Morgunblaðið - 12.02.2003, Side 24
LISTIR
24 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í NÝRRI danskri bók um ævi
Rasmusar Kristians Rasks kemur
fram, að Íslendingar í Höfn hafi árið
1842 verið meðal þeirra sem lögðu fé í
legstein á gröf þessa mikilvirka mál-
vísindamanns. Íslendingar völdu sem
kveðju sína setningu úr Konungs-
skuggsjá, sem var skrifuð með rúna-
letri á steininn: „Ef þú vilt fullkominn
vera í fróðleik þá nem þú allar tung-
ur, en týn þó eigi að heldur þinni
tungu.“ Setningin endurspeglar við-
horf upplýstra Íslendinga um aldir,
að það sé dýrmætt hverjum vel
menntuðum manni að kunna mörg
erlend tungumál og að hafa gott vald
á eigin tungu. Á tímum alþjóðavæð-
ingar þar sem gjörvallur heimurinn
er allt í senn vettvangur verslunar,
atvinnu, vísinda og mennta er dýr-
mætt fyrir þjóð, sem á allt undir ár-
angursríkum samskiptum við erlend-
ir þjóðir, að eiga viðhorf sem þetta.
Viðhorf sem endurspeglar hvort
tveggja í senn jákvæðan og opinn
huga gagnvart menningu annarra og
virðingu fyrir eigin tungu og menn-
ingu. Þetta viðhorf hefur stuðlað að
framförum og menningarlegum fjöl-
breytileika í íslensku þjóðfélagi og
hefur auk þess reynst fjölmörgum Ís-
lendingum lykill að menntun, auði og
völdum jafnt heima sem heiman.
Fram til þessa hefur það verið við-
tekin skoðun á Íslandi, og um hana
hefur ríkt almenn sátt, að leggja beri
áherslu á að kenna íslenskum ung-
mennum, sem stefna á stúdentspróf,
þrjú erlend tungumál hið minnsta.
Nemendur á málabrautum og sumum
viðskiptabrautum framhaldsskólanna
hafa jafnframt lagt stund á fjórða er-
lenda tungumálið. Nægilega miklum
tíma hefur verið varið til kennslu er-
lendra mála svo íslensk ungmenni
hafi orðið fær um að takast á við nám
og störf á erlendum vettvangi. Dæm-
in sanna, að þegar ungt fólk hefur
snúið heim að lokinni dvöl erlendis,
reynslunni ríkara og með nýjustu
þekkingu í farteskinu, hefur það gætt
menningu okkar nýju lífi og stuðlað
að nýbreytni í atvinnuháttum. En
þetta jákvæða viðhorf til erlendra
mála er ekki sjálfgefið frekar en önn-
ur gæði lífsins. Því þarf að standa
vörð um það eigi Íslendingar að geta
skipað sér í fremstu röð á al-
þjóðavettvangi í síharðnandi sam-
keppni einstaklinga, fyrirtækja og
þjóða.
Gott má gera betra
Eins og áður er getið getum við Ís-
lendingar verið stoltir af því, hversu
mörg tungumál eru kennd í skólum
hérlendis. Með ensku sem fyrsta er-
lenda tungumálið, dönsku (norsku,
sænsku) sem annað og frönsku,
spænsku eða þýsku sem þriðja er-
lenda tungumál stöndum við framar
ýmsum öðrum þjóðum sem við kjós-
um að bera okkur saman við. Íslend-
ingar geta því, hvað þetta varðar, ver-
ið gott fordæmi annarra þjóða.
Flestir skólar ráða yfir góðum
kennslu- og tækjabúnaði og margir
tungumálakennarar eru mjög vel
menntaðir. En betur má ef duga skal.
Á Íslandi hefst tungumálakennsla
seinna en víða erlendis, sem hefur í
för með sér að nemendur njóta ekki
ávinningsins af því, hve móttækileg
ung börn eru fyrir tungumálanámi.
Þá kjósa sumir skólar að kenna leng-
ur í senn og sjaldnar, sem fræðimenn
telja að gagnist síður en að kenna oft-
ar og styttra. Endurtekning er móðir
alls náms og hún skiptir sköpum í
allri tungumálakennslu. Við skipu-
lagningu málanáms verður að taka
mið af því, sem vænlegast má teljast
til árangurs.
Margir grunnskólar bjóða upp á
val í þriðja tungumáli í efstu bekkj-
unum og er það
vel. Ekki er þó
alltaf samfella í
náminu frá
grunnskóla í
framhaldsskóla. Í
stað þess að halda
ótrauð áfram
náminu, þar sem
frá var horfið í
grunnskólanum,
endurtaka sumir
nemendur námið í
þriðja máli á
fyrstu önnum í
framhaldsskólum.
Brýnt er, að þeir
nemendur sem
hefja nám í þriðja
máli í grunnskóla
njóti árangurs
erfiðisins og nái
lengra í tungu-
málinu við lok
framhaldsskóla en þeir sem ekki
völdu þessa leið. Til þess var leik-
urinn gerður.
Margir tungumálakennarar hafa
áhyggjur af samdrætti í kennslu
þriðja erlenda tungumáls í fram-
haldsskólum og óttast að sá und-
irbúningur, sem nemendur fá í mál-
inu, sé ekki nægilegur til að hefja
nám við erlendar menntastofnanir.
Vegna aukins samstarfs Evrópuþjóða
hefur tækifærum Íslendinga til há-
skólanáms erlendis fjölgað mjög.
Miklu skiptir að ekki verði dregið úr
kennslu þriðja máls svo íslenskir
námsmenn verði ekki eftirbátar ann-
arra evrópskra ungmenna. Tækifæri
til framhaldsnáms og til námsstyrkja
eru komin undir góðum námsárangri
og í því sambandi skiptir traust und-
irstaða í tungumálum sköpum.
Fram til þessa hefur námsframboð
í tungumálum í flestum framhalds-
skólum takmarkast við dönsku,
ensku, frönsku, spænsku og þýsku og
að takmörkuðu leyti latínu. Til að
auka víðsýni og menningarlegan fjöl-
breytileika í íslensku samfélagi og í
ljósi markaðshagsmuna og vaxandi
alþjóðlegrar samvinnu á öllum svið-
um er nauðsynlegt að einstakir fram-
haldsskólar sérhæfi sig í kennslu
tungumála á borð við japönsku, kín-
versku, rússnesku og jafnvel hindí.
Einnig þarf að tryggja, að í nokkrum
framhaldsskólum sé boðið upp á
kennslu í fornmálunum latínu og
grísku.
Nýir miðlar – breyttir
kennsluhættir
Því miður hafa rannsóknir á tungu-
málakennslu hérlendis verið af skorn-
um skammti og því ekki nægileg vitn-
eskja fyrirliggjandi um árangur
tungumálakennslunnar. Þó gefa
rannsóknir tilefni til að ætla, að
menntun sumra tungumálakennara,
einkum í grunnskólum, sé ábótavant
og að sums staðar séu kennsluhættir
ekki í samræmi við það sem árang-
ursríkast er talið í dag. Í því sam-
bandi verður mikilvægi menntunar
tungumálakennara aldrei nægilega
undirstrikað. Það er t.d. mikið fagn-
aðarefni að Kennaraháskóli Íslands
hefur aukið mjög fagmenntun grunn-
skólakennara. Brýnt er að menntun
tungumálakennara á framhalds-
skólastigi verði að sama skapi hvergi
rýrð, heldur frekar aukin ef eitthvað
er.
Upplýsingatækni og nýir miðlar
bjóða upp á áður óþekkta möguleika
til tungumálanáms. Á örskotsstund
er hægt að komast í beina snertingu
við tungu og menningu erlendra
þjóða og með gagnvirkum æfingum
og tölvutækni geta nemendur notað
hið erlenda mál til tjáskipta með áður
óþekktum hætti. Tungumál lærast
fyrst og síðast með því að þau séu
notuð. Tölvurnar geta, ef rétt er á
málum haldið, gefið nemendum ríku-
leg tækifæri til þess að tjá sig á er-
lendum málum. Alltof oft heyrast
tungumálakennarar kvarta undan
takmörkuðum skilningi skólastjórn-
enda á því mikilvæga hlutverki sem
upplýsingatæknin getur gegnt í
málanámi. Nauðsynlegt er að opna
augu skólayfirvalda og skólastjórn-
enda fyrir þeim stórkostlegu tæki-
færum til málanáms, sem eru fólgin í
skynsamlegri notkun tölva og annars
hátæknibúnaðar. En tækin duga ekki
ein og sér. Eigi þau að gagnast sem
skyldi þurfa kennarar, foreldrar og
nemendur að taka höndum saman um
að fara áður ótroðnar leiðir í tungu-
málanáminu. Taka verður mið af
þörfum og getu hvers og eins og nem-
endur verða að fá tækifæri til að
kljást við málið á eigin forsendum.
Leggja verður allt kapp á, að hver
einstaklingur nái eins langt í tungu-
málanáminu og frekast er unnt.
Vits er þörf þeim er víða ratar
Íslendingar eiga velferð sína undir
hagstæðum viðskiptum við útlönd.
Allir vita, að það er mun auðveldara
að kaupa vöru en selja, enda þarf
ótvírætt á meiri tungumálakunnáttu
að halda þegar kemur að sölu en
kaupum. Með tilkomu hátæknifyr-
irtækja hefur átt sér stað aukin sér-
hæfing í útflutningi og því þurfa
margir sérfræðingar, t.d. lögfræð-
ingar, verkfræðingar og líffræðingar,
á góðri tungumálakunnáttu að halda.
Í samskiptum við útlendinga, og þó
einkum og sér í lagi þegar selja á vöru
eða hugvit, er ekki nóg að hafa orð á
takteinum, kunna skil á málfræði-
reglum og kunna að bera fram orð á
réttan hátt. Ekki skiptir síður máli að
hafa innsýn í siði og venjur viðkom-
andi þjóðar og geta áttað sig á hvers
konar hegðun og tjáskipti eru viðeig-
andi við ólíkar aðstæður. Ef árangur
á að nást í samskiptum við útlendinga
er ekki nóg að skilja aðra og geta gert
sig skiljanlegan. Helst þarf að vekja
athygli fyrir að hafa gott vald á hinu
erlenda máli og fyrir að kunna að
hegða sér rétt. Allt getur oltið á, að
þeir sem gæta hagsmuna Íslands á
alþjóðavettvangi hafi gott vald á er-
lendum tungumálum.
How do you like Iceland?
Ferðaþjónustan er einn helsti vaxt-
arbroddurinn í íslensku atvinnulífi og
flestir munu á eitt sáttir um, að í
þessari atvinnugrein eru gæði þjón-
ustunnar ekki síst fólgin í góðri
tungumálakunnáttu. Þetta á auðvitað
fyrst og fremst við þá sem hafa bein
samskipti við ferðamennina, t.d. leið-
sögumenn og starfsmenn á ferða-
skrifstofum, hótelum og veit-
ingastöðum, en þetta á einnig við um
aðra sem koma að þjónustu við ferða-
menn með óbeinni hætti, t.d. þá sem
annast gerð upplýsingaefnis á erlend-
um tungumálum svo sem á mynd-
böndum, heimasíðum, í auglýsingum
og ferðabæklingum. Nauðsynlegt er
að þjónusta við ferðamenn fari fram á
móðurmáli þeirra, a.m.k. ætti það
ótvírætt að eiga við þegar stærstu
hópar ferðamannanna eiga í hlut, t.d.
enskumælandi fólk, Þjóðverjar,
Norðurlandabúar og Frakkar. Setja
verður markið hátt, því þjónusta á
ensku nægir hvergi ein og sér. Í röð-
um íslenskra ungmenna eigum við á
að skipa hæfileikaríku fólki, sem hef-
ur lagt á sig langt nám í tungumálum
til að geta sinnt verkefnum sem þess-
um. Loks má nefna menningartengda
ferðaþjónustu, sem gefur vonir um ný
sóknarfæri. Þar er um að ræða
áhugavert svið þar sem ný sýn á sögu
og samtíð fléttast saman. Lykilatriði í
menningartengdri ferðaþjónustu er
að hafa innsýn í menningu þeirra
gesta sem sækja Ísland heim. Nægir
í því sambandi að benda á áhuga jap-
anskra ferðamanna á botngróðri Mý-
vatns, sem rekja má til alþýðutrúar
Japana sem tengist þessum sérstæða
gróðri sem óvíða er að finna í heim-
inum. Í tungumálakennslu á öllum
stigum skipar menningarlæsi æ
hærri sess.
Menningarlegur
margbreytileiki
Tungumálakunnátta er lykill að
dýrmætum og óendanlegum fjár-
sjóðum. Tunga og bókmenntir varð-
veita minningu kynslóðanna og sá
sem býr yfir kunnáttu í erlendum
tungumálum hefur því aðgang að
óþrjótandi lind fróðleiks og ánægju.
Á undanförnum áratugum hafa er-
lendir þegnar í vaxandi mæli sest að á
Íslandi. Þessir nýju þegnar flytja með
sér viðhorf, þekkingu og menningu
sem geta orðið til að auðga íslenska
menningu enn frekar, ef rétt er á
málum haldið. Mikilvægt er að fólk af
ólíkum menningarheimum geti talað
saman jafnt heima sem heiman, því
orð eru til alls fyrst. Því betur sem
einstaklingar, þjóðir og álfur ná að
ræða saman, því líklegra er að skiln-
ingur og friður ríki manna á milli.
Samskipti við fólk af öðrum mál-
svæðum og af ólíkum menningar-
heimum getur einnig orðið til þess að
skerpa sýn okkar og skilning á eigin
tungu og menningu. Johann Wolf-
gang von Goethe benti á þessi sann-
indi fyrir um 200 árum þegar hann
skrifaði: „Wer fremde Sprachen nicht
kennt, weiss nichts von seiner eige-
nen“: Sá sem ekki þekkir erlend
tungumál veit ekkert um sitt eigið.
Auður
Hauksdóttir
Oddný G.
Sverrisdóttir
Nem allar
tungur en týn
ekki þinni eigin
Eftir Auði Hauksdóttur og
Oddnýju G. Sverrisdóttur
Dr. Auður Hauksdóttir er lektor í
dönsku og forstöðumaður Stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur.
Dr. Oddný G. Sverrisdóttir er dósent
í þýsku og varaforstöðumaður Stofn-
unar Vigdísar Finnbogadóttur.
Aernout Mik, Guðni Franzson &
Wieden & Kennedy. Viktor & Rolf,
Toek Numan, Saatchi & Saatchi.
John M. Armleder, Hans van Ma-
nen & Fastland.Jung von Matt,
Haukur Tómasson & Yayoi Kus-
ama. Pipilotti Rist, Caroline Ber-
kenbosch & S.C.P.F. og Gillian
Wearing & Yello – New®. Þessum
hluta lýkur 24. febrúar.
Annar hlutinn hefst 28. febrúar
og nefnist Ákveðin ókyrrð / Certain
Turbulence en það eru gjörningar
sem nemendur í Listaháskóla Ís-
lands vinna í samstarfi við erlendra
kennara. Gjörningarnir verða flutt-
ir sem hluti af dagskrá Vetrarhá-
tíðar dagana 28. febrúar til 2. mars.
Þrír kennarar taka þátt í gjörn-
ingunum: Brian Catling, Julian Ma-
ynard Smith og Willem de Ridder.
Öðrum hluta lýkur 2. mars.
4. mars hefst þriðji og síðasti
MYNDBANDA- og gjörningadag-
skrá hefst í Listasafni Reykjavíkur
– Hafnarhúsi í kvöld, miðvikudags-
kvöld, kl. 20. Dagskráin stendur til
9. mars og er skipt niður í þrjú
tímabil. Fyrsti hlutinn nefnist Loud
& Clear / Hátt og skýrt og verður
myndbandsverkið frumflutt í kvöld
en verður svo sýnt á opnunartíma
safnsins, frá kl. 10–17 alla daga.
Verkið samanstendur af níu DVD-
verkum en þrír aðilar standa að
hverju verki um sig; myndlistar-
maður, tónlistarmaður og auglýs-
ingahönnuður. Eftirfarandi lista-
menn taka þátt í verkefninu, en
þeim er skipað í þessa röð í upp-
talningunni hér að neðan: Pierre
Huyghe, Steamboat Switzerland &
Tyler Whisnand. Pierre Bismuth,
Theo Loevendie & Strawberry
Frog. Marlene Dumas, Ryuichi
Sakamoto & KesselsKramer.
hlutinn sem nefnist Flash. Það er
DVD-verk frá Bifron-stofnuninni í
Amsterdam unnið í samstarfi tón-
listarmanna og myndlistarmanna.
Eftirfarandi listamenn vinna
saman að Flash: Maarten van
Norden & Annette Messager. Vod-
ershow & Liza May Post. Roderik
de Man & Maura Biava. Paul Ter-
mos & Ansuya Blom. Maarten Al-
tena & Ger van Elk. Eric Calmes
& Henrik Peeters. Martijn Padd-
ing & J.C. Ruggirello. Chiel Meij-
ering & Jaap Kroneman og Louis
Andriessen & Marijke van War-
merdam.
Loud & Clear og Flash verkefnin
eru bæði á vegum Bifron-stofnun-
arinnar í Amsterdam en fram-
kvæmdastjóri hennar er Þóra
Johansen. Dagskránni lýkur eins
og fyrr segir 9. mars.
Þriggja þátta myndbanda- og gjörningadagskrá
Verk eftir Lizu May Post á
sýningunni Flash.