Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 30
SUÐURNES
30 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vináttu-
englar
sími 462 2900
Blómin
í bænum
ÍBÚÐARHÚSIÐ á Borgarvegi 25
í Njarðvík var í gær útnefnt
Ljósahús Reykjanesbæjar 2002.
Úrslit í sérstakri samkeppni um
ljósahús og jólaglugga voru til-
kynnt við athöfn í Duus-húsum í
gær.
Um 40 hús voru tilnefnd til
keppninnar og voru eigendur
þeirra viðstaddir athöfnina. Fram
kom í máli Önnu Steinunnar Jón-
asdóttur, formanns dómnefndar,
að nefndinni hefði verið vandi á
höndum við valið því mörg hús í
bænum væru mikið skreytt.
Komst hún þannig að orði að
Reykjanesbær breyttist í Ljósabæ
yfir hátíðirnar.
Hörð keppni
Mjótt var á mununum við val
milli þeirra húsa sem lentu í
tveimur efstu sætunum. Fyrir
valinu varð Borgarvegur 25 í
Njarðvík en eigendur þess húss
eru Margrét Örlygsdóttir og
Gunnar Sigurðsson. Þeirra hús
varð í þriðja sæti í þessari sam-
keppni á síðasta ári og var valið
Ljósahús ársins 2000.
Í öðru sæti í keppninni varð
húsið Týsvellir 1 í Keflavík en
eigendur þess eru hjónin Grétar
Ólason og Þórunn Sigurðardóttir.
Þeirra hús var útnefnt Ljósahús
Reykjanesbæjar á síðasta ári. Í
þriðja sæti að þessu sinni varð
Móavegur 3 í Njarðvík.
Björk Guðjónsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, afhenti eigendum
húsanna viðurkenningar og auk
þess inneign á rafmagnsreikning
sem Hitaveita Suðurnesja gefur.
Dómnefnd útnefndi sérstakt
Jólahús. Sá titill kom í hlut Bog-
arvegar 30 í Njarðvík. Norð-
urvellir 12-22 í Keflavík voru
taldir hafa fallegustu skreyt-
inguna á raðhúsi og Vinaminni,
Aðalgata 5 í Keflavík, er með fal-
legustu jólaskreytinguna af þeim
fjölbýlishúsum sem tilnefnd voru.
Gatan Bragavellir í Keflavík
var talin hafa fallegustu heild-
armynd af götum bæjarins, þegar
litið er til skreytinga nú fyrir jól-
in.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Til hægri á myndinni er Margrét Örlygsdóttir með syni sína, Sigurð og Ör-
lyg Erni, og við hlið hennar eru hjónin Grétar Ólason og Þórunn Guð-
mundsdóttir með börn sín, Grétar Þór og Erlu Guðrúnu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ljósahús Reykjanesbæjar 2002 er á Borgarvegi 25 í Njarðvík. Fjölskyldan kemst ekki í jólaskapið fyrr en búið er að skreyta garðinn og húsið að utan.
Reykjanesbær
Loks var útnefndur Jólaglugg-
inn 2002, það er að segja sá
verslunargluggi sem dómnefnd
telur hafa skemmtilegustu útstill-
inguna fyrir jólin. Sá titill kom í
hlut verslunarinnar Persónu sem
er á Hafnargötu 29 í Keflavík.
Sérstök dómnefnd valdi jóla-
gluggann og kom fram í máli
Braga Einarssonar formanns
hennar að gluggi Persónu hefði
þótt bera af. Hann væri einfald-
asti og fallegasti verslunarglugg-
inn í bæjarfélaginu.
Ljósahúsið er á
Borgarvegi 25
„ÞETTA er voðalega gaman,
að lýsa upp svartasta skamm-
degið,“ sagði Margrét Örlygs-
dóttir, annar eigandi Borg-
arvegar 25 sem valið var
Ljósahús Reykjanesbæjar, í
samtali við blaðamann í gær.
Margrét segist lengi hafa
skreytt húsið og nú væri eig-
inmaðurinn, Gunnar Sigurðs-
son, farinn að smitast. Synir
þeirra, Ragnar Ólafsson, Sig-
urður Gunnarsson og Örlygur
Ernir Gunnarsson, töluðu um
að jólastemningin væri ekki
komin fyrr en mamma og
pabbi væru búin að skreyta úti.
Margrét segist ekki hafa
bætt miklu við frá því í fyrra,
sett upp jólasveinastromp og
jólatré en líka tekið niður ann-
að á móti. Þá hefði hún breytt
um lit. Það tók hana tvo eða
þrjá dagparta að setja jóla-
ljósin upp.
Margrét segir að mikið sé af
fallega skreyttum húsum í
Reykjanesbæ, jafnfallegum og
hennar, og hún hafi því alls
ekki búist við útnefningunni.
Það má til sanns vegar færa
því þótt eigendum allra þeirra
húsa sem tilnefnd voru hafi
verið boðið til verðlaunaaf-
hendingarinnar í gær gleymdi
Margrét að mæta. Sam-
keppnin var ekki ofar í huga
hennar en það.
Stemningin
kemur með
jólaljósunum
Árleg skötuveisla er í dag hjá
lionsklúbbnum Keili í Vogum.
Veislan er í Lionsheimilinu, Ara-
gerði 4, og stendur frá 12 til 22.
Undanfarin ár hefur skötuveislan
notið mikilla vinsælda hreppsbúa
sem annarra.
Lionsfélagar vinna að skötuveisl-
unni í sjálfboðavinnu og rennur
allur ágóðinn til líknarmála.
Boðið er upp á kæsta skötu og
saltfisk með öllu því sem fylgja
þarf með, svo sem hamsatólg, rúg-
brauð og rófur. Í tilkynningu frá
Keilisfélögum kemur fram að auk
þess að njóta hefðarinnar með því
að borða skötu í tilefni Þorláks-
messunnar og styðja gott málefni
geti fólk losnað við hina annars
ágætu skötulykt úr húsum sínum
með því að borða í Lionsheimilinu.
Í DAG
Ekki ráðist
í rannsókn-
ir á land-
námsminj-
um í sumar
Hafnir
GERÐ hefur verið fimm ára áætlun
um uppgröft og rannsóknir á land-
námsbýlinu Vogi í Höfnum. Kostn-
aður í sumar er áætlaður rúmar 12
milljónir kr. og telur bæjarráð
Reykjanesbæjar sér ekki fært að
vinna að málinu að sinni.
Við fornleifaskráningu vegna und-
irbúnings endurskoðunar aðalskipu-
lags Reykjanesbæjar sá Bjarni F.
Einarsson móta fyrir skála í Höfn-
um. Eftir tilraunauppgröft og nánari
skoðun telur Bjarni allar líkur á að
þetta sé býli frá landnámsöld.
Í áætlun um framkvæmdir sem
lögð hefur verið fram skiptir hann
vinnunni á fimm sumur og leggur til
að á þeim tíma verði reynt að fá
heildstæða mynd af landnámsbýli á
Íslandi. Varla sé hægt að tala um að
slíkar minjar séu til á Íslandi. Lagt
er til að grafið verði í tvo mánuði
næsta sumar, við landnámsskálann
sjálfan og eina til tvær rústir til við-
bótar, en næstu sumur verði grafið í
allar rústir á bæjarstæðinu.
Vinsæll staður til skoðunar
Varpar Bjarni fram þeirri hug-
mynd að rústirnar verði tyrfðar að
lokinni rannsókn þannig að veggir,
langeldur og annað grjót verði sýni-
legt. Síðar mætti huga að því að setja
þak yfir minjarnar og byggja þannig
upp svokallaðan tilgátubæ. Bendir
Bjarni á að slíkir staðir njóti mikilla
vinsælda á hinum Norðurlöndunum.
Bjarni Einarsson áætlar að beinn
kostnaður við vinnu fornleifafræð-
inga og rannsóknir í tvo mánuði í
sumar verði rúmar 12 milljónir kr.
Er þá ótalinn annar kostnaður, svo
sem við tæki og vinnu sem félli beint
á sveitarfélagið. Böðvar Jónsson,
formaður bæjarráðs, segir að kostn-
aður við þessa tveggja mánaða vinnu
væri of mikill til þess að mögulegt
væri að ráðast í verkefnið nú, sér-
staklega þar sem ekki hefði verið
gert ráð fyrir honum í fjárhagsáætl-
un sem búið væri að samþykkja.
Hann segir að ef það finnist hag-
kvæmari leiðir til að vinna verkið sé
sjálfsagt að skoða málið aftur.
Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðu-
maður Byggðasafns Reykjanesbæj-
ar, hefur mikinn áhuga á að ráðist
verði í þetta rannsóknarverkefni
sem fyrst. Líklega verði þó að stefna
að árinu 2004. Hún segir að ekki séu
miklir peningar lagðir í fornleifa-
rannsóknir hér á landi. Frumkvæði
þessa verkefnis verði því að koma frá
sveitarfélaginu og síðan verði reynt
að afla styrkja frá öðrum aðilum.
alltaf á föstudögum