Morgunblaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 51
TÍSKUVIKAN í Mílanó stendur yfir en þar sýna hönnuðir fatatískuna fyrir næsta haust og vetur. Óþekktir hönnuðir hófu leikinn í síðustu viku. Kólumbíski hönnuðurinn Silcia Tcherassi hélt sína fyrstu sýningu í Mílanó fyrir fullu húsi við góðar undirtektir. Sýningin var í heildina kvenleg og klassísk. Efnisval hennar er fjölbreytt og kemur oft á óvart. Helstu hönnuðir er starfa á Ítalíu sýna á tískuvikunni í Mílanó, sem kemur á eftir svipuðum uppákomum í New York á London. Síðust í röð- inni er svo tískuvikan í París. Metfjöldi virðist ætla að sækja sýningarnar í Mílanó í ár, þrátt fyrir drunga í efnahagsmálum og stríðs- ótta. Sýning D&G, sem er ódýrari fata- lína Dolce & Gabbana ætluð yngra fólki, fór fram á fimmtudag. Sýn- ingin var litrík að venju og ungæð- isleg. Húmorinn er aldrei langt und- an hjá þessu ítalska pari. Fötin eru sannarlega fyrir ungar og ríkar ítalskar dömur, sem vilja klæðast í anda götutískunnar. Skilaboðin gegn stríði voru skýr í sýningunni. Allar sýningarstúlk- urnar komu fram í bolum sem á stóð „pace“ eða friður. Tískan getur líka tekið afstöðu. Um helgina tóku síðan þekktustu hönnuðirnir og tískuhúsin við: Prada, Gucci, Dolce & Gabbana, Fendi og Giorgio Armani. Tískuvik- unni lýkur í kvöld með sýningu Ver- sace og verða sýningunum gerð góð skil í Morgunblaðinu í vikunni. Ung og rík Tískuvikan í Mílanó: Haust/vetur 2003–4 SILVIA TCHERASSI D&G MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 51 Zwan – Mary Star of the Sea SMASHING Pumpkins-fylgj- endur hafa beð- ið óþreyjufullir eftir því hvað Billy Corgan myndi gera eft- ir að hann leysti upp sveitina. Ég er ekki frá því að það komi mörgum þeirra á óvart – flestum þægilega – hversu lítið hann hvikar frá stefnu Sma- shing í þessu nýja verkefni sínu sem gengur undir nafninu Zwan, því sveitin flytur rokk og það held- ur hreinræktað sem slíkt. Sjálfur bjóst ég við ögn meiri róttækni í ljósi tilraunaglaðrar fortíðar sam- starfsmannanna (úr Slint, Papa M, Tortoise, A Perfect Circle og Chav- ez t.d.) og vissulega veldur það ákveðnum vonbrigðum. Hitt vegur upp á móti að það er ánægjulegt að sjá hve brúnin hefur lyfst á Corgan. Ferskleikinn og spilagleðin leynir sér ekki og hann virðist á ný búinn að uppgötva melódíugenin í sér sem voru með öllu horfin á sorglegum svanasöng Smashing, MACHINA/ Machines of God. Ennfremur er gleðiefni að heyra í snillingnum Jimmy Chamberline í essinu sínu á ný við húðirnar, þótt vissulega megi færa fyrir því góð rök að maðurinn fari offari, rétt eins og ákafur Mús- íktilraunatrommari, nýsloppinn út úr bílskúrnum. Kannski er það samt um leið skýrasta merkið um spilagleðina og ferskleikann. Eitt- hvað segir mér þó að Zwan verði ekki langlíf sveit, og fyrr en síðar muni Corgan koma fram í endan- legri mynd, undir eigin nafni, einn og óstuddur. Turin Brakes – Ether Song Önnur platan frá þessum breska gítardú- ett. Framþró- unin eru satt best að segja fremur lítil. Munurinn frá frumburðinum ágæta The Optimist LP liggur kannski hvað helst í að útsetningar eru orðnar margbreyti- legri og úthugsaðri (Grammy-verð- launahafinn „okkar“ hann Husky Höskulds tók upp plötuna). Röddun þeirra félaga er og skemmtileg en sem fyrr angrar flúraður söngstíll forsöngvarans Ollie Knight mig fullmikið og lagasmíðarnar sjálf mættu vera skör sterkari. Mér er til efs að hróður Turin Brakes eigi eftir að aukast mjög með þessari plötu en það breytir því ekki að þeir sem þegar eru fallnir fyrir sveitinni ættu að fá heilmikið fyrir sinn snúð. Erlendar plötur Skarphéðinn Guðmundsson Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 SV. MBL HK DV ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com13 Tilnefningar til Óskars- verðlauna þ. á. m. besta mynd Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 RADIO X SV MBL  Kvikmyndir.com  SG DV  kvikmyndir.com Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12. Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ. á. m. Salma Hyaek sem besta leikkona í aðalhlutverki6 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. www.regnboginn.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16. Stútfull af topp tónlist og brjálæðri spennu. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd. Sýnd kl. 4. ísl. tal. 400 kr.  RADIO X SV MBL  KVIKMYNDIR.COM SG DV  ÓHT RÁS 2 Frábær svört kómedía með stór leikurunum Jack Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefningar til Óskarsverðlaun- anna í ár fyrir leik sinn í mynd- inni. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16 ára. Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m. besta mynd og besti leikstjóri10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i.16. Stútfull af topp tónlist og brjálæðri spennu. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd.  HJ MBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.