Morgunblaðið - 21.12.2002, Síða 33

Morgunblaðið - 21.12.2002, Síða 33
Í gær hófust viðskipti með hlutabréf Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi. Söguleg þáttaskil í rekstri félagsins eru orðin að veruleika og um leið markar skráningin tímamót í sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði. Kaupþing er eina íslenska félagið sem skráð er samhliða á íslenskum og erlendum verðbréfamarkaði og í samþykki sænska fjármálaeftirlitsins felst viðurkenning á íslenska verðbréfamarkaðnum og þeim fyrirtækjum sem þar eru skráð. Eftir mikið uppbyggingarstarf í tuttugu ár hefur Kaupþing fært út kvíarnar og gert Norðurlöndin að heimamarkaði sínum. Eftir kaupin á verðbréfafyrirtækinu Aragon og síðan sænska bankanum JP Nordiska starfar Kaupþing nú sem norrænn fjárfestingarbanki. Auk reksturs í Lúxemborg, Genf og New York er félagið með starfsemi í fimm borgum á Norðurlöndum: Reykjavík, Kaupmannahöfn, Helsinki, Þórshöfn og Stokkhólmi og stefnan er óhikað sett á frekari landvinninga á þeim vettvangi. Markaðsvirði félaga á sænska hlutabréfamarkaðnum er um 40% af heildarvirði félaga á norrænum markaði. Samanlögð verðmæti félaga á íslenska hlutabréfamarkaðnum eru um 1,4% af norræna markaðnum og Kaupþing tekur sér nú stöðu á meðal tæplega 300 fyrirtækja sem þar eru skráð. Eftir innkomu Kaupþings á sænskan markað er um fjórðungur félagsins í erlendu eignarhaldi, starfsfólki hefur fjölgað um ríflega tvö hundruð og gert er ráð fyrir að um 70% af tekjum Kaupþings komi frá starfseminni erlendis. Markaðsvirði félagsins þann 18. desember sl. var um 27,3 milljarðar íslenskra króna og samkvæmt níu mánaða uppgjöri er eigið fé tæplega 18 milljarðar og heildareignir 218 milljarðar íslenskra króna. Með kaupum á JP Nordiska fjölgar hluthöfum Kaupþings um rúmlega sex þúsund og eru þeir nú um sautján þúsund. Heildarfjöldi starfsmanna er um 560 og af þeim eru yfir 300 starfandi á erlendum vettvangi. Hin trausta undirstaða útrásar Kaupþings felst í samhentum hópi starfsfólks og einstöku samstarfi við stóran hóp íslenskra viðskiptamanna. Mikil þekking og reynsla hefur safnast upp á undanförnum árum og í krafti hennar verður haldið áfram á sömu braut með hagsmuni hluthafa og viðskiptavina að leiðarljósi. Skráning Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.