Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 45  ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálf- ari Íslands í knattspyrnu, verður á meðal áhorfenda á Hampden Park í Glasgow í kvöld er Skotar taka á móti Írum í vináttulandsleik. Ísland mætir Skotlandi á sama velli í Evr- ópukeppninni 29. mars.  MICHAEL Ballack, miðjumaður Bayern München, mun ekki leika með Þjóðverjum gegn Spánverjum í dag á Kanaríeyjum – hann er með flensu. Þá mun Marko Rehmer, varnarmaður og félagi Eyjólfs Sverrissonar hjá Herthu Berlín, heldur ekki leika með vegna meiðsla.  HOLLENDINGURINN Arie Haan mun stýra landsliði Kína í fyrsta sinn gegn heimsmeistaraliði Brasilíu þar sem 12 leikmenn úr HM liði þeirra eru mættir til leiks undir stjórn nýs þjálfara, Carlos Alberto Parreira. Gríðarlegur áhugi er á leiknum í Kína og verða um 80 þús- und áhorfendur á leiknum.  HOLLENDINGAR taka á móti Argentínu í Amsterdam og hefur Dick Advocaat, landsliðsþjálfari Hollands, kallað saman mjög sterkt lið og er ekki með neina tilrauna- starfsemi.  „ÞETTA er ekki neinn vináttu- landsleikur í okkar huga. Við erum hingað komnir til að vinna,“ sagði Marcelo Bielsa þjálfari Argentínu- manna sem fengu slæma útreið á HM í fyrra.  HOLLENSKI landsliðsmaðurinn Jimmy Floyd Hasselbaink sagði í gær í viðtali við London Evening Standard að hann vildi ljúka knatt- spyrnuferli sínum hjá Chelsea. Hasselbaink hefur lengi verið orð- aður við Barcelona. „Ég vil vera áfram hjá Chelsea, ef það er mögu- legt. Það er erfitt að finna betra lið til að vera hjá,“ sagði Hasselbaink.  FRAKKAR leika gegn Tékkum í París þar sem David Trezeguet (Juventus), Bixente Lizarazu (Bayern) og Robert Pires (Arsenal) verða með Frökkum eftir langt hlé vegna meiðsla.  TOMAS Rosicky leikmaður þýska meistaraliðsins Dortmund hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins í Tékklandi annað árið í röð. Rosicky, sem er 22 ára gamall, átti stóran þátt í að Dortmund vann tit- ilinn og komst í úrslit UEFA-keppn- innar þar sem liðið beið lægri hlut fyrir Feyenoord. Félagi Rosicky hjá Dortmund, risinn Jan Köller, varð annar í kjörinu og Pavel Nedved, Juventus, varð þriðji.  ÍRSKI landsliðsmaðurinn Jason McAteer, 31 árs, sem hefur verið frá keppni síðan í september, er tilbúinn í slaginn með Sunderland á laugar- daginn – þegar liðið tekur á móti Heiðari Helgusyni og samherjum hans hjá Watford í bikarleik á Stad- ium of Light í Sunderland. FÓLK ÞJÓÐVERJINN Berti Vogts sem stýrir landsliði Skota í knattspyrnu er ekki hrifinn af þeirri taktík sem Sven Göran Eriksson mun beita gegn Ástralíu. Þar mun Eriksson skipta nánast út öllu byrjunarliðinu sínu í hálfleik og leyfa yngri leik- mönnum að spreyta sig. „Ég hef aldrei og mun aldrei gera slíkt og tel að stuðningsmenn liðsins eigi ekki annað skilið en að sjá þá bestu frá upphafi til enda. Það er ekki sanngjarnt fyrir áhorfendur að fá aðeins að sjá þá bestu í fyrri hálf- leik. Þeir ættu í raun aðeins að greiða hálft verð fyrir aðgöngumið- ann í slíkum tilvikum,“ segir Vogts. „Vanvirð- ing,“ segir Vogts VIKTOR Bjarki Arnarsson, knatt-spyrnumaður hjá hollenska úrvals- deildarfélaginu Utrecht, hefur ver- ið leigður til 1. deildarliðsins TOP Oss þar í landi. Hann leikur með því til vorsins og spilaði sinn fyrsta deildaleik um helgina, kom inn á sem varamaður og lék í hálftíma þegar liðið gerði markalaust jafn- tefli við Jóhannes Harðarson og fé- laga í Veendam. Viktor Bjarki er nýorðinn tvítug- ur og hefur verið í röðum Utrecht í þrjú ár en hann lék með Víkingi í yngri flokkunum. Hann spilaði með unglingaliði Utrecht þar til í vetur að hann færðist upp í varaliðið en hefur ekki fengið tækifæri með að- alliðinu til þessa. Viktor til TOP Oss BERTI Vogts, landsliðsþjálf- ari Skotlands, segir að Skot- ar eigi ekki eins sterkt landslið og þeir áttu fyrir nokkrum árum. „Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því. Ég get ekki valið úr hópi leikmanna sem leika með sterkum liðum í Englandi, heldur verð ég að velja vara- menn í enskum úrvalsdeild- arliðum og leikmenn í neðri deildunum. Við erum ekki lengur í hópi þeirra stóru – en við ætlum okkur í þann hóp. Hér áður fyrr horfðu skoskir landsliðsþjálfarar á leiki Arsenal og Manchester United til að fylgjast með sínum mönnum. Ég horfi á leik Bristol City gegn Wigan. Stóru liðin í Skotlandi, Rang- ers og Celtic, eru með aðeins einn eða tvo skoska lands- liðsmenn í byrjunarliðum sínum,“ sagði Vogts, sem stýrir liði sínu í dag gegn Ír- um á Hampden Park. Skotar ekki lengur í hópi þeirra stóru Enska landsliðið mætir því ástr-alska á Upton Park, heimavelli West Ham, í London. Þar mun ung- lingurinn Wayne Rooney framherji Everton brjóta blað í knattspyrnu- sagnfræðum og verður yngsti lands- liðsmaður Englands frá upphafi, 17 ára og 111 daga gamall. Frank Farina þjálfari Ástralíu segir að leikurinn marki upphaf að undirbúningi liðsins sem ætli sér að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í Þýskaland árið 2006 en Ástralía hefur aðeins einu sinni tekið þátt í lokakeppni HM, árið 1974 í V- Þýskalandi. Harry Kewell framherji Leeds á við meiðsli að stríða en aðrir þekktir leikmenn í liði Ástrala eru: Mark Viduka (Leeds), markvörðurinn Mark Schwarzer (Middlesbrough) og Brett Emerton (Feyenoord). Sven Göran Eriksson landsliðs- þjálfari Englendinga mun nota bestu leikmenn liðsins frá upphafi en býst við því að leyfa yngri leik- mönnum að spreyta sig í síðari hálf- leik. Vogts valdi Hutchison Það verður athyglisverður grannaslagur í dag þegar Skotar og Írar eigast við á Hampden Park í Glasgow. Bertie Vogts landsliðs- þjálfari Skota valdi Jamie Smith (Celtic) og Bob Malcolm (Rangers) í fyrsta sinn í landsliðið auk þess sem framherjinn frá West Ham, Don Hutchison, fær tækifæri eftir um 10 mánaða fjarveru vegna slitins kross- bands í hné. Brian Kerr mun stýra írska lands- liðinu í fyrsta sinn gegn Skotum en hann getur ekki stillt upp sínu sterk- asta liði. Mark Kennedy (Wolves), Gary Kelly (Leeds), Robbie Keane (Tottenham) og Damien Duff (Blackburn) hafa helst úr lestinni á undanförnum dögum vegna meiðsla. Saez leitar að markaskorara Knattspyrnustórveldin Spánn og Þýskaland eigast við í kvöld á Kan- aríeyjum á Spáni. „Það eru margir lykilmenn frá vegna meiðsla og því verður þessi leikur góður vettvang- ur til þess að skoða aðra leikmenn gegn sterku liði,“ segir Rudi Völler, landsliðsþjálfari Þjóðverja. Spánverjar hafa átt í vandræðum með að finna leið að marki andstæð- inga sinna og hafa aðeins skorað eitt mark í síðustu tveimur vináttulands- leikjum. Inaki Saez þjálfari Spánverja seg- ir að hinn sanni markaskorari sé enn ófundinn á Spáni. „Við höfum leik- menn sem geta skorað mörk en við höfum ekki enn fundið leikmann sem gerir ekkert annað en að skora,“ segir Saez. Scolari sneri öllu á hvolf Ítalir taka á móti Portúgal þar sem Giovanni Trapattoni getur ekki teflt fram Christian Vieri, Aless- andro Del Piero og Francesco Totti sem eru meiddir. Trapattoni valdi marga unga leikmenn í lið sitt og það gerði einnig Luiz Felipe Scolari sem stýrir Portúgal í fyrsta sinn en hann stýrði Brasilíu á HM sl. sumar. Aðeins níu leikmenn úr HM hópi Portúgals eru með að þessu sinni og hristi Scolari heldur betur upp í hlutunum þar á bæ. Reuters Wayne Rooney verður yngsti leikmaður Englands þegar hann kemur inná í leik gegn Ástralíu. Fjölmargir vináttulandsleikir í knattspyrnu um alla Evrópu Rooney verður í kast- ljósinu á Upton Park FJÖLMARGIR vináttulandsleikir í knattspyrnu fara fram í Evrópu í dag og kvöld en alls eru 26 leikir á dagskrá og að auki eigast við Júgóslavía og Aserbaídsjan í undankeppni Evrópukeppninnar, en liðin eru í 9. riðli. Þetta er í fyrsta sinn sem landsliðsþjálfarar fá tækifæri með liðum sínum frá því í nóvember sl. en næstu leikir í undankeppni EM eru 29. mars nk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.