Morgunblaðið - 04.03.2003, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 23
SPRENGIDAGUR er þriðjudagur
í 7. viku fyrir páska (3. febrúar til
9. mars) og ber upp á 4. mars að
þessu sinni. Árni Björnsson þjóð-
háttafræðingur segir vitað um salt-
kjöt og baunir frá síðari hluta 19.
aldar í Sögu daganna og virðist sú
hefð síst á undanhaldi.
Verslanir auglýstu hráefni í salt-
kjöt og baunir í gríð og erg fyrir
helgi og hafði Guðmundur Mar-
teinsson, framkvæmdastjóri Bón-
uss, selt 12 tonn af saltkjöti
snemma í gærdag. Kveðst hann
vanur að selja um 15 tonn af salt-
kjöti fyrir sprengidag. Flestir
kaupa hráefnið daginn áður enda
þurfa baunirnar að liggja í bleyti
dágóða stund.
Bónus er með sérpakkaða síðu-
bita á boðstólum annað árið í röð
og segir Guðmundur þá hafa „sleg-
ið í gegn“, þótt um sé að ræða
„spikfeita bita“, eins og hann tekur
til orða.
Kílóið af söltuðum síðubitum var
á 71 krónu í gær í Bónusi, að sögn
Guðmundar, og 40% afsláttur veitt-
ur af uppgefnu verði á blönduðum
og völdum bitum í pakkningum.
Kíló af saltkjöti hefur lækkað
um 20% síðan í fyrra að hans mati
og segir Guðmundur 30% afslátt
hafa verið veittan af uppgefnu
verði á pökkuðu saltkjöti fyrir ári.
Tekur hann fram að framboð sé
meira af ódýrari bitum nú.
Framhryggjarbitar sækja á
Sigurður Gunnar Markússon,
rekstrarstjóri Nóatúns, áætlar að
selja 30 tonn af saltkjöti fyrir
sprengidag. Um eða yfir 60% þess
magns eru valdir bitar og segir
Sigurður Gunnar þróunina hafa
verið þá undanfarin ár, að sífellt
fleiri kjósi bita af völdu kjöti. Í
þeim flokki er um að ræða fram-
hryggjarbita, sem eru fituminni.
Einnig segir hann að sífellt fleiri
noti blaðlauk í stað lauks í bauna-
súpuna og fleiri tegundir rótar-
grænmetis en gulrætur og rófur.
„Áhugi hefur aukist mikið á sölt-
uðum síðubitum, sérstaklega hjá
eldra fólki. Margir úr þeim hópi
kaupa bara síðubita. Einnig hefur
færst í vöxt að fólk kaupi bita af
reyktri svínasíðu til þess að gefa
meira bragð í baunasúpuna,“ segir
hann.
Í hefðbundinni blöndu af salt-
kjöti er aðallega um að ræða fram-
part sem búið er að brytja niður í
súpukjötsbita. Segir Sigurður
Gunnar úrval saltkjöts meira nú en
áður og um fleiri útfærslur að
ræða.
Ódýrari útfærslan af blönduðu
saltkjöti var á 269 krónur kílóið í
Nóatúni í gær. Kíló af hefðbundnu
blönduðu saltkjöti á 499 krónur og
kíló af völdu súpukjöti á 998 krón-
ur. Þá var kíló af söltuðum síðubit-
um á 99 krónur.
Segir Sigurður Gunnar kílóverð
á hefðbundnu blönduðu saltkjöti
hafa lækkað um 100 krónur síðan í
fyrra, úr 598 krónum í 499 krónur.
Aukinn áhugi á þjóðlegheitum
Elías Þór Þorvarðarson, versl-
unarstjóri Nettó í Mjódd, áætlar
að selja sex tonn af saltkjöti í
Mjóddinni fyrir sprengidag. Sagði
hann sölu á saltkjöti hafa verið
„rífandi“ í gærdag.
„Sala á saltkjöti var mjög góð í
fyrra og virðist ætla að vera jafn-
góð í ár. Ég finn fyrir auknum
áhuga hjá fólki á því sem þjóðlegt
er,“ segir hann.
Kílóið af síðubitum var á 99
krónur í Nettó í gær, ódýrari út-
gáfan af blönduðu saltkjöti á 299
krónur kílóið og dýrari útgáfan á
599. Kílóið af völdu saltkjöti kost-
aði frá 989 krónum upp í 1.248
krónur.
Landsmenn taka hraustlega til
matar síns í kringum bolludag og
sprengidag og segir Laufey Stein-
grímsdóttir, forstöðumaður Mann-
eldisráðs, að hefðin sem tengist
þessum dögum sé bara skemmtileg
og engin ástæða til þess að láta
ráðleggingar um hollt mataræði
draga úr sér.
„Nú einblínum við bara á þetta
jákvæða. Þeir sem vilja passa sig
geta hins vegar borðað minna af
saltkjöti og meira af baunum,“ seg-
ir hún.
Laufey segir ekki ástæðu til
þess að óttast mikinn saltpétur í
saltkjöti um þessar mundir þar
sem framleiðslan sé undir góðu eft-
irliti.
„Saltpétur var notaður í óheyri-
legu magni hér áður þegar menn
vissu ekki betur, en það er nú liðin
tíð,“ segir hún.
Viðkvæmum hætt við
veikindum eftir saltkjötsát
„Saltinnihald er mjög mikið eftir
sem áður og þeir sem eru mjög
viðkvæmir fyrir salti, til dæmis
hjartasjúklingar, verða því að gæta
sín, enda geta þeir orðið verulega
veikir.“
Er haft eftir læknum á öldrunar-
og sjúkrastofnunum að veikindi
eftir saltkjötsát á sprengidag séu
árviss viðburður.
Ekki er mælt með því að ungum
börnum sé gefið mikið saltkjöt og
segir Laufey líkama barna undir
eins árs ekki þola jafn mikið magn
af salti og er í saltkjöti.
Framhryggur og blað-
laukur vinsæll í súpuna
Vinsældir salt-
kjöts og bauna
síst á undanhaldi
Morgunblaðið/Jim Smart
Aðalsalan á saltkjöti og baunum fer fram daginn fyrir sprengidag og segja
kaupmenn fjölbreytni saltkjöts hafa aukist á undanförnum árum.
NATHAN &
Olsen greinir
frá tveimur
nýjum gerð-
um orku-
stanga á
markaði. Um
er að ræða bita úr náttúrulegu
hráefni með fáum hitaeiningum,
samkvæmt tilkynningu frá fyr-
irtækinu. Stangirnar eru meðal
annars úr heilum höfrum, hnetum
og rúsínum og verður um tvær
gerðir að ræða, með ávöxtum og
hnetum og „granola“. Vörumerk-
ið er Nature Valley og framleið-
andi General Mills. Stangirnar eru
seldar saman, sex í kassa.
Fleiri orku-
stangir í boði
VOR- og sum-
arlistar Otto
eru komnir út
og er aðallist-
inn tæplega
1.400 síður, að
því er segir í
fréttatilkynn-
ingu. Í listunum
er að finna fatnað á alla fjöl-
skylduna í öllum stærðum, vefn-
aðarvöru, úrval af húsgögnum,
borðbúnað og margskonar
gjafavöru og fleira. Vakin er at-
hygli á fjölmörgum sérlistum
Otto. Allir listarnir koma út
tvisvar á ári. Nánari upplýs-
ingar á www.otto.is. Einnig fást
listarnir í bókaversluninni
Grímu, Garðatorgi í Garðabæ.
Vor- og sum-
arlistar Otto
Heildverslunin
i&d ehf. vekur at-
hygli á nýrri
blöndu vítamína
og steinefna frá
Vitabiotics í Bret-
landi fyrir húð,
hár og neglur.
„Blandan inniheldur
öll helstu næringarefni sem talin
eru nauðsynleg til að byggja upp
og viðhalda heilbrigði vefjarins
sem hár, húð og neglur eru hluti
af. Þar á meðal er góð blanda B-
vítamína, C- og E-vítamín og
blanda mikilvægra steinefna.
Perfectil inniheldur að auki kar-
ótín og jurtakrafta úr sólhatti
og krókalöppu sem kunna að
hjálpa til við að styrkja og efla
hreinsun og endurnýjun,“ segir í
tilkynningu frá i&d.
Bætiefni fyrir
húð og hár
VERSLUNIN Bónus tók á
móti 40 feta gámi af suður-afr-
ískum Dole vínberjum í gær-
dag og verður kílóið selt á 199
krónur, að sögn Guðmundar
Marteinssonar framkvæmda-
stjóra Bónuss. Í gámnum eru
14,4 tonn af vínberjum sem
Guðmundur segir þola tveggja
vikna geymslu hjá versluninni.
Annars vegar er um að ræða
græn steinlaus vínber og blá
vínber með steinum hins vegar.
Guðmundur segir hagstæð
magninnkaup og litla álagningu
gera versluninni kleift að bjóða
kíló af vínberjum á þessu verði.
„Hér er um tilraun að ræða af
okkar hálfu en framhaldið
ræðst af undirtektum við-
skiptavina.“
Vínber á
199 krón-
ur kílóið