Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 60
UMRÆÐAN 60 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ skart og perlur skólavörðustíg 12 á horni bergstaðastrætis sími 561 4500 Hin sígildu borðbúnaðarmynstur EXELENS og PRINSESSAN KORNELÍUS BANKASTRÆTI 6 S. 551-8588 VERÐSTRÍÐIÐ sem nú geisar á íslenskum kjötmarkaði hefur sjálf- sagt ekki farið framhjá neinum. Al- menningur nýtur auðvitað góðs af slagnum meðan á honum stendur og margir hafa birgt sig vel upp af kjöti. En því miður hafa þessi ótrúlega hagstæðu tilboð sínar skuggahliðar. Ekki þarf klókan reikningsmann til að sjá að þegar vara er seld í stórum stíl á verði sem er undir framleiðslu- kostnaði safnast upp tap sem greiða þarf síðar meir. Hverjir tapa mestu? Þetta er m.a. afleiðing af sam- þjöppun sem hefur fært mestalla svína- og kjúklingarækt í landinu yf- ir í hreinan verksmiðjubúskap sem kallar á mikla fjárfestingu og fyrir- greiðslu í bankakerfinu. Nú virðist komið á daginn að bankarnir hafi of- metið greiðslugetu stærstu aðilanna í svínakjöts- og kjúklingaframleiðslu og grípi til örþrifaráða við að ná til sín sem mestu af skuldum sem myndu tapast við gjaldþrot. Að bankar séu að stórum hluta farnir að reka afurðastöðvar boðar ekkert gott, hvorki fyrir framleiðendur né neytendur. Það er engin tilviljun að víða hafa samkeppnisyfirvöld gert athuga- semdir við það að bankar séu of tengdir rekstri sláturhúsa og afurða- stöðva. Hverjir munu tapa mestu á mörghundruð milljón króna afskrift- um í þessum búgreinum? Hvað munu gjaldþrotin kosta landsmenn og hvernig standa framleiðendur þegar verðstríðið verður gert upp? Það er ekki í þágu neytenda að bankakerfið reki hér í raun gjald- þrota fyrirtæki og stuðli þannig að undirboðum á kjötmarkaðnum. Slíkt er hvorki eðlilegt né sanngjarnt enda hlýtur það að stórskaða samkeppn- isstöðu annarra framleiðenda. Neyt- endur munu svo borga brúsann síðar meir. Enginn ber ábyrgð á svindlinu Það er alvarlegt mál þegar svo óeðlileg samkeppni bætist ofan á þau vandræði sem margir sauðfjár- og nautgripabændur eru enn að glíma við eftir gjaldþrot Goða sem síðast hét Kjötumboðið. Kjötið sem fyrir- tækið keypti af bændum á lægra verði til útflutnings fór aldrei úr landi heldur var því dengt á innan- landsmarkað sem aftur dró úr sölu á nýju kjöti nú í haust. Gjaldþrotið er því enn að skaða greinina ári síðar og það einkennilega er að enginn virðist bera ábyrgð á svindlinu með útflutn- ingskjötið. Þegar á heildina er litið kallar þetta allt á endurskoðun þeirrar hugmyndafræði sem leggur hag- kvæmni stærðarinnar til grundvall- ar í landbúnaði. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur til þessa varað við þeirri stefnu sem ýtir undir verk- smiðjubúskap í flestum greinum og mun gera það áfram. Það er löngu kominn tími til að leggja eyrun við sí- auknum kröfum neytenda í iðnvædd- um ríkjum um lífræna framleiðslu og landbúnað í sátt við umhverfið í stað- inn fyrir verksmiðjubúskap. Við eig- um vaxtarbrodd á þessu sviði hér á landi en að honum þarf að hlúa og fylgja framleiðslunni vel eftir, bæði innanlands og á erlendum mörkuð- um. Hverjir greiða herkostnaðinn eftir kjötstríðið? Eftir Þuríði Backman „Kjötið sem fyrirtækið keypti af bændum á lægra verði til útflutnings fór aldrei úr landi.“ Höfundur er alþingismaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. ÖLLUM er ljóst að mikil upp- bygging hefur verið í Mosfellsbæ síðustu 8 ár í valdatíð meirihluta B- og G-lista fólks, eftir mikið stöðn- unarskeið sjálfstæðismanna 20 árin þar á undan. Ekki hafði verið gert við leka skóla né þeir fullkláraðir og lítið sem ekkert hugsað til framtíð- ar, hvað þá að þeim hafi dottið það í hug að einsetning skóla kæmi nokk- urn tíma til. Að einsetja skólana í Mosfellsbæ hefur kostað um 1,3 milljarða og slíkar fjárfestingar eru greiddar upp á löngum tíma. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, sem hefur það hlutverk að fylgjast með fjármálum allra sveitarfélaga í land- inu, hefur kynnt sér fjármál og framtíðarplön bæjarins og hún lagt blessun sína yfir öll plön í tíð fyrri meirihluta. Ársreikningar bæjar- félagsins sýna að skuldir bæjarsjóðs hafa aukist vegna fjárfestinga og framkvæmda en að bæjarsjóður skilaði alltaf góðum afgangi frá rekstri. Engin sóun hefur verið á fjármunum, síður en svo. Lesa má í dagblöðum og tímaritum síðustu vikur og mánuði að Mosfellsbær kemst ekki á blað yfir skuldugustu sveitarfélög landsins. Sannleikurinn er ætíð sagna bestur og fullyrðing- um um annað vísa ég til föðurhús- anna. Á bæjarstjórnarfundi 4. des. sl. var lögð fram fjárhagsáætlun Mos- fellsbæjar fyrir árið 2003 og endur- skoðuð áætlun fyrir árið sem er að líða. Í endurskoðaðri áætlun má lesa að rekstrarútkoma seinni hluta þessa árs í valdatíð þessara „fjár- málasnillinga“ hefur versnað um 140 milljónir. Ekki er það fyrri meirihluti sem stýrði bæjarfélaginu á þeim tíma. Áætlunin fyrir árið 2003 er frum- raun nýs meirihluta sjálfstæðis- manna sem tók við í vor. Áætlunin veldur mér miklum vonbrigðum og er mjög fálmkennd og ómarkviss, uppfull af miklum hækkunum á íbúa bæjarins, en í kosningabaráttunni sögðust sjálfstæðismenn myndu endurskipuleggja og gæta aðhalds í rekstri. Álögum yrði stillt í hóf. Hverjar eru efndirnar? Álögunum er stillt í hvílíkt óhóf sem sjá má hér að neðan: Íslandsmet í hækkunum hef ég nefnt þetta og gæti hugsanlega ver- ið Evrópumet. Þessar álögur bitna á öllum en allra mest á barnafjölskyldum og má áætla að hjón, sem eiga 4 til 5 herbergja íbúð og eru með 2 börn á leikskólaaldri og 1 barn í grunn- skóla, þurfi að greiða nálægt 200.000 krónum meira á næsta ári. Brúttólaunin þurfa að vera um 30.000 krónum meiri pr. mánuð til að mæta þessum hækkunum. Það hefur aldrei verið meiningin að greiða skuldir bæjarins upp á ógn- arhraða og hvað þá að efnalitlar barnafjölskyldur taki það að sér. Er nýr meirihluti farinn á taugum? Er verkefnið þeim ofviða? Svona spurn- ingar koma upp í huga manns. Það er þokkalegur jólaglaðningur sem núverandi meirihluti sendir bæjarbúum eða hitt þó heldur. Gleðileg jól og farsælt nýtt ár og þökk fyrir það liðna. Hækkanaskriða sjálfstæð- ismanna í Mosfellsbæ Eftir Þröst Karlsson Höfundur er bæjarfulltrúi B-listans. „Þessar álögur bitna á öllum en allra mest á barna- fjölskyldum.“ ÁKVÖRÐUN miðstjórnar Sjálf- stæðisflokksins um að fjalla ekki efn- islega um gildi prófkjörs í Norðvest- urkjördæmi byggist á fremur ósannfærandi lögfræðilegum for- sendum. Afstaða miðstjórnar bygg- ist á því að hún sé einungis bær til að fjalla efnislega um gildi prófkjörsins ef um ágreining hefði verið að ræða innan kjördæmisráðs Norðvestur- kjördæmis um framkvæmd próf- kjörsins. Þar sem ekki hafi verið ágreiningur um það innan kjördæm- isráðsins sé miðstjórnin ekki vald- bær um að fjalla um gildi prófkjörs- ins. Því skuli niðurstaða þess standa óbreytt. Nú er það ágreiningslaust að próf- kjörsreglur flokksins voru þver- brotnar við framkvæmd utankjör- staðakosningar í prófkjörinu. Í reglunum segir að kjörnefnd sé heimilt að ákveða að kjósa skuli utan kjörfundar á sérstökum kjörstað (kjörstöðum) innan eða utan kjör- dæmis, sem hún hefur opinn í þessu skyni. Sú aðgerð að bera kjörgögn út á götu, í heimili, stofnanir og jafnvel báta til að sækja utankjörstaða at- kvæði var stórfellt brot á reglunum og varð prófkjörið af þessum ástæð- um ógilt. Á fundi sínum 13. nóvember sl. ákváðu kjördæmisnefnd og -ráð Norðvesturkjördæmis að láta niður- stöðu prófkjörsins standa óbreytta. Sú ákvörðun er ámælisverð í ljósi þess að upplýst var á þeim tíma að reglur prófkjörsins höfðu verið þver- brotnar. Kjördæmisráðinu bar, sem æðstu stofnun í kjördæminu, að ógilda prófkjörið enda ekki á vald- sviði kjördæmisráðsins, frekar en annarra stofnana flokksins, að líta framhjá augljósum brotum á reglum um val á framboðslista flokksins. Með bréfi 17. nóvember skutu fé- lagar í fulltrúaráðum sjálfstæðis- félaganna í Húnavatnssýslum og Skagafirði framangreindri ákvörðun kjörnefndar og -ráðs til miðstjórnar flokksins, með því að óska eftir því að miðstjórnin kvæði upp úr um hvaða áhrif annmarkar á fram- kvæmd nefnds prófkjörs hefðu á gildi þess. Í ljósi þessa aðdraganda vekur það furðu af hverju miðstjórnin tók ekki af skarið og ógilti prófkjörið, í stað þess að túlka valdsvið sitt svo þröngt sem raun ber vitni; að mið- stjórn gæti einungis fjallað um ákvarðanir kjördæmisráðs ef ágrein- ingur væri uppi innn ráðsins um framkvæmd prófkjörs. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur, samkvæmt skipulags- og próf- kjörsreglum, víðtæku eftirlitshlut- verki að gegna með því að löglega sé staðið að málum í flokksstarfinu. Af þeim sökum hvíldi sú skylda á mið- stjórn flokksins að leiðrétta mistök kjördæmisráðsins og ógilda próf- kjörið tafarlaust, í kjölfar málskots Húnvetninga og Skagfirðinga. Þó stjórn kjördæmisráðsins væri ein- huga um að gera mistök þá upphefur það hvorki vald né ábyrgð miðstjórn- ar til að hlutast til um að löglega sé staðið að prófkjörsmálum í kjör- dæminu. Að vísu má lesa út úr ákvörðun miðstjórnar að hún muni geyma sér rétt til þess að taka afstöðu til próf- kjörsins þegar kjördæmisráð Norð- vesturkjördæmis leggur fram tillögu sína að framboðslista. Sú afstaða staðfestir að miðstjórnin telji sig í reynd hafa vald til að fjalla um málið af sjálfsdáðum þó að ekki sé ágrein- ingi til að dreifa innan kjördæmis- ráðsins. Og þegar svo háttar til má spyrja hví miðstjórnin hafi ekki höggvið á þennan gordíonshnút strax og færi gafst? Það er í reynd fráleitt að menn séu að gera sig líklega til að leggja upp með framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi sem byggist á prófkjöri sem ekki uppfyll- ir reglur flokksins um val á fram- bjóðendum. Það er auðvitað gott og gilt að breyta reglum nú til að forða frekari prófkjörum af þessu tagi. En það breytir ekki því að ákvarðanir flokksins um val á frambjóðendum verða skilyrðislaust að lúta þeim lýð- ræðislegu leikreglum sem flokkur- inn hefur komið á hverju sinni. Jafn- framt verða stofnanir flokksins að sýna, svo ekki fari milli mála, að þær standi vörð um þessar reglur. Ella er lýðræðinu ógnað. Leikreglur lýðræðisins Eftir Hróbjart Jónatansson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. „… vekur það furðu af hverju mið- stjórnin tók ekki af skar- ið og ógilti prófkjörið, í stað þess að túlka vald- svið sitt svo þröngt sem raun ber vitni …“ C vítamín 400 mg með sólberjabragði Bragðgóðar tuggutöflur. Eflir varnir. Nýtt frá Biomega Fæst í apótekum Mörkinni 3, sími 568 7477 www.virka.is Opið til kl. 18 alla daga nema sun. til jóla, Þorláksmessu 10-20, aðfangadag 10-12. Samkvæmisefni gífurlegt úrval Góðir skór Skóbúðin Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.