Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni HSÍ Undanúrslit karla, SS-bikarinn: Digranes: HK – Fram...........................19.30 Hlíðarendi: Valur – Afturelding...........19.30 1. deild kvenna Vestm.eyjar: ÍBV – FH .............................19 Í KVÖLD HANDKNATTLEIKUR Grótta/KR – Fylkir/ÍR 27:23 Seltjarnarnes, 1. deild kvenna, Esso-deild, þriðjudaginn 11. febrúar 2003. Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 6:1, 7:2, 7:4, 9:4, 11:4, 12:6, 12:8, 13:10, 15:10, 16:1, 16:13, 19:15, 19:17, 21:17, 21:19, 23:19, 24:21, 26:21, 27:23. Mörk Gróttu/KR: Þórdís Brynjólfsdóttir 7/1, Eva Margrét Kristinsdóttir 4, Eva Björk Hlöðversdóttir 4, Aiga Stefanie 4/2, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Ragna Karen Sigurðardóttir 2, Kristín Þórðar- dóttir 2, Kristín Brynja Gústafsdóttir 1. Varin skot: Hildur Gísladóttir 8 (þar af fóru 2 til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Fylkir/ÍR: Tinna Jökulsdóttir 7, Hekla Daðadóttir 6, Sigurbirna Guðjóns- dóttir 4, Valgerður Árnadóttir 3, Andrea Olsen 1, Lára Hannesdóttir 1, Hrönn Krist- insdóttir 1. Varin skot: Erna María Eiríksdóttir 10 (þar af 2 aftur til mótherja), Ásdís Bene- diktsdóttir 2 (þar af 2 aftur til mótherja): Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Brynjar Einarsson og Vilbergur F. Sverrisson. Áhorfendur: Um 65. Staðan: ÍBV 20 17 2 1 563:403 36 Stjarnan 20 14 4 2 460:381 32 Haukar 20 15 1 4 544:454 31 Valur 20 12 1 7 433:419 25 Víkingur 20 10 3 7 439:390 23 Grótta/KR 21 10 1 10 452:458 21 FH 19 9 2 8 463:431 20 KA/Þór 21 3 0 18 423:519 6 Fylkir/ÍR 21 3 0 18 396:548 6 Fram 20 1 0 19 380:550 2 BLAK Dregið var í bikarkeppni Blaksambands Ís- lands í gær. Eftirfarandi lið drógust saman: Konur: 1. umferð: Reynir Hellissandi – Umf. Bifröst Þróttur N.b. – Þróttur N.c. Stjarnan – ÍK  Afturelding situr hjá sem og 1. deildar- félögin. 2. umferð: Stjarnan/ÍK – Reynir Hell./Umf.Bifröst 3. umferð: Afturelding – Fylkir Þróttur N. a. – Þróttur N. b./Þróttur N. c. Stjarnan/ÍK eða Reynir Hellissandi/Umf. Bifröst – Þróttur R. a. HK – KA Karlar: 1. umferð: Þróttur R. b. – Afturelding  Hrunamenn sitja hjá, sem og 1. deild- arfélögin. 2. umferð: Stjarnan – ÍS Hrunamenn – Þróttur R. a.  HK og Þróttur R. b./Afturelding sitja hjá. KNATTSPYRNA England 2. deild: Bristol City – Brentford .......................... 0:0 Luton – Blackpool .................................... 1:3 Port Vale – Chesterfield .......................... 5:2 Vináttulandsleikur Kamerún – Fílabeinsströndin................. 0:3 ÚRSLIT Jafnt var fyrstu mínúturnar en þátók Þórdís Brynjólfsdóttir sig til og með fimm góðum mörkum í röð náði Grótta/KR 6:1 forystu. Það sló ný- liðana í Fylki/ÍR að- eins út af laginu en ekki lengi og með góðri baráttu tókst þeim að saxa á forskotið. Eftir hlé tóku gestirnir enn betur á í vörninni og hægt og bít- andi tókst þeim að minnka forskotið niður í tvö mörk – hefðu gert enn betur en vörnin lagði mikla áherslu á skytturnar svo að Eva Björk Hlöð- versdóttir skoraði þrjú mörk á stutt- um tíma. Grótta/KR tók loks á sig rögg, vandaði betur til sókna sinna sem reyndist gestunum um megn. „Það þarf að mæta í svona leik með fulla einbeitingu til að hafa sig- ur því Fylkir/ÍR-liðið hefur verið að bæta sig og er að nálgast hin liðin,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Gróttu/KR, eftir leikinn. Þórdís átti góðan leik og Eva Björk, Anna Úrs- úla Guðmundsdóttir og Aiga Stefan- ie góða spretti. „Við höfum verið að stríða stóru liðunum og það er nóg af baráttu- anda en vantaði samt neistann,“ sagði Erna María Eiríksdóttir, markvörður og fyrirliði Fylkis/ÍR, eftir leikinn. „Stundum er óðagotið of mikið í lokin og við töpum bolt- anum of mikið. Það vantar reynslu og trú á sigur en það er að koma.“ Tinna Jökulsdóttir, Hekla Daðadótt- ir og Sigurbirna Guðjónsdóttir áttu góðan leik fyrir Fylki/ÍR. „Vantar reynslu og trú á sigur“ Stefán Stefánsson skrifar Arnór sagði í samtali við Morg-unblaðið að hugmyndin væri í raun bæði frumsamin og eins væru margir hlutir fengnir að láni víða að. „Ég byrjaði að tala um þetta þegar Eiður Smári var lítill og síðan hefur þetta legið í láginni þar til núna og tilkoma knattspyrnuhúsanna gerir þetta auðvitað mögulegt. Það er al- veg ljóst í mínum huga að svona skóla þarf til að knattspyrnan hér verði betri. Hugmyndin er ekki að taka eitthvað frá félögunum, heldur á þetta að vera viðbót,“ sagði Arnór. Hann ætlaði í upphafi að fá fjóra til fimm bestu leikmenn hvers ald- ursflokks hjá félögunum en eftir því sem hugmyndinni fleygði fram var ákveðið að hafa skólann í vetur fyrir 13 ára og eldri. „Það verður að byrja einhvers staðar og hugmyndin er að hafa þetta þrisvar til fjórum sinnum í viku áður en krakkarnir fara í skólann. Ég veit að það krefst nokkurs af þeim, en það er auðvitað hluti af ag- anum sem menn verða að hafa til að geta náð langt,“ segir Arnór. Í skólanum verður farið yfir grunnþætti knattspyrnunnar. „Ég vil leggja áherslu á tækni, skilning manna á leiknum og hvernig menn koma best einstaklingsframtakinu inn í leik liðsins. Hreyfing með og án bolta, mataræði, íþróttasálarfræði og þannig mætti lengi telja. Einnig finnst mér vanta mikið tilfinningu manna fyrir eigin líkama og hana vil ég auka. Markmiðið er auðvitað fyrst og fremst það að gera efnilega krakka fyrr tilbúna til að láta að sér kveða í meistaraflokki,“ segir Arnór. Hann segist eiga sér draum um að koma þessu inn í menntakerfið svip- að og gerist víða erlendis. „Fyrst um sinn verðum við með skólann á þess- um tíma og þetta eina námskeið sem verður, frá 24. febrúar og út mars, verður reynslunámskeið og svo hefj- umst við handa af fullum krafti 1. september næsta haust. Við rennum auðvitað dálítið blint í sjóinn hvað þátttöku varðar en hugmyndin er að reyna að fá tíma strax eftir skóla þannig að krakkarnir gætu komið beint eftir skóla. Ég er alveg viss um að svona skóla hefur vantað hér og þar sem áhersluatriðin eru nokkuð önnur en verið hefur hjá félögunum þá verður þetta hrein viðbót við það starf sem þar er unnið,“ segir Arnór. Hann og Benedikt Guðmundsson, gamalkunnur leikmaður með Breiðabliki, munu vera með yfirum- sjón með skólanum en yfirþjálfarar verða Þorlákur Árnason, þjálfari meistaraflokks Vals, og Zeljko Sankovic. „Síðar meir vonast ég til að við verðum fleiri þannig að það verði þrír til fjórir þjálfarar með hverjum hópi,“ segir Arnór. Arnór Guðjohnsen býður upp á morgunmat í nýjum knattspyrnuskóla Æfingar áður en farið er í skólann „Ég vil leggja áherslu á tækni, skilning manna á leiknum og hvernig menn koma best einstaklingsframtakinu inn í leik liðs- ins. Hreyfing með og án bolta,“ segir Arnór Guðjohnsen. ARNÓR Guðjohnsen, fyrrver- andi atvinnumaður í knatt- spyrnu og landsliðsmaður Ís- lands, hefur stofnað Knattspyrnuskóla Arnórs. Skól- inn verður fyrir alla krakka 13 ára og eldri og verða æfingar á nokkuð sérstökum tíma, nefni- lega klukkan 6.30 árdegis, áður en krakkarnir fara í skólann og fá þátttakendur morgunmat áð- ur en þeir fara.  Skólahaldið fer fram í Fíf- unni í Kópavogi og í Egilshöll í Grafarvogi.  Hægt verður að taka 120 nemendur á 5 vikna nám- skeiðið sem hefst 24. febrúar og er það fyrir stráka og stelp- ur 13 ára og eldri.  Þátttökugjald á námskeiðið er kr. 15.000. Æfingatíminn er frá klukkan 6.30 til 7.30 á morgnana og verður boðið upp á morgunmat.  Skráning og frekari upplýs- ingar eru á slóðinni www.knattspyrnuskoli.com. Henry jafnaði met Platini FRANSKI landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Thierry Henry, hefur jafnað met landa síns Michel Platini – og mun bæta það við hvert mark sem hann skorar utan Frakk- lands. Henry skoraði sitt 104. mark fyrir Arsenal gegn Newcastle, en Platini skoraði 104 mörk fyrir Juventus á Ítalíu þegar hann lék með liðinu á árum áður. Það var markamet hjá frönskum leik- manni með liði utan Frakk- lands. „Að ná meti frá svo snjöllum leikmanni eins og Platini var, er stórkostlegt. Hann er einn fræg- asti knattspyrnumaður Frakk- lands,“ sagði Henry í viðtali við franska blaðið l’Equipe. HERMANN Hreiðarsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, er á leið í fjög- urra leikja bann í Eng- landi. Hermann, sem var á dögunum úrskurðaður í þriggja leikja bann vegna brottrekstrar, fékk sitt fimmta gula spjald á tímabilinu á laugardag- inn og þar með bætist einn leikur við. Hann missir af tveimur leikjum Ipswich gegn Wolves og leikjum við Grimsby og Norwich. Hermann í lengra bannHAUKUR Ingi Guðnason, landsliðsmaður í knattspyrnu úr Keflavík, gengur að öllu óbreyttu til liðs við bikarmeistara Fylkis í dag. Félögin hafa náð samkomulagi um félagaskipti Hauks Inga og Fylkir kaupir hann af Keflavík, en þó með ákveðnum fyrirvara um að staða hans verði endurskoðuð að þessu tímabili loknu ef Keflvíkingar vinna sér sæti í úrvalsdeildinni. „Ég tel að það hafi náðst ágætis málamiðlun í þessu samkomulagi félaganna og ég reikna með því að gengið verði frá öllum lausum end- um á morgun (í dag). Það er erfitt að yfirgefa Keflvíkinga en ef ég ætla mér að berjast áfram um sæti í landsliðinu verð ég að spila í efstu deild. Mér líst vel á mig hjá Fylkismönnum,“ sagði Haukur Ingi við Morgunblaðið í gær- kvöld en þá var hann nýkominn af sinni fyrstu æfingu með Fylkismönnum, í Egilshöll. Haukur Ingi fer í Fylki LENGI vel tókst Fylki/ÍR að standa í Gróttu/KR þegar liðin mættust á Seltjarnarnesi í gærkvöldi en gáfu eftir í lokin og Grótta/KR hafði 27:23 sigur. Fylkir/ÍR er eftir sem áður í 10. sæti deildarinnar en Grótta/KR komst upp í 6. sæti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.