Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 25
RÆÐU Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, forsætisráðherraefnis,
formannsstaðgengils og almenn-
ingstengslafulltrúa Samfylkingar-
innar, sl. sunnudag hefur verið gef-
ið nokkurt rúm í fjölmiðlum
undanfarið, gagnrýnislaust að
vanda. Ræða þessi var einhver sú
undarlegasta sem ég hef heyrt um
afskipti stjórnmálamanna af rekstri
og rekstrarumhverfi fyrirtækja.
Tilgangurinn með ræðunni var að
koma höggi á stjórnmálamenn sem
hafa unnið að því að koma hér upp
heilbrigðu viðskiptaumhverfi þar
sem saman fer frelsi til athafna en
jafnframt krafa um afdráttarlaust
siðferði og ábyrgð í viðskiptum. Á
sl. ellefu árum hefur verið gengið
lengra í frjálsræðisátt og meira
gert til að draga úr afskiptum rík-
isvaldsins af fyrirtækjum og stofn-
unum en nokkru sinni áður. Jafn-
framt hefur verið viðhaldið
stöðugleika og hagvexti sem á sér
enga hliðstæðu í íslenskri sögu og
þótt víðar væri leitað. Þetta tvennt
hefur leitt til þess að einstaklingar
og fyrirtæki hafa getað gert áætl-
anir vegna framkvæmda eða ann-
arra skuldsetninga.
Ég er algjörlega sammála því
að inngrip og afskipti stjórnmála-
manna, á hvaða stigi sem þeir eru,
eru meinsemd í umhverfi frjálsra
viðskipta. Ég held hinsvegar að
Ingibjörg Sólrún sé ekki sjálfri
sér samkvæm með þessum um-
mælum, þar sem hún vill greini-
lega hafa áhrif á þetta viðskipta-
umhverfi, rétt eins og vinstrimenn
hafa ávallt gert. Hún hefur a.m.k.
sýnt það í stjórnarfari sínu og hún
sagði frá því í hluta ræðu sinnar.
Þar sagði hún m.a.: „Við getum
lækkað vexti, bæði stýrivexti
Seðlabankans og útlánsvexti við-
skiptabankanna...“
Hvernig ætlar Ingibjörg Sólrún
sem stjórnmálamaður að lækka út-
lánsvexti bankanna? Væri hún þá
ekki einmitt að skipta sér af fyr-
irtækjum sem henni koma alls ekki
við? Til hvers var verið að auka
sjálfstæði Seðlabankans ef hún
ætlar síðan að stjórna breytingu
stýrivaxta? Væri hún þá ekki að
framkvæma það sem hún fordæm-
ir? Bíddu, er þetta ekki nýr leið-
togi flokks sem vill koma í veg fyr-
ir að íslenskur seðlabanki hafi
einhver áhrif á gengisstig og vaxta-
stig hér á landi með því að koma
landinu í ESB?
Dæmi hver um sig, en mér virt-
ist þessi ræða vera skrifuð af van-
kunnáttu, hún var uppfull af klisj-
um og sett fram til að viðhalda
einhverskonar mítu sem á ekki við
rök að styðjast. Það kom mér hins-
vegar ekkert á óvart.
Ingibjörg og afskiptin
Eftir Sigmund
Sigurgeirsson
Höf. er viðskiptafræðingur og
áhugamaður um stjórnmál.
„Hún vill
greinilega
hafa áhrif á
viðskipta-
umhverfið,
rétt eins og vinstrimenn
hafa ávallt gert.“
ÁSKORUN til stjórnmálamanna,
verkalýðshreyfinga og atvinnulífs-
ins. Afnemum vinnuþrælkun smá-
barna og foreldra. Gerum þjóðarsátt
um bætt kjör og sveigjanlegan
vinnutíma mæðra og feðra.
Frétt (5.2. sl.) um að gæslu barna
(2–5 ára) í leikskólum skuli ljúka kl.
17:15 en tvö „sel“ verði þó opin til kl.
18:15 fyllti mælinn. Í hugann komu
myndir af börnum hímandi nætur og
daga yfir fé til forna og dauðupp-
gefnum nútímabörnum í gæslu. Veit
fólk hver vinnudagur barna er? Flest
börn fara í vistun fárra mánaða göm-
ul (fæðingarorlof er enn of stutt), 2–5
ára börn eru daglangt í leikskóla, 6–8
ára börn eru í grunnskóla frá morgni
til kvölds. Gæsla, skóli, gæsla og
tómstundastarf! Smá-börnum er
gert að vera fjarri heimili í um og yf-
ir 50 st. á viku og foreldrar vinna
myrkra á milli með dúndrandi sam-
viskubit. Er þetta boðlegt? Ég segi
nei. Slík vinnuþrælkun og frelsis-
skerðing er óviðunandi.
Börn þurfa ást, ástvini og frið til
að þroskast. Börn þurfa hvíld frá
gæslu og skóla með daglangri stjórn
vandalausra. Fjölskyldur þurfa að
vera saman. Barnafólk þarf hærri
dagvinnulaun og vernd gegn þrýst-
ingi um æ lengri vinnutíma.
Stoppum hér og sameinumst um
fjölskyldustefnu sem gefur börnum
og foreldrum færi á lengri samveru
til að bindast varanlegum tilfinn-
ingaböndum. Það skilar sér marg-
falt. Ef ekki tel ég að setja verði
vökulög – lög um hvíldartíma barna
líkt og togarasjómanna fyrr á öld-
um? Ekki stærri vökustaura fyrir
smábörn, takk!
Vinnu-
þrælkun,
vökulög,
vöku-
staurar!
„Börn þurfa
hvíld frá
gæslu og
skóla.“
Höfundur er kennari.
Eftir Elínu G.
Ólafsdóttur
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Stretchbuxur kr. 2.90
Konubux r frá kr. 1.790
ragtir, kjólar,
blús ur og pils.
Ódýr nát fatna
Fyrsta blaðið á
hálfvirði
100 síðna bók
ókeypis - ef þú
svarar innan
10 daga
Þú greiÐir aÐeins 345 kr
Láttu töfrast af heimi galdrastelpnanna! Í
hverjum mánuði fylgist þú með spennandi
sögu um stelpurnar fimm frá Heatherfield.
Þú getur líka lesið um leyndarmálin á bak
við stjörnumerkið þitt og í hverju blaði er
galdrapróf sem hjálpar þér að finna máttinn
sem b r innra með þér!
EINSTAKT TILBOÐ
1
2
3
4
Fyrsta blaðið á hálfvirði - þú borgar aðeins 345 kr. fyrir utan
sendingarkostnað.
Ef þú svarar innan 10 daga færðu 100 síðna bók um stelpurnar að gjöf.
Mánaðarlega færðu n tt blað, með hverju blaði fylgir einhver skemmtileg
gjöf og borgar aðeins 690 kr. fyrir utan sendingarkostnað.
Blöðin eru eingöngu fáanleg í áskrift og eru ekki í boði á almennum
markaði.
S k r á ð u þ i g á h t t p : / / d i s n e y . k l u b b a r . i s
EINSTAKT TILBOÐ
Finndu EIGIN MÁTT!
Hringdu núna í síma 522 2020
G
A
L
DR
AST
ELPUR
N
A
R
sagan um
©
Disney