Morgunblaðið - 10.01.2003, Síða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 39
Brautarholti 4
46. starfsár
Social Foxtrott
Þú verður fær um að dansa
við 90% af öllum lögum sem leikin eru
á venjulegum dansleik eftir 10 tíma.
Samkvæmisdansar - barnadansar
Áratuga reynsla og þekking tryggir þér bestu fáanlega kennslu.
14 vikna námskeið fyrir fullorðna
14 vikna námskeið fyrir börn
Dansleikur í lokin
Tjútt
Við kennum gamla góða íslenska tjúttið.
10 tíma námskeið.
Gömlu dansarnir
10 tíma námskeið og þú lærir þá alla
Keppnisdansar
Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir,
frábærir þjálfarar í keppnisdönsum.
14 vikna námskeið - Mæting 1x, 2x eða 3x í viku.
Línudans
Auðveldir og skemmtilegir.
Bók fylgir með lýsingu á dönsunum.
Salsa
Dansinn sem fer sigurför um heiminn.
10 tíma námskeið
Erlendur gestakennari
Freestyle
Erla Haraldsdóttir kennir.
10 vikna námskeð. Mæting 2x í viku
Brúðarvalsinn
Kenndur í einkatíma.
Barnadansar
Kennum yngst 4 ára.
Innritun og upplýsingar í síma 551 3129
milli kl. 16 og 22 daglega til laugardagsins 11. janúar.
Kennsla hefst í Reykjavík mánudaginn 13. janúar.
Mosfellsbær og Suðurnes - Innritun og upplýsingar í sama síma.
KENNSLA HEFST Í REYKJAVÍK
MÁNUDAGINN 13. JANÚAR
LÝST er eftir vitnum og öku-
manni á hvítum jeppa sem stór-
skemmdi kyrrstæða Toyotu
Corolla á bifreiðastæði við
Heiðagerði/Stóragerði 7. jan-
úar. Ekið var aftan á bifreiðina
um kl. 18.28. Miklar skemmdir
hlutust af árekstrinum en þrátt
fyrir það ók tjónvaldur burt frá
vettvangi. Örugg vitni eru að
því að jeppinn er hvítur, trú-
lega Honda CVR eða Toyota
Rav en ekki tókst að ná niður
skráningarnúmeri. Corollan
sem skemmdist er ljósblá.
Tjónvaldur eða aðrir sem geta
gefið frekari upplýsingar eru
beðnir að snúa sér til umferð-
ardeildar lögreglunnar í
Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
Málfundur aðstandenda sósíal-
íska fréttablaðsins Militant verð-
ur haldinn í dag, föstudaginn 10. jan-
úar kl. 17.30 í Pathfinder bóksölunni,
Skólavörðustíg 6 b (bakatil) í
Reykjavík. Fjallað verður um ögr-
anir í garð Norður-Kóreu, rétt þessa
fullvalda ríkis til varna, sögu skipt-
ingar landsins í norður og suður og
kröfur um sameiningu þess.
Í DAG
Kjördæmafélag Samfylking-
arinnar í Reykjavík heldur fund á
morgun, laugardaginn 11. janúar,
um borgarpólitík Reykjavíkurlist-
ans. Málshefjendur eru Helgi Hjörv-
ar og Ingvar Sverrisson. Fundurinn
er haldinn á Hótel Skjaldbreið,
Laugavegi 16 kl. 11 og er öllum op-
inn.
Á MORGUN
Óvissuferð Hópur fólks á aldrinum
40-60 ára sem stofnað hefur óform-
legan klúbb undir nafninu 40-60
verður með sína þriðju óvissuferð
helgina 21. – 23. febrúar n.k. Nýir fé-
lagar eru velkomnir. Nánari upplýs-
ingar gydarich@mi.is
Námskeiðin Sjálfstyrking ung-
linga hefjast 13. og 14. janúar og eru
haldin í Foreldrahúsinu að Von-
arstræti 4 b. Námskeiðið er ætlað
fyrir unglinga 13 – 17 ára sem hafa
lítið sjálfstraust, hafa lent í einelti,
eru feimnir eða eru óöruggir með
sjálfa sig. Námskeiðinu er ætlað að
efla sjálfstraust og félagslega færni
unglinga. Allar nánari upplýsingar
eru í Foreldrasímanum og á heima-
síðunni www.foreldrahus.is
Á NÆSTUNNI
VOLVO XC90 lúxusjeppinn verður
frumsýndur hjá Brimborg um
helgina. Opið verður kl. 12–16 laug-
ardag og sunnudag. Boðið verður
upp á kaffi og kleinur.
Volvo XC90 er lúxusjeppi frá
Volvo og er þetta frumraun Volvo á
jeppamarkaði. Sala hófst í Banda-
ríkjunum í nóvember síðastliðnum
en hófst í Evrópu í þessum mánuði.
Volvo XC90 hefur hlotið mikið lof
bílagagnrýnenda um allan heim og
hefur þegar hlotið fjölda við-
urkenninga. Volvo XC90 var valinn
jeppi ársins í Bandaríkjunum 2003,
segir m.a. í fréttatilkynningu.
Frumsýnir
Volvo-jeppa
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Vaka á
Siglufirði samþykkti nýverið álykt-
un um kjaramál. Þar segir meðal
annars:
„Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku
fordæmir þau vinnubrögð stjórn-
valda að vanvirða tilraunir verka-
lýðshreyfingarinnar til að halda
verðbólgunni í skefjum.
Stjórn félagsins er ómögulegt að
skilja hvernig æðstu embættismenn
þjóðarinnar hafa geð í sér til að
taka við margfalt meiri launahækk-
unum í skjóli kjaradóms en samið
hefur verið um á almennum vinnu-
markaði.
Að taka við 7% launahækkun á
mörg hundruð þúsund króna laun, á
sama tíma og atvinnulausu fólki er
skömmtuð 5 prósenta hækkun á
rúm 73.000 sýnir að þeir eru ekki í
takt við raunveruleikann.
Félagsmenn í ASÍ hafa ítrekað
afsalað sér launahækkunum eða
stillt þeim mjög í hóf til að ógna
ekki efnahagslífi þjóðarinnar.
Í sérstöku átaki til að hækka
lægstu laun fá þeir sem eru undir
88.000 króna launum á mánuði nú
6,2% hækkun.“
Fordæmir
vinnubrögð
stjórnvalda
EFTIRFARANDI athugasemd hef-
ur borist frá Lífeyrissjóði Norður-
lands:
„Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum
um örorkumat lífeyrisþega er þeirri
leiðréttingu hér með komið á fram-
færi að tryggingalæknir Lífeyris-
sjóðs Norðurlands hefur ekki breytt
örorkumati, hvorki til lækkunar né
hækkunar, til að hafa áhrif á bóta-
greiðslur.
Forsvarsmenn Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu hafa ekki leitað
eftir upplýsingum hjá Lífeyrissjóði
Norðurlands vegna þessa máls og
engir fjölmiðlar hafa haft samband
við sjóðinn, þrátt fyrir að nafn hans
hafi verið nefnt í þessu samhengi.
Sjóðurinn telur þennan fréttaflutn-
ing því ekki vera byggðan á réttum
upplýsingum.“
Örorku-
mati ekki
breytt
Lífeyrissjóður
Norðurlands
RANNSÓKNANEFND flugslysa,
RNF, efnir í næstu viku til nám-
skeiðs fyrir flugrekendur þar sem
fjallað verður um viðbúnaðaráætlan-
ir og samskipti við rannsakendur
flugatvika og flugslysa. Fyrirlesarar
eru frá bandarísku stofnuninni Sout-
hern California Safety Institute, Ör-
yggisstofnun Suður-Kaliforníu, og
er námskeiðið skipulagt af stofnun-
inni í samvinnu við RNF.
Þormóður Þormóðsson, rann-
sóknastjóri RNF, segir markmið
námskeiðs sem þessa að efla þekk-
ingu á ábyrgð flugrekenda vegna
flugslysa og flugatvika og efla skiln-
ing á tilhögun rannsókna á þeim.
Einnig er ætlunin að þjálfa starfs-
fólk flugrekenda í því að bregðast við
flugslysum og flugatvikum. Fyrirles-
arar munu fara yfir alþjóðlegar sam-
þykktir um rannsóknir og hvernig
tilkynna beri um flugatvik og slys og
farið verður einnig yfir vinnureglur
RNF á þessu sviði.
Námskeiðið stendur frá mánudegi
til föstudags og segir Þormóður það
sérstaklega ætlað starfsfólki sem
beri ábyrgð á flugöryggismálum.
Námskeið
um viðbúnað
vegna flug-
slysa NÝLEGA var dregiðum vinninga í happ-
drætti í tengslum við
þátttöku í langtíma-
rannsókn á lífi ungs
fólks, sem Sigrún
Aðalbjarnardóttir
prófessor við HÍ
stendur að. Árgang-
inum 1979 í Reykja-
vík hefur verið fylgt
eftir síðan hann var í
9. bekk vorið 1994.
Unga fólkið hefur
m.a. verið spurt um
sjálfsmynd sína, trú
á eigin getu til að
hafa áhrif á líf sitt,
líðan, samskipta-
hæfni og samskipti
við foreldra, auk
vímuefnaneyslu.
Flugleiðir gáfu tvo
farmiða í vinning og
hlaut Kjartan Ingv-
arsson flugfarið. Eft-
irtaldir hlutu vasaútvarp í vinning:
Erna Rún Einarsdóttir, Ester Ósk
Hervar, Haukur S. Þorsteinsson,
Hjörtur Hannesson og Kristín Elfa
Axelsdóttir.
Sigrún Aðalbjarnardóttir vill
koma á framfæri þakklæti til allra
þátttakenda rannsóknarinnar en
þeir hafa verið um 1.400 og Flugleiða
fyrir stuðning þeirra.
Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor og Kjartan
Ingvarsson vinningshafi.
Vann flugferð í rann-
sóknarhappdrætti