Morgunblaðið - 16.02.2003, Blaðsíða 61
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 10.30
ÁLFABAKKI
Nú verður ekkert gefið eftir í
lokabaráttunni. Hasarhlaðnasta
Star Trek myndin til þessa.
Lokabaráttan
er hafin!
KRINGLAN
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.15. B. I. 16.
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10./ /
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Almenn forsýning kl. 10.30. B.i. 16.Almenn forsýning kl. 2 og 4. Ísl. tal. / Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 10 ára.
ÁLFABAKKI
Spennuhrollur
ársins.
Áður en þú deyrð,
færðu að sjá
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2003 61
HINAR vafasömu hliðar fótboltans
fagra eru viðfangsefni frönsku mynd-
arinnar Skaphundurinn eða Coup de
tête eftir kvikmyndagerðarmanninn
kunna Jean-Jacques Annaud, sem
Film-undur sýnir um
þessar myndir í sam-
starfi við Kvik-
myndaklúbb Alliance
française. Myndin,
sem er frá 1979, ger-
ist í meðalstórum bæ í Frakklandi.
Hægri framvörður í fótboltaliði stað-
arins, mikill skaphundur, hefur af
slysni meitt aðalstjörnu liðsins og er í
kjölfarið vísað úr liðinu. Ekki nóg með
það heldur er hann einnig rekinn úr
vinnu vegna atviksins enda er yfir-
maður hans jafnframt yfirmaður fót-
boltaliðsins. Þegar allt lítur út fyrir að
skaphundurinn sé kominn á botninn
kemur enn eitt reiðarslagið, hann er
sakaður um nauðgun og honum hent í
steininn. Þjóðfélagið hefur þar með
hafnað honum, lýsir hann úrhrak og
óþarfan ... þangað til það fer að vanta
ellefta manninn í fótboltaliðið.
Þótt þessi gráglettna ádeila sé
góðra tveggja áratuga gömul þykir
hún enn gefa glögga mynd af brengl-
uðum hugsunarhætti og undarlegri
forgangsröðun sem gjarnan vill tengj-
ast keppnisíþróttum, einkum fótbolt-
anum.
Jean-Jacques Annaud leikstjóri
myndarinnar er einn kunnasti kvik-
myndagerðarmaður Frakka og hefur
sent frá sér nafntogaðar myndir á
borð við Leitina að eldinum, Björninn
og Nafn rósarinnar. Helstu leikendur
í Skaphundinum eru Jean Bouise, Pat-
rick Dewaere, Corinne Marchant og
France Dougnac.
Spark-
viss skap-
hundur
Sýnd í Háskólabíói í dag, sunnudag, kl.
18.15 og og mánudag kl. 20.15. Myndin
er með enskum texta.
Lánlaus fótboltakappi.
ÁSA J. Gunnarsdóttir
missti son sinn árið 2000
fyrir aldur fram. Valgeir
M. Gunnarsson átti við geð-
sýki að stríða og hafnaði
utanveltu í samfélaginu
eins og svo margir aðrir.
Í kjölfarið á andláti Val-
geirs ákvað Ása móðir hans
að stofna líknarsjóð, til að
styrkja utangarðsfólk og
heimilislausa. Til að styrkja
það verðuga málefni stend-
ur hún fyrir stórtónleikum
í Austurbæ komandi þriðju-
dagskvöld kl. 20 og mun
aðgangseyririnn, 2.000 kr.,
renna óskiptur í sjóðinn.
Margir hafa brugðist vel
við erindi Ásu og ætlar Ótt-
ar Felix Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Austurbæjar,
góðfúslega að eftirláta Ásu
húsið þetta kvöld. Sömu-
leiðis munu listamennirnir
sem fram koma gefa vinnu
sína. Það er einvala lið
hljómlistarmanna sem
koma fram á þriðjudag
m.a.: Stuðmenn, Páll Rós-
inkranz, Bubbi Morthens og
Halli og Laddi.
Fleiri góðir gestir munu
þá einnig láta sjá sig.
Sjálfir Stuðmenn ætla að
skemmta.
Tónleikar
til styrkt-
ar utan-
garðsfólki