Morgunblaðið - 04.03.2003, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.03.2003, Qupperneq 33
í blaðagrein sem birtist í Tímanum í september 1969. Greinin ber yfir- skriftina „Í útlöndum er ekkert skjól“ og kemur fram að fokið sé í mörg skjól við brottför hans frá París þar sem hann hafi ekki aðeins lagt sig í líma við að greiða götu námsmanna heldur hafi heimili hans og Ragnheiðar verið sem vin í þeirri auðn sem hin ríka og fagra Par- ísarborg geti virst fjarri átthögum. Á því rausnarheimili hafi alltaf verið rými fyrir nokkra til viðbótar. Sig- urður og Ragnheiður voru alla tíð einstaklega samhent. Ragnheiður var ekki aðeins traustur bakhjarl við rekstur heimilis en einnig við sendiráðsstörf. Hagsmunagæsla og fyrirgreiðsla af ýmsu tagi er drýgsti þáttur sendiráðsstarfa. En hvert sem Sig- urður fór var hann einnig fulltrúi sagnaarfs Íslendinga, ljóðlistar og bókmennta. Sigurður var ljóðelskur og og stálminnugur. Ljóðlistin var honum ekki aðeins dægradvöl held- ur mótaði hún viðmót hans og lífs- afstöðu. Hvort sem hann var að stappa stálinu í íslenska námsmenn í París eða rækta tengsl við erlend stjórnvöld fann hann þar þann sem styrk sem dugði. Við starfsfólk ut- anríkisþjónustunnar þökkum Sig- urði samfylgdina um langan veg og sendum Ragnheiði hugheilar sam- úðarkveðjur. Gunnar Snorri Gunnarsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 33 Vegna mistaka birt- ust greinar um Mar- gréti Sigurjónsdóttur með grein um Margréti Sæmundsdóttur í blaðinu í gær. Við biðjumst afsökun- ar á þessum mistökum og birtum greinarnar hér aftur. Ég man eftir því þegar ég hitti Möggu í fyrsta skipti fyrir rúmum fimm árum, þegar leiðir okkar Sigga lágu saman. Hún tók mér opnum örmum og strax fann ég hversu hlý og góð kona hún var. Hún var ekki orðmörg en hafði gaman að vera inn- an um fólk. Þegar við Siggi eignuð- umst Árna Þór sat hún með lang- ömmustrákinn og væntumþykjan leyndi sér ekki. Og þegar fram líða stundir munum við Siggi setjast nið- ur með Árna og segja honum frá langömmu sinni sem var svo góð við hann. Magga var kona sem kvartaði aldrei þrátt fyrir að heilsan væri far- in að gefa sig, heldur lét hún já- kvæðni og brosið ráða för, sem við unga fólkið ættum að taka til eftir- breytni. Núna er Magga komin á góðan stað og baráttan við veikindin er lok- ið, ég vona að þér líði vel og að þú fylgir okkur áfram. Minningin þín er ljós í lífi okkar. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hefur að segja, um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög, sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð MARGRÉT SIGURJÓNSDÓTTIR ✝ Margrét Sigur-jónsdóttir fædd- ist að Minnibæ í Grímsnesi 27. febr- úar 1917. Hún lést á deild K-2 á Landa- koti 10. febrúar síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 20. febrúar. við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. (Bryndís Jónsdóttir.) Björg Árnadóttir. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? (Jóhannes úr Kötlum.) Kveðja Árni Þór. Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR, Ásabyggð 14, Akureyri, síðast til heimilis á Kumbaravogi, Stokkseyri, andaðist aðfaranótt sunnudagsins 2. mars. Jarðsett verður frá Kollafjarðarneskirkju laugardaginn 8. mars kl. 14. Páll Hjartarson, Jón Hjartarson, Áslaug Ólafsdóttir, Hreinn Hjartarson, Sigurbjörg Gísladóttir, Sigmar Hjartarson, Guðný S. Hallgrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, ANNA PETERSEN, Flókagötu 25, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 1.mars. Bernhard Petersen, Anna María Petersen, Elsa Petersen, Bogi Nilsson, Othar Örn Petersen, Helga Petersen, Ævar Petersen, Sólveig Bergs. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR frá Baldurshaga, Vestmannaeyjum, Dalbraut 20, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi laugardaginn 1. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Hulda Ósk Jónsdóttir, Haukur Ó. Geirsson, Guðjón Haukur Hauksson, Bryndís Jóhannesdóttir, Tinna Ósk Hauksdóttir, Sævar Geir Ómarsson og barnabarnabörn. Bróðir minn, HELGI MÁR KRISTJÁNSSON, Bræðraborgarstíg 32, lést á heimili sínu laugardaginn 1. mars. Guðbrandur Kristjánsson. Elskulegur fóstri minn, BALDVIN ÓLAFSSON húsasmiður, áður til heimilis á Háteigsvegi 50, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudag- inn 28. febrúar. María Guðmundsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HALLDÓR GUÐMUNDSSON, Þangbakka 8, (áður Akurgerði 8), Reykjavík, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík föstudaginn 28. febrúar sl. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 7. mars kl. 13.30. Anna Steinunn Jónsdóttir, Helga Halldórsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Elín Snæbjörnsdóttir, Jón Árni Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA FRIÐRIKSDÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugar- daginn 1. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Friðrik Georgsson, Anna Jónsdóttir, Vilborg Georgsdóttir, Guðmundur Björnsson, Lovísa Georgsdóttir, Brynjar Hafdal, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ANNA MAGNEA BERGMANN, Hringbraut 77, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugar- daginn 1. mars. Útförin auglýst síðar. Böðvar Þ. Pálsson, Ásta Vigdís Böðvarsdóttir, Kristinn Vilberg Vilhjálmsson, Margrét Böðvarsdóttir, Anna Þóra Böðvarsdóttir, Lúðvík U. Smárason, barnabörn og barnabarnabörn. þú stendur á sviðinu einn því hvert sem þú fórst varðst þú miðpunktur allrar athygli, með einstökum per- sónutöfrum og hlýju áttir þú salinn. En nú ert þú farinn, sviðið er autt. Eftir sitjum við með minningu um einstakan dreng. Ég vona að fjölskylda þín og sér- staklega Axel þinn einkasonur geti fundið styrk í þeirri hlýju og vin- semd sem þú skildir eftir hjá okkur. Blítt og rótt breiðir nótt blæju um fjöll og voga. Augun þín, ástin mín, eins og stjörnur loga. Sonur kær! svefninn vær sígur brátt á hvarma. Sofðu rótt sumarnótt svæfir dagsins harma. (Jón frá Ljárskógum.) Elskaður og dáður ertu af okkur og öllum sem líf hvers þú snertir og við eru þakklát fyrir að hafa kynnst þér, því betri mann höfum við ekki fyrir hitt. Þínir vinir Ottó og Guðlaug. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.