Vesturbyggðar, með vopnaðan forðagæslumann sér til fulltingis, fór í haust nokkrar ferðir í Tálkna, sem er milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar, í þeim tilgangi að útrýma því villta sauðfé, sem þar hefur þrifist áratugum saman. Um er að ræða 30–50 dýr sem voru skotin á færi, og hræin skilin eftir þar sem þau lentu þegar þau voru skotin niður úr klettunum. Um- ræddur stofn hefur þróast þarna á afmörkuðu svæði í allavega 36 ár að sögn landeiganda, og orðinn all sér- stakur frá náttúrunnar hendi, afföll lítil og stofninn alltaf hjarnað við aftur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að útrýma honum, þ. á m. með loftárásum. Þessar kindur höfðu fengið frið núna í ein 6–8 ár, eftir að rannsóknir staðfestu að þær báru ekki með sér riðusmit og því ekki hægt að réttlæta útrýmingu með sýkingarhættu. Mér undirrituðum er fyrirmunað að sjá tilefni þessara villimannslegu geðþóttaaðgerða nema þá hvatir þessara manna, þó þeir reyni að bera fyrir sig mann- gæsku og því að þeir séu að fram- fylgja lögum um sauðfjárveikivarn- ir og búfjárhald.Tel ég það ekki vera rök, hér er ekki um búfé að ræða heldur villtan sauðfjárstofn, á svæði sem ekki hefur verið nýtt sem afréttur í ein 20 ár og enginn á leið um nema lágfóta og fuglinn fljúgandi. Varðandi sauðfjárveiki- varnirnar þá fara þær fyrir lítið þar sem það er staðfest að stofninn var heilbrigður. Því stafaði ekki smit- hætta af honum, nema mennirnir hafi verið að fyrirbyggja að villiféð smitaðist. Sóttvarnargildið fer fyrir lítið þegar hræin eru skilin eftir óvarin á víðavangi sem fóður fyrir varg. Varðandi þau orð bæjarstjórans að um venjulega smalamennsku hafi verið að ræða, þar sem hreppa- mörk skiptu engu, leyfi ég mér að halda fram að væri bóndi staðinn að slíkum athöfnum á eigin búfé væri hann handtekinn. Tel ég að þessir menn séu mikið veikir og ættu að leita sér lækninga hið fyrsta. Hver eru skilaboðin? Mega menn nú fara út á Látra- bjarg og skjóta rollur, bara ef þeir hafa byssuleyfi og veiðikort? ÓLAFUR GUNNBJÖRNSSON, Túngötu 33, 460 Tálknafirði. Leynileg útrýming villtra sauðkinda í Tálknafirði Ólafur Gunnbjörnsson skrifar HVERNIG lifir námsfólk á Íslandi af? Það á annaðhvort nógu efnaða for- eldra til að kosta það í skóla eða það vinnur. Það að vinna svona mikið með skólanum tíðkast hvergi annarsstað- ar á Norðurlöndunum. Á Íslandi er hæsta hlutfall af Norðurlöndunum sem dettur úr skóla og svo er kvartað yfir stressi á Íslandi? Hvernig er ann- að hægt en að vera stressaður ef mað- ur þarf að vera í skóla, vinna og samt að finna tíma til að lifa lífinu? Er þá skrýtið að við séum alltaf á hraðferð hvert sem við erum að fara? Ég heyri mjög oft. „Þú átt að lifa lífinu meðan þú ert ung“ HVERNIG??? Hvar á ég að finna tímann til þess? Geta fyrir- tækin ekki hjálpað okkur námsmönn- unum aðeins? Endum við ekki öll hjá einhverju fyrirtækinu? Ef námsfólk fengi borgaðar 200 krónur fyrir hvern tíma sem það mætti í skólann þá væri það mjög mikil hvatning þó þetta sé ekki mikill peningur á hvern klukku- tíma. Hver hefur ekki heyrt frasann um að nám sé vinna? Enn sem komið er er þetta ólaunuð vinna hér á landi. Fleira fólk færi í skóla ef það sæi leið til að geta staðið sig í skóla og samt lif- að af. Þeir sem verst eru settir í þjóð- félaginu hættu flestir í skóla þegar þeir luku grunnskóla eða „droppuðu“ út á fyrsta ári. Af hverju heldur sumt fólk ekki áfram í skóla þrátt fyrir ágætis gáfur? Að sjálfsögðu eru margar hliðar á þessu máli, en ég sé enga ástæðu fyrir því að umbuna ekki þeim sem eru að reyna að verða eitt- hvað seinna meir, á því hlýtur fram- tíðin að byggja. Í dag áttu ekki mikla möguleika á því lífi sem þú vilt lifa nema þú klárir að minnsta kosti stúd- entinn. Það er erfitt að þurfa að eyða æskuárunum í að reyna að ná endum saman til að geta vonandi orðið eitt- hvað í framtíðinni. 60.000 krónur á mánuði fyrir að stunda sitt nám, mundi bjarga mörgum námsmannin- um frá því að fá algjört ógeð á skól- anum. Námsmenn þurfa líka að borða, þeir þurfa líka að lifa. Á enda- laust að refsa fólki fyrir að vilja mennta sig? Verðum við í alvörunni að bíða svona rosalega lengi eftir að fá einhverja smá umbun erfiðisins? Í fyrsta lagi eyða þeir sem geta tekið námslán oft mörgum árum í að borga þau lán upp, og það hafa ekki einu sinni allir rétt á námslánum. Í öðru lagi er erfitt fyrir margan námsmann- inn að finna sér vinnu með skólanum, auk þess sem vinnan tekur tíma sem hefði getað farið í námið. Við viljum öll fá háar einkunnir, en hvernig eig- um við að geta lagt okkur eins vel fram í náminu og við viljum ef við þurfum að hírast í einhverri illa laun- aðri vinnu 3 tíma á dag meðfram 8 klukkustunda skóladegi? Þá kemur maður heim, setur fæturna upp á borð og sofnar yfir sjónvarpinu! Vaknar svo um miðja nótt „Sjitt!! Ég er að fara í próf á morgun“. KRISTBJÖRG E. HREINSDÓTTIR, námsmaður, Heiðmörk 38, Hveragerði. Hvað er til ráða við brottfalli framhaldsskólanema? Frá Kristbjörgu E. Hreinsdóttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.