Morgunblaðið - 12.02.2003, Side 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 19
Dalsbraut. Bjarni sagði að sérstakur
starfshópur væri að vinna að málinu
og hann myndi ákveða hvor tenging-
in yrði fyrir valinu.
BYGGING nýs leikskóla við Hólma-
tún í Naustahverfi er hafin en þetta
er jafnframt fyrsta byggingin sem
rís í þessu nýjasta íbúðarhverfi Ak-
ureyringa og þykir það nokkuð
óvanalegt. Bjarni Reykjalín, skipu-
lags- og byggingarfulltrúi Akureyr-
arbæjar, sagði það vissulega
skemmtilegt að leikskóli væri fyrsta
byggingin í hverfinu og bæjaryfir-
völd mættu vera ánægð með þá
stefnu.
Það er Hyrna ehf. sem byggir leik-
skólann en sérstök dómnefnd sem
skipuð var til að fjalla um tillögur í
alútboði leikskólans lagði til að til-
laga fyrirtækisins yrði valin til frek-
ari útfærslu. Tillögur frá Hyrnu og
SS Byggi fengu hæstu einkunnirnar
en tilboð Hyrnu í verkið var 11 millj-
ónum króna lægra en tilboð SS
Byggis og hljóðaði upp á 129 millj-
ónir króna. Hinn nýi leikskóli verður
tæplega 700 fermetrar að stærð en
um er ræða fjögurra deilda skóla
með 96 rýmum. Ráðgert er að leik-
skólinn verði tilbúinn í sumar.
Bjarni Reykjalín sagði að hreyfing
væri að komast á frekari fram-
kvæmdir í Naustahverfi og væru
teikningar vegna íbúða farnar að
berast. Síðastliðið sumar var úthlut-
að lóðum undir um 160 íbúðir, í ein-
býlis- og tvíbýlishúsum, rað- og par-
húsum og fjölbýlishúsum, og í sumar
verður að sögn Bjarna úthlutað öðru
eins. Á vordögum verður boðinn út
seinni hluti gatnagerðar á svæðinu
og ráðgert að lóðir í þeim áfanga
verði byggingarhæfar í ágúst nk. Í
allt verða því um 330 íbúðir byggðar
í þessum fyrstu tveimur áföngum,
eða um 1.000 manna byggð. Full-
byggt verður Naustahverfi um 6–8
þúsund íbúa hverfi með á milli tvö til
þrjú þúsund íbúðum.
Vinna við fyrsta áfanga Miðhúsa-
brautar er nú í gangi en gatan mun
liggja frá Þórunnarstræti og áfram
upp að Mjólkursamlagi eða tengjast
Byggingarframkvæmdir hafnar í Naustahverfi
Nýr leikskóli fyrsta bygg-
ingin sem rís í hverfinu
Morgunblaðið/Kristján
Starfsmenn Hyrnu voru að koma glugga fyrir í steypumótum í nýjum leik-
skóla í Naustahverfi á Akureyri. Skólinn er um 700 fermetrar að stærð.
Keramiknámskeið á Punktinum
17. febrúar kl. 19-23.
Spennandi aðferðir við skreytingu nytjahluta,
notkun glerunga o.fl.
Námskeiðsgjald kr. 4.500.
Skráning í síma 552 2882 • Sjá nánar Keramik.is
Opnum eftir
2 daga
SVEITARSTJÓRN Eyjafjarðar-
sveitar hefur samþykkt að stofna
vinnuhóp sem fjalla á um markaðs-
setningu á Tónlistarhúsinu í Laug-
arborg. Samþykkt var á síðasta
fundi sveitarstjórnar að fara þess á
leit við Eirík Stephensen skóla-
stjóra, Þórarin Stefánsson, for-
mann Tónlistarfélags Akureyrar,
og Jóhann Ólaf Halldórsson fram-
kvæmdastjóra að þeir myndi
vinnuhópinn. Gert er ráð fyrir að
hópurinn vinni í samstarfi við
stjórn félagsheimilanna og að til-
lögum verði skilað fyrir 1. maí
næstkomandi.
Ástæða þessa er sú að sveitar-
stjórn telur nauðsynlegt að vinna
að skipulagðri markaðssetningu á
Tónlistarhúsinu í Laugarborg til að
efla starfsemi þess. Hópnum er
ætlað að leggja fram tillögur að
kynningu á húsinu og samstarfi við
tónlistarfólk og áhugafólk um tón-
listarflutning til að afla húsinu fjöl-
breytilegra og stöðugra verkefna
að því er fram kemur í bókun sveit-
arstjórnar Eyjafarðarsveitar. Jafn-
framt á hópurinn að kanna mögu-
leika á föstum dagskráratriðum í
húsinu og leggja fram tillögur að
slíkri dagskrárgerð, áskriftartón-
leikum og fleira í þeim dúr. Eins á
hópurinn að afla styrkja til starf-
seminnar og frekari endurbóta á
húsnæði Laugarborgar svo það
þjóni sem best tilgangi sínum sem
tónlistarhús.
Sveitarstjórn Eyjafjarðar-
sveitar um Laugarborg
Vinnuhópur um
markaðssetningu
DR. Kristján Kristjánsson flytur
fyrirlestur um lífsleikni á fræðslu-
fundi Foreldra- og kennarafélaga
grunnskóla Akureyrar á fimmtu-
dagskvöld, 13. febrúar, í samkomu-
sal Lundarskóla. Fjallað verður um
námsgreinina lífsleikni sem tekin
var upp í aðalnámskrá grunnskóla
1999. Meðal annars verður rætt um
hvað ætti að kenna í námsgreininni
og hvernig, hver árangurinn gæti
orðið og hvort námsgreinin sé yfir-
höfuð til einhvers. Þá mun Kristján
ræða hvort hægt sé að bæta sam-
skipti og siðferði barna og unglinga í
einum kennslutíma á viku og eins
kemur hann inn á reynslu frá útlönd-
um í þessum efnum.
Fyrirlestur í Lund-
arskóla um lífsleikni
STJÓRN Sorpeyðingar Eyjafjarð-
ar fundaði með hreppsnefndum
Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps
í síðasta mánuði um hugmyndir um
nýjan sorpurðunarstað í Eyjafirði.
Eins og fram hefur komið þykja
tveir staðir koma helst til greina,
Bjarnarhóll í Arnarneshreppi og
Gásir í Hörgárbyggð en í skýrslu
um samanburð á þessum tveimur
stöðum þykir urðunarstaður við
Gása vera betri kostur. Guðmundur
Guðlaugsson framkvæmdastjóri
Sorpeyðingar Eyjafjarðar sagðist
eiga von á að lögð verði áhersla á að
kanna þann stað til hlítar fyrst.
Guðmundur sagði að næsta skref
hjá stjórn sorpeyðingar væri að
taka afstöðu í málinu, óska eftir
öðrum hvorum staðnum undir sorp-
urðun og leggja erindi um slíkt fyr-
ir viðkomandi hreppsnefnd. Hann
sagði að því stefnt að afstaða
stjórnarinnar lægi fyrir síðar í
þessum mánuði. Björn Jóhann
Björnsson hjá Stuðli kynnti skýrslu
sína um samanburð á urðunarstöð-
unum tveimur á fundunum með áð-
urnefndum hreppsnefndum. Guð-
mundur sagði að fram hefðu komið
óskir um frekari upplýsingar, m.a.
um aðferðafræðina við förgunina.
„Við höfum einnig verið að taka
saman upplýsingar um hvers er að
vænta varðandi úrvinnslugjald, sem
hefur mjög mikil áhrif á það magn
sem fer til urðunar. Ef sett verður
úrvinnslugjald á umbúða- og
bylgjupappa um næstu áramót fer
hann í annan farveg og til endur-
vinnslu. Það er ýmislegt að gerast
sem getur dregið mjög úr því
magni sem fer til urðunar. Og við
erum að reyna að setja upp áætlun
um það hvernig hlutirnir komi til
með að ganga.“
Guðmundur sagði að líkt og ann-
ars staðar gengju þessir hlutir
hægt, enda nauðsynlegt að ná sátt
um málið. „Hér er um mjög stórt
mál að ræða sem varðar m.a. til-
finningalíf æði margra. En það er
nauðsynlegt að stjórnin komi þessu
frá sér í þessum mánuði, þannig að
hægt verði að hefja frekari rann-
sóknir með vorinu. Það kemur fram
í skýrslu Björns Jóhanns að Gásir
eru mun álitlegri kostur, þannig að
ég á von á að lögð verði áhersla á
kanna þann stað til hlítar fyrst. Það
þarf að ráðast í frekari og dýrari
rannsóknir og maður vill því eðli-
lega binda þá vinnu við einn stað og
sjá hvort það leiðir ekki til ásætt-
anlegrar niðurstöðu. En vissulega
hafa komið fram athugasemdir
varðandi þessa staði.“
Starfsleyfi fyrir sorpurðun á
Glerárdal rennur út á þessu ári og
hefur bæjarstjórn Akureyrar
ákveðið að sorpurðun þar verði þá
hætt. Þeir aðilar sem að málinu
koma telja mjög brýnt að fá nið-
urstöðu um nýjan urðunarstað sem
allra fyrst. Málið var til umræðu á
vetrarfundi héraðsnefndar í lok síð-
asta árs og þar sagði Hólmgeir
Karlsson oddviti nefndarinnar það
sína skoðun, að sveitarfélögin í
Eyjafirði hefðu verið búin að gang-
ast undir að hlíta ákvörðun Sorp-
eyðingar Eyjafjarðar varðandi val á
nýjum urðunarstað.
Afstöðu stjórnar Sorpeyðingar Eyja-
fjarðar til nýs urðunarstaðar að vænta
Gásir í Hörgár-
byggð taldar
líklegri kostur