Morgunblaðið - 04.03.2003, Qupperneq 4
Ekkert fór til spillis
ÞAU Einar Páll og Lilja Eivor, nemendur í 4. bekk
Hlíðaskóla, gæddu sér á ljúffengum rjómabollum á
bolludaginn í gær. Þau áttu í mestu vandræðum með að
koma öllum rjómanum á sinn stað en gættu þess að ekk-
ert færi til spillis.
Margir tóku sér frí frá megrunarkúrum og nutu her-
legheitanna. Bakarar hlakka gjarnan mikið til þessa
dags. „Við bakarar hlökkum alltaf til bolludagsins. Við
reynum að hafa nóg framboð af bollum og vonum að allt
gangi upp. En við erum líka jafn fegnir því þegar þess-
ari törn lýkur,“ sagði Guðni Andreasen, bakari á Sel-
fossi og formaður Landssambands bakarameistara, en
hann hafði þá staðið tæplega 10 stundir við baksturinn í
bakaríi sínu á Selfossi.
Sala á bollum var víða mikil og sagði Elías Þór Þor-
varðarson, verslunarstjóri Nettó í Mjódd, aldrei hafa
selt jafn mikið af bollum og á sunnudag. Þá seldi hann
um 19.000 bollur á 1 krónu stykkið. Hann sagði fólk
sýna síaukinn áhuga á bollum enda voru flestir ánægðir
með verðið sem hann setti upp.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vilja neyðarteymi til að
sinna bráðatilvikum
NEFND um málefni barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, BUGL, leggur til
að rúmum á deildinni verði þegar í
stað fjölgað úr níu í tólf, að göngu-
deildin verði flutt annað og ung-
lingageðdeildin stækkuð. Þá leggur
nefndin til að þegar í stað verði
komið á stofn neyðarþjónustuteymi
til að sinna bráðatilvikum. Í því felst
nokkur fjölgun starfsfólks sem veit-
ir geðheilbrigðisþjónustu.
Eydís Sveinbjarnardóttir, sviðs-
stjóri hjúkrunar geðsviðs og for-
maður nefndarinnar, segir að um
bráðatillögur sé að ræða en að
nefndin leggi ríka áherslu á að sam-
hliða þessum tillögum verði áfram
unnið að varanlegri lausn.
Jóni Kristjánssyni, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, bárust til-
lögurnar í gær og segir hann að sér
lítist vel á þær þótt þær muni kosta
verulega fjármuni.
Tillögur nefndarinnar eru í þrem-
ur liðum. Í fyrsta lagi er gert ráð
fyrir að rúmum á unglingageðdeild
verði þegar í stað fjölgað úr níu í
tólf. Þetta yrði gert með því að dag-
deild á BUGL yrði fundinn staður
annars staðar í húsnæði deildarinn-
ar. Ekki yrði um umtalsverðan
kostnað að ræða vegna þessa að
mati nefndarinnar.
Göngudeildin flutt annað
Í öðru lagi er gerð tillaga um að
göngudeildin sem nú er rekin á
BUGL verði flutt annað og ung-
lingageðdeildin stækkuð. Með því er
talið gerlegt að fjölga rúmum á ung-
lingageðdeild í sautján til frambúð-
ar og hefði rúmum þá verið fjölgað
úr níu í sautján. Er í þessu skyni
lagt til að leitað verði eftir leigu-
húsnæði fyrir göngudeild BUGL.
Í þriðja lagi er lagt til að þegar í
stað verði komið á fót sérstökum
starfshópi sem einbeitti sér að
bráðatilvikum. Í þessu felst nokkur
fjölgun starfsfólks sem veitir geð-
heilbrigðisþjónustu að mati nefnd-
arinnar. Auk þess að sinna bráða-
tilvikum yrði meginviðfangsefni
hópsins að vinna á bráðabiðlistum
unglingageðdeildar, heimsækja
unglinga í vanda og veita sérhæfða
geðheilbrigðisþjónustu utan spítal-
ans. Þá myndi átakshópurinn greiða
fyrir innlögn unglinga á unglinga-
geðdeild í samráði við inntökustjóra
og vakt barnageðlækna.
„Hópinn yrði því hægt að nýta á
margan hátt,“ segir Eydís. „Hann
yrði hreyfanlegur. Erlendis er þetta
töluvert notað í geðheilbrigðisþjón-
ustu, þar sem starfsfólkið er hreyf-
anlegra en hefðbundin sjúkrahús-
þjónusta leyfir. Við höfum ekki gert
þetta hér nema í undantekningartil-
vikum. Í þennan hóp færi aðeins
reynt fólk. En það fer eftir fjárveit-
ingu hvað við getum haft hópinn
stóran og sterkan.“
Nefndina skipa auk Eydísar Ólaf-
ur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir
BUGL, Vilborg G. Guðnadóttir,
deildarstjóri BUGL, Ásgeir Har-
aldsson, prófessor og yfirlæknir á
Barnaspítala Hringsins, og Magnús
Ólafsson, sviðsstjóri hjúkrunar á
barnasviði.
Nefndin mun skila ítarlegri til-
lögum að lausn vanda BUGL í lok
mars.
Þarf að taka ákvörðun fljótt
Jóni Kristjánssyni, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, líst vel á
tillögurnar og segist vera að kanna
hvaða möguleikar eru til að fram-
kvæma þær. „Kostnaðurinn er veru-
legur við tillögurnar og við erum að
fara yfir þær tölur. Mér sýnist hins
vegar að þær séu settar fram af
raunsæi.“
En hvenær er að vænta ákvörð-
unar um hvort tillögunum verði
hrint í framkvæmd? „Vonandi sem
allra fyrst,“ segir Jón. „Ég þarf að
komast að niðurstöðu í þessu máli
fljótt.“
Lagt til að rúmum á barna- og unglingageðdeild LSH verði fjölgað þegar í stað
Ráðherra segir tillögurnar raunhæfar
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fundu um
50 þúsund myndir
með barnaklámi
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
fundið um 50 þúsund myndir með
barnaklámi í tölvum tveggja karl-
manna auk um fimm þúsund klám-
mynda sem tengjast dýrum. Rann-
sókn er lokið og fara málin sína leið
til ákæruvalds og dómsvalds.
Grunur um myndirnar vaknaði í
janúar í fyrra þegar verið var að
rannsaka tvö óskyld mál. Hörður Jó-
hannesson yfirlögregluþjónn segir
að í báðum tilvikum hafi verið lagt
hald á tölvu og í ljós hafi komið að
mikið magn mynda hafi verið geymt
í tölvunum. Ríkislögreglustjóri hafi
lagt fram búnað og mannskap til að
rannsaka þetta nánar og nú liggi fyr-
ir að í annarri tölvunni hafi verið
geymdar rúmlega 39.000 myndir
sem flokkist undir barnaklám og
virðast hafa verið teknar af Netinu.
Í hinu tilvikinu hafi verið rúmlega
15.000 myndir, þar af um tveir þriðju
hlutar sem tengdust barnaklámi en
þriðjungur klámmyndir sem tengj-
ast dýrum, sem líka virðast hafa ver-
ið teknar af Netinu.
Samkvæmt lögum sem sett voru í
febrúar í fyrra skal hver sá sem flyt-
ur inn eða hefur í vörslu sinni ljós-
myndir, kvikmyndir eða sambæri-
lega hluti sem sýna börn á
kynferðislegan eða klámfenginn hátt
sæta sektum eða fangelsi allt að
tveimur árum, en fyrir þann tíma
voru viðurlögin eingöngu sektir.
Vinnumiðlun skólafólks
tekin til starfa
Yfir 140
umsóknir á
fyrsta degi
YFIR 140 atvinnuumsóknir bárust
Vinnumiðlun skólafólks í gær, en þá
hóf miðlunin að taka við umsóknum
fyrir sumarið. Vinnumiðlunin, sem
er í Hinu húsinu, er opnuð mánuði
fyrr í ár en í fyrra. „Það er töluverð-
ur léttir að opna fyrr og við erum
mjög vel undirbúin enda meðvituð
um að atvinnuleysi er fyrir hendi,“
segir Auður Kristín Welding, verk-
efnastjóri Vinnumiðlunar skólafólks,
en á heimasíðu Hins hússins, hitt-
husid.is, eru umsóknareyðublöð.
„Við áttum von á mörgum um-
sóknum en við erum sérstaklega
ánægð með hvað fólk er duglegt að
nota Netið og sækja um.“
Auður segir að umsóknirnar verði
fljótlega sendar á starfsstöðvar og
umsækjendur megi eiga von á að fá
svör í apríl.
Síðasta föstudag mættu um 500
ungmenni í Hitt húsið til að kynna
sér þau fjölbreyttu tækifæri sem
standa til boða varðandi nám, leik og
störf erlendis. Dagskráin nefndist
Útþrá 2003. „Þetta var okkar svar
við atvinnuástandinu,“ útskýrir Auð-
ur. „Við vildum reyna að vera já-
kvæð og sýna fólki að það eru miklu
fleiri möguleikar í boði en störf hjá
borginni.“
Skemmdin á
vatnsleiðsl-
unni fundin
FRIÐRIK Friðriksson veitustjóri í
Vestmannaeyjum telur að búið sé
að finna lekann á vatnsleiðslunni
sem liggur til Vestmannaeyja. Eftir
ítarlega leit er haldið að skemmdir
á leiðslunni séu um kílómetra út af
ströndinni rétt vestan við ósa Mar-
kafljóts, utan við flugvöllinn á
Bakka. Erfitt er þó að komast að
skemmdunum.
„Það er fjögurra metra ölduhæð í
briminu þrátt fyrir fínasta veður.
Þetta er þar sem grunnið er, á
svona 12-15 metra dýpi, mjög
grunnt og þægilegt,“ sagði Friðrik.
Hann sagði bát, sem var þarna í
gærmorgun, hafa þurft frá að
hverfa vegna öldugangs.
Hann sagði jafnframt að beðið
væri eftir norðanátt því þá stæðu
vonir til sjóinn lægi. „Það er voða-
leg þolinmæði sem þarf í þetta en
við hljótum að finna þetta eins og
skot þegar brimið lægir,“ sagði
Friðrik.
Leiðslan skemmdist í óveðri 11.
febrúar og hafa Vestmanneyingar
þurft að fara sparlega með vatn síð-
an.
Vetnisstöð
á leið í skip
ALLUR búnaðurinn sem not-
aður verður í fyrstu vetnisstöð
heims sem opin verður almenn-
ingi og Skeljungur hyggst taka
í notkun á sumardaginn fyrsta
er tilbúin í Noregi. Norsk
Hydro framleiddi allan búnað-
inn og er gert ráð fyrir að siglt
verði af stað með búnaðinn til
Íslands næsta föstudag.
Margrét Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs smásölu hjá Skeljungi,
segir að gert sé ráð fyrir því að
búnaðurinn verði kominn til Ís-
lands um miðjan mars og þá
verði hafist handa við að reisa
stöðina. Stefnt er að því að
opna hana á sumardaginn
fyrsta, hinn 24. apríl.
Til að byrja með mun vetn-
isstöðin þjónusta eina vetnisbif-
reið, en í sumar bætast þrír al-
menningsvagnar á vegum
Strætó bs. við. Kostnaðurinn
við uppbygginguna er um 100
milljónir króna, en Skeljungur
og Íslensk nýorka byggja stöð-
ina í sameiningu. Í tengslum við
opnun stöðvarinnar verður
haldin alþjóðleg ráðstefna hér á
landi um vetni sem orkugjafa.
♦ ♦ ♦